Þjóðviljinn - 27.06.1952, Síða 3
ÍÞRÓTTIR
RlTSTJÓRl: FR.ÍMANN HELGASON
Föstudugur 27. júni 1952
ÞJÓÐVILJINN — (3
HUGLEIÐINGAR I SAMBANDI \S1I
ÍSLAADSGLÍMIJAA 1D52
Á því herrans ári 1952 átti
fþróttasamband fslands fer-
tugsafmæli. Það er efnt til
stórbrotinna hátfðáhalda. Dug-
leg nefnd undirbýr hátíðahöld-
in yfirleitt með myndarbrag.
Mönnum verður hugsað til
fyrstu ára sambandsins og
lengra, áranna áður. Mönnum
verður hugsað til þess hver
var undirrót stofnunar íþrótta-
sambandsins. Kunnugum ber
saman um að með endurvakn-
ingu íslenzku glímunnar hafi
raunverulega vaknað áhuginn
fyrir íþróttuan. Ungmennafé-
lögin tóku giímuna upp á
arma sína sem þjóðlega íþrótt
og báru hana fram til varð-
veizlu og eflingar og það svo
að hún hefur oft verið kölluð
þjóðaríþrótt íslendinga. Það var
því ekki undarlegt þótt afmæl-
isnefndin felldi sjálfa íslands-
glímuna inn í þessi afmælis-
hátíðahöld íþróttamanna. Með
því var henni verðugur sómi
sýndur. Þaðhefði því mátt ætla
að glímumenn hefðu fjölmennt
til þessarar afmælisglímu og eflt
með því þessa þjóðaríþrótt okk-
ar, sem- varð til þess að glæða
og vekja æsku landsins til
íþróttaiðkana, einmitt þegár
hún þurfti ný verkefni til að
sameinast um til stærri bar-
áttu.
Aðeins fjórir mættu
Það hefði því ekki verið mik-
ið þó til þessarar glímu hefði
mætt meiri fjöldi en nokkru
sinni fyrr, eða einn maður
fyrir hvert gengið ár íþrótta-
sambandsins. Því var nú ekki
að heilsa. Það mætti einn kepp-
anddi fyrir hvern liðinn tug
ára (! )• eða aðeins 4 menn úr
tveimur félögum: Ármanni og
UMFR. Vegna þessa fámenn-
is leið góð stund milli glím-
anna, svo hún varð slitrótt sem
heild og dauf fyrir áhorfend-
mr.
1 sögu Islandsglimunnar hafa
aldrei svo fáir mætt til keppni.
Á þessu fyrirbæri hlýtur að
vera til skýring eða skýring-
ar og væntaniega l.eita. glímu-
menn þeirra og gera sínar ráð-
stafanir.
Hvar voru Finniandsfararnir
og ailir hinir?
Alt þetta verður dálítið
skrítið þegar vitað er að á
bændaglímu fyrir viku síðan
voru 14 glímumenn í keppni á
sama stað og Islandsglíman
var háð, og þar glimdi aðeins
einn af þeim f jórum sem komu
til Islandsglímunnar. Þar mætti
Framhald á 6. síðu.
Knattspyrnu-
mótin
Knattspyrnumótunum i yngri
flokkunum og I. fl. hér í Rvík
er ýmist að Ijúka eða úrslit
komin.
Valur vann II. fl.
Úrslit urðu þau í II. fl. að
Vahr.r vann í aukaleik Ivið
Fram 2:1 eftiir að þau höfðu
orðið jöfn í sjálfri keppninni.
Valur fékk 7 stig + 2; Fram
7, KR 3, Víkingur 3 og Þróttur
0 stig.
Fram vann III. fl. A
I III. fl. A vann Fram, fékk
8 st., Valur 6, KR 4, Víking-
ur 2 og Þróttur 0. I III. B
hafa Valur og Fram keppt
tvisvar en ekki náðst úrslit, en
sú keppni fer fram í kvöld í
þriðja sinn.
Valur vann IV. fl.
I IV. fl. vann Valur B keppn
ina og á sunnudag áttu úrslit
að fara fram 'í A-sveit en þá
mæLtu ekki nógu margir Vík-
ingar til keppninnar.
Rússland keppir við
Fínnland á Olympíuleik-
vanginum í Helsinki á
sunnudag
Samkvæmt upplýsingum frá
finnska knattspyrnu samband-
inu hefur verið ákveðinn
landsleikur í knattspyrnú milli
Finnlands og Rússlands. Fer
leikurinn fram n. k. sunnu-
dag og verður keppt á Olymp-
íuleikvangnum í Helsinki. Eft-
ir sigur Finna yfir Svíum, sem
vakti gífurlega athygli, kemur
þessi leikur sem knattspyrnu-
menn víða um heim biðu með
eftirvæntingu. Þetta mun líka
fyrsti landsleikur Rússa í tíð
ráðstjórnarinnar sem þeir
keppa fyrir vestan svokallað
járntjald.
Þorst. Löve
kastar kringluimi
48,48 m.
I aukakeppni á I. S. I. mót-
inu kastaði Þorsteinn Löve
kringlu 48,48 m. Var þá logn,
en í vor hefur alltaf verið
vindur þegar mótin hafa farið
fram. Nú hefur Þorsteinn
sýnt að hann þarf ekki vind
til hjálpar til að ná toppár
angri sínum.
Torfi Bryngeirsson reyndi
3,90 í stangarstökki en fór
ekki yfir. Byrjaði hann á 3,75
og fór þá hvað auðveldlega.
Búið að draga í
knattspyrnu-
keppni Olympín-
leikanna
Fyrir nokkru var dregið um
það hverjir kepptu fyrst í
knattspyrnu þar sem úr því er
skorið hverjir komast á sjálfa
leikina: Noregur-Mexíkó, Hol-
land-Brasilia, USA-ítalía, Eg-
yptaland-Chile, Búlgaría-Sovét-
ríkin, Júgóslavía-Indland, Dan-
mörk-Grikkland, Rúmenía-Ung-
verjaland, Lúxembúrg-England,
Austurríki-Saar, Pólland-Frakk
land. — Hjá sitja: Antilerni,
Svíþjóð, Þýzkaland, Tyrkland
og Finnland. — Síðan dregið
var hefur Mexíkó dregið sig til
baka svo Noregur fer beint
til leikjanna. Leikir þessir hefj-
ast 12. júlí og verður lokið
áður en sjálfir leikirnir hefj-
ast.
Géöir fulltrúar
BlaSaummæli um Akranesliðið
$
Sportsmanden: (Úr leiknum
við Sparta) •— Markmaðurinn
verður að taka á sig minnst
þrjú af mörkunum. Annairi
var aftasta vörnin of kyrr-
stæð og auðvelt að opna hana.
Framverðirnir í meðallagi, en
framherjarnir sýndu leik sem
maöur sér sjaldan hér. Sér-
staklega var Ríkharður og
Þórður góðir. Slíka leikmenn
eigum við ekki hér í landi. Fyr-
ir framan mark mistókst allt
hiá bessum góðu Islendingum
og þess vegna gefa úrslitin
ekki rétta mynd af leiknum.
Sorpen í Sorpsborg: — Sér-
stakiega veitti maður athygli
hinum lágu sendingum, og að
leikmennirnir áttu gott með að
finna hvern annan. •— Liðið
átti bezfu menn sína í innherj-
unum og'miðframherja og sér-
síaklegá var hægri innherji
(Ríkharður) skotviss miðfram-
herjinn virtist ekki margbrot-
in en hann, fer vel með knött-
in og skipti leiknum vél. Vinstri
útherji var líka vel með.
Smaalenenes Autstidende:
ÍB Akranesss gerði stóráhlaup
á mark. ,,Kvik“ og unnu með
7—3. (Fyrirsögn) I.B., Akra-
ness var ágætur „ambassador-
er“ fyrir íslenzka knattspýrnu
og fyrir íslenzkar íþróttir yfir-
leitt. —
Sportsmanden: (Lillstrom
Boldke) það var sýnilegt að
íslendingarnir kunnu ekki tök-
in á hinum blauta- velli, en með
skallanum sýndu þeir leikni
sína. 1 hálfleik var staðan 1:1
eftir jafnan leik. I miðjum síð-
ari hálfleik var staðan 2:2 —
Akranes átti sína beztu menn
í markmanninum Sigurðssyni,
R. Jónssyni og Þórðarsyni. —
Akurnesingar koma heirn með
Gullfaxa í dag.
Keppni á Sautár-
Á morgun fer fram á Sauð-
árkróki keppni í frjálsum íþrótt
um milli Héraðssambands
Strandamanna og Ungmenna-
•sambands Skagfirðinga.
Keppt verður í eftirtöldum
greinum: 100 m, 400 m og
3000 m hlaupum; 4x100 m
boðhlaupi, kringlukasti, kúlu-
varpi, (spjótkastií, langstökki,
þrístökki og hástökki.
Gert er ráð fyrir að þátt-
takendur í mótinu verið 22, 10
frá Strandamönnum og 12 frá
Skagfirðingum.
Sumarið 1950 kepptu Skag-
firðingar og Eyfirðngar í frjáls
um iþróttum. Þá fóru leikar
þannig að Skagfirðingar báru
sigur úr býtum, fengu 61 stig
en Eyfirðingar 59 stig.
nsicii o
ísafjarðarfarar Þróttar
Aftari röð frá vinstri: Óli B. Jónsson, fararstjóri, Magn-
ús Pétursson; Hjörtur Hjartar; Haraldur Eeyjólfsson;
Ari Jónsson; Guðmundm H. Björnsson; Jóh Guðmunds-
son, Emií Emilsson; Halldór Backmann; Gunnar Aöal-
tteinsson; ívar Nikulásson; Tryggvi Eyjólfsson; Björn
\rnason. Neðri röð frá vinstri: Þorvarður Guðjónsson;
Tomas Sturlaugsson: VViIJiam Shirreffs; Gunnar Eyland;
Guðmundur Gústafsson; Jón Ásgeirsson; Sigurgeir
Bjarnason. — Myndin ér tekih er þeir lögöu af stað
síðastliðinn föstudag. (Ljósmynd: Lárus Sigurgeirsson).
•í eldavélar og smámiðstöðvarkatla komnir aftur. -
Verð kr. 585,00. Sendum gegn póstkröfu um land 'f
aUt. f
)
)
)
)
i MsnússoR & Co.
Hafnarstræti 19.
Sími 3184.
tSS8SSSSSSSi;SSS2SSSS;SSSS!5SSSSSSSS?SS2S2SSSS.,SS8SS£SSSSSSSSSSSSSSíSS?SSS5SSSSSSS«SSSSSSSS£SSSSSí;a
Samkvæmt beiðni málaflutningsskrifstofu Sig-
urgeirs Sigurjónssonar hrl. fer fram opinbert upp- C
boð á ýmsum erlendum og innlendum húsgögn- ||
um, gólfteppum, málverkum o.fl. í Listamanna- j|
skálanum íimmtudagmn 3. júlí n.k. og hefst kl 2
e. h. pí
Það, sem selt veröur er m.a. 1 sett dönsk dag- §|
stofuhúsgögn meö góbelin-áklæði, útskorinn
. maghony-skápur með spegilgjeú', frönsk antil
klukka. danskt skatthol, 1 sett sænsk svefnher-
bergishúsgögn, 7 gólfteppi, útlend og innlend
málverk, 1 Roccoclc-skrifborð, flygill og fleiri
mjög eiguleg húsgógn og skrautmunir.
Munirnir verða til sýnis fyrir uppboðið í Lista-
mamiaskálanum miðvikudaginn 2. júlí kl. 1—7
. e.h. og fimmtudaginn 3. júlí kl. 9—12 f. h.
Skrá yfir munina er hægt að fá á málaflutn-
ingsskrifstofu Siguigeirs Sigurjónssonar, hrl. Að-
alstræti 8.
Greiðsla fari fram við hamarshögg. §g
ÍS - §s
§§ Borgarfógetinn í Reykjavík §|
•2 ■