Þjóðviljinn - 08.07.1952, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 08.07.1952, Blaðsíða 5
4) — t>JÓÐVILJINN — Þriðjudagur 8. júlí 1952 Þriðjudagur 8. júlí 1952 — ÞJÓÐVILJINN — (5 liióeviuiNN XJtgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.) Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason. Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Magnús Torfi Olafsson, Guðmundur Vigfússon. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. — Sími 7500 (3 línur). Áskriftarverð kr. 18 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 16 annarataðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. X____________________________________________________—— Þjéðin og stjórnarstefnan Svo illa þokkuð er núverandi ríkisstjóm af öllum almenningi að leitun er að þeim manni sem telur sig ánægðan með ríkis- stjómina og stefnu hennar. Það er sama hvort rætt er við verkamenn, sjómenn, bændur, skrifstofumenn, verzlunarmenn, iðnaðarmenn, útvegsmenn eða yfirleitt hverja af starfsstéttum þjóðfélagsins sem er, það tilheyrir algjörum undantekningum finnist nokkur maður sem lýsir sig fylgjandi ríkisstjórninni og stefnu hennar eða reynir að taka upp málsvöm fyrir hennar hönd. Ekkert er eðlilegra en að þannig só viðhorfið til ríkisstjórnar Framsóknarflokksins og $jálfstæðisflokksins. Stefna hennar og starf hefur verið með þeim hætti að engan þarf að undra þótt hún eigi fáa formælendur. Hún hefur haldið þannig á málum þjóðarinnar að við sjálft liggur að atvinnuvegum landsmanna sé siglt í algjört strand. Að vísu er sökin ekki núverandi ríkis- etjórnar einnar. „Fyrsta stjóm Alþýðuflokksins á íslandi hóf þá starfsemi árið 1947 sem núverandi stjórn Framsóknarflokks- jns og $jálfstæðisflokksins er að fullkomna. Stjórn Stefáns Jóhanns hafði forustuna um þær tugmilljónaálögur á herðar al- þýðu sem voru upphafið að þeirri miklu ránsherferð sem síðan liefur staðið yfir á hendur íslenzkum almenningi og kórónaði síðar verk sitt með bindingu kaupgjaldsvísitölunnar. Og þótt ,,Alþýðuflokkur‘ ‘ Stefáns Jóhanns og félaga hans hafi síðustu árin kosið að leika stjórnarandstöðu vegna fylgis- hruns í kosningunum 1949 hefur það ekki farið fram hjá nein- um að í öllum grundvallaratriðum er hann sammála þeim aftur- haldsflókkum tveim sem fara nú með ríkisstjórn. Stefán Jóhann og lagsbræður hans hafa aldrei sleppt nokkru tækifæri til að lýsa eindregnu fylgi sínu við marsjallstefnuna og engir hafa verið auðmýkri í hverskonar þjónustu við ágengni og yfir- troðslur amerísks auðvalds á íslandi. En til þrældómsfjötra marsjallkerfisins og undansláttarins við amerísku yfirgangs- etefnuna má á óyggjandi hátt rekja allar árásirnar á lífskjör íslenzkrar alþýðu og það öngþveitisástand allt sem ríkjandi er í efnahagsmálum landsins. Þannig er „Alþýðuflokkur“ Stefáns Jóhanns & Co. algjörlega Eamábyrgur hinum afturhaldsflokkimum tveim um hvernig komið er. Hann hefur lagt iþeim til öruggustu trygginguna fyrir .því að ránsherferðin á hendur alþýðu mætti takast, með þvi að lama baráttu verkalýðsfélaganna og gera Alþýðusamband Islands óvirkt sem baráttutæki verkalýðsstéttarinnar. Sá þungi dómur sem íslenzkur almenningur kveður nú hvar- . vetna upp yfir öngþveiti atvinnuleysis og dýrtíðar, yfir skatta- og tollaáþjáninni, yfir vaxandi fátækt og skorti á þús- ijndum alþýðuheimila er um leið áfellisdómur yfir sameiginlegri pólitík þríflokkanna allra, Alþýðuflókksins, Framsóknar og $jálfstæðisflokksins. Gegn flokksklikum allra afturhaldsflokkanna þarf sú sókn að beinast sem þjóðin verður að hefja til þess að binda endi á nú- verandi ástand í atvinnumálum og skapa skilyrði fyrir nýrri og gjörbreyttri stjómarstefnu, þar sem hagsmunir hinnar vinnandi þjóðar sitja í fyrirrúmi. En það eru ekki einungis brýnustu hagsmunir íslenzkrar verkalýðsstéttar sem nú eru í húfi. Öngþveitið og uppgjöfin sem stjórnarstefnan einkennizt af, er mál sem varðar yfir- gnæfandi meirihluta allrar þjóðarinnar. Starf og stefna nú- verandi ríkisstjórnar ógnar afkomu og hag allra landsmanna, að undanskilinni fámennri en voldugri auðklíku sem skipar rikisstjórninni fyrir verkum og rakar saman auð og eignum á athöfnum* hennar. Vald þessarar auðklíku og ríkisstjómar hennar verður ekki brotið á bak aftur nema með einbeittri sókn íslenzkrar alþýðu og bandamanna hennar. Undirbúning þessarar sóknar fólksins þarf nú að hefja í öllum hagsmunasamtökum þess með sem nánustu samstarfi verkalýðsins og þeirrar fjölmennu milli- stéttar sem ránstarfsemi auðklíkunnar og ríkisstjórnarinnar er að svifta öllú sem henni hefur áskotnazt á undanfömum árum. Þjóðarhagsmunir krefjast þess að ríkisstjóm Framsóknar og $jálfstæðisflokksins víki. Það mikla verkefni bíður því þjóðar- innar hæst þegar 'kosið verður til Aliþingis að svifta þessa flokka áhrifum og tiltrú og leggja þar með grundvöllinn gð Uýrri og gjörbreyttri stjórnarstefnu. Flugfélag: Islands: 1 dag verður flogið til Akureyr- ar, Vestmannaeyja, Kirkjubæjar- klausturs, Fagurhólsmýrar, Horna- fjarðar, .Vatneyrar og Isafjarðar. Skemmtiferð Kvennadelldar Slysavarnarfél. ~ verður farin n.k. föstudag 11. júlí, kl. 6.30 f.h.. Tvær góðar myndir Farið verður um Borgarfjörð. Ali- ar nánari upplýsingar varðandi er SVO STING ég upp á því ferðalagið verða gefnar á skrifst. að Sinfóníuhljómsveitin okkar féiagsins, sími 4897. verði látin leika þjóðsönginn á plötur og þær leiknar í stað þeirrar dönsku, sem hef- Tillaga um útvarpseíni SÆLL, Bæjarpóstur. Það Sósi enn einu sinni. — Fyrir nokkru síðan datt mér ofurlít- ið í hug, sem ég vildi biðja þig að birta (ef einhverjum af forráðamönnum Ríkisútvarps- ins skyldi óvart verða litið í dálka þíná). — Hugmyndin er þessi: Útvarpið hefji ca 20 mínútna þætti er nefnist UM ÞESSAR mundir gefst völ Unglingaþættir, Leiðbeininga- á tveimur góðum kvikmynd- Happdrætti Háskóla Islands.. Dregið verður í 7. flokki á , , ,, , , .. . fimmtudag. Vinningar eru 750, ur nu um tuttugu ara skeið auUavinningar 2, samtais 3392000 leikið hann. — Sósi. kr. I dag er næstsíðasti endur- nýjunardagur. þættir eða eitthvað þesshátt- ar. Tilgangur þáttanna sé að leiðbeina unglingum, með hjálp fagmanna, við val á bókum, bókmenntalegs og fag- um. Nýja Bíó sýnir frönsku myndina Drottinn þarfnast þjóna. Hennar hefur áður ver- ið að góðu getið hér í blaðinu og er því óþarfi að fjölyrða 8.00—9.00 Morg- unútvarp — 10.10 Veðurfregnir. 12.10 — 1315 Hádegis- útvarp. 15.30 Mið- degisútvarp —• 16.30 Veðurfregnir. 19.25 Veður- ,, , ,.„ fregnir. 1930 Tónleikar: Óperettu- legs eðlis, t. d. um malara- um hana, en myndm er goð. lög(piötur) 1945 Auglýsingar 2o.oo list, höggmyndalist hannyrð- Norðmenn koma mjög á ó- Fréttir. 20.30 Erindi: Edvouard ir, iðnir, tómstundaföndur, og vart með nýrri mynd í Herriat forseti franska þingsins yfirleitt það sem unglingar Stjörnubíói. Fjallar hún um (Baldur Bjarnasen mageister). hefðu áhuga á að kynna sér. mann á flótta, en margir 20.55 Undir ijúfum lögum: Lulu Fagmenn þeir sem valdir eru hafa spreytt sig á því efni og Ziegier syngur alþjóðieg dægur- í hvert skipti læsu þá kafia misjafnlega famazf. — Mynd Cari Biilich leikur undir. úr góðri skáldsögu, eða bentu þessi hefur þann hraða í at- 21-*5 íþrottaþáttur - (Sigurður sig- á góðar bækur um ýms efni, burðarás sem kvikmyndinni er uson.' ' . on 61 ar p° u,r'.' gæfu upplysmgar um það eiginlegt. Serstaklega hefur Carl Nielsen (Hijómsveit danska hvar hægt væri að fá slíkar þeim farið fram í tækni (foto- utVarpsins leikur; Erik Tuxen bækur, nefndu útgefendur, grafíu). Er sennilegt að með stjórnar. 22.00 Fréttir og veður- þessari mynd þröngvi Norð- fregnir. Frá iðnsýningunni (Björn menn sér inn á bekk fremstu Haiidórsson framikvæmdastjóri). höfunda, verð osfrv. Hvað viðvíkur tónlist, mætti leika kafla úr þeim tónverkum sem bent er á, segja frá höfundi þeirra, tónlistargildi, og ef um fáanlegar grammofónplöt- ur af þeim er að ræða, þá benda á þær. Hvað finnst þér um þetta? Um gildi slíkra þátta finnst mér ekki verða deilt, og varla trúi ég því að þeir reynist Ríkisút- varpinu ofviða fjárhagslega. kvikmyndaþjóða. 22.20 Kammertónleikar (plötur): Duo í A-dúr fyrir fiðlu og píanó op. 162 eftir Schuhert (Kreisler og Rachmaninoff leika). 22.45 Dagskráriok. Læknavarðstofan Austurbæjar- skólanum. KvÖIdvörður og nætur- vörður. — Sími 5030. Næturvarzla er í Laugavegsapó- teki. — Sími 1618. Rafmagnstakmörkunin Þriðjudagur 8. júlí (Selju- . Nágrenni Rvíkur, umhverfi Ell- ÞAÐ ER að minnsta kosti víst, mannamessa). 190. dagur ársins. iðaánna vestur að markalínu frá að meiri rækt þarf að sýna — Tungl næst jörðu; í hásuðri Flu&skalavegri vxð Viðeyjarsund, unglingum af hálfu Ríkisút- kk 109. - Árdegisnóð ki. 6.00. vestur að Hhðarfætx og þaðan U1 varpsins, því margir þeirra s>ðdegisfioð ki. 18.25. mundu eflaust taka fegins- fjara kl. 12.12. sjávar við Nauthólsvík í Fossvogi. Laugarnes, meðfram Kleppsvegi, Mosfellssveit og Kjalarnes, Árnes- hendi örfun af þessu tagi, EIMSKip. og Rangárvailasýslur. og notfæra sér leiðbeining- Bruarf0M fór fra Rvik 47 til ar. Ég hefi sjálfur enga ofsa- n. Y. Boulogne og Grimsby. Detti Landsbókasafnlð er opið kl. 10— trú á fróðleiksfýsn unglinga, foss fór frá Vestmannaeyjum 30.6 12> 1—7 °g 8—10 alla virka daga en 'hvernig væri nú að ein af til Baltimore og New York. Goða- nema laugardaga kl.10—12 ofe 1—7, áhrifaríkustu menningarstofn- foss er í Khöfn. Gullfoss fór í’jóðskjalasafnið er opið kl. 10 12 unum ríkisins reyndi sitt til ** Rvík 5.7 til Leith og Khafnar. 0&2-7 alla virka daga nema laug- að minnka ofurlítið bann eirð- Lagarfoss fór fra Hamborg 4.7 ardaga yfir sumarmanuðma kl. I lil Norðfjarðar. Reykjafoss kom 10-!2. - Þjóðmlnjasafnið er lok- arlausa hop unglinga sen tu Gautaborgar 6 7 írá Alaborg. að um óákveðinn tíma. — Lista- rapar um gotur borgarmnar Selfogs fór frá NorgfirSi i 7 til safn Einars Jónssonar er opið kl. á kvöldin, hangir inni á daun- Bremen og Rottedam. Tröllafoss !<20—3,30 á sunnudögum. — Bæj- illum krám, sötrar ropdrykki for fra New York 2.7 til Rvíkur. arbókasafnið er opið kl. 10—10 og hristinga, í kæfandi tó- alla virka daga nema laugardaga baksstybbu. Þessir ungiing- Sklpadelld S.I.S. kl- 1—4. Náttúrugripasafnlð er ar eru það sem koma skal, Hvassafell er á leiðinni til Is- opið kk 10—-10 á sunnudögum kl. og einhvem veginn finnst mér Iands frá Flekkefjord. Arnarfell 2.15-4 og fimmtudaga kl. 1.30 til að tómstundaeýðsla eins og er 1 stettin- Jökulfell átti að fara 230_ Þjoðmlnjasafmð er opxð sú sem hér er lýst muni ekki frá Rvik 1 8«rkveldi áleiðis til Þrxðjudaga og fxmmtudaga kl. . New York. 1—3 og sunnudaga kl. 1—4. vera heppilegasta Ieiðm til að gera þá að sæmilegum borgurum. En þeir eru raun- verulega í stökustu vandræð- um með sjálfa sig, og þao „Áframlialdandi vinátta mun stuðla að aukinni kjnningu þjóðanna og gagnkvæmum skilningi44 Avazp Alexandr Klimov, varaforseia samvinnusambands Sovétríkjanna, flutt á hátiðarfundi Sambands íslenzkra samvinnufélaga í Tjarnarbíó Á hátíðarfundi SÍS I Tjarnarbíói s.I. föstudag fluttu allmargir innlendir og erleodir gestir kveðjur og árnaðaróskir I tilefni 50 ára starfsafmælis Sambandsins. Hér fer á eftir ávarp Alex- andr Klimov, varaforseta samvinnusambands Sovét- ríkjanna. Herra forseti, góðir áheyr- endur! I fyrstu .vil ég leyfa mér að flytja fram þakkir til Sam- bands ísl. samvinnufélaga og allra islenzkra samvinnumanna frá rússneska samvinnusam- bandinu og þeim 32,5 millj. manna, sem það telur innan vébanda sinna, fyrir hið vin- samlega boð yðar um að sitja þing yðar, kynnast landi yðar og þjóð og samvinnuhreyfing- unni, og ég færi yður alúðar- kveðjur og beztu óskir frá rússneskum samvinnumönnum. Mér er ljúft að skýra yður frá daglegu starfi þeirra og stuðla þannig að gagnkvæmri vináttu og skilningi þessara tveggja friðelskandi þjóða. Fuli trúar samvinnumanna í Sovét- ríkjunum hafa hlotið hlýjar móttökur í hinu kalda landi yðar. Samvinnumenn í Sovétríkj- unum vita, að samvinnuhreyf- ingin á íslandi. hefur náð mikl- nm þroska, þrátt fyrir mikia erfiðleika. Meira en 65% allrar þjóðar- innar nýtur góðs af samvinnu- starfsemi í einhverri mynd. Þessi staðreynd veitir okkur réitt til að -hylla yður „alþýðu manna“ í þessu litla en gest- risna landi, þessa hraustu menn, sem hafa þjálfað hug og hönd í baráttu við úfinn sæ og í stöðugri sjálfstæðisbaráttu. I hjarta höfuðborgar yðar gátum vér ekki gengið ósnortn- ir fram hjá minnismerki Jóns Sigurðssonar, baráttumannsins, sem barðist fyrir frelsi og siálfstæði þjóðar sinnar á 19. öldinni. Við höfum veitt því athygli, að styttan er nafn- laus — þar sem sérhvert mannsbarn hlýtur að þekkja nafn sjálfstæðishetjunnar. Við Sovétþjóðimar skiljum þetta vel, því að fyrsta skylda hverrar þjóðar er að berjast fyrir fullveldi sínu. Við erum hingað komnir til að styrkja vináttuböndin við land yðar og þjóð, sem hefur átt sér þjóðlega menningu og höfunda, sem hafa gert ís- lenzkar bókmenntir víðfrægar. Við erum hingað komnir til að treysta vináttuböndin við íslenzka samvinnumenn og ís- lenzka samvinnu. Áframhaldandi vinátta mun stuðla að aukinni kynningu þjóðanna og gagnkvæmum skilnjngi — ekki aðeins milli samvinnuhreyfinga beggja þjóða, heldur og þjóðanna sjálfra. Við erum sannfærðir um, að hvorki jámtjald né tortryggni getur staðið í milli friðelskandi þjóða. Með aukinni kynningu þjóðanna hverfa landamörk, sem oftast eru tilbúin í því skyni að ala á úlfúð og tor- tryggni meðal alþýðunnar. Við erum hingað komnir sem samvinnumenn, og þess vegna verðum við fyrst af öllu að tala um frið, því að „sam- vinna“ og „stríð“ eru ósam- ræmanleg hugtök. Mörgum ósannindum er dreift um föðurland okkar. Óvinir friðarins vilja hylja yfirgangsstefnu sína ;— þeir vilja, eins og segir í orðskviði vorum, „kasta sökinni á ann- an“. Sovétþjóðimar vilja ekki stríð. Ekki vegna þess, að þær séu veikar, heldur vegna hins, að styrjaldir eru andstæðar mannúðarhugmyndum þeim, sem íagðar voru til grundvall- ar við stofnun hins nýja sósíal- istíska þjóðfélags okkar. Það er stutt síðan Sovétþjóð- irnar háðu baráttu fyrir frelsi og sjálfstæði. Þær hafa staðið af sér mikla erfiðleika og tjón. Sovétríkin hafa unnið sigur, en milljónir af beztu sonum iþeirra hafa fallið í valinn í broddi lífsins. Sovétþjóðirnar vita hvað styrjöld er, og þess vegna berjast þær gegn því böli af alefli. Við biðum mikið efnahagslegt tjón vegna styrj- aldarinnar, þar með talin sam- vinnufélögin. 1 þeim héruðum, sem her- numin vom um stundarsakir, voru verzlanir neytendafélag- anna eyðilagðar, og ránshendi farið um eigur þeirra. Af þess- um sökum neyddust 54% allra neytendafélaga og 47% héraðs- samvinnufélaga til að hætta allri starfsemi. Mestur varð skaði samvinnufélaganna í Úkraínu og Hvíta-Rússlandi Að unnum sigri í styrjöld- inni hurfu Sovétþjóðimar enn á ný til friðsamlegra starfa. Á skemmri tíma en dæmi voru til, 5 árum, vom sár okkar grædd, og allt það, sem styrjöldin lagði í rústir, endur- byggt. 'Iðnaðar- og landbúnaðarfram- leiðsla er nú miklu meiri en á árunum fyrir stríð. Iðnaður Sovétríkjanna hafði tvöfaldazt á árinu sem leið, ef miðað er við árið 1940. Miklar framkvæmdir eru hafnar við Volgu, Don og Dniepr, og verið er að grafa hinn stórkostlega Turkmenian- skurð við Amu-Darja. Nýtt orkuver, með 22 billj. kw. st. orku er nú verið að byggja. Til að berjast við þurrka 'er unnið ötullega að skóggræðslu og eitt mikilvægasta áform okkar er hið mikla áveitukerfi fyrir Kara-Cum eyðimörkina og ALEXANDR KLIMOV steppurnar á Úkraínu og Krím. Landsvæði það, sem áveitan nær til, er 28 millj. hektarar að flatarmáli, en iþað er stærra en flatarmál Englands, Belgíu, Holiands, Svisslands og Dan- mérkur samanlagt. Einu fyrsta áformi kommún- ismans, skipaskurði milli Volgu og Don, hefur nú verið hrundið í framkvæmd, og nú er Moskva hafnarborg fimm hafna, Hvíta- hafs, Kaspíahafs, Eystrasalts, Asov-hafs og Svarta-hafs. Slíkt stórvirki krefst geysilegr- ar fjárfestingar og millj. verka manna. Getur land, sem er að búa sig undir stríð, varið svo miklum fjármunum til upp- byggingarstarfs ? Vissulega ekki. Hvers vegna hrinduzn við slíkum stórvirkjum í fram- kvæmd ? Til þess að skapa gnægð framleiðsluvara og efnislegra verðmæta fyrir þjóð félag okkar og til þess að gera líf mannsins hamingju- ríkt. Á þessu ári gekk í gildi fimmta . verðlækkunin á mat- vælum og iðnaðarvörum. Kaup máttur launa verkamanna og starfsmanna okkar fer óðum vaxandi, svo og tekjur sam- yrkjubúa og samyrkjubænda. Bætt lífsskilyrði Sovétþjóðanna eru menningu og listum mikil lyftistöng. Starfsemi neytendafélaga í Sovétríkjunum eykst, um léið og efnahagsástand þjóðarinnar batnar. Neytendasamtökin eru nú stærstu efnahags- og þjóðfé- lagslegu samtökin innan Sovét- ríkjanna. Þau sameina 32 millj. félagsmanna í 26 þús. sam- vinnufélögum, sem mynda 3.680 héraðssambönd og 194 stærri samtök. Vöxtur og viðgangur sam- vinnufélaganna í Sovétrikjun- um byggist á sjálfstæðu starfi meðlimanna og grundvallarregl um lýðræðis í nánu samræmi við almennar reglur samvinnu- hreyfingarinnar. Allir þeir að- ilar, sem annast stjórn og eftir lit í samvinnufélögunum eru kosnir á lýðræðislegan hátt, og þeir eru ábyrgir gagnvart meðlimunum. Verzlun er aðalþátturinn í starfsemi neytendasamtakanna í Sovétríkjunum. Þau eiga 150.000 verzlunarfyrirtæki. Árið 1950 var smásöluvelta neytendasamtakanna stórum meiri en árið 1940. Vísitala smásöluumsetningar var 137 árið 1950 miðað við 100 árið 1940. Samanborið við 1950 hefur umsetningin nú aukizt um 16%. Á stríðsárunum ráku neyt- endasamtökjn umfangsmikla verzlunarstarfsemi — ékki að- eins á sviði matvæla, vefnaðar- vöru og skófatnaðar og fatn- aðar, heldur einnig með aðrar vörutegundir , svo sem vöru- bíla, fólksbíla, bifhjól,,skilvind- ur, kol, benzín, byggingarefni, sement, útvarpstæki o. s. frv. Framhald á 7. síðu. Leikflokkur Gunnars Hansen sýnir............... MORÐtNGJAR" ★ EFTIR GUÐMUND KAMBAN Á NORÐUR- OG AUSTURLANDI 1 síðustu viku áttu Akureyr- ingar þess kost að njóta listar, sem skarar langt framúr því, sem þeim er boðið uppá að jafnaði í þeim efnum. Leik- flokkur Gunnars R. Hansens frá Reykjavík var hér á ferð og sýndi leikritið „Vér morð- ingjar“ eftir Guðmund Kamb- an. Tilgangur leikflokksins er að hafa sýningar víðsvegar um verður, því miður, að setja 146 dagur Urti-nl- í rmwiRnn^ mA l'Ví-1 beint í samband við þá hryggilegu staðreynd að það opinbera virðist ekki bera næga umhyggju fyrir þeim sem arftökum landsins. Hér eins og áður rekst maður á virðingarleysi fyrir því mann- lega, í hvaða formi sem það birtist. ★ ÞAÐ VAR nú ekki meiningin að varpa allri ábyrgðinni á hinar breiðu herðar Ríkisút- varpsins, né heldur að ætia því lausn þessa alþekkta vandamáls, en það stendur ó- umdeilanlega í valdi þeirrar stofnunar að leggja fram sinn skerf til hjálpar, og ég er sannfærður um að út- varpsþættir eins og lýst hef- ur verið mundu vekja áhuga margra unglinga, og þá er strax mikið unnið.: Slíka til • raun finnst mér beri að gera. Hvernig heldurðu að þetta mundi enda hér á jöi-ðunni, ef sérhver vinnugjafi færi að skipta tekjum sínum með verkafólki sínu? Hvíiíkri byltingu ylli það ekki — enginn ríkur, enginn fátækur, enginn hermaður, þnginn emír. Heldur þú . að Altah murxdi sætta sig við slíkt? Hocisja Nasreddín sparn fæti við hverfi- skiiunni og setti hana aftur af stað. Þetta verður stórfín krukka, sagði hann, hljóm- ska r eins og höfuð emírsins. —. Varaðu þig, Hodsja Nasreddín, að þú verðir ekki gerður - höfðinu styttri fyrif' þvilik. xor,ð,. Fuss, sagði Hodsja Nasreddín, það yrði enjum leikur að gera Hodsja Nasreddín höfði styttri. — Og hann fór að syngja nxðkvæði um emírinn og soldáninn og sjeiinn í Persíu og kanann í. Kxvu sem aiia- fýsti að drepa haxan. *■ ... ••,5 • ■ ' ■; ■ ■ ■ ■ *-- ,» -V.(- En ég er sonur fólksins og ljúflingur þess, söng Hodsja Nasreddin, og örlögin eru mér hliðholl, ég skopast að soldáninum, emim- um og kananum, þvi ég er minn eigin herra, ég vil lifa, ég vil syngja, — ég ætla mér alls ekki að deyja. Norður- og Austurland á næstu vikum og væri það illa farið ef almenningur í þeim lands- hlutum kynni ekki að meta þá viðleitni, s«n þar kemur fram, að gera leiklistina, sem oft er nefnd list allra lista, að veru- leika Oeiriam en þeim, sem í höfuðstaðnum búa. Leikrit það, sem okkur er boðið uppá er heldur ekki af lakari endanum, og ber það þess Ijósan vott, að þessir góðu gestir eru bjartsýnir á leiklistarsmekk fólksins út uni landsbyggðina og er vonanii að sú bjartsými eigi eftir að eflast heldur en hitt. „Vér morðtngjar“ fjallar um efni, sem oft hefur verið tekið til meðferðar af leikrita- og skáldsagnahöfundum, og ærið oft méð misjöfnum árangri. Hér er því raunar ekki um nýtt eða óvenjulegt efni að ræða, en Kamban var mikill listamaður í sinni grein og því hefur hon- um tekizt að skapa listaverk úr þessu annars hversdagslega efni, listaverk, sem er gætt frumleik og skáldlegu innsæi og seint mun fymast yfir. Það er ..hjónabandsþr.'hyrn- ingurinn“ svonefndi, sem leik- ritið fjallar um. En einsog leikstjórinn, Gunnar R. Han- sen, segir um leikritið í leik- skrá: .Jíýjung og sérkenni leiksins felst í því, að hann fjallar'. ekki ,sem fyrri sjón- lejkir, fyrst. og fremst .utn af- brýðisemi, hann er drama .um tryggð og brigð". 1 leikslok erum vér raunar engu nær ijm lausn þeirrar gátu, sem leikritið fjallar um á svo óvenjulegan og frum- legan hátt. En vér fáum að skyggnast nokkuð undir hönd höfundarins eftir orsökunum að þeim harmleik, sem hann bregður þarna upp. Orsakimar eru margvíslegar en eiga þó flestar rætur sínar í spilltu og úrkynjuðu þjóðfélagi. Og uppúr þessum görótta jarðvegi er Norma Intýre sprottin. Hún. er ekki verri eða spilltari en efni standa til þegar á allt er litið, hún er aðeins barn' síns tíma og þess umhverfis, sem hún lifir og hrærist í. Gallar hennar eru óneitanlega marg- ir en henni engan veginn að öllu leyti sjálfráSir. og þar af leiðandi er ekki liægt að hata hana eða fyrirlíta þrátt fyrir takmarkalausa eigingirni og blekkingaleik. Tvö höfuðhlutverk leiksins, Érnest Mc Intyre uppfinninga- maður og Norma kona hans eru leikin af Gísla Halldórssyni og Ernu Sigurleifsdóttur. Leik- ur þeirra í þessum hlutverkum er enn ein staðfesting á því, að þau eru í fremstu röð þeirra *leikara íslenzkra, sem stærst fyrirheit gefa, og enda þótt þau eigi ekki langan leik- feril að baki, hafa þáu slegið því föstu, að þeim er triiandi Framhaid á 7. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.