Þjóðviljinn - 14.08.1952, Síða 4

Þjóðviljinn - 14.08.1952, Síða 4
4) _ ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 14. ágúst 1352 PIÓÐVILIINN Ekar Olgeirsson íimmtognr Þennan 14. ágúst hyllir ÞjóSviljinn Einar Olgeirsson fimm- tugan, fagnar því — eins og f>vt er fagtiað á fj'álmörgum íslenzkra alþýðuheimila — að eiga hann fremst 1 fylkingarhrjósti, enn t vexti sem alþýðuleiðtoga og stjórnmálamann, og þó bet hann þegar hátt t sógu íslenzkrar verkalýðshreyfingar, t Islandssögu. Hér skal einungis á það minnt hve nátengdur Þjóðviljinn er og hcfur verið þjóðmálastarfi Einars, einmitt þetta hlað hefur ásamt tímaritinu Rétti verið aðalvopn hans; hann átti mestan hlut að þvi að útgáfa þess hófst með hinu sögufrcega nafni blaðs Skúla Thor- oddsen á ofanverðu ári 1936. Blaðamennska var honum ekki ný hardagaaðferð, hann hafði sem ritstjóri Verkamannsins á Akureyri hafið það blað til vegs með hressandi stormi ungs eldmóðs og dýrra hugsjóna, og jafnframt sinnt af kostgœfni dagíegu.m verk- cfnum stéttabaráttunnar á Norðurlandi. 1 enn ríkara mæíi naut 'Einar sín sem herskár blaðamaður eftir að hann flutti suður og varð ritstjóri Verklýðsblaðsins og síðar Þjóðviljans. Róttækt, sósi- alistiskt dagblað hafði islenzka alþýðu dreymt um lengi og loks er þeim áfanga var náð tók hreyfingunni að fleygja fram, einangrun- arfjötrarnir brustu hver af öðrum. Þáttur Þjóðviljans, undir rit- stjórn Einars Olgeirssonar, i stórsigrum næstu árin, kosningasigr- inum 1937 og stofnun Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalista- 'fiokksins, verður vart ofmetinn — þó það sé að sjálfsögðu aðeins cinn þáttur af mörgum. Eins er um þátt Þjóðviljans i sókn og vörn íslenzkrar verkalýðshreyfingar, i sókn og vörn fyrir lýðveldis- stofnun og nýsköpun, fyrir sjálfstæðí íslands, islenzkri menningu og þjóðerni. Þegar i fyrstu stjórnmálagreinum Einars Olgeirssonar fyrir nœr þremur áratugum tvinnast saman þessir meginþættir: alþýðu- sókn á vegum sósialismans og sjálfstæðisbarátta islenzku þjóðarinn- ar; baráttusaga Islendinga um aldaraðir hefur jafnan verið Einari 'hugfólgin og reynzt honum máttugt vopn eins og öðrum beztu 'forvigismönnum islenzku þjóðarinnar. Til útgáfu Þjóðviljans var stofnað af meiri bjartsýni en dæmi munu til hérlendis um blaðaútgáfu og drýgst var þar bjarts.ýni Einars Olgeirssonar. Það vantaði ekki að þá eins og oftar væri nýr sigur hinnar rótttæku verkalýðshreyfingar þakkaður ,,Rússa- gulli,“ en um það má segja líkt og Engels sagði um ,,milljónirnar“ sem dauðskelkað afturhald þóttist vita i fórum fyrsta Alþjóðasam- bands verkamanna: Liklega hefur aldrei verið gert jafnmikið með jafnlitlum fjármunum! Hvernig tókst að halda Þjóðviljanum á floti fyrstu árin i gjörningahriðum afturhaldsins, með óteljandi fórnum fátæks alþýðufólks sem aldrei brást, er eitt þeirra atriða 'tir baráttusögu sósíalismans á lslandi sem enginn þekkir betur en 'Einar Olgeirsson. Fyrsti ritstjóri Þjóðviljans þurfti fleira að gera en skrifa blaðið. Hann varð löngum að hafa af því áhyggjur hvort Iblaðið kæmi út næsta dag; sagði einu sinni i gamni og alvöru að hann þyrði orðið varla að hringja til kunningja sinna, svo sann- fcerðir vœru þeir ef þeir heyrðu röddina að hann œtlaði að slá þá handa Þjóðviljanum! Það er dýrt að verja ævi.og orku í þess háttar starf, en það er aðal Einars Olgeirssonar, að hann hefur aldrei skirrzt við að ,,vilja það nauðsynlega"; hitt befur honum gengið ver, svo haldið sé áfram ivitnuninni, að „sætta sig við það sem fært er“ talið ^hverju sinni. Ostýrilátur starfshugur hans, víðsýnið, þekking og dirfska hefur ekki einungis i starfinu fyrir Þjóðviljann, heldur einnig i forystustarfi hans í verkalýðshreyfingunni og þjóðmálunum ’hvað eftir annað rutt úr vegi þeim tálmum, sem öðrum fannst ekki yrði um þokað. Hér skal aðeins minnt á eitt dæmi: Nýsköp- unin sem hugsjón og framkvæmd, er snart stóran hluta þjóðar- innar til hrifningar og dáða, þó stjórnmálaleiðtogar afturhaídsins sæju ekki heldur þá neitt framundan nema eymd og volæði; hitt var örlagarikt glapræði þjóðarinnar, að hún skildi ekki og skilur ckki enn að sú hugsjón og framkvæmd hennar var framlag Sósial- istaflokksins, að á framhaldandi fylgisaukningu þess flokks, flokks Einars Olgeirssonar, valt ekki einungis framhald nýsköpunar og Atvinnuöryggis i landinu, heldur lika sjálfstæði þjáðarinnar. ★ Einar Olgeirsson hefur sjaldan verið ánægður með Þjóðviljann. 1Hknn gerir strangar kröfur til aðalblaðs Sósíalistaflokksins, ckkert mifnnlegt má láta það ósnortið, það verður jafnan að vera hárbeitt •vopn i sókn og vörn alþýðu 1 baráttunni um betra lif og alþýðuvöld, 'í sókn og vörn íslenzku þjóðarinnar i hinni nýju sjálfstæðisbaráttu. Betn afmælifgjöf 'gæti *bvork\' Þjóðviljinn né aðrir gefið honum en það heit að huessa eggjarnar, herða. sókn i hinni margþættu frelsis- haráttu Islendinga. EINAR OLGEIRSSON Framhald af 3. sxSu. að verkalýðsflokkum heims- ins. Önnur er sú, að flokkur- inn verði þröngbrjósta rétt- trúnaðar-söfnuður, sem ligg- ur við festar á lygnum polli, sæll í sínum yfirburðahroka. Hin er sú ,að flokkurinn verði meginreglulaust málfundafé- lag, pólitískt allra gagn hverj- um sem vill nýta hann. Hin sósíalíska flokkshugsjón 20. aldar er hins vegar sú, að verkalýðsflokkur sé hvort- tveggja í senn: stálsoðin skipulagsheild einhuga for- ustuliðs alþýðunnar, en ljúki þó up^p öllum hhðumflokksins fyrir hinum vinnandi fjölda. Hinn ungi Sósíalistaflokkur komst einu ári eftir stofnun sína í mikla raun, er gjörn- ingahrið Finnagaldursins dundi á honum. Þegar hríðinni slotaði, þá kom í ljós að vísu, að hann var nokkru fáliðaðri en áður, en kjörviðir hans all- ir heilir. Jafnvel hertaka Ein- ars Olgeirssonar og tveggja félaga hans fékk ekki bugað flokkinn. Þá kom í ljós, að Sósíalistaflokkurinn stóð dýpri rótum í gróðurmoid ís- lenzkrar alþýðu en flesta hafði grunað. Hann var ekki aðeins fulltrúi verkalýðsins í þrengri merkingu. Hann var fulltrúi fólksins, tjáning ís- lenzks þjóðarsjálfstæðis. Fiokkurinn upp3kar nú ávöxt- inn af starfi Einars Olgeirs- sonar, sem allra manna mest hafði unnið að þvi að tengja starfsemi fjokksins sjáifstæð- isbaráttu íslands og þjóðlegri tilveru. Á stjómmálaferli sxnum hefur Einar Olgeirsson sjald- an vandað íslenzka auðvald- inu kveðjurnar, en hann hefur jafnan skyggnzt á bak við tjöld þess og leitað þess valds, sem á bak við það býr; hins erlenda banka- og fjármála- valds. Árum saman hefur hann rannsakað tengslin milli hins íslenzka háauðvalds og erlendra húsbænda þe3s. Hann hefur sýnt fram á, hvernig ísienzka auðvaldið hefur verið sjálft arðrænt af brezku fjármálavaldi, hann hefur sýnt fram á þetta tvö- falda farg, sem vinnandi stétt- ir Í3lands hafa orðið að bera í fjóra áratugi, innlent og er- lent arðrán. Hann hefur manna bezt útskýrt hina efna- hagslegu nýlendustöðu ís- lands: hráefni og matvæíi hafa verið flutt óunnin úr landi vegna valdboðs erlendra hringa, framleiðslutæki Is- lendinga hafa dregizt saman vegna þess, að vaxtagreiðslur íslendinga til eriendra banka og auðfélaga báru atvinnu- reksturinn ofurliði. Þessar efnahagslegu stað- reyndir í tilveru hins íslenzka auðvaldsskipulags hafa mark- að aila baráttuaðferð Einars Oigeirssonar. Stéttabaráttan, sem hann rak, þræddist sam- an við baráttuna fyrir efna- hagslegu og pólitísku frelsi landsins. Þegar sú stund rann upp, að Island varð sjálfstætt lýðveldi sagði Einar Olgeirs- son þessi orð fyrir hönd flokks síns; „Gamla lýðveldið okkar var skapað af höfðingjum — og voldugir höfðingjar tortímdu því. Það eruð þið, fólkið. sjálft, sem hefur skapað nýja lýð- veldið okkar. Frá fólkinu er það komið — fólkinu á það að þjóna — og fólkið verður að stjórna því, vakandi og virkt, ef hvert- tveggja, lýðveldinu og fólkinu, á að vegna vel.“ S áMA árið og Einar Olgeirs- son f agnaði stofnun hins unga íslenzka lýðveldis eygði hann kost á því að grundvalla at- vinnulegt sjálfstæði landsins, losa þjóðina úr efnahagslegri nýlendutilveru sinni með því að verja öllum erlendum inn- stæðum, sem þjóðin hafði afl- að með vinnu sinni á stríðsár- unum, til þess að skapa ný framleiðslutæki á sjó og landi, virkja fallvötn landsins og búa í haginn fyrir íslenzka stóriðju. Hann rétti fram sáttarhönd Sósalistaflokksins öllum stéttum og flokkum Is- lands, er vildu ganga að þess- um tillögum, sem fólu í sér atvinnulega byltingu og tryggingu lífskjara hins vinn- andi manns. Það var ekki sök Einars Olgeirssonar, að hugsýnir hans á Iýðveldisárinu urðu ekki allar að veruleika. En það er honum að þakka, hvað vannst. Fyrir eirðarlausa at- orku hans, pólitíska yfirsýn og skilning á vandamálum og viðangsefnum líðandi stundar, bjargaðist mikill hluti af arði Islendinga í stríðinu heill í höfn. Aldrei hefur verið bjart- ara yfir íslandi en á þessu lýð- veldisári, er þjóðin lagði grundvöll að pólitísku og efnahagslegu sjálfstæði sínu. Og aldrei mun Einar Olgeirs- son — „niðurrifsmaðurinn" og byltingarmaðurinn —- haf a verið sælli en þá, er hann átti þess kost að framkvæma hina ríku sköpunarþrá, sem hon- um er í brjóst lagin. En ógæfa tslands — íslenzka auðvaldið — brá ekki vana sínum né heldur brást það eðli sínu. Það brást þeirri nýsköpun, sem ein gat rétt það úr þeim keng, er það hafði lif að í lengstan hluta tilveru sinnar. Og það sveik landið sjálft í hendur erleadu stórveldi. En þótt svo hafi far- ið, þá er sú nýsköpun, sem framkvæmd varð, áþreifan- legasta og stórbrotnasta stað- reyndin í nútímasögu Islands. Og hverju sinni er íslenzka þjóðin minnist þeirrar stað- reyndar, mun hún minnast mannsins, sem var höfundur hennar og forgöngumaður. Og þegar þeirri ánauð verður af- létt, sem Islandi er nú búin, þegar íslenzk alþýða tekur aftur upp þráð nýsköpunar- innar í frjálsu landi, þá munu höfuðsmiðir framtíðarinnar blessa nafn Einars Olgeirs- sonar, en nöfn hinna, svikar- anna og hinna pólitísku geld- inga, verða husluð gleymsku. Félaginn og maðurinn aðurinn er framkvæmd afreka sinna“. Einar Olgeirs- son er maður hins þrotlausa starfs og æviferill hans er varðaður miklum afrekum. Þessi afrek eru þegar skráð á spjöld íslenzkrar sögu — þau eru opinber eign íslenzku þjóðarmnar. Lífsstarf Einars Olgeirssonar hefur verið með þeira hætti, að hann hefur orðið að skera við nögl sér það, sem kallað er einkalíf. Skyldustörfin, önn líðandi stundar hafa jafnan hrópað á ’hann og ailtaf hefur hann sinnt kallinu. Hann hefur leyst af hendi öll flokksstörf, sem honum hafa að höndum borið, hvort sem þau voru há eða lág. og hann hefur unnið þau með sama dugnaðinum og verkhyggninni. Vinnufúsari. mann hef ég aldrei þekkt. Hann er eins og íslenzki hest- urinn, viljmn og skapið hið sama, og linar ekki á sprett- inum fyrr en hann springur af mæði. Eg hef oft furðað mig á þvi, hvemig Einar fer að þ.ví að haf a tima tii alis þess, sem hann gerir. Hann er allra manna vinnuharðastur við sjálfan sig, en oft virðist mér hann hlífinn við félaga sína í þeim efnum. Umhyggja hans fyrir persónulegri líðan félaga sinna er furðuleg. Eg get ekki stillt mig um aðsegja hér of- urlita sögu um það, því að ég var vitni að henni. Það var snemma árs 1939, að ég heimsótti Einar Olgeirsson, stuttu eftir að ég kom frá Kaupmannahöfn. Þá var verk- fall í Hafnarfirði og félagi einn í flokknum var þar á verkfallsverði. Einar hringir suðureftir og talar langt mál og alvarlegt um verkfallið, en um það bil sem hann er að kveðja, heyri ég að hann seg- ir: Passaðu að láta þér ekki verða kalt á fótunum, Jón! Ég leit undrandi á hann. Þessi ósérhlífni, harði bardaga- maður hafði sýnilega tíma til að hugsa um fótabúnað félaga sinna á verkfallsverði. Einaj' Olgeirsson má í dag líta yfir inikið og glæsilegt lífsstarf, mikla sigra, en einn- ig mikil vonbrigði. Grunur minn er sá, að fátt hafi valdið honum meiri harmi en þjóð- Framhald á 8. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.