Þjóðviljinn - 10.06.1953, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 10.06.1953, Blaðsíða 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 10. juní 1953 þlÓÐVIUINN Ötgefaudl: Sarnsiningarflokkur aiþýöu — Sósíallstaflokkurinn. Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson. Fréttastjórl: Jón Bjarnason. Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Benediktsson, Guð- mundur Vigfússon, Magnús Torfi Ólafsson. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðslu, auglýsingar, prentsmlðja: Skólavörðustíg. 19. — Sími 7500 (3 línur). Aakriftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 17 annai'8 staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. Þrumuleiðarar hernámsflokkanna Þegar þfóðin gekk aö kjörboröinu 1949 ríkti almenn og vaxandi óánægja meðal kjósenda allra afturhaldsflokk- anna. Stjórn Stefáns Jóhanns haföi setið aö völdum í landinu frá ársbyrjun 1947 og valdaferill hennar ein- kennzt af svikum við sjálfstæði landsins og síendurtekn- um árásum á þau lífskjör sem alþýðusamtökunum og Sósíalistaflokknum tókst að skapa með valdatöku sam- einingarmanna í Alþýð'usambandinu og starfi nýsköpun- arstjórnarinnar. Þjóðinni var ljóst að ábyrgöina á þessu báru afturhaldsflokkarnir allir. Afturhaldsflokarnir þurftu því að setja blekkingaleilc á svið stjórnmálabaráttunnar. Það varð að hindra aö réttmæt gremja fólksins brytist út á jákvæðan hátt þ. e. með stórfelldri fylgisaukningu þess flokks, sem veitt hafði stjómarstefnunni ákveðna og harðvítuga mótspyrnu, Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalistafiokksins. Og ráðið varö fundið. Tveir þingmenn Alþýðuflokksins, Hannibal Valdimarsson og Gylfi Þ. Gíslason voru látnir hefja mála- myndaandstöðu gegn afsali landsréttinda, og Rannveig Þorsteinsdóttir var íátin hefja háværan söng gegn hvers- konar gróðabralli og fjárplógsstarfsemi. Þessum þokka- legu hj úum var ætlaö þaö hlutverk aö verða þrumuleiðar- ar afturhaldsflokkanna í kosningabaráttunni. Og þetta tókst að nokkru; einkum reyndust loddarabrögð Rann- veigar árárangursrík fyrir Framsóknarflokkinn í Reykja- vík. En þróunin er ör og hinn bandaríski húsbóndi strangur við undirsáta sína. Rannveig Þorsteinsdóttir hefur verið klædd úr lýðskrumsspjörunum og Hannibal og Gylfi standa nú með sama svikastimpil á enni og aðrir þing- menn hernámsflokkanna. Það var óhugsandi í þessum kosningnm aö hafa sömu not af iþessari þrenningu og afturhaldsflokkarnir höfðu í kosningunum 1949. Og þó var þörfin vissulega brýnni nú en þá til þess að afvega- leiða og blekkja þann fjölda sem gramur og vonsvikinn snýr baki við óheillastefnu Sjálfstæðisflokksins, Fram- sóknarflokksins og Alþýöuflokksins. Til þess aö vinna það verk sem Rannveigu, Hannibal og Gylfa var ætlað í síðustu kosningum, en eru ekki nýt til lengur, hafa myrkraöfl afturhaldsins og hernáms- flokkanna stofnað tvo nýja stjórnmálaflokka, sem ætlað er að taka við hlutverki þrenningarinnar, Lýðveldis- flokkinn og Þjóðvarnarflokkinn. Þessum flokksnefnum, og þó einkum þeim síðarnefnda, er ætlað aö ánetja þaö fólk sem hverfur frá hernámsflokkunum vegna svika þeirra við sjálfstæði landsins og hrunstefnunnar í atvinnu málunum. Þessum nýju þrumuleiðurum hernámsflokk- anna er ætlað að hindra að fjöldinn, sem nú yfirgefur stjórnarflokkana og dindil þeirra AB-flokkinn, geri sig aö g.'ldandi afli í íslenzkri stjórnmálabaráttu á þann eina raunhæfa hátt sem hugsanlegur er; með því að standa saman í einni voidugri fylkingn með Sósíalistaflokkmun og bandamönnum hans, í kosningunum. Þetta herbragð hernámsflokkanna má ekki heppnast og reynslan af Rannveigu, Hannibal og Gylfa ætti aö vera öllum heilskyggnum andstæöingum hernámsins og hinnar efnahagslegu niðurlægingar til alvarlegrar viö- vörunar. Það sem menn verða aö gera sér ljóst 1 tíma er þetta: þaö er sama og að kjósa hernámsflokkana sjálfa aö kasta atkvæðum sínum á þrumuleiöara þeirra. Hvert atkvæði sem t.d. Þjóðvarnarflokki Bergs og Arnórs yrði greitt í þessum kosningum feilur dautt og ónýtt aö öoru leyti en þvi að þáð dregur úr sóknarmætti andstæö- inga hernámsflokkanna. Það er nauðynlegt áð allir geri sér þetta ljóst í tíma. Það er ekki nema ein leið til fyrir þá sem snúa balci við flokkum hernámsins og hnignunarinnar. Það er aðeins ein leið sem liggur að þeim sigri sem íslenzk alþýða og ís- ienzka þjóðin þarf að vinna í kosningunum 28. júní. Leið- in er sú að fylkja sér um Sósíalistaflokkinn og banda- menn hans í hverju einasta kjördæmi landsins. Þannig og aðeins þannig verða sköpuð skilyrði fyrir nýrri sókn í atvinnumálunum og brottflutningi hins erlenda hers úr l&ndi. Lánsf járkreppan er þáttur í stefnu hernámsflokkanna Atvinnulífinu verður áfram haldið í fgöfrum hennar ef þeir fá ekki skell í kosningunum iHernámsflokkamir þrír, Sjálf stæðisflokkurinn, Framsókn og Alþýðuflokkurinn, tóku þvl sem „kommúnistaáróðri" er þingmenn Sósíalistaflokksins réðust á þær ráðstafanir þeirra sem valdið hafa hinni erfiðu og óþörfu lánsfjárkreppu, sem þjóðin stynur nú undir. En einmitt þarátta Sósíal- istaflokksins 'gegn þessari láns- fjárkreppu hefur vakið þjóðina til skilnings á því, hve alvar- legt fyrirbæri hún er. I>ess vegna fór svo, að sjálfir her- námsflokkamir eru orðnir hræddir við þennan draug, eru meira að segja famir að tala sjálfir um lánsfjárkreppuna og ráð til að bæta úr henni. Þetta «r þó eingöngu miðað við kosningarnar, því lánsfjár- krepppn er sterkur þáttur í framkvæmd bandarísku stefn- unnar, sem hemámsflokkarnir hafa fylgt frá .1947. ★ Það eru þeir flokkar, Sjálf- stæðisflokkurinn, Framsókn og Alþýðuflokkurinn, sem eiga sök á þessu ástandi: 9 Almenn lánsfjárkreppa sköpuð í landinu, samkvæmt fyrirmælum ríkisstjómarinnar til Landsbankans. Seðlavelta landsins minnkuð um lielming, miðað við dollar frá 1949 til 1953 (úr 25 millj. dollara í 12 inillj. dollara). • Alger stöðvun á almenn- mn lántini banka til húsbygg- inga. • Stöðvun á lánum til nýrra framleiðslufyrirtækja. • Atvinnurekstur stöðvaður vegna lánsfjárskorts. • Möguleikar til gjaldeyris- öflunar látnir ónotaðir vegna skorts á rekstursfé til atvinnu- fyrirtækja (sbr. siglingu tog- ara með óunninn afla á er- iendan markað). ★ Það er í beinu samhengi við alla baráttu Sósialistaflokksins í þessum málum, að hann nú fyrir þessar kosningar leggur áherzlu á eftirfarandi: 1. Gerbreyting yerði á lánsfjárstefnu bánk- anna. Hún verði miðuð við þarfir íslenzks at- vinnulífs. 2. Lán til útflutnings- franileiðslu séu miðuð við óhindraðan rekstur. Vextir af framleiðslu- lán um_ stó riækkaðir. _ 3. Lán, sem miða að aukinni framleiðslu í landinu hafi sérstakan forgang. 4. Lán, sem miða að því að greiða fyrir af- urðasölu, skulu og hafa forgang og veitast með sérstökum kjörum. 5. Lánastarfsemi til íbúðahúsabygg'inga og annarar gagnlegrar fjárfestingarstarfsemi sé hafin að nýju og að bví stefnt, að allir hafi næga atvinnu og öll orka þjóðarinnar sé hagnýtt til framleiðslu og uppbyggingar lands- ins. ★ Það ríður á að fólk skilji, að lánsfjárerfiðleikarnir eiga sér pólitískar orsakir. Á láns- fjárkreppan að halda áfram að þjaka íslenzki .atvinnulíf og setja iafnt einstaklingum og fyrirtækjum framleiðsluat- vinnuveganna stólinn fyrir dyrnar. Það er ein þeirra spurningá, sem hver kjósandi verður að íhuga, áður en hann gengur að kjörborði 28. júni. Við sem métnfiælum . Quantus Tremor est futurus Quando judex est venturus ÞAÐ ætti ekki að vera ýkja mikill vandi fyrir heiðarlega þenkjandi fólk að kjósa í þetta sinn. Að visu eru flokkarnir sem bjóða fram fleiri nú en áður. Þessum línum mun eink- um stefnt að nýju flokkunum og það athugað hvort þeir veita færi á því sem efst er í huga fjölmargra af fyrri kjósendum borgaraflokkanna gömlu: að mótmæla aúðmýkingarstefnunni sem þeir flokkar hafa mætt amerískum ágangi með og- jafn- framt að lýsa áliti sínu á dugleysi stjórnarvaidanna á öll- um sviðum. Fáir eru í vafa um það að fyigið mun renna strítt undan þéim flokkum sem bera ábyrgð á aumingjaskapnum og þrælsháttum þeim sem því valda að Islendingar eru nú í sínu eigin landi sem „lág- kynjaður mannflokkur" eins og fulltrúi íslenzku ríkisstjómar- innar í mannréttindanefnd Sam- einuðu þjóðanna kallaði af smekkvísi b'ökkumenn og Ind- verja í landj hins illa Malans sem þarna á sýnilega öflugan og siðferðisþroskaðan meðmæl- anda. Það eru flokkarnir sem samþykktu að gera íslenzkt land áð æfingasvæðaim fyrir vígsveitir þeirrar nýju atóm- sólar sem runnin er upp fjvir „viniun okkar í vestri“: Mae Carthy (sem er þegar orðið skammarheiti með öllum siðuð- tun þjóðum) — og væntanleg- um stökkpöllum fyrir árásir í austur. Þessir flokkar sem hafa komið því svo fyrir að íslenaingar eru nú óæðri út- lendum drápsmönnum í eigin landi heita ósköp fögrum nöfn- run sem eru raunar öll öfug- mæli er orka sem naprasta háð: S jálfstæðisflokkur! Framsókn- arflokkur! Alþýðufiokkur! — Þeir eru nú ófáir fyrri 'kjósenda þessara flokka sem vilja ákaf- lega gjaman hefna sín á þeim fyrir að hafa selt landið und- an ís!endingum. Hvernig geta þeir náð hefndum, hvað geta þessir menn kosið ? 'Einn allra flokka sem nú ráða þingsætum hefur Sósíal- istaflokkurinn barizt hatramm- lega gegn öllum þeim svikum sem framin hafa verið á síð- ustu árum viö íslenzkt fólk af mönnum með umboð frá því. Einn hefur hann barizt af öll- um mætti til að varðveita ís- land og veitt öflugt viðnám ásælni Ameríkana. Nú bjóða tveir nýir flokkar fram. Einn kallar sig lýðveld- isflokk; þar hafa runnið sam- an furíailegar dreggjar úr ýms- um áttum, framgjarnir puð- pólitíkusar úr gömiu borgara- flokkunum með særðan metnað og brosttia drauma um stjórn- málafrægð, er hafa troðizt und- ir í valdastreitunni innan hinna ýmsu flokka, eru farnir að reskjast sumir án þess að sjá hilla undir þau sætu völd sem þá di’eymdi uhga: flest eru þetta memti sem voru svo lítil- sigldir og ómerkilegir að þeir komust ekki í neinar mik’ar stöður til að geta svikið þjóð sma svo um raunaði og öfunda sáriega þá sem náóu völdum og gátu framið landráð í veru- legum stíl. Ekkert tengir sam- an þá sundurleitu hjörð sem þar hefur oltið í einn hrauk úr öllum áttum nema þrálátur metnaðarkláði og ellimóð svart- asta afturhaldssemi. Það er ó- þarft að orða það hve fráleitt væri að kjósa þessa legáta til að mótmæla amerískum yfir- gangi og ræfildómi stjórnar- valdanna og óhollustu þeirra við ís’enzkan málstað, þessi flokkur fær eitthvað af heild- sölum frá Sjálfstæðisfloldrnum item rykföllnum söfnurum gam- alla bóka sem hafa enga. hug- mynd um framvindu sögunnar og hálfgalna „holy rollers" úr píramídasöfnuðinum sem hósí- anna og halelúja ákaft við hverri amerískri firru sem býðst, fólk sem þýöingarlaust er að ætla að Iijósi nokkurn málstað sem þrifnaður er að. Þá er þjóðvarnarflokkur sem •hefur ýmsa mæta menn í röðum sínum er vilja vel en liafa ekki nægilegt þrek til að stága spor- ið til fulls svo þeirra, verði not til þurftar málstað íslands sem þeim er ljóst að er í liættu statt og þeir vilja flestir vinna fyrir að hyggju minni. Þeir hafa ráðizt í framboð á eigin spýtur sem mun þrátt fyrir góðan ásetnmg varla stýra lukku. Bæði er að sá flokkur hefur engan traustan ginmd- völl, svífur í lausu lofti með góðum meiningum og áformum en vantar jarðsamband, það er ekki hægt að reka stjórn- málaflokk með óljósum tilfinn- Frámhald á 11. siðú.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.