Þjóðviljinn - 01.02.1953, Page 3
Súnnudagur 1. febrúai* í195& — ÞJÓÐVILJINN — (3'
-7- • , ia fc. . "fl V
Fyrsti bókaílokkur Mals og menningar — 6. bók
Undir Skuggabjörgmn
I KJÖRBÖKAFLOKKI Máls og
menningar í hausl voru níu
bækur eftir jafnmarga höf-
unda: sex innlenda, þrjá er-
lenda. Þeir útlendu eru allir
heimsfrægir, fimm heimamenn-
irnir þjóðkunnir. Sá sjötti,
Kristján Bender, varð fyrst
kunnur með þessari bók sinni.
Hún heitir Undir Skuggabjörg-
um, flytur tíu smásögur — og
felst í þeim spásögn um meiri
frægð höfundi.
Bókin dregur nafn af fyrstu
sögunni. Hún fjallar um brigð
ástarinnar. Það er í henni nota-
]eg kimni íbland, góðar athug-
anir á sálum, um hana leikur
nokkuð sterkt andrúmsloft.
Hinsvegar fæ ég ekki séð að
áifaævintýrið í lokin dýpki
nokkuð sýn vora á ofangreinda
brigð, þannig að bygging sög-
unnar verður í höfuðatriðum
misheppnuð.
Næst kemur smáþáttur eða
svipmynd af því hvernig hund-
ur er virtur ofar manni, á
vissum stigum þjóðfélagsins —
mjög sterk mynd og skáldleg.
Sagan Þvílík æska lýsir ann-
arsvegar verzlunarmönnum í
gömlum stíl, íhaidssömum og
'búralegum; hinsvegar æsku-
manni vöxnum upp í strfðinu,
óhræddum við heiminn og fram-
takið. Það eru ýms góð atriði
í sögunni, ádeila og fyndni til
beggja handa. E3n eldri menn-
imir eru of þunnir, viðskipti
-þeirra við sendilinn öll of ótrú-
leg; og mun þetta vera fá-
nýtasta saga bókarinnar.
Því miður er ég ófær um
fuilan dóm yfir Konu Pótífars,
þvi ég kann ekki þá frá-
sögn sem hún stýðst við. En
mikill sálfræðilegur sannleikur
er í sögunni, þó Pótífar sé
kannski nokkuð vesæll: hvaða
kona firrist ekki siíkan mann?
En sérstaklega tekst höfundi
í þessari sögu að skapa sterkt
andrúmsloft, og fyrir það verð
ur henni ekki auðgleymt.
Dekurbarn er langlengsta
eagan; segir frá syni af „góðu
fóiki“ sem hefur næga peninga
til áð kaupa hann gegnum alla
skóla, heitir honum bíl ef hann
standi sig veT, o. s. frv. En
draumar hans og foreldranna
ganga á misvíxl, því æðsta ósk
drengsins er að verða hlaupari
— þó foreldramir ráði. Að lok-
um skapar hann sér sjálfur
tækifæri, og er það mikið frum-
legur skáidskapur. Má vera að
höfundi láti ekki miður að
rita lengri sögur en skemmri.
Rauður litur er fagurt ástar-
ævintýri. Það kemur þó einni
blaðsíðu of snemma í ljós að
hér er að verki fuglaást. Enn-
fremur átti ekki að skáletra
seinustu setninguna, því það á
að koma fram á eins eðlilegan
og látlausan hátt og unnt er að
'hér sé um ást í fuglheimum
að ræða.
Spóafótur er mjög góð sálar-
Jífslýsing, og einna bezt bygg'ð
og sögum bókarinnar; saman
þjöppuð órofa heild.
Silfurpeningurinn er skemmti
legt og fjörugt ævintýr um
peninga, í einu ánægjuJeg lesn-
ing og markvís' ádeila. Það
væri gaman að geta lesið hana
upp á árshátíð Peningamanna-
félagsins.
Næstsíðasta sagan, Blómið
eilífa, virðist helzt vera sókn-
arræða fyrir nýtízkulist, enn-
fremur háð um listrýnendur og
sleggjudómara. En ef til vill
lýsir hún líka þýðingu listarinn-
ar fyrir mannlífið, túlkað í blóm
inu eilífa: Gyðingnum gang-
andi. Hváð sem öðru líður er
sagan að ýmsu athyglisverð.
Satt að segja er ég ekki al-
veg viss um síðustu söguna.
Nema það er yfir henni sterk-
ur blær, í baksýn hennar spegl-
ast þung og framandleg örlög.
Frásagnaraðferðin er líka prýði-
leg, en óijóst hve mikið skáld-
skapargildi það hefur áð láta
kvikindið þræða svona ná-
kvæmlega alla stafi þessa
grafna nafns. En þegar sög-
unni er lokið situr hún í minni
manns — og skapi.
Kristján Bender er ekki full-
þroska skáld, og er það vel.
Á sögum hans í heild er ekki
fastmótað skáldskaparsnið, en
þær benda tii þess að honum
séu ýmsir vegir opnir í þessari
grein. Mannlýsingar hans eru
yfirleitt ekki skýrar, málið er
svo sem hvorki gott né vont,
stíll ekki auðkennilegur þó þar
bregði fyrir góðum köflum, t.
d. endurtekningamar í fyrstu
sögunni. En höfundurinn er
gæddur ríku andlegu fjöri, í-
myndunarafli, skarpleika í hugs-
un, andúð á vanabundnu við-
horfi. Og síðast en ekki sízt
er afstaða hans siðleg. Hann
er sýnilega ötull stúðningsmað-
ur hins fátæka, og hann er
mjög heitur út í vald penings,
og þjóðfélagslegrar drottnunar-
aðstöðu í skjóli hans. Hann sér
þvert í gegnum hræsnisslæður
borgaralegs siðiferðis, og leikur
það heldur grátt í sumum sög-
um sínum. Flest sýnist mér
benda til þess að satíran, háð-
sagan, sé sterkasta hlið þessa
höfundar. Og hún er áreiðan-
lega talsvert sterk. — B. B.
% \ ÍÞRÓTTIR nrrsTJóRi: frimann helgason
Ffóriánda landsmötiS i hand-
knattleik hefst i kvöld
' 1 kVöld' kj. '8 hefst fjórtáúda
Jandsmótið í handknattleik í
meistaraflokki karla. Keppt er
í tveim deildum og eru flokkar
frá þessum félögum í mótinu:
A-deild: Glímufélagið Ár-
mann, íþróttafélag Reykjavík-
ur, Knattspyrnufélagið Fram,
Knattspyrnufélagið V alur,
Knattspyrnufélagið Víkingur
og U.M.F. Afturelding.
B-deiId: Fimleikafélag Hafn-
arfjarðar, Knattspymufélag
Reykjavíkur og Þróttur.
Allir keppendur mótsins eiga
að ganga fylktu liði í salinn
er mótið er sett en það gerir
forseti ISÍ Ben. G. Waage.
Núverandi íslandsmeistari er
Glímufélagið Ármann. í fyrra
kom Afturelding upp í I. deild
en KR féll niður í B-deild. Um
úrslit í A-deild er mjög erfitt
að spá því mörg félögin eru
jöfn en ekki er ótrúlegt að
Ármann, Valur og Vikingur
bítist um efstu sætin. I B-deild
eru líkurnar mestar fyrir KR.
Maður saknar hinna gömlu
góðu Hauka í þennan hóp, og
vonandi verður ekki langt
þangað til að við fáum Suður-
nesjamenn með í dansinn.
Mót þetta stendur til 8.
marz, en jafnaðarlega verður
keppt tvö kvöld í viku á þessu
tímabili og fara tveir leikir
fram á kvöldi. Þar sem gera
má ráð fyrir að margir leikir
verði jafnir og „spennandi* er
fullvíst að handknattleiksunn-
endur eiga í vændum marga
skemmtilega stund að Háloga-
landi á næstu vikum. Valur
hefur orðið meistari 7 sinnum,
Ármann þrisvar, Haukar einu-
sinni, ÍR einu sinni, Fram einu
sinni. Hver verður svo meist-
ari 1953 ? — Að þessu sinni sér
Knattspyrnufélagið Valur um
mótið.
Leikirnir í kvöld verða í A-
deild: Ármann : IR og Fram :
Valur.
Getraunaúrslit
Arsenal 6 Bury 2 1
Áston Villa 0 Brentford 0 x
Blackpool 1 Huddersfield 0 1
Bolton 1 Notts Co. 1 x
Burnley 2 Sunderland 0 1
Chelsea 1 W.B.A. 1 x
Everton 4 Nott. For. 1 1
Halifax 1 Stoke 0 1
Manch. City 1 Luton 1 X
Preston 2 Tottenham 2 x
Plymoth 1 Barnsley 0 1
Sheffield U. 1 Birmingham 1 x
LAUSN A SKÁKÞRAUT
EFTIR PRÓKES
1. Rf4 g2 2. Rh3! glR+! 3.
Kf2! Rxh3f 4. Kfl! og heldur
svarta kónginum inni í horninu.
Ef 2. —glD þá 3. Rf2f, og ef
1. —Kgl þá 2. Re2+ og Rxg3.
I>ORSTEINN VALDIMARSSON:
SVÖRTUSKÓGAR.
Eitt er boSorð í Svörtuskógum:
eldinum lindirnar!
f Svörtuskógum er viðkvæöi:
vatnið eldinum!
f Svörtuskógum er brennd
í börk eikanna
og á skjálfandi laufin
skipun dauðans:
lindirnar eldinum,
vatnið Járnviði!
Heita rök ragna
rök Járnviðar; —
hver safnar forða siéttunnar?
sökkvi járnviðar —
og bliðkar eldinn fórnum?
forsjón Járnvlðar —
og vekur eyðandi reiði hans?
rödd Járnviðar!
Hei ræður hljóði;
hrýtur þruman í kyrðinni;
hrynur dögg sem tár
af krónum þyrstra trjánna,
hrtslast höfug sem dreyri
um hrjúfar og skrælnandi rætur,
hvéffur móð án enda
í skreiðar greipar sandsins; —
sem kornið sigð
er funa búin bráð.
Sem akur sigðar
bíður mörkin báls;
— borin er þó skýr
í ógnardrauma
sprekl feigu
furða náiægs dags:
að seyru dregur
ramma því um rót;
en rót er ein
að ölium saman skógi;
og moldin gljúp
af banni luktum brunnum
drykkjar á grózku,
limar, lauf og blóm,
kræklur og fræ
í foldar skauti svæfð,
sprota og tré,
sem relsa úr eldi og ösku
hátimbruð þök
af stofnum sveigð í storkun
og hvelfd í þrá
mót heiði roðableiku, —
en f jær í skýjum
skruggan þaggar dunur,
sliðrandi Ieiftur slæg
f úfnum flókum,
og storminn kyrrir;
— él er horfið hjá,
og hlær frá tindi
morgungeislinn frjálsi,
og Ies í grasi
af týndum lögmálstöflum
hin gleymdu stef
við nýja sólarsöngva:
það boðorð fyrst,
að hel skal lífl lúta;
það dæmi fremst,
sem loks er öldum Ijóst, —
að eitt varð alls klökkvast,
— ok Járnviðar,
og birtúsk.jarrast,
•— blekking Járnviðar,
og funa fangléttast,
— feyskja Járnviðar.
Hart slítur Fárbauti
fallið hrör að kolum;
— sér nokkuð Svörtuskóga?
svarra rauðar glóðir,
en regnslæðum ljósum
Iéttir mildur þeyr:
— hvað utan rjóður eitt
á Heiðmörkinni grænu.
Vín í desemberlok 1952.
liggur leiðin
Una eVónsdóÉÉir 75 ára
1 gær átti Una Jónsdóttir
skáldkona í Vestxnannaeyjum
75 ára afmæli. Hún er mörgum
kunn víða um land af vísum
sínum og Ijóðum. Una hefur
jafnan fylgt alþýðunni að mál-
um og verið sósíalisti. Hún
mun hafa talið sig til Alþýðu-
flokksins á meðan hann var og
hét í gamla daga, en gerðist á-
samt manni sínum Guðmundi
Guðlaugssyni fylgjandi Komm-
únistaflokks Islands og stofn-
andi 1930. Þegar Sameiningar-
flokkur alþýðu — Sósíalista-
flokkurinn •— reis af grunni
með flokkslegri sameiningu
Kommúnista og vinstri Alþýðu-
flokksmanna gerðust þau hjón-
in stofnendur hans og eru jafn-
an síðan öruggir liðsmenn
hans. — Hafa þeim hjón-
um vafalaust borizt margar og
hlýjar árnaðaróskir í tilefni af-
mælisins, og yill Þjóðviljinn
taka undir þær, um leið
og hann þakkar henni stað-
festu hennar og tryggð í bar-
áttunni fyrir bættum þjóðfé-
lagsháttum, bjartri framtíð
manna.