Þjóðviljinn - 08.04.1953, Page 8
. g) _ t>JÓÐVILJINN — Miðvikudagur 8. apríl 1953
Bðnmvmaiélagsms Sumasgíöi
V'erður haldinn að LAUFÁSBORG föstudaginn 10.
þ. m. Fundurinn hefst.kl. 20.30. — Venjuleg að-
alfundarstörf.
Stjómin
SKfÐAMÓT ÍSLANDS 1953
frá Verkstj órasaiiibaedinu:
Verkstjóranámskeiðið verður sett fimmtudaginn
9. apríl kl. 6 síðdegis 1 kvikmyndasal Austur-
bæjarskólans (gengið inn frá leikvelhnum). Verður
jþá skýrt frá tilhögun kennslunnar.
Allir verkstjórar velkomnir.
Stjómin.
AÐEINS KR. 80.00
kostar árgangurinn af SPEGLINUM í á-
skrift, en kr. 87.00 í lausasölu. Árang-
urinn er að efnismagni eins óg 450 bls.
bók í Skírnisbroti, en myndir hátt á
annað hundrað'. Og svo fá nýir áskrif-
endur á þessu ári allan árgangínn 1951
í kaupbæti.
APBÍLBU9IÐ KEMUB 0T I DfiG
Spegillinn
Áskriítasimi 2702
fást nú aftur í Tóbakseinkasölu ríkisins.
15 km ganga — Þing-
eyingar í sérflokki
Miðvikudaginn 1. april hófst
Skíðamót íslands með 15 km
göngu. Veður mjög slæmt til
keppni, stormur og skafrenn-
ingur.
Var nokkur ágreiningur um
það hvort ætti að ganga eða
ekki, voru Isfirðingar aðallega
á .móti. Sló mótstjómin þá upp
fundi með fararstjórum kepp-
enda, og, var atkvæðagreiðsla
um málið og. var samþykkt að
fresta ekki.
Göngubrautin var lögð þannig
að fylgjast mátti með kepp-
endum eftir 5 og 10 km.
Var mikill spenningur um
úrslitin.
Eru göngumennirnir það jafn
ir að ómögulegt er að spá um
úrslit, eins og kom á daginn.
Þeir sem taldir yoru hafa mest-
ar líkur til vinnings voru m.a.
Oddur, Gunnar, ívar og Eben-
eser. >
Fyrstur lagði af stað Ebenes-
er frá ísafirði. Og svo hver af
öðrum, voru keppendur 14 tals-
ins. Eftir 5 km sást næst til
þeirra og sást þá strax hverjir
mundu verða líklegir til sig-
urs. Má þar nefna Finnboga
Stefánsson HSÞ sem dregið
liafði mjög á, einnig Oddur P.
. og Stefáfn Þórarinsson. Því mið-
ur var ekki hægt að taka neina
millitíma. En sást þó að Finn-
bogi hafði lang beztan tímann.
Næst sást til þeirra eftir 10 km;
var þá Finnbogi sem lagt hafði
af stað nr. 6. kominn á hæla
Ebenesers sem lagði af stað
fyrstur. Einnig höfðu gengið
mjög rösklega Oddur, Stefán Þ.
Sigurjón Hallgrímsson, ívar o.fl.
Skömmu eftir 10 km liætti
Gunnar Péturs og var þar með
úr sögunni sem sigurvegari. í
mark kom fyrstur Finnbogi og
strax á liæla hang Ebeneser og
svo hver af öðrum.
Fkmbogi hafði sigrað með
yfirburðum, næst beztan tíma
hafði Oddur, svo þar næst
Stefán Þórarinsson.
IJrslit:
íslandsmeistari Finnbogi Stef-
ánsson HSÞ '1.18,24 klst.
2. Öddur Pétursson Isafirði
1.20.37 klst.
3. Stefán Þórarinsson HSÞ
1.21,29 klst.
4. Ebeneser Þórarinsson ísaf.
1.23,25 klst.
5. ívar Stefánssca HSÞ 1.24,24
klst.
6. Sigurjón Hallgrímsson Flj.
1.24,55 klst.
7. Sigurkarl Magnússon Flj.
1.26.38 klst.
8. Guðm. Guðmundsson AK 1.
31,19 klst.
10. Sigurjón Halldórsson ísaf.
1.33,15 iklst.
Veður var mjög vont til
keppni eins og fyrr var sagt,
og var komið framm í myrkur
þegar síðustu menn komu í
mark.
Þegar 10 km voru búnir af
göngu eldri flokksins þá voru
„ræstir“ af stað keppendur í
yiigri flokki, voru aðeins 3
keppendur í þeim flokki. Var
lítið fylgst með þeim .þar sem
allir höfðu hugann að eldri
flokknum. Það kom strax í Ijós
að Illugi Þórarins myndi vera í
sérflokki enda kom hann rúmu
„korteri“ á undan þeim næsta
í mark. Illugi gengur mjög
skemmtilega, er léttur og fjaður
magnaður. Á hann áreiðanlega
mikla framtíð fyrir sér sem
göngumaður.
Úrslit:
1. Hlugi Þórarinsson HSÞ 1.28,
31.
2. Sveinn Kristinsson Flj. 1.46,
05.
3. Sig'urður Sigurðsson ísaf.
1.48,11.
Drengirnir gengu 15 km.
4x10 km hoðganga
Á skírdag var keppt í einni
grein 4 X10 km boðgöngu.
Fresta varð svigi vegna veðurs.
Kl. 2 ^tundvísjega hófst svo
boðganga, tvær sveitir kepptu,
sveit Þingeyinga og ísfirðinga.
Var áður, -sem fyrr í göngu,
tvísýnt um úrslit. Fyrsta sprett
gengur Ivar fyrir Þingeyinga og
Sigurður Jónsson fyrir Isfj.
Voru gengnir tveir 5 km hring-
ir. Eftir fyrri liriaiginn hafði
ívar unnið rúma mínútu af Sig-
urði, en eftir 10 km var for-
skotið rúmar þrjár mín. Nú tók
við af Ivarí, hinn ungi og efni-
legi Illugi, en á móti honum
gekk Oddur Pétursson. Héldu
nú margir að Oddi myndi takast
að vinna á og jafna forskotið.
En Illugi var einn á annarri
skoðun, eftir 5 km hafði hann
unnið eina mín. af Oddi og tæp-
lega tvær þegar í mark kom.
Nú voru Þingeyingar komnir
um 5 mín. á undan þegar Stefán
Þ. tók við en á móti honum
gekk Gunnar Pétursson. Eftir
5 km hafði Gunnar dregið um
40 sek. á Stefán og rúrpa mín-
útu eftir .10 km, vfar nú auðséð
að Þingeyingar væru ósigrandi,
þegar hér var komið, nema eitt-
hvað sérstakt kæmi fyrir.
Síðasta sprettinn gengu þeir
Finnbogi meistarinn frá degin-
um áður og Ebeaeser Þ.
Finnbogi saanaði aftur að
hann er ekkert lamb á stuttum
vegalengdum.
Gekk hann geysivel og eftir
fyrri hring hafði hann enn lengt
forskotið um mín. og einni bet-
ur í seinni hring. Gekk hann á
lang bezta tíma.
tírslit:
1. Sveit HSÞ 3.05,16 klst.
2. Sveit ísfirðinga 3.10,43 klst.
Millitímar í boðgöngunni á
10 km:
1. Finnbogi Stefánsson 43,46
2. Gunnar Pétursson 45,05
3. Ebeneser Þórarinsson 45,32
4. Stefán Þórarínsson 46,11
5. Illugi Þórarinsson 47,05.
H.
England gegn öðfum
löndum Evrépu
FIFA Alþjóðasamband knatt-
spyrnumanna með forseta þess,
franskmanninn Jules Rinet, sat
fund í Kaupmannahöfn, og
ræddu ýms alþjóðleg mál.
Þar var gengið frá hinum
löngu fyrírhugaða leik Eaglands
gegn úrvali úr öðrum löndum
Evrópu. Er leikurinn áform-
aður í tilefni af 90 ára afmæli
Enska Knattspyrnusambands-
ins. (Footbal Associaticn) en
það var stofnað 26. okt. 1863.
Dagsetning leiksins er ákveðin
21. okt. og fer hann fram á
Wembley í London. Þeir sem
yeija í liðið gegn Englandi eru
Lotzy frá Hollandi, Tbommen
frá Sviss, Capero frá Spáni og
Gassmann frá Sviss.
Samþykkt var að leikmenn
sem leika í evrópeískum liðurh
en eru af þjóðerni utan Evrópu
megi keppa í hinu blaadaða liði.
Á fundi þessum var rætt um
það og samþykk-t að eitthvert
landið tæki að sér að standa
fyrir keppni milli liðs frá
Evrópu og annars frá Suður-
Ameríku í-tilefni af 50 ára af-
mæli FIFA næsta ár. Spánn
sótti um að sjá um leikinn en á-
kvörðun var ekki tekin um það á
fundinum.
I liggur leiðin
Happdrœtfi Háskóla Islands