Þjóðviljinn - 20.03.1953, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 20.03.1953, Qupperneq 6
8) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 20. marz 1953 jUÓÐVIUINN lutgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson. Fréttastjóri: Jón Bjarnason. BlaÖamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Magnús Torfi Ólafsson, Guðmundur Vigfússon. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg. 19. — Sími 7500 (3 línur). ' Áakriftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 17 annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið. Prentsmiðja Þjóðviljaiie h.f. V_________________________1-----------------------J Hin ,einarða barátta" Sigurður Bjar'nason frá Vigur fræðir lésendur Morgun- blaðsins á því í ,,Staksteinum“ sínum í gær, að það sé nú eitt imesta áhyggjuefni stjórnarandstöðunnar „að segja má að nokkurn veginn hafi verið næg atvinna í Reykja- vík og nágrenni í vetur“. Og Sigurður heldur áfram; „Þetta finnst krötum og kommum afleitt. Þeir höfðu sagt þjóð- inni að stefna núverandi ríkisstjórnar hefði leitt hallæri yfir hana. En fólkið sér að þetta er ósatt. Margir erfiðleik- ar hafa að vísu steðjað að undanfarin ár. En með einarðri baráttu hefur tekizt að komast yfir 'þá án stóráfalla". Þetta- eru sem sagt ummæli alþingismannsins frá Vigur. Og í framhaldi af þessari spéki ' kemst hann að þeirri skemmtilegu niðurstöðu fyrir stjórnarflokkana, flokkana sem tekizt hefur að komast yfir erfiðleikana með „einarðri baráttu11 „án stóráfalla11, að af þessuim ástæðum sé stjórn- arandstaðan „dauðhrædd við kosningarnar á komandi sumri“. Samkvæmt þessum vísdómsorðum: Sigurðar þarf því stjórnarfylkingin engu að kvíða. Hún hefur leyst vanda- mál atvinnulífsins af slíkum myndarbrag með sinni J;ein- örðu baráttu" að tekizt hefur að forða stóráföllum og á því traust þjóðarinnar skilið að launum, og mun uppskera það í kosningunum í vor samkvæmt spásögn þessa að- stoðarritstjóra Morgunblaðsins. Af eðlilegum ástæðum. forðast höfundur þessarar Morg- unblaðsspeki að skýra málið nánar fyrir lesendum sínum. Honurr) kemur t. d. ekki til hugar að rekja í hverju hin „einarða barátta“ stjórnarflokkanna gegn atvinnuleysi í landinu birtist. Og því síður hvarflar að honum að drepa á staðreyndir eins og þær að mikill hluti sjávarafla lands- manna liggur óseldur í frystihúsum og fiskgeymslum víðs- vegar um landið. Þá er ekkert á það minnst að iðnaður landsmianna, þar með talinn býggingariðnaðurinn, liggur í dróma fjárskorts af völdum lánsfjárbannsins og haftanna, sem ríkisstjórnin hefur lagt á hverskonar sjálfsbjargarvið- leitni landsmanna, að ógleyn.dri þeirri vizku ríkisstjórnar- innar að hrúga inn í landið fullunnum iðnaðarvörum af sömu gerð og íslenzkar verksmiðjur hafa sýnt sig fullfærar um að framleiða, san.keppnishæfar að verði og gæðum. En ríkisstjóminni hefur tekizt að forða stóráföllum, segir. Sigurður frá Vigur og hvað er um það að segja? Er þessum vikapilti íhaldsins ókunnugt um þá staðreynd að fjöldi fólks, ihæði hér í Reykjavík og út um allt land, býr við atvinnuleysið og afleiðingar þess, fátæktina og skortinn, langtínum saman ár hvert síðan marsjallstefnan fór að sýna endanlegan árangur sinn. Verulegan hluta þessa fólks hefur atvinnuleysisstefna ríkisstjórnarinnar hrakið frá heim ilum sínum og fjölskyldum suður á auðnir Reykjanesskaga i vinnu á vegum ameríska hernámsliðsins, seni þar hefur sezt að í umboði þríflokkaforingjanna en algjörri óþökk hvers frjálsborins íslendings. Það mun láta nærri að þarna suður frá starfi nú í einskonar þrælavinnu yfir þrjú þús- und verkfærir íslendingar, sem meinað er að vinna lað þjóð- nýtum; framkvæmdum og framleiðslu,' vegna öngþveitisins sem marsjallstefnan hefur skapað. Vafalaust hefur Sigurður frá Vigur hernám landsins og arásarundirbúning Bandaríkjanna í huga þegar hann flyt- ur ríkisstjórn íhalds og Framsóknar þakkirnar fyrir hina „eínörðu baráttu" gegn atvinnuleysinu. í því einu hefur sú barátta birzt. En jafn víst er hitt að þ.eir íslendingar verða teljandi sem þakka ríkisstjórninni og floíkkum hennar það fnumkvæði. Vinnan á Keflavíkurflugvelli er hverjum ær- legum Islendingi neyðarúrræði og skapraun og hún er tal- andi tákn um þá eymd og niðurlægingu sem hernámsflokk- arnir eru að leiða yfir íslenzkt atvinnulíf og sjálfstæði landsins. Zn þessari þróun fagnar Sigurður frá Vigur. Það talar sínu um stoltið og reisnina í hugxnyndaheimi iþeirra manna sem telja sig vaxtarbrodd Sjálfstæðisfloikksins. Jóhann J. E. Kúld: Huileiðingar um flskf ramleiðsluna i. Þegar fréttir berast hingað af því, að aðalkeppinautar okk- ar á fiskmörkuðunum, Norð- menn, seldu alla framleiðslu sína á s. 1. ári fyrir gott vérð að þeir telja og gátu varla staðið við allar sínar skuld- bindingar á -því sviði, og að fiskverð í Noregi á frjálsum markaði fiskkaupmanna er nú þrjátíu og sjö aurum hærra á ferskum þorski heldur en hér, miðað við íslenzka pen- inga, þá ætti að vera tímabært fyrir okkur íslendinga að staldra við og hugleiða þessi mál í fullri alvöru. Þess er þá einnig rétt að geta, að nú þeg- ar kreppir að freðfiskfram- leiðslunni hér og frystihúsin eru hálffull af fiski frá s. 1. ári, þá eru Norðmenn að auka hefur verið stigið heillavænlegt skref tiT varðveizlu þess úr- vals fiskistofns og má þar í engu á slaka. Með friðun þýð- ingarmikilla uppeldisstöðva fyr ir botnsköfuveiðarfærum er verið að búa í haginn fyrir framtíðina. Við slík skilyrði sem að framan er lýst, ættum við íslendingar að standa svo vel að vigi með fiskframleiðslu okkar, að markaðir heimsins ættu að standa okkur opnir, ;svo framarlega sem meðferð öll á þessari framleiðslu er góð, og rétt er upp byggt og að unnið. Hvað er þá nð, hvers vegna eru nú fiskhús hér öll hálffull af framleiðslu frá s. 1. ári? Erum við ekki samkeppn- isfærir á mörkuðunum? Það er lífsnauðsyn að kryfja þessi mál til mergjar, því aðeins er von að nota alla nútímatækni við vinnuna með góðum árangri. Fiskhúsin eiga að standa í sjó fram svo að fiskiskipin getf iagzt utan á húshliðamar og tekið aflann á land með raf- magnsvindum og færslubönd- um. Markaðsvörunum á svo að skipa um borð á sama hátt. Aðeins þann fisk sem hertur er eða sólþurrkaður, sé um salt fisk að ræða, ætti að flytja til stöðva utan við borgina sé miðað við Reykjavík. Ef ekki verður undinn að því bráður bugur að byggja upp hér fiski- skipahöfn i samræmi við kröf- ur tímans, þar sem fiskvinnslu- stöðvunum er ætlaður staður. þá er hætt við að Reykjavík dagi uppi sem fiskiðnaðarborg, og hver annar sá staður sem lætur það ógert að skapa fisk- (y þá framleiðslu einnig í stórum stíl. Eitt alstærsta og fullkomn- asta frystihús heimsins er nú að hefja framleiðslu í Björg- vin. Það á að geta tekið í frysti klefa tólf þúsund smálestir af fiski. Og af staðsetningu þessa fyrirtækis geta allir séð sem kunnugir eru staðháttum, að þetta fyys.tihús er eingöngu miðað við úthafsveiði. Norðmenn telja í sínum út- gerðar- og fiskframleiðslumál- gögnum að árið 1952 hafi verið eitt aibezta og hagkvæmastá ár fyrir útgerð og fiskfram- leiðslu í Noregi. Saltfiskmark- að sinn í S-Ameríku hafa þeir aukið á því ári og selja nú saltfisk til allra S-Ameríku- ríkja, þar á meðal var salan til Brasilíu einnar fjögur þús- und smálestir á s. 1. ári. Fisk- sala okkar íslendinga til Brasi- líu á s. 1. ári vaTT hinsvegar engin, þrátt fyrir verzlunar- samninga á milli landanna. Það er fyrst nú sem verið er að ferma tólf hundruð smálestir af fiski til Bnasilíu frá fyrra ári. Þar að auki hafa verið sendir til Kúbu öðru hvoru smá slattar af fiski, en til annarra S-Ameríkurikja ekk- ert. II. Við í.slendingar erum þannig staðsettir á hnettinum að við búum við ein allr.á auðugustu fiskimið heimsins, en þar með er sagan ekki nema hálfsögð. Hitt e.r ekki síður þýðingar- mikið, að gæði fisksins á þessu svæði eru .betri en nokkurs staðar annars staðar í norð- lægum höfum. Þessu veldur að sjálfsögðu botnlagið, straumar hafsins og skilyrði til átu, og er eitt út af fyrir sig ærið rannsóknarefni fyrir fiskifræð- inga. Með útfærslu landhelginnar „Við sem vinmim“ að úr verði bætt, ef öll al- þýða manna sem hér á hags- • muna að gæta geri sér full- komlega ljóst hvar við stönd- um í þessu efni. Orsakir þessa vandræðaástands sem nú ríkir á sviði fiskframleiðslunnar eru margar, og mun ég nú rekja þær helztu og veigamestu. III. Fiskframleiðsla okkar er á flestum sviðum illa uppbyggð, ekki aðeins af hendi þeirra manna sem stjórna þessum mál- um, heldur líka jafnframt í flestum tilfellum frá hendi þess opinbera sem á að veita fram- leiðslunni aðsTöðu í landi, þeg- ,ar skipin koma með aflann í höfn. Yfirleitt eru framleiðslu- fyrirtækin í landi sem vinna úr aflanum alltof lítil og illa staðsett. Ef við lítum t. d. á Reykjavík sem er til orðin fyr- ir gróða af sjávaírafla sem settur hefur verið hér á land og unninn á undangengnum áratugum, þá sjáum við spegil- mynd ,af ástandinu, en sú mynd er neikvæð. Fiskframleiðslu- stöðvunum er dreift um stórt svæði, mörgum langt frá höfn- inni. Fiskinum er kastað á bíla sem flytia hann oft langar leið- ir til vinnslustöðvanna. Þetta skapár óþarfa framleiðslukostn- að og hráefnið er stórskemmt á þessari meðferð þó það hafi verið sæmilegt þegar að landi var komið. Ef við eigum .að verða samkeppnisfærir á mörk- uðunum í .framtíðinni, þá er ekki seinna vænna að farið sé að byggja upp þessa höfuð- framleiðslu okkar íslendinga eftir kröfum tímans. Fiskvinnslustöðvamar á skil- yrðislaust að flytja að höfnun- um, og þær þurfa að stækka frá því sem nú er svo hægt sé framleiðslustörfin ’ vinnslustöðvunum nútíma að- stöðu.. Aðal keppinautar okkar á fiskmörkuðunum, Norðmenn, hafa frá öndverðu staðsett fiskvinnslustöðvar sínar svo til fyrirmyndar er. Og nú eftir siðustu heimsstyrjöld hafa þeir lagt á það ofurkapp að stækka þessar framleiðslustöðvar, og búa þær nútíma tækni í sam- ræmi við kröfur tímans. Við megum því búast við harðri og vaxandi samkeppni frá þeirra hendi í náinni framtíð á fisk- mörkuðum heimsins. Eg skal segja hér frá þeirri staðreynd að norskur freðfisk- ur sem seldur v,ar í Tékkósló- vakíu 1951 talsvert fyrir neðan það verð sem íslendingar fengu fyrir sinn fisk þar á sama tíma, gaf norskum framleið- endum góðan hagnað að þeirra eigin sögn, þrátt fyrir miklu glæsilegri og dýrari umbúðir norska fisksins. Amerískur fiskiðnaðarsér- fræðingur sem hér var á ferð á vegum íslenzku rikisstjórnar- innar fyrir nokkrum árum, taldi það leik fyrir okkur áð keppa við allar þjóðir á fisk- mörkuðum heimsins sökum hinna óviðjafnanlegu 'gæða ís- lenzka fisksins, aðeins ef rétt væri að unnið og fiskistöðv- arnar betur staðsettar, jafn- hliða því sem þær væru hafð- ar stærri og gætu þar af leið- andi tileinkað sér meiri nútíma- tækni og betur skipulagða vinnu sem þýddi minni fram- leiðslukostnað. ÞeSsi sérfræð- ingur tók það sérstaklega fr.am í álitsgerð sinni til ríkisstjórn- arinnar að kaupgjald hér væri alls ekki of hátt við þessa fram leiðslu og á því sviði gætum við boðið byrginn. En síðan Framhald á 11. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.