Þjóðviljinn - 12.10.1952, Qupperneq 1
Sunnudagnr 12. olítóber 1352 — 17. árgangur — 230. tölublað
Frumvarp Einqrs Qlgeirssanar og LúBviks Jósefssonar:
r
■Barlzt í viku um
Hvíta !:e$titin
Nú hefur verið barizt látigust
í viku urn hæðina Hvíta hest-
inn á vesturvígstöðvunum í
Kóreu. Þeir, sem hafa hæðina á
valdi sínu, ráða yfir veginum.
úr norðri til Seoul, höfuðborgar
Suður-Kóreu. Tuttugu sinnum
síðan á mánudag hefur kollur
Hvíta hestsins verið tekinn, ým-
ist hafa norðanmenn hrakið
sunnanmenn þaðan eða öfugt.
Þegar síðast fréttist í gær var
hæðarkollurinn á vaidi norð-
anmanna.
Einar Olgeirsson og Lúðvík Jósefsson flytja í neðri
deild frumvarp um aínám þeirrar útflutningseinok-
unar sem flestu öðru fremur þjakar nú íslenzku þjóð-
ina, en eins og alkunnugt er má ekki enn flytja nokk-
urn ugga út úr landinu án leyfis ríkisstjórnarinnar,
með þeim afleiðingum að framleiðslutregða og fram-
leiðslubann er á flestum útflutningsafurðum lands-
manna. Meginefni frumvarpsins er ^þessa leið:
Orðsendiiií* út a£ löndun-
cJ
arbanninu afhent Eden
íslenzka ríkisstjórnin hefur nú tekið löndunarbannið
á íslenzkum fiski í Bretlandi upp við brezku stjórnina.
1. Frjálst er að bjóða til sölu,
selja og flytja út íslenzkar
afurðir, með þeim takmörk-
unum einum, sem þessi lög
ákveða eða ákveðnar eru í
öðrum lögum um gjaldeyris-
verzlun.
2. Ríkisstjórninni heimilast að
augl. lágmarksverð á hverri
vöru, sem út er flutt, og
hver útflytjandi skuldbund-
inn að bjóðá eigi út né selja
undir því lágmarksverði.
3. Nú gerir ríkisstjórnin samn-
ing við önnur ríki um sölu
ákveðinna vörutegunda þang-
að, og er henni þá heimilt
að ákveða, að eigi megi
bjóða til þess ríkis, selja
þangað eða flytja það magn
af vörutegundum, sem hún
hefur samið um sölu á,
nema að fengnu leyfi hennar
og með þeim skilyrðum, er
hún setur.
4. Nú selur útflytjandi eigi
vöru sína gegn frjálsum
'gjaldeyri né upp í viðskapta-
samninga almennt og skal
honumþá heimilt að kaupa í
skiptum vörur til innflutn-
ings, enda sé innflutningur
slíkra vara eigi bannaður
eða aðeins leyfðúr einkasöl-
um ríkisins. Skyldur er hann
að hlíta lágmarksverði. Eigi
þarf innflutningsleyfi fyrir
jnnflutningi vara, sem þann-
ig eru keyptar, en tilkynna
skal fjárhagsráði vöruteg-
undir, verð, magn og komu-
tíma. Skulu vörur þessar
verðlagðar samkvæmt venju-
legum álagningarreglum og
einnig heimilt, ef þörf þykir,
að setja á þær sama há-
marksverð í smásölu og
gildir um samsvarandi vöru-
tegundir keyptar inn í landið
Framhald á 5. síðu.
lárnbraufar-
verkfall í Iran
Jámbrautarverkamenn í Ir-
an hófu verkfall á hádegi í
gær. Krefjast þeir ógreiddrar
kaupuppbótar og eftirstöðva af
kauphækkun, sem þeir fengu
fyrir sjö mánuðum. Járnbraut-
irnar í Iran eru rikiseign.
Mossadegh, forsætisráðherra
Irans, hefur skipað einn nán-
asta samstarfsmann sinn, Huss-
ein Fatemi, utanríkisráðherra í
stað þess, sem sag'ði af sér í
fyrradag.
Kosningatnax í
Grikklandi
Skýrt var frá því í Aþenu í
gær, að þingkosningar myndu
fara fram í Gnkklaudi 16.
nóvember n. k.
Þinghelgisnefnd vesturþýzka
þingsins lagði til í gær að sex
þingmenn kommúnista yrðu
sviptir þinghelgi svo hægt yrði
að höfða mál gegn þeim fyrir
að ,,æsa til landráða". Það sem
vesturþýzkir ráðamenn kalla
landráð er baráttan fyrir sam-
einingu Þýzkalands.
Vasilievski ræSir
Sovétherinn
Vasilievski marskálkur sagði í
ræðu á flokksþingi Kommúnista-
flokks Sovétríkjanna, að sovét-
herinn væri nú öflugri en nokkru
sinni fyrr. Enginn her hefði jafn-
mikla baráttureynslu að baki, nær
allir liðsforingjgi- og helmingúr
varaliðsforingja hersins hefðu tek-
ið þátt í síðustu heimsstyrjöld. —
Herinn væri nú betur þjálfaður og
hefði yfir betri vopnum að ráða
en nokkru sinni fyrr, og stæði
enginn her honum á sporði. Gerð-
ar hefðu verið skipulagsbreyting-
ar á birgðadreifingu hersins og
hefðu þær stóraukið sigurmátt
hans.
Sænska útvarpið skýrði frá
því um miðaftansleysið í gær að
orðsending frá íslenz'ku ríkis-
stjórninni út af löndunarbann-
inu hefði verið afhent í London.
„Hvassyrt mótmæli“.
1 frétt sænska útvarpsins var
komizt svo að orði að þetta
hefði verið hvassyrt orðsending
og í henni væri mótmælt þeim
aðgrerðum brezkra togaraeig-
enda að fyrirbyggja að íslenzk-
ir togarar geti landað fiski í
Bretlandi.
Eftir að Þjóðviljinn hafði leit-
að staðfestingar á þessari frétt
hjá skrifstofustjóra utanríkis-
ráðuneytisins barzt blaðinu svo-
hljóðandi tilkynning frá ráðu-
neytinu:
„I dag gekk sendiherra ls-
lands í London, Agnar Kl. Jóns-
son, ásamt Hans G. Andersen
þjóðréttarfræðingi, á fund utan-
ríkisráðherra Breta og afhenti
honum orðsendingu frá íslenzku
ríkisstjórninni út af landhelgis-
málinu og banninu á löndun ís-
lenzks togarafisks í Bretlandi.
Að því loknu fóru fram nokkr-
ar umræður um málin“.
Vonandi fá íslendingar efkki
fyi'stu nákvæmu fréttirnar af
efni orðsendingarinnar frá er-
lendum heimildum.
MUNIÐ að sölutíminn er
stuttur þar sem dregið verð-
ur 1. desember. Nauðsyn-
legt er því að nota tjm-
ann vel til dreifingar á
happdrættlsblokkimuni.
Frumskilyrði þess að góð-
ur árangur náist er að vel
sé unnið við dreifinguna.
| • | 9
sfumvzsur
• ©
umoroinojar mnm
mar afhisroaSfr
Átfu aS annasf morð kommúnisfa og
sósíaldemokrafa ef til sfriSs kæmi
Athugil í Stjörnubíéi kl. 1.15 en ekki
hálf tvö eins og misritazt hefur á
aðgÖRgumiðana
Vestur-þýzk stjórnarvöld hafa komiö upp um leyni-
félag fyrrverandi liösforingja í þýzka hernum, sem átti
aö láta til sín taka, ef til styrjaldar kæmi viö Sovétríkin.
Hér sést kínverskur þjóðdansaflokkur sýna slæðudans. Vakti
dans þessi fádæma athygli í Berlín og gefst Reykvíkingum í
dág kostur á að sjá hið kínverska listafólk sýna dansinn í kvik-
myndinni „Söngur æskunnar“ í Stjörnubíói kl. 1.15. — 1 auka-
myndinni: knattspyrnukappleikur milli Bynarno og ungverska
landliðsins og mótmælafundir í Vestur-Þýzkalandi. — Aðgöngu-
nsiðar í Stjömubíói. Munið kl. 1.15 ekki 1.30.
Þetta upplýstist í ræðu, sem
Georg August Zinn, forsætis-
ráðherra sósíaldemokrata í vest-
urþýzka fylkinu Hessen hélt
þar í þinginu á miðvikudag-
Zinn sagði, að þessum
félagsskap hefði verið komið
upp fyrir bandarískt fé og
hefðu meðlimir hans verið æfð-
ir í skæruhernaði. Jafnframt
hefði verið ætlunin að beita
honum í stjórnmálabaráttunni
gegn kommúnistum og sósíal-
demokrötum.
Þessi félagsskapur er sér-
deild, æskulýðssamtaka þýzka
afturhaldsins Bund Deutscher
Jugend (BDJ), kölluð „tækni-
þjónusta". Leiðtogi hans er
varaformaðurBDJ, Gerhard Petr
ers, Frankfurt.
Hlutverk „tækniþjónustunn-
Merkjasala skáta
Skátafélögin hér í Reykjavík
og víðsvegar út um land hafa
í dag hina árlegu merkjasölu til
styrktar skátafélagsskapnum.
Merkin kosta 5 krónur og 2
krónur.
ar“ var að heyja skæruhernað
í baklandi sovéthersins, sprengja
brýr, bii'gðastöðvar, o.s.frv. —
Síðar áttu skæruliðarnir áð
hörfa suður fyrir Alpa ag gera
þaðan árásir á land á valdi
sovéthersins.
18. september sl. gerði vest-
urþýzka lögreglan liúsrannsókn
á skrifstofum BDJs í Frank-
furi^ og nokkrir af leiðtog-
um æskulýðssambandsins voru
handteknir. Saksóknari ríkisins
í Karlshuhe fékk mál þeirra
til meðferðar, en hann lét
sleppa þeim úr fangelsinu á
þeirri forsendu, áð BDJ væri
stofnað að tilhlutan bandarísku
yfirvaldanna í Þýzkalandi.
Ein deiid „tækniþjónust-
uimar“ nefndist Abwehrdi-
enst (gagnnjósnir), og hlut-
verk hennar var að búa til
skrá yfir það fóljk, sem telja
mætti „óáreiðaiilegt“t, ef til
styrjaklar kæmi við Sovét-
ríkin, og hún átti jafnframt
að sjá um að gera þetta fólk
„óskaðlegt", skjóta það, ef
með þyrfti. Zinn sagði að
saimanir fyrir bessu hefðu
fengizt í skjölum, sem lund-
ust á skrifstofu BDJ. Lög-
reglan hafði tekið 15 arkjr
með nöfnum kominúnista og
80 með nöfnum sósíaldemo-
krata, þ.á.m. þingmanna á
fylkisþingum og vesturþýzka
ríkisþinginu, ráðherra í fylk-
isstjórnum og annarra
þekktra stjómmáiamanna.
Formaður „tækniþjónustunn-
ar“, Peters, hafði búið hjá
Bandaríkjamanni í íbúð, sem
heyrði undir bandaríska her-
námsliðið í Frankfurt, og þessi
Bandaríkjamaður hafði komið x
veg fyrir handtöku hans.
Framhald á 5. síðu.
Sésíalfstar
alliugii!
PEIK sem ætla að taka
þátt í flokksskólanum i
vetur eða sækja evíuda-
flokk Einars Olgei rs.sonar
um ættaþjóðfélaKiö osr upp-
haf ríkisvaldsins. verða að
Iáta skrá sigr fyriv fram
í flokksskrifstofunni. Það
má ekki dragast úr þessu
því Einar byrjar á erinda-
flokki sínum n.k. þriðjudag--