Þjóðviljinn - 03.06.1953, Page 4

Þjóðviljinn - 03.06.1953, Page 4
'ti i — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 3. júní 1953 Síðast liðinn laugardag birt- ir ,,Grímur“ grein í Alþýðu- iblaðinu, er nefnist „Vor yíir Alþýðuflokknum“. Er grein- •jnni ætlað að vera „Hugleið- ingar vlð sunnudagsrakstur". Gamansamur gerist þú' nú Grímsi sæll og er þó gamanið að sumu leyti grátt. Að minnsta kosti er vonandi áð fáum hafi komið greinarkorn- ið í hug við raksturinn, því ærin ástæðá væru slíkar hug- leiðingar til að menn skæru sig til skemmda, svo spreng- hlægileg öfugmæli sem grein- in er, bæði að yfirskrift og inuihaldi. Yfirskriftin um vorið yfir Alþýðuflokknum verkar þeg- ar á lesandann sem grimm- asta spott. Mála sannast er í það að ef þeir AB-menn þykj- ast með einhverjum hætti finna nálægð vorsins í flokki sínum, þá ætti þeim þó að vera Ijóst að þar vorar hörmu lega illa. Veðurfarið er sífeld- 1 ir umhleypingar, frost og fannkoma enda hvergi sting- ! andi strá. Ef þetta er vor þá eru það ein mestu vorharðindi sem sögur fara af. — Það er löngu orðið alþjóð kunnugt að Alþýðuflokkurinn er í upp- iausn. Hin nýja forusta hefur gjörsamlega brugðizt hlut- verki sínu og ræður ekki við neitt. Sumir þekktustu for- 1 ustumenn flokksins á liðnum áratugum hafa sagt sig úr miðstjóm hans og fleiri hafa að minnsta kosti „hug á að ! segja sig úr miðstjórn flokks- ins“, eins og Alþýðublaðið komst áð orði um Jón Sigurðs son s. 1. sunnudag. Aðalmenn gömlu forráðaklíkunnar, haust sálir flokksins, ráða enn lög- um og lofum og eru allir í framboðum sem áður, að und anskildum Stefáni Jóhanni ; einum. Þessir menn eru algjör lega búnir að tapa trausti kjósenda, og fátt getur fjar- stæðara en að kenna þá fylk- ingu við vor og gróanda. Á sllku ,.vori“ sem þessu vex enginn gróður. En það er meira blóð í kúnni hjá Grímsa en hin skop lega yfirskrift, öll greinin morar af hinum kátlegustu öfugmælum. Hér eru nokkur ifliílébji sýnishorn: „Alþýðuflokkurinn er síungur“. Jíá, hætt er nú við og sjást þess glögg merki síðustu árin á siminnkandi fylgi, kyrrstöðu og þröngsýni. —■ , Hvernig sem allt veltist í veröldinni, þarf íslenzk al- þýða á traustum, þjóðlegum og vakandi samtökum að halda. Alþýðuflokkurinn er þau samtök fólksins". Já, þótt það væri nú. Það vantar svo sem ekki að húsbænduinir haldi vöku sinni á bænum þeim og þá skortir ekki traust ið og þjóðlegheitin. Nægjr þar að benda á svik á svik ofan í sjálfstæðismálum þjóðarinn- ar og skriðdýrshátt fyrir er- lendu herveldi, að ógleymdum svikum við samtök verkafólks ins, með því að fylkja liði með stjórnarflokkunum í Al- þýðusambandinu. Út yfir tekur þó þegar ■greinarhöfundur vitnar í ljóð hins smjalia og róttæka skálds, Arnar Arnarsonar, máli sínu til stuðnings og tilfærir þetta gullvæga erindi: I svip þeirra, seintekna bónd- ans, hins sagnfáa verkamanns og sjómannsins svarakalda, toýr saga og framtíð vors lands. Sá þöguli fjöldi er þjóðin, þungstreym og vatnsmegn á. Þótt hátt beri jakahrönglið. hún hrýður því út á sjá. Er síðan lagt út af því að Alþýðuflokkurinn einn hafi skilyrði til þess „að hryðja jakahröngli íhalds og öfga út á þann sjá, er því hæfir“. Er þetta nú ekki einum of mikið „Grímur“? Fyrr má nú rota en dauðrota. Það er ekki einungis há- mark öfugmælanna þegar ,,Grimur“ leyfir sér að vitna í skáldið til að túlka orð þass á þennan hátt heldur einnig hin mesta ósvífni. Hinn mikli alþýðuvinur, Örn Arnarson, hefur hér sem oftar í fögru ljóði hyllt hið starfapdi fólk til sjávar og sveita. Það er fólkið sem skáldið trúir á, það er þjóðin. Þessu fólki treystir skáldið til að hrinda öllu ranglæti af hcndum sér og hryðja hrönglinu á haf út. Og það er einmitt þetta fólk Hannibal Valdimarsson situr enn á skrifstofum sínum við Hverfisgötu og býr til skáldsög- ur um pólitíska andstaeðinga. S.l. sunnudag kom geysileg forsíðu- fregn um fjárráð sósialista. Efni hennar var það að félagið MÍR hefði vélar til þess að sýna kvik- myndir sínar, að Þjóðviljinn liefði verið stækkaður með liinu glæsilega átaki lesenda og stuðningsmanna, að Landneminn hefði breytt um form, — og að lokum kom aðalatriði*: að Har- aldur Jóhannsson frambjóðandi Sósíalistaflokksins í Borgarfjarð- arsýslu hefði borgað fyrirfram kosningablað sitt!! Haraldur Jóhannsson gekk í fyrradag á fund Hanníbais og afhenti honum bréíf það sem hér fer á eftir og kvaðst myndu leita aðstoðar dómstólanna til þess að tryggja birtingu þess ef Hanní- bal birti það ekki af frjálsum vilja: Á forsíðu blaðs yðar í gær, 31. maí 1953, segir: „Alþýða manna um allt land stendur nú undrandi yfir því geypi fjármagni er kommúnista flokkurinn virðist hafa aðgang að til kosningabaráttunnar .... Mun óhætt að fullyrða, að þess- ar „tekjur“ kommúnistaflokks- ins séu frá öðrum komnar en íslenzkri alþýðu .... og er <___________________ sem Alþýðuflokkurinn hefur svikið. En orð skáldsins eru spá- dómsorð. Þess mun ekki langt að bíða að þau rætist, þótt því fari víðs f jarri áð þau geti rætzt á þann hátt sem „Grím: ur“ vill véra láta. Eftir um- hleypingari'á sem geysað hafa í Alþýðuflokknum ueidanfarna mánuði, eú þar nú ekkert eft- ir nema jakahrönglið. Alþýðe landsins til sjávar og sveita er minnug á svik Alþýðu- flokksins við samtök hennar hugsjónir og hagsmuni. í kosningunum í vor mun al- þýðan hryðja jakahröngli Al- þýðuflokksins út í pólitískt hafsauga. Grímúlfur. vissulega margt því til sann- indamerkis, er nána.r verður rætt hér á eftir. Það er ekki fyrir það að synja að grunur, svo ekki sé meira sagt, hefur allt frá upphafi leikið á um það, að fé til starfsemi komm- ú.nistaflokksins sé beicit frá höf- uðstöðvum f.lokksiiis í Moskvu komið. . . .“ Blað yðar heldur áfram: „Frambjóðandi kommúnista i Borgarf jarðarsýslu kom í prent smiðju á Akranesi um daginn og gerði samning við prent- smiðjuna um prentu-i á kosn- ingablaði fyrir sig. Að samning um loknum, tók hann upp budd- una, spurði um kostnað við út- gáfu blaðsins — og borgaði síðan fyrirfram. Það er alltaf munur að vera vel fjáður!“ Þar eð í þessari frásögn yðar felast þær aðdróttanir í minn garð, að ég hafi með höndum fé, sem ég er ólöglega að kom- inn, neýðist ég til að krefjast þess, að þér birtið eftirfarandi leiðréttingu í blaði yðar þiegar í stað. 1. Hér er ekki um að ræða kosningablað fyrir mig, heldur Dögun, bæjarblað Sósíalistafé- lags Akraness, sem komið hef- ur út undanfarin ár, þegar á- stæða hefur þótt vera fyrir hendi. Út kemur nú 4. árgang- ur blaðsins. 2. Eg hef enga samninga gert við Prentverk Akraness um útkomu blaðsins. Alla slíka samninga hafa tolaðstjórn og af greiðslumaður þess annazt. 3. Það er rakin lýgi, að ég hafi greitt fyrir útkomu blaðs- ins fyrirfram. Blaðið hefur ekki verið greitt fyrirfram. Þau tvö blöð sem út hafa komið í sum- ar, voru greidd við viðtöku, eins og Prentverk Akraness fór fram á. 4. Og ef þér, hr. ritstjóri, eins og er siður vandaðra ,rit- stjóra, hefðuð talið það ómaks- ins virði að ganga úr skugga um sannleiksgildi frásagnar þessarar, áður en þér birtuð hana í blaði yðar, hefðuð þér komizt að raun um, að ekki var fótur fyrir henoi. Eigandi Prentverks Akraness, Ólafur B. Björnsspn, hefur tjáð sig reiðu- búinn að staðfesta það, sem hér er sagt, um viöskipti mín við það varðandi útkomu Dög- unar á þessu sumri. Haraldur Jóhannsson. í gær étur Hanníbal svo ofan í.sig skóldskap.sinn, birtir efnis- lega bréf Haraldar og segir: „Telur Alþýðublaðið rétt að hafa heldur Það sem sannara reynist í þessu máli sem öðrum(!) og verður í því efni að treysta Har- aldi Jóhannssyni." Niðurlagsorð- in eru þó rúsínan: „Fær Al- þýðublaðið ekki séð, að neinu meginatriði fregnarinnar hafi verið haggað.“ — Aumingja Hanníbal. Þm° §em msham leihur Laugardaginn 30. maí voru haldnir síðari nemenda-tónleik- ar Tónlistaskólans á þessu vori. Þar voru flutt þessi verk: Mozart: Sónata í a-moll leik- in af Jónínu Iielgu Gísladóttur Schumann: Lög úr „Fiðrildum“ leikin af Önnu Sigr. Lorange Carl Nielsen: Romance fyrir óbó og píanó leikinn af Ásgeiri Sverrissyni (óbó) og Hildi Þor- steindóttur (píanó) Chopin: Fantasie-impromtu, leikin af Hildi Þorsteinsdóttur. Brahms: Sónata í f-moll fyrir klarinett og píanó leikin af Sigurði Mark- ússyni (fullnaðarprófsnemanda á klarinett) og Stefáni Ólafs- syni. Grieg: Ballade i g-moll leikin af Selmu Gunnarsdóttur. Boyce: Sinfónía nr. VI. leikin af nemendahljómsveit Björns Ólafssonar. Bach: Konsert í d- moll leikin af nemendahljóm- sveitinni með einleik Kristins Gestssonar. Það er alltaf hressandi blær yfir tónleikum sem þessum, þar sem æskan sýnir árangur und- anfarandi starfs og strengir heit um að ná enn lengra í næsta áfanga. Verkefnin voru að sjálfsögðu Framhald á 9. síðu Þegar járngrindurnar umhveríis Austurvöll þóttu sjálfsagður hlutur. VISSULEGA hafa tímarnir „MAÐUR VEÐ GARÐSHORN“ skrifar: „Gaman er að sjá, hversu smekklega er hægt að ganga frá smágörðum og grasigrónum hornum á gatna- 1 mótum og víðar. Mér dettur í hug þríhyrningurinn stóri fyr- ir sunnan Gamla kirkjugarð- inn. Þessa dagana er verið að leggja hann grasi og hellu- stigum, og sennilega verða settir þar upp bekkir handa gömlu fólki og lasburða til að hvílast á, enda ekki óviðeig- andi, þar sem elliheimilið er á næstu grösum. — En nú er mér spum: Er ekki hægt að fjarlægja eitthvað af öll- um þeim girðingum, sem ó- ! prýða umhverfi margra skemmtilegra garða og húsa? Verið er áð rífa grjótgarðinn ' umhverfis Gúttó, og vonandi verður hann aldrei settur upp aftur. Þeir tímar hljóta að koma, og eru reymdar komnir þegar, að óhætt er að hafa grasbletti og garða ógirta, þrátt fyrir skemmdarfýsn ein- stöku sálna. Með auknum al- mennum áhuga fyrir garð- og trjárækt eykst virðing uppvax andi kynslóðar fyrir þeim gróðri, sem hún hefur sjálf lært að hlúa að. Þess vegna held ég, að óhætt sé að rífa nú þegar eitthvað af þeim girðingum, sem eftir eru utan um ýmsa ræktarbletti í bæn- um. Eg nefni sem dæmi garð- ana austanvert við tjörnina. Og eigendur fallegra einka- garða ættu að kappkosta að hafa grindverkin umhverfis þá a.m.k. helmingi lægri en þau -eru yfirleitt nú. breytzt, hvað þetta snertir ■sem annað. Fyrir tæpum tutt- ugu árum kom hingað * út- lendur merkismaður, sem hafði — eða þóttist a.m.k. hafa vit á skipulagi bæja. I blaðaviðtali var hann spurður hvað honum þœtti leiðinlegast við útlit miðbæjarins í höfuð- staðnum. „Járngrindverkið um hverfis Austurvöll," svaraði hann. „Það ætti að láta rífa sem fyrst“. — Blaðamaðurinn sem hafði viðtalið, varð svo undrandi, að hann setti uppá- stunguna sem fyrirsögn á við- talið í heild. Svona þótti frá- leitt að taka járngrindverk utan af grasbletti í miðbæn- um fyrir einum tuttugu árum. Enda hafði sjálfsagt verið miklu til kostað að koma því grindverki upp, á sinni tíð og betra, að þeir peningar hefðu verið notaðir á annan hátt. — En járngrindverkið fór. Og merkilegt má kaúa, að einmitt eftir að völlurinn var opnað- ur almenningi, var farið að hugsa um að gera hann að fa'legum ræktarbletti með gangstigum mil'.i blómabeð- anna. — Hinu verður e’kki neitað, að margir hafa sýnt kærulej'si og dcnaskap i um- gengni við þennan elzta rækt- arblett landsinsi — Hér. er semsé um að ræða leifarraar af túni Ingólfs Arnarsonar, og menn ættu — þó ekki væri nema þess vegna — að um- gangast hann með einhverri kurteisi. EN NÚ ER EG kominn langt frá hinu upprunalega efni, til- mælunum um takmörkun girð inga. Sem betur fer hefur grjótgarðatizkan verið yfir- buguð í svip, og á vonandi eklci upp á pallborðið framar. Nú reisa menn yfirleitt ekki margra metra háa og þykka grjótveggi milli lóðar sinnar og nágrannans, eins og háttur var fyrrum. Sagt er, að gjald- eyrisskorturinn hafi hjálpað til við að kveða grjótgarða- drauginn niður. Ef satt er, má segja. að fátt sé svo með öllu illt, að ekki boði nolckuð gott. En hverjum sem það er nú að þakka, þá er he^st útlit fyrir, að Hlíðarnar, Skjólinn og önnur ný hverfi í bænum ætli að losna við innilokunar- stefnuna í skipulagi og frá gangi. Þetta fer saman með auknum áhuga bæjarbúa á trjárækt, og fer vel á því. — Maður við Garðshoni.“

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.