Þjóðviljinn - 20.01.1953, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 20.01.1953, Blaðsíða 1
KvenféEag sósíalisfa KveiifélaR' sósíalista heldur að- alfund á fimmtudaginn kemur á Þórsgötu 1. Þriðjudagur 20. janúar 1953 — 18. árgangur — 15. tölublað Benjamm kemur upp um fyrirœflanir sfjórnarflokkanna: Verður 109 milljónavirði af þjóðareign henf í auðhraskara Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins? Jón Árnason leggur til oð mótvirðissjóður verði endurgreiddur til aS hindra íhlutun Bandaríkjanna um efnahagslíf íslands Fjárliagsnefnd efri deildar Alþingis kvaddi Benjamín Eiríks- son á fund sinn til viðræðu um frumvárp rjkisstjórnarinnar um Framkvæmdabanka. I nefndaráliti minnihluta nefndarinnar segir m. a.: ,,Ein aí þeim spurningum, sem nefndin lagði fyrir dr. Benjamín Eiríksson, var sú, hvaða tilgang það hefði, að ríkissjóður legði Framkvæmdabankan- um til sem „stofnfé" hlutabréf sín í Áburðarverk- smiðjunni, Raftækjaverksmiðjunni og Eimskipafé- lagi íslands. Dr. Benjamín svaraði, að hann hugs- aði sér, að hlutabréf þessi yrðu seld síðar. Fer þá að verða skiljanlegra það kapp, sem á það var lagt að breyta Áburðarverksmiðiunni í hlutafélag. Samkvæmt þessu virðast vera uppi ráðagerðir um að afhenda Áburðaiverksmiðjuna, sem ríkið læt- ur reisa og ver til á annað hundrað milljónum króna, einstökum mönnum til eignar fyrir nokkrar milljónir króna". t framsöguræðu á þingfundi í gær lagði Brynjólfur Bjarna- son þunga áherzlu á hve þarna væri um alvarlegt mál að ræða. Hlutafé Áburðarver'ksmiðjunn- ar nú er aðeins 10 milljónir króna, og af því á ríkið sex milljónir en f jórar milljónir eru í einkaeign. Allan stofn- (kostnað fyrirtækisins, á annað hundrað milljóna króna, legg- ur ríkið fram, nema þessar fjórar milljónir króna í hluta- fé. Þegar lánin verða að fullu greidd hafa eigendur þess eign- azt verðmæti a. m. k. upp á 40 milljónir króna! Nú upplýsir Benjamín Ei- ríksson hvað verða á um af- ganginn það sex milljóna króna hlutafé sem ríkið á. Það á að selja þau, og láta þar með hin gífurlegu verff- mæti sem í Áburðarverk- smiðjunni felast í hendur auðbraskara. Um fyrirhugaða hlutabréfa- verzlun Framkvæmdarbankans upplýsti Benjamín að alls ekki væri tilætlunin að verzla með hlutabréf í hagnaðarskyni, heldur til að hjálpa fyrirtækj- um til að 'komast á laggirnar. Má því telja víst að hlutabréf ríkisins í Áburðarverksmiðj- unni verði ekki seld dýrt! Það mætti því segja að þetta væri að hagnýta rikisvaldið vel í þágu einkaauðmagnsins. Eysteinn reyndi að malda í móinn, og hafði þá einu rök- semd að bannað væri í sjálfu frumvarpinu að selja hluta- bréfin sem bankanum eru feng- in. Honum var tafarlaust bent á að þetta eru staðlausir staf- ir, í frumvarpinu segir einung- is að ekki megi selja þessi hlutabréf nema með samþyliki Alþingis. Og Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn hafa sam ið um annað eins lítilræði! Var auðfundið að það kom Eysteini mjög illa að Benjamín sikyldi glopra þessu út úr sér, og hef- ur þessi eymdarráðherra Fram- sóknar sjaldan flútt meiri eymdarræðu en í þessu máli í gær. Eisenhower tekur við embætti í dag giS hefur seli óslitið á fundi síðan á sunnudagsmorgun í gærkvöld hafði neðri deild ítalska þingsins setið óslitið á fundi síðan á sunnudagsmorgun og var búizt við að fundurinn mundi standa í alla nótt og jafnvel fram á kvöld. föku nazistaforingjanna sjö í útvarpsræðu, sem Adenauer hélt í gær, sagöi hann, að sú ákvörðun brezku hernámsstjóraarinnar í V.-Þýzka- iandi. að láta handtaka sjö nazistaleiötoga hefði vakið furðu sína. Hann sagði, að vestur-þýzka lögreglan hefði uadanfarna mánuði fylgzt með öllum at- höfnum þessa'ra manna, en hún hefði ekki komizt að raun um neitt, sem réttlætti handtöku. Menn þes3ir væru með öllu á- hrifalausir og þeim mundi aldrei hafa tekizt að afla sér neinna áhrifa. Það liefðí því vakið fui’ðu sína, þegar brezki hemámsstjórinn, sir Ivan Kirkpatrich, hefði kómið á fund sinn og sagt að menn þessir yrðu handteknir. Hann hefði beðið um skýringu, en enn ekki fengið neina. Adenauer bætti því við, að þessi ráðstöfun mundi verða til að torvelda mjög fullgildun samningsins um Evrópuher í þinginu í Bonn. — Fyrr um daginn var tilkynnt í Bonn, að Adenauer hefði hafnað til- lögu frá Erich Ollenhauer, leið toga vestur-þýzkra sósíal- demókrata, um að hætt yrði við fullgildingu Evrópuhers- samningsins, en í stað teknar upp nýjar samningaumleitanir við Vesturveldin. Umræður hafa staðið um frumvarp de Gasperi-stjórnar- innar til nýrra kosningalaga, en það er lagt fram til að tryggja katþólska flokknum á- framhaldandi meirihluta á þángi, þrátt fyrir þverrandi fyJgí. Þingmenn stjórnarandstöð- unnar hafa beitt öllum brögð- um til að koma í veg fyrir samþykkt frumvarpsins áður en þingi verður slitið og nýjar kosningar fara fram, og það er málþóf þeirra sem er orsök þessa langa fundarhalds. Þeir mega heita einir í þingsalnum, en í hliðarherbergjum bíða þingmenn stjórnarinnar og eru á verði, ef stjórnarandstaðan skyldi nota tækifærið til að fá frumvarpinu vísað frá. I gær hófst í Sofia réttar- höld gegn tíu mönnum, sem sakaðir eru um njósnir og und- irróðursstarfsemi í þágu Banda ríkjanna. Þeir hafa allir játað Með tilhögun þeirri sem frumv. ríkisstjórnarinnar um Fram- kvæmdábanka Islands gerir ráð fyrir, er til þess ætlazt að yfirstjórn erlends fjármálavalds yfir íslenzkum fjármálum og efnahagslífi verði betur tryggð en áður. .. Brynjólíur Bjarnason mótmælti frumvarpinu vegna þessa yfirlýsta tilgangs er það kom til 2. umr. í efri deild í gær og lagði til að því yrði vísað frá með rökstuddri dagskrá: „Þar sem Framkvæmda- banka íslands eru ætluð verk- efni, sem nú eru í"höndum annarra stofnana og ek'ki liggja nein gild rök til þess, að verk- efni þessi verði betur af hendi leyst með þeirri tilhögun, sem frumvarpið gerir ráð fyrir, telur deildin ekki rétt að sam- þykkja frumvarpið og tekur fyrir næsta mál á dagskrá". 1 rökfastri framsöguræðu sýndi Brynjólfur fram á að engin íslenzk rö'k lægju til iþess að stofna þennan banka. Efni frumvarpsins er í meginatrið- um samið af gjaldkera Alþjóða Tiliögur Jón I nefndaráliti sínu birtir Brynjólfur Bjarnason álit Jóns Árnasonar bankastjóra um Framkvæmdaban'kann og vandamál varðandi mótv-irðis- sjóð. Álit þessa sérfræðings Framsó'knar í . fjármálum er líklegt að veki almenna athygli. En það er í stuttu máli að stofnun Framkvæmda- bankans sé með öllu þarflaus. Um mótvirðissjóðinn segir í áliti Jóns Árnasonar: ,,Hinn svokallaði Mótvirðis- sjóður hefur orðið til vegna ó- afturkræfra framlaga frá stjórn Bandarikjanna í sam- ræmi við samning um efna- hagssamvinnu Evrópu 16. apríl 1948. Þessi sjóður er nú að fjár- bankans, sem er bandarískt fyrirtæki. Enginn bankanna sem fyrir eru mun vera fylgj- andi þessari nýju skipan bankamálanna. Ríkisstjórnin hefur rekið á eftir málinu eins og venja er til með frumvörp sem banda- risku húsbændurnir fyrirskipa henni að láta samþykkja. Einn stjórnarþingmanna, Gísli Jónsson, upplýsti að samkomulag væri milli stjórnarflokkanna að af- greiða málið svo að scgja ó- breytt. hæð um 310 millj. kr., að með- töldum þeim skuldabréfum, sem ikeypt hafa verið fyrir fé Mótvirðissjóðs. Ekki má veita fé úr sjóðnum, hvorki sem lán né til aeins annars, án sam- þykkis Bandaríkjastjórnar, og virðist það í rauninni eðlilegt. En af því leiðir, að slikar leyf- isveitingar um meðferð Mót- virðissjóðs hljóta að hafa í för með sér meiri eða minni af- skipti af fjármálalífi landslns í heild. Nú liggur það ekki fyrir, svo að mér sé ikunnugt, að komið hafi bein krafa frá stjórn Bandaríkjanna. um ^að, að stofnaður skuli sérstakur banki til þess að hafa með höudum fjárreiður Mótvirðis- sjóðs, og þá heldur ekki, hvort afskipti Bandaríkjastjórnar af meðferð sjóðsins mundu hverfa þegar búið væri að afhenda hann Framkvæmdabankanum. Framhald á 2. síðu. Iranska þingið veitti Mossadegh alræðisvald Neðri deild íranska þingsins varð í gærkvöld við kröfu Mossadeghs um alræðisvald í eitt ár enn. Var þetta samþykkt með 51 atkvæði gegn 2, en einn þing- maður sat hjá. Forsafti deildar- innar hafði fyrst lagzt á móti þvi, að krafa Mossadeghs yrði rædd og um hana greidd at- kvæði í þinginu, þarsem hún bryti í bág við stjórnarskrá landsins. En í gær breytti hann afstöðu sinni, lýsti þá yfir, að hann áliti að þingið yrði sjálft að skera úr um, hvort krafan væri í samræmi við stjórnar- skrána. Mossadegh ræddi við sendi- herra Bandaríkjanna í Teheran í gær, og er það í 8. skiptið sem þeir ræðast við, síðan sendiherran kom aftur úr ferða lagi sínu til Washington í síð- asta mánuðd. Átta þingmenn hins vjnstri- sinnaða sósíaldemékrataflokks ísraels, Mapam, gengu af þing- fundi í gær, þegar samþykkt var að fela utanrikisráðuneyt- inu að rannsaka fréttir um „Gyðingaofsóknir“ í Sovétríkj- unum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.