Þjóðviljinn - 14.12.1952, Side 3
Tiniinn? verkfallsbrjotar og
svartamarkaðsprangarar
1 gær birti Tíminn forystu-
grein, sem er að mestu berg-
mál af fræðslu Morgunblaðs-
ins um sögu og innta'k þeirrar
launadeilu sem nú stendur yfir.
Þar er meðal annars hárma'ð
mjög að ekki skyldi vera látið
að vilja fjárplógsmanna og rik-
isstjórnar þeirra um frestun
verkfallsins á meðan ríkis-
stjómin og Co. væni að „finna
þá lausn sem gæti komið i
veg fyrir verkfall"!
Eftir að hafa endursagt
kenningar Moggans um verk-
fallið setur blaðið upp slétt
andlit, gefur í skyn að sann-
gimi mæli með því að hinir fá-
tækustu fái að einhverju leyti
bætta aðstöðu — og endar
moð þeim spaklegu orðum að
„hvorugur aðili geti unnið
sigur í deilunni".
f augum þeirra, sem kjuinu
að leggja trúnað á „hlutleysi"
Tíroans í baráttimni milli fjár-
plógsstéttar og verkaJýðs —
og jafnvel vinsemd hans í garð
alþýðu — gæti það litið spánskt
út hversu Tímaliðið er sam-
runnið í ríkisstjóm þeim öfl-
um, sem fjandsamlegust em i
garð fátækrar alþýðu og hafa
til þessa dags hindrað lausn
deilunnar. — Vissu’ega getur
þetta verið umþenkingarejEni
þeim, sem tekið hafa alvarlega
mjúkmælgi Tímaliðsins í garð
hinna fátæku þegar það þarf
á atkvæðum þeirra að halda
til að komast í ríkisstjóm og
þar með í aðstöðu til að geta
gert vinnandi fó'ki þá bölvun
sem ein rikisstjóm getur gert
því.
En til að ganga alveg úr
skugga um það, sem ekki kem-
ur nægilega skýrt fram í áð-
urnefndri forystugrein Tímans
þarf ekki annað en leggja
þetta Tímablað saman og skoða
betur útsíðurnar:
Á forsíðu blasir við feitletr-
uð grein með f jTirsög-ninni:
„Verkfallsverðir tóku bílinn, en
bílstjórinn fór að leita lögregl-
uniiar“. í þessari grein gerir
- túaaiu i
JVJBUI So gS—S
SU—tiOI m—T3H . Z
Hti—Zi ---T
ú?ut CU—«UH *
SU3I QOH S
SU—fUH tEÍ—T»H Z
•iaTJ—CJ----------T
03—TaH S
eu—TUH -----------Z
visíbu t
•JBT-But Xo z<>—P»k S
SU—TUH T»>'S3H Z
QTaxsí i T>»—EPH T
V usmrj
Getramiaúrslií
Burnley 1 — Arsenal 1 — x
Cardiff 4 — Sunderiand 1 — 1
Liverpool 1 — Ma.nch. \Utd. 2 2
Manch. City 4 — Che'sea 0 — T
Middlesbro 3 — Portsm. 2 — 1
Newcastle 2 — Aston Villa 1 1
Preston 3 — Derby 0 — 1
Sheffield W. 2 — Wolves 3 — 2
Stoke 4 — Blackpool 0 — 1
Tottenham 2 — Char'ton 0 — 1
West. Bromw. 0 — BoVton 1 — 2
Botherham 0 — Slteffie'd U. 2 2
\\iqqur leiSin}
Tíminn að sínum manni verk-
fallsbrjótinn, sem ekki aóeins
var staðinn að því að fremja
mótgerð við málstað verka-
manna í þessu verkfalli heldur
einnig sannur orðinn að þvi lög-
broti að reyna að koma ógeril-
sneyddri mjólk á markað í
gróðaskyni og stofna þar með
heilsTifari borgarbúa í hættu.
Og Tísninn harmar að lögregl-
an skyldi ekki vera sen.d til
fulltingis þessum verkfalls- og
svartamarkaðslögbrjót gegn
verkafólkinu og heilbrigðisör-
yggi bæjarbúa.
Svo skulum við snúa við
Tímablaðinu og sjá: Þar b!as-
ir við feitletruð rammagrein
með fyrirsögn:nni: „Verkfalls-
menn neita Iæknum nm mjólk
tij sjúkra og barna“.
Þetta er eins og gefur að
skilja helber uppspuni. Verk-
fallsmenn sýndu læknanefnd
þá tilhiiðranarsemi að leyfa
flntning 4 ákveðnu magni
mjólkur til Mjólkurstöðvarinn-
ar fjrir böm og sjúlca og gam-
almenni. Hinsvegar hafa ýmsir
slcjólstæðingar 'Kmans óg
Morgt^nblaðsins kosið heldur
leið verkfa!Isbr,)ótsins og svarta
markaðsprangarans til að koma
mjólk i bæinn, i trássi \ið
heilbrigðislöggjöfina og almennt
velsæmi, heldur en að uppfylla
áðurnefndar þarfir hinna veik-
bjggðu með því að afhemla
Mjólkurstöðínni mjólkina. Verk-
fallsnefnd og forsvarsmenn
mjólkurfræðinga hafa sannast
að segja skorað á stjóm Mjólk-
samsölunnar og viðkomandi jfir
völd að fá þessu kippt í lag,
en árangurslaust.
Þetta i'lkynjaða skrök Tím-
ans kemur upp um kosninga-
smjaðrara hans, nú þegar
verkamemi standa í ströngu til
að verja lífsrétt sinn fyrir
gráðugum og samviskulausum
fjárplógsmömium, sem að nú-
verandi ríkisstjóm standa og
blaðastól hennar. Með þessum
vísvitandi lygasögum er Tima-
hyskið að vinna fjmir húsbænd-
ur sína: heiidsala, stóratvinnu-
rekendur og önnur þau einok-
unaröfl er alþýða á nú í höggi
v:ð i baráttu um afkomu sina.
V erkfallsbrjótar og svarta-
markaðsdót eru skjó’stæðing-
amir, en verkafólkið það sem
barist skal gegn. — En sér
grefur gröf þótt grafi: Því
betur sem Tíminn kynnir sig og
sína þvi færri verða hans
formæ'endur meðal alþýðu.
i eim mun sigurstranglegri verð
ur barátta verkalýðsins í bráð
og lengd.
Bæiarpésiannn
Framhald af 4. síðu.
kommúnistum þvi að ég er
maður sem trúi á frjálst fram-
tak. í hvert; skipti sem ég
geng framhjá villu eins þeirra
s'óru eða sé sléttan og feitan
kaupsýsiumann fæ ég sting í
hiartað og verður hugsað til
harðkúluhattarins mins sem
er farinn s.ð trosna ú börðun-
um. Ég er viss um að þetta
lagast og koma aftur norraal
timar strax og búið er að upp-
ræta kommúnismann. Þeir
stóru hafa oft sagt mér í
trúnaði undir fjögnr augu,
hvað þeir eigi erfitt sjálfir
með alla þessa sikat.ta og
kaupkröfur og vanþaJcklæti
þeirra sem. þeir eru svo góðir
að veita viimu. Og þá er mcr
lótt að bera mót.lætið, atvinnu-
leysi og alla óheppnina sem
kemur frá Rússum, þvi að ég
er maður með hugsjónir sem
vill áfram. í kvöld ætla ég að
halda þrumandi ræðu hjá
Óðni. — SjálístæðisniaÖur.
Sunnudagur 14. desember 1952 — ÞJÓÐVHJENN — (3
Þjéiuiinn í Þrótli
Frá fyrstu dögum skipu-
lagðra verkalýðssamtaka hafa
þeir meðlimir þeirra, sem hafa
á einhvern hátt brugðizt trún-
aði þeirra, er þau hafa staðið í
(kaupdeilum, mætt almennri
andúð. En hafi það komi fyrir
(sem að vísu hefur sjaidan
skeð) að meðlimir samtakanna
hafi beinlínis ráðizt á þau, veitt
andstæðingima jafnvel mikils-
verðar upplýsingar mitt í hörð-
um átökum, er hiklaust litið á
slíkt sem níðingsverk, er verð-
skuldi þann dóm einan að við-
teomandi sé umsvifalaust svipt-
ur öllum trúnaðarstörfum í
verkalýðssamtökunum sé um
þau að ræða.
íslenzk verkalýðshreyfing á
um þessar mundir í harðri
kaupdeilu, og þá hefur það skeð
að það er vegið að henni af
einum meðlim samtakanna á
hinn níðingslegasta hátt. For-
maður eins félagsins sem er að
leggja út í hina sameigirJegu
baráttu, form. V. B. S. F.-
Þróttur —, opnar alla þá fundi
fyrir andstæðingnum, sem
hann vegna aðstöðu sinnar
hefur setið til undirbúnings í
baráttu þeirri er verkalýðs-
hreyfingin hefnr verið nej'dd til
að hef ja.
Það er að vísu augijóst af
skýrslu atvinnurekendaþjóns-
ins, að forustumenn samtak-
anna hafa ekki rætt nein þau
mál sem kallast máttu hemað-
arleyndarmál á þeim fundum
sem hann var mættur. Þeim
hefur eflaust verið þíið ljóst að
það er fylgja manna sem Frið-
leifs að þeir svíkja alla sem
veita þeim trúnað, þvi jafnvel
íhaldið s\ákur hann.
Á forsíðu Morgunblaðsins í
fyrradag var lesendum blaðsins
bent á hina eindæma skýrslu
sem form. Þróttar birti í þvi
blaði.
Það má hiklaust fulljTða að
meðlimir Þróttar eru að yfir-
gnæfandi meirihluta aivarlega
gramir yfir framkomu Friðleifs.
Þeir eru að visu orðnir jrrasu
vanir sem fer í svipaða átt, en
að slíkt framferði væri viðhaft
daginn sem það er að taka þátt
í hinni sameiginlegu baráttu,
það höfðu þeir þó haldið að
haim hefði vit á að láta ekki
henda sig. En seldur maður er
eicki sjálfráður, og eðlið er til
staðar.
Vörubílstjórar biðja verka-
lýðslireyfinguna að taka það
fj'llilega til greina, að hin um-
rædda grein (eða skýrsla)
Friðleifs er gegn vilja félags-
ins, og er stéttin miður sín yfir
að slikur mtiður skuli hafa val-
izt til trúnaðarstarfa. En stétt-
in er þess einnig \nss að verka-
lýðshreyfingunni eru ljósar þær
atviimulegu aðstæður sem vöru
bílstjórar hafa búið við undan-
farið, því til þeirra má rekja
orsakir á vali stéttarimmr á
þessum trúnaðarmanni!
Það er því ekki síður nanð-
syn félagsmamia Þróttar en ann
arra verkalýðsfélaga að signr
vinnist í yfirstandandi baráttu,
svo meðal annars möguleikar
geti skapazt til að breyta um
forj'stu í félaginu.
Það á því að verða heit-
strenging allra félagsnianna
Þróttar að í næsta mánuði verði
Friðleifttr leystur frá trúnaði
við félagið, og Þróttur skipi sér
þar með á ný af fullri einlægni
í raðir samtalkanna og um leið
verði máður einn ljótasti smán-
arbletturinn af íslenzkum
verkaJýðssamtökum.
Vörubílstjóri.
Leikritasafn
Meiiningarsjóðs
Nýlega eru komin út 5. og
6. heftið í Leikritasafni Menn-
ingarsjóös. Eru það leikritin
Pilt.ur og stúlka, er Emil Thor-
oddsen samdi upp úr sam-
nefndri skáldsögu afa síns
Jóns Thoroddsens, og Skugga-
Sveinn, hið þjóðfræga leikrit
skólapiltsins Matthíasar Joch-
umssonar. En hann verður ein-
mitt jólaleikur Þjóðleikhússins
í ár.
Áður eru út komin í þessum
fiokki leikrit Sigurðar Péturs-
sonar Hrólfur og Narfi, Landa -
fræði og ást Björnstjerne Björn
sons, Maður og kona er Emil
Thoroddsen samdi einnig upp
úr sanmefndri skáldsögu, óg
Imj’ndunarveikin eftir Moliére.
Útgáfa þessa leikritasafns er
þarft fyrirtæki, en nú spjrja
útgefendur hvort þessi leikrit
verði hin síðustu, og kvarta
yfir ónógum katipendaf jölda. -—
Hvort þessara leikrita er rösk
ar 100 sfður, og er frágangur
smekklegur.
SKÁK
Ritstjóri: Guðmundur Arnlausrsson
Ein nnrðlenzh skáh
InnJendar skákir hafa löng-
um verið minm hluti af efni
skákdálksins en íeskilegt hefði
verið. Ástæðurnar eru margar
og sumar augljósar. Hér verð-
ur sjaldan úr mjög miklu að
velja, það er takmarkað sem
teflt er og menn eru tregir að
senda skákir, ýmsir vegna al-
mennrar tregðu eða þeim
finnst skákir sinar ekki nógu
snjallar til birtingar. Gagnrýni
á eigin afrek er að vísu ágæt,
en hins ber þó að gæta, að oft
eru skemmtilegar glefsur í
skákum, þótt þær séu f jarri því
að vera gailalausar. Jafnvel
geta glöp og yfirsjónir gert
skákarbrot hnittin og minnis-
stæð. Ég \ii því ítreka þau til-
mæli er ég hef oft beint til
skftkmanna áður: sendið skák-
dálkinum skákir eða skákar-
skAkmjaut
ABCDBFGH
Svo cr það ská.kþrautín. Fjögra
lcikja þrautir eru miklu sjaldgæf-
ari en tveggja eða þriggja leika
þrautir. Menn hika oft við að
leggja í þær, halda að þær eéu
flóknar, en hér er staðan svo ein-
föld að engin ástæða er tii ótta.
Peðið fer upp i borð, það er eng-
in ixsið að hindra — en athugið
að það getur breytzt S aðra menn
en drottningu.
Lausn á öðrum stað á siðunni.
brot til athugunar og birtingar.
Skemmtilegast vœri e.ð eiga
alltaf úr einhverju að velja af
slíku tagi.
Hér kemur svo ská.k, er tefld
var á, ÁkurejTi 7. apríl í vor, í
úrslitum keppninnar um skák-
meistaratitil Norðurlands, er
þrír voru eftir, sem höfðu orðið
jafnir á aðalmótinu.
Jón Ingimarsson hefur lengi
verið virkur í félagsmálum
norðlenzkra skákmanna. Hann
var formaður taflfélags alþýðu
á A'kureyii og fonnaður skák-
félags AkurejTar eftir að fé-
lögin sameinuðust, og hefur nú
enn verið kjörinn formaður
þess félags. En hann er góður
skftkmaður líka, eins og sést
af þessari skák, og hættulegur
liverjum sem er. Skjringamar
eru einnig Jóns.
Drott ningarbragð.
Jón Ingimarss. Jón Þorsteinss.
1. d2—d4 Rg8—f6
2. c2—c4 e7—e6
3. Rgl—f3 d7—d5
4. e2—e3 c7—c6
5. Bfl—d3 Rb8—d7
6. 0 0 a7—a6
7. b2—b3 Bf8—d6
8. Bcl—b2 o—o
9. Rbl—d2 Dd8—e7
10 e3—e4
Hvítur freistar þess að fá upp-
skipti á miðboi-ði í þeim tilgangi
að fá frjálsar hendur þar.
10. ... d5xe4
11. Rd2xe4 Rf6xe4
12. Bd3xe4 Rd7—f6
13. Be4—c2 Bd6—a3
Svartur (krefst biskupakaupa.
14. Bb2—c3 Ba3—b4
15. Bc3xb4 De7xb4
Drottning svarts er nú lítið
virk í taflinu um stund.
16. Ddl—d3 h7—h6
17. g2—g4
Hér hefði ef til vill verið sterk-
ara að leika Re5 hótandi Reg4.
17. ...
• Hf8—d8
18. g4—g5 höxgö
19. Rf3xg5 e6—e5
20. Rg5xf7 e5—e4
(Jón 'ge.ruf "'énga' skýringu -á
riddarafórn sinni né svari
svarts. Fórnin er skemmtileg og
djarfleg og líklega á svartur
ekki betra svar. 20.—Kxf7 21.
Dgðf KfS 22. dxe5 Rg8 23.
e6 De7 er sýnilega Jakara, og
20. —Hxd4 21. Rh6f og þ\ú
næst Ðg6 (f) er heldur eklki
glæsilegt.).
21. Rf7—h6f
22. Dd3—e3
23. f2—f3
24. Kgl—hl
25. Hal—el
26. De3—f4
27. Hfl—gl
28. Dfl—e3
g7xh6
Db4—e7
Bc8—f5
Kg8—h7
Hd8—e8
Bf5—g6
Rf6—4i5
He8—f8
ABCDHFGH
Staðan eftir 28 .leik svaxts.
Svartur er komúm í tímaþröng.
29 Hglxg6!
30 Bc2xe4f
(Kf7, Bh6f eða
31. Hel—glt
32. Be4—g6t
33. De3xh6
34. Hglxg3
35. Hg3—gl
36. Bg6—d3t
Kh7xg6
Kg6—g7
Kf6, Dxh6t)
Kg7—f7
Kf7—f6
Rh5—g3t
De7—elt
Del—e2
og svartur
gafst upp. Tímaþröngin skýrir
siðasta afleikinn, en taflið er
allavega tapað.