Þjóðviljinn - 30.05.1952, Qupperneq 1
Föstudagur 30. maí 1952
17. árgangur
119. tölublað
Blóðugur bardagi á götum Parísar, lögregla skýtur
á motmælafund gegn Ridgway sýklahershöfðingja
Duclos, foringja Kommúnistaflokks Frakklands, varpaS i
fangelsi, mótmœlaverkföll skollin á
Fangelsi fyrir aS
gagnrýna
ráðherra
Alan Menderés, forsætisráð-
herra Tyrklands, hefur lagt
fram á tyrkneska þinginu
frumvarp til laga um að leggja
fangelsisrefsingu vi'ð því að
gagnrýna tyrkneska ráðherra
opinberlega. Fréttaritari Ass-
ociated Press i Istanbul segir
að talið sé víst að frumvarpið
verði samþykkt. Blaðamenn við
blöð andvíg stjórninni eiga þá
yfir höfði sér eins til sex ára
fangelsi ef þeir skrifa annað
en lof um ríkisstjórnina.
í fyrrakvöld sló í blóðugan bardaga á götum
Parísar. Lögreglusveitum var skipað að skjóta á mót
mælafund gegn komu bandaríska sýklahershöfðingj
ans Ridgways til borgarinnar. Féll einn maður en
hundruð særðust.
Eftir viðureignina létu yfirvöldin varpa Jacques
Duclos, foringja Kommúnistaflokks Frakklands,
fangelsi.
Einn maður, verkamaður af
arbaættum, beið bana af skot-
um lögreglunnar. Ekki hefur
verið birt tala óbreyttra borg-
ara spm særðust, en vitað er að
þeir skipta liundruðum. Skýrt
hefur verið frá að 37 lögreglu
þjónar hafi hlotið meiðsli, svo
leggja þurfi þá á sjúkrahús
þegar tekið var á móti kylfuá-
rás á mótmælafundinn. Um 700
ananns voru handteknir.
Stjórnarskrárbrot.
Fundur franska þingsins 1
gær snerist um handtöku Due-
lcs, sem auk þess að vera að-
alritari kommúnistaflokksins í
veikindaforföllum Maurice
Thorez er formaður þingflokks-
ins. Lesin var tilkynning frá
Charles Brun innanríkisráð-
herra, þar sem segir að í bíl
Duclos hafi fundizt hlaðin
skammbyssa, kylfa, útvarps-
tæki og tvær bréfdúfur. Duclos
verði ákærður fyrir að hafa
vopn í fórum sínum og fyrir
tilræði við öryggi ríkisins.
Ferdinand Grenier, einn af
þingmönnum kommúnista,
sagði að handtaka Duclos væri
stjórnarskrárbrot. Samkvæmt
stjórnarskránni eru þingmenn
friðhelgir nema þeir séu staðn-
ir að glæp og jafnvel þótt sak-
argiftirnar gegn Duclos væru
sannar hefði ekki mátt hand-
taka hann úr því að það var
ekki gert á staðnum þar sem
viðureign lögreglunnar og fund-
armanna var háð. Auk þess
væri ekki nema eðlilegt að Duc-
los hefði við hendina skotvopn,
því að ekki er nema ár síðan
honum var sýnt banatilræði.
Grenier kvað það kynlegt, ef
það væri saknæmara fyrir Duc-
los en þúsundir annarra
franskra bíleigenda að hafa út-
varpsviðtæki í bil sinum.
CGT hvetur til verkfalls.
Parísarblöðin I’Rumanité og
Liberation voru gerð upptæk í
gær annan daginn í röð fyrir
ðandalsgi mófmœlt é Yestur-
ierlfrs, lögregla feer unglinga
Þúsundir unglinga söfnuðust saman í Vestur-Berlín í
gærkvöldi og mótmæltu hernaöarbandalagssamningi
stjórnar Vsstur-Þýzkalands við Vesturveldin.
Jacques DucJos
að hvetja til mótmæla gegn
handtöku Duclos. Stjórn
franska Alþýðusambandsins
CGT, sem telur á fimmtu
milljón meðlima, hvatti í gær
til verkfalla til að mótmæla
handtökunni. Námumenn í kola
námunum í Norður-Frakklandi
lögðu niður vinnu þegar í gær.
Stjóru Suðnr-Kóreu í upp-
Iausn9 Rhee hundsar þingió
Leppstjórn Bandaríkjamanna í Suöur-Kóreu er í upp-
lau'sn vegna deilu Syngman Rhee forseta og þingsins.
Kirkjum mótmæl-
enda lokað
Kirkjuráð mótmælenda á ftal
•íu hefur samþykkt mótmæli
gegn „ofsóknum og fjölda of-
beldisverka og skerðingu trúar
bragðafrelsis á hinni kaþólskn
ítalíu". Séra Sbaffi, formaður
ráðsms, sagði blaðamönnum,
að innanríkisráðuneyti rikis-
stjórnar kaþólska flokksins á
ftalíu hefði látið loka mörgum
kirkjum mótmælenda og bann-
að þeim að koma upþ öðrum.
Um síðustu helgi setti Svng-
man Rhee herlög í Suður-Kór-
eu til að geta fyrirskipað hand-
töku níu þingmanna, sem hann
sakaði um að standa að komm
únistísku leynisamsæri gegn
sér.
Þingið neitaði í gær með 96
atkvæðum gegn þremur að
staðfesta tilskipunina um her-
lög og krafðist þess að þing-
mennirnir yrðu látnir lausir.
Rhee kvaðst myndi vjrða vilja
þingsins að vettugi, herlög yrðu
í gildi áfram og þingmönnun-
um yrði ekki sleppt.
í gær sagði varaforstinn af
sér til að mótmæla einræðis-
brölti Rhee og Kóreunefnd SÞ
gaf út yfirlýsingu þar sem
framkoma forsetans er gagn-
Truman (Bandaríkjaforseti
sendi Rayburn, forseta fulltrúa
deildar þingsins, bréf í gær og
fer þess þar á leit að veitt verði
3.341 milljón dollara til bygg-
ingar nýrra kjarnorkusprengjur
vera.
Hvítasimnuferð Æ.F.R.
Farið veröur í skálann klukkan 3 e.h. á morg-
un. Fylkingarfélagar og aðrir sem ætla að taka
þátt í feröinni hafi samband við skrifstofuna í dag
Efnt veröur til kvöldvöku og dansleiks í skálanum
um hátíöina. Einkunnarorðin eru: Fjör og
fjölmenni!
rýnd. Búizt er við að Rhee
fari sinu fram engu að síður,
þvi áð bandaríska herstjórnin,
sem ræður öllu í Suður-Kóreu
þegar allt kemur til alls, hefur
dregið taum hans í deilunni við
þingið.
Um 6000 unglingar Söfnuð-
ust saman á mótmælafund en
lögregla Vestur-Berlínar var
send á vettvang og réðst á
unglingana með kylfubarsmið.
Tugir unglinganna hlutu meiri
og minni meiðsli og vitað er
að 60 voru handteknir.
Krafizt dvalarleyfis.
Innanríkisráðuneyti Austur-
Þýzkalands tilkynnti í gær að
allir gestir frá Vestur-Berlín
og Vestur-Þýzkalandi yrðu
að verða á brott úr Aust-
ur-Þýzkalandi fyrir sunnudags
kvöld. Frá og með 1. júní yrðu
ferðamenn frá Vestur-Þýzka-
landi að fá sérstakt leyfi til
að dvelja í Austur-Þýzkalandi.
Ráðuneýtið kvað ráðstöfun
þessari beint gegn njósnurum
og skemmdarverkamönnum og
Árás á sendi-
fullfrúa
Tveir vopnaðir menn réðust
síðustu viku á hermálafull-
trúann við sendiráð Indónesíu
í Haag, Harjo undirofursta.
Hann var fluttur á sjúkrahús
vegna meiðsla á höfði, eftir
högg með skammbyssuskefti.
Hollenzka lögreglan vill ekkert
láta uppi um hvað rannsókn
málsins líður.
dvalarleyfisskyldan yrði þegar
afnumin ef samkomulag næð-
ist um kosningar um allt
Þýzkaland.
Ádenauer sent
kattarhræ
Árvakur póstmaður í Vestur
Þýzkalandi tók um sl. helgi eft-
ir grunsamlegum böggli, sem
skrifað var utan á til Aden-
auers forsætisráðherra, sem
nýlega var send sprengja í
pósti. — Sprengjusérfræðingar
voru kallaðir til og opnuðu
þeir böggulinn með viðeigandi
varúðarráðstöfunum. Út úr
honum valt úldið kattarhræ.
Krefjast þjóðnýt-
ingar bótalaust
Sambandsþing vélsmiða, eins
stærsta verkalýðssambands
Bretlands, hefur samþykkt á-
lyktun um iþjóðnýtingarmál. Er
þar skorað á Verkamanna-
flokkinn að lýsa yfir, að ef
íhaldsmenn geri alvöru úr því
að afnema þjóðnýtingu ýmissa
atvinnuvega, verði þeir þjóð-
nýttir á ný þegar Verkamanna-
flokkurinn komist til valda án
þess að einstakir eigendur fái
nokkrar bætur fyrir.
1 gær var lagður hornsteinn að Irafoss-
virkiuninni við Sogið
Áætlaðui heildarkostnaður mannvirkisins er 165
milljónir króna og stöðin á að framleiða 31000 kw
Hornsteinslagning hinnar nýju virkjunar við Sogift, írafoss-
stöftvarinnar, fór fram í gær að viftstöddum mörgnm gestum úr
Reykjavík og af SuífurlandsundirleKdi. Gunnar Thoroddsen
borgarstjóri flutti við það tækifæri stutta ræðu og lýsti þróun
virkjunarmálanna á undanförnum árum og þó sérstaktega að
þv?, er snertir virkjun Sogsins. Síðan lagði Jón Pálmason for-
seti Sameinaðs Alþingis hornstein virkjunarinnar f.h. liand-
hafa forsetavalds. Flutti hann við það tækifæri ávarp og árn-
aði Reykjavík, Hafnarfirði og Suðurlandsimdirlendi heilla í til-
efni af þessum merka atburði.
Stjórn Sogsvirkjunarinnar
bauð mörgum gestum austur til
þess að vera viðstaddir lagn-
ingu homsteins virkjunarinnar
sem fram fór kl. 3 í gær. Að
athöfninni lokinni var gestum
veittur beini í matskála starfs-
mannanna sem vinna að virkj-
unarframkvæmdunum. Til bæj-
arins var komið aftur kl. 7 i
gærkvöld.
•Áætlaður heildarkostnaður
Irafossvirkjunarinnar er 165
milljónir króna, þar af er stifla.
stöð og mannvirki við Irafoss
125 milljónir, háspennulínan til
Reykjavíkur 19 milljónir og að-
alspennistöðin við Reykjavik
21 milljón. .
Aðalsamningar um fram-
kvæmdir þessar voru undirrit-
aðir í júlí 1950. I ágúst sama
ár byrjuðu jarðýtur fyrstu
vinnuna að virkjuninni, en áður
hafði vegagerð ríkisins unnið
að vega- og brúagerð fyrir
virkjunina.
Hefur siðan verið unnið að
útgrefti og sprengingum aðal-
lega, en aðeins steyptur aust-
asti hluti stíflunnar með inn-
taki og botnrásum. Öllum
sprengingum er nú senn lokið
og aðaluppbyggingin, stein-
steypan, fer nú að hefjast.
Éignarhlutföll í Sogsvirkjun-
inni eru nú þau að Reykjavíkur-
bær á 85% en ríkissjóður 15%
en þegar Irafossstöðin er kom-
in upp er gert ráð fyrir að
Reykjavík eigi 65% en ríkið
35%.
Hin nýja virkjun er miðuð
við tvennar vélasamstæður á
fyrsta virkjunarstigi og á að
framleiða 31000 kw samtals en
stöðin verður gerð fyrir þrenn-
ar vélasamstæður fullvirkjuð.