Þjóðviljinn - 21.05.1953, Blaðsíða 11
r
Fimmtudagur 21. maí 1953 — ÞJÓÐVILJINN — (11
Heimilisþátturinn
Framhald af 10. síðu.
strái'ð salti og sykri yfir og
örlitlum pipar, ef þér óskið.
Hellið ediksblöndunni yfir og
blandið steinseljunni saman við.
Bezt eftir 1—2 klst. en getur
geymzt í nokkra daga á köld-
um stað.
(Meira á morgun).
Helgafell
Framh. af 12. síðu.
ihinn feiknalega blaðakost okk-
ar hér er t.d. ekki neitt rit
sem er helgað menningarmál-
um, svo sem tónlist og mynd-
Jist og má því vafalaust um
kenna hvernig komið er um
þessi mál á margan hátt. Einn-
ig er mikill skortur á riti þar
sem almennar umræður um
listir og menningarmál geti far-
ið fram og þar sem alvarlegri
gagnrýni verður beitt.
Menningarlegur aflvaki
í þjcðlífinu
Miðnæíuræfing
Framhald af 8. síðu.
Amerikanar hafa flutt inn. 40
þús. Ameríkumenn eru á eynni
og byggja þair flugvelli og
hafnir. Fólkið er USA-sinna'ð,
sérstaklega hinar fögru konur.
— Áður var allt rólegt í póli-
tikinni á íslandi en nú hafa
kommúnistar risið upp með
mótmæli gegn þessum banda-
ríska innflutningi. — Brenni-
vín er hægt að kaupa þar eins
og maður vill og á næturnar
er auðvelt að fá það keypt í
fólksflutningabifreiðum fyrir
svolíti'ð hærra verð. — Að lok-
um segir Adenby að þeir eigi
heimboð til Islands og hann
gerir ráð fyrir að koma aftur
með sænska listamenn og Snodd
as í .haust — <?f:, tíminn leyfi.
Með greininni fylgja tvær
myndir, öimur þar sem Snodd-
as er niðri í fjöru að „kýla“
kolamola með liendinni. Hin er
af Snoddas og Erni Clausen nið
ur á bryggju.
Takist mér, eins og ég tel
mig hafa ástæðu til að vona,
a'ð ná til nokkurra úrvals
manna, skálda, listamanna cog
vísindamanna. þá er ég .ekki f
vafa um að hið nýja Helgafel'
muni endurheimta vinsældir
gamla ritsins og verða aftur
nienningarlegur aflvaki i þjóð-
lífi okkar.
Að vísu er skarð fyrir skild'
þar sem Magnús Ásgeirsson
hinn snjalB ritstjóri gaml?
Helgafells, er fjarri, en tíma-
ritið vonast eftir að fá að
njóta krafta hans síðar.
Eins og þetta rit ber með
sér er það aðallega tileinkað
Ásmmidi Sveinssyni sextugum
en flytur auk þess greinar um
tónlistamál, bókmenntir og at-
vinnumál. — Ritið mun í fram-
tíðimni einnig ' láta atvinnumál
til sín taka. | viUanum
Svefnsófar
Armsfólar
Sófasett
BÓLSTRARINN
Kjartansgötu 1, sími 5102
AÐVÖRUN
um stöðvuu aiviunuíeksíurs vegna vanskila
á söluskatti
Samkvæmt kröfu tollstjórans í Reykjavík og
heimild 1 4. mg. 3. gr. laga nr. 112, 28. desember
1950 verður atvinnurekstur þeirra fyrirtækja hér
í umdæminu, s£m enn skulda söluskatt 1. ársfjórð-
ungs 1953 stöövaður, þar til þau hafa gert full skil
á hinum vangreidda söluskatti ásamt áföllnum
dráttarvöxtum og kostnaöi. Þeir, sem vilja komast
hjá stöðvun, verða að gera full skil nú þp^ar til
tollstjóraskrifstofunnar, Arnarhvoli.
Viö framkvæmd lokunarinnaar verður enginn
frestur veittur.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 20. maí 1953.
Sigurjón Sigurðsson
Pólverjinn
Framhald a' 2. síðu.
aftur -til Póllands, eftir að sér-
fræðingar atlanzherjanna höfðu
skoðað hana hátt og lágt. Síðar
kom í liós, að flugmanninum
hafði verið mútað með 10,0.000
dollurum til að fljúga vélinni til
atlanzlands. New York Times
skýrði nýega frá því, að það
væri ekkert launungarmál, að
bandarískir erindrekar í alþýðu-
ríkjunum hefðu boðið mútur
hverjum þeim sem fljúga vildi
flugvélum af sovétgerð yfir til
atlanzríkjanna.
Bemið
vlðskiptum ykkar til þelrra
sem auglýsa í Þjóð-
A sjó 1. inaí
Framh. af 6. síðu.
inn að hún. Hann drúpir hreyf-
igarlaus og einmana mitt í auðn
hins víðáttumikla hafs. Tákn
seldrar, kúgaðrar þjóðar. Hvar
er bróðir þinn, fáninn rauði?
Og að lokum er haldið heim
til hafnar. Við gerum að aflan-
um, sem er rýr að þessu sinni
eins og svo oft áður á þessari
vertíð. Hluturinn úr aflanum
í dag mun nema eitthvað á 2.
hundrað krónur, en frá honum
dregst ýmiss kostnaður, s. s.
fæði, húsnæði, þjónusta, ráðs-
konukaup, bílakeyrsla, brennslu
og smurolíur, hafnargjaid o. s.
frv. ÍÞað er þó bót í máli að
fiskurinn fer allur í 1. flokk að
þessu sinni, þar sem hann er
aðeins næturgamall. En þegar
ekki hefur verið hægt að vitja
,um netin daglega bá er hann
verðfelldur. Fyrir þriggja nátta
fisk fæst um það ibil einum
þriðja minna verð heldur en
fyrir næturgámlan. Og stund-
um hefur verið reynt að verð-
fella fiskinn ennþá meira en
samningar standa til. Við finn-
um oft hvernig allt er gert
sem hæjgt er ,til að reyta úr
höndum okkar hver þau vei’ð-
mæti sem okkur hefur hlotnazt
fyrir vinnu okkar. í velur mun
það hafa verið algengast í
Grindavík, að þeir sem keyptu
fiskinn af okkur, settu all'an
fisk, sem var éldri en nætur-
gamall í herzlu. Sjálfir munu
þeir fá sama verð fyrir herta
fiskinn þegar þeir selja hann,
hvort sem þeir hafa tekið við
honum nýjum eða gömlum úr
bát. Þannig græða þeir marg-
falt á þvi að kaupa hann af
okkur í '2. og 3. flokk. Eg hef
aldrei heyrt þess getið að Sjó-
mannafélagið eða ríkisstjórnin
gerðu nokkra athugasemd við
þessa skiptingu þjóðartekn-
anna, enda sennilega fáir, sem
gera ráð fyrir nokkru slíku úr
þeirri átt.
/■----------------------\
Reyon ullarefni
rautt — blátt — Ijósblátt —
dökkgrænt —- lillablátt —
brúnt — ljósgrænt og dökk-
grænt — 90 cm. breitt á kr.
33.40 metri.
M. TOFT
Skólavörðustíg 8. Sími 1035
i>að er kominn dagur að
kveldi þegar við komum heim.
Vinnudagurinn er langur, stund-
um 18 klukkustundir og þar
yfir. Það er 1. maí í dag og
við hefðum gjarnan viljað gera
okkur dagamun með þvi að
skemmta okkur eitthvað. En
grindvikst skemmtana- og
menningarlíf er fremur lítið að
vöxtum. Jú, það er víst sýnd
amerísk kvikmynd í samkomu-
húsinu í kvöld, eip af þessunf-
ógeðslegu afsiðunar og af-
menningar kvikmyndum, sorr
inn úr því allra lélegasta sero.
Reykvikingar hafa kynnzt-
Manni verður flökurt af tilhugs-
uninni einni saman. Þá er víst
betra að láta sér leiðast heima-
eða bara halla sér útaf og fars.
að sofa.
Og svo kemur annar maí.
Sungana
larðarberjaplöntíir
Úrvals jaröarberjaplöntur af ABUNDANCE-stofni
veröa seldar í Atvinnudeild Háskólans, föstudag
og laugardag kl. 10-3.
Atvinnudeild Háskólans
Tilboð óskast um að byggja verzlunarhús '
í Bústaöahverfi.
Útboðsiýsing og uppdrættir verða afhent-
ir í teiknistofu Sigmundar Halldórssonar,
Borgartúni 7, kl. 17.00-19.00 í dag og á
morgun gegn 100 krónu skilatryggingu.
Borgarstjórinn
Móöir okkar,
Jakohína S. Jónsdóttir
frá Villingadal,
lézt aö kvöldi 19. þ.m. að heimili sínu, Bergþóru-
götu 16, Reykjavík.
Börn hinnar látnu
Þökkum hjartanlega auösýnda hluttekningn viö
andlát og jaröarför
Sæmrnidm FiiÓiiJzssonar.
Brautartungu, Stokkseyri.
Aðstandendur.