Þjóðviljinn - 08.09.1953, Page 8
Árið 1951 tókst franska hershöfðingjanum deLattre að koma
upp 1500 varðstöðvum franslm liersins í Viet-Nam, m.a. við
yegi þá, sem höfðu mesta hernaðarþýðingu. Myndin er af einni
sííkri varðstöð við fjölfarinn veg í norðurhluta iandsins.
JOSEPH STAROBIN:
IViet-Nam sækir fram tii
sjálfstæðis og frelsis
Ho Chi Mính — sjálfstæðislietjan
óbugandi
Sagan um ,,Hó frænda“, eins og unga fólkið nefnir hann eða
„IIó föður okkar“ eins og bændurnir nefna hann, er ein þeirra
srgna, sem enginn getur sagt, nema Hó sjálfur. Þeir eru ekki
margir mennirnir á okkar viðburðarí'ku öld sem hafa lifað jafn-
æfintýraríku lífi og Hó Chi Minh. Og. hann á enn alltof annrí'kt
að sköpua sögu til þess að gefa sér tóm til að skrifa hana. Og
það einkennilega er, að öll líkindi eru til að hann gefi sér held-
tir ekki tóm til þess þegar hann hefur umnið úrslitasigur í hinni
miklu baráttu sinni.
Laugardag einn í marz var farið með mig ríðandi laciga skóg-
arleið, og vissi cg ekki annað en ég ætti að hitta varaforsætis-
ráðberrann, Pham Van Dong. Þegar ég sveiflaði mér upp háa
rHgann upp í kofann, var varaforsætisráðherrann þar, en einn-
ig annar maður, er sat á trébekk þar sem á hann bar birtu frá
lampanum. Þetta var Hó forseti, hann stóð á fætur og heilsaði
mér hlýlega: ,,How do you do?“
Hann er í hærra lagi, 63 ára varð hann 19. maí. Dálítið lot-
legur orðinn, hæruskotið hárið stroikið aftur frá breiðu enni,
skörp augun yfir háum kinnbeinum. Skeggið gisið eins og oft er
á Asíubiium; þegar hann hlær skín í hvítar, sterkar tennur.
Hann er í óbreyttum jakka og buxum, klæddur eins og bóndi.
Siðar um Ikvöldið, er hann fór niður brattan stigann, mátti eng-
jnn rétta honum hönd. Hann sveiflaði sér á bak hesti sínum
og reið einn af stað út í myrkrið.
Hvers virði er þessi maður byltingu Viet-Nam þjóðarinnar?
Hó Chi Minh er fyrst og fremst hugrakkur ættjarðarvinur,
sístarfandi og óbilandi baráttuhetja fyrir frelsi og sjálfstæði
þjóðar sinnar. Rétt nafn hans, Nguyen Ai Quoc, sama og föður
haos, þýðir nokkumveginn sama og „Jóhannes ættjarðarvinur",
en átthagar hans í Nghe-An-sveitinni, í norðurhluta Truong Bo,
var miðstöð frelsisbaráttunnar um aldamótin.
Undir því nafni ritaði hann hinn víðfræga bækling sinn: ,,Á-
kæra á nýlendustjórn Frakka". Það var hann, sem 1919 kom til
Versalahallarinnar, einn af stjómmálaleiðtogum Viet-Nam, til
að krefjast sjálfstæðis fynr þjóð sína af Georges Clemenceau,
Lc-oyd George og Woodrow Wilson, en auðvitað vildu þeir ekki
hlusta á mál bans. Það var hann sem lagði grunninn að einni
fyrstu tilraun sem gerð var til að safna nýlenduþjóðtmum til
samfylktrar baráttu gegn heimsvaldadrottnuninni, með stofnun
samtaka er nefndust Iuber Colonial Union of Peoples of Color,
og lifðu skamrna hrið fyrst eftir heimsstyrjöldina fyrri.
Sem stofnandi Kommúnistaflokks Indó Kína 1930, sama ár
og bændumir í átthögum hans gerðu uppreisn og stofnuðu
,,sovét“, naut Nguyen Ai Quoc mikils álits. Hann var fremsti
kommúnistaleiðtogi lands síns, Já allrar Suðaustur-Asiu. Og
hann er það enn þann dag í dag.
í ágúst 1945 átti leppkeisarinn Bao Dai einskis annars úr-
kosta en að leggja niður völd, vegna þrýstmgsins frá fólkinuJ
Hkrcmes 'FssrS ísiandsmeistari
RITSTJÓRl FRÍMANN HELGASON
VaiiFí Val 3:2 í skemintilegum Seik
Það var engan veginn hag-
stætt veður sem úrslita leikur
þessa 40. Islandsmóts fór
frarn í, en eigi að siður var
hann frá upphafi til enda
skemmtilegur og „spennandi".
Áhorfendur létu sig heldur
ekki vanta fremur en fyrri
daginn þegar Akranes leikur
og það þótt suðvestan kalsa-
veður væri með skúrum, og
þeir fengu vissulega skemmt-
usi fyrir inngangseyrinn.
Gangur leiksirs.
Valur vann hlutkestið og
'kaus að leika undan vindinum.
Til að byrja með er leikur-
inn nokkuð þófkenndur, elns og
menn séu að leita fyrir sér.
Valsmönnum tekst illa að
hefja knöttinn undan vindin-
um, spörkin verða of löng og
auðveld fyrir vörn Akraness.
Þeim tekst ekki að leika inn
undir vítateiginn og skjóta.
Fyrsta tækifærið sem Valur
fær er á 4. mín. Sigurður er
kominn innfyrir á ská vlð
markið en dettur er hann ætlar
að skjóta og litlu síðar á Ein-
ar skalla á mark A'kraness sem
kom ofan á marknetið. Það er
Halldór í liði Akraness sem
fær fyrsta tækifærið, áhlaupið
gengur fram hægramegin og
hann kemst innfyrir, en skaut
langt framhjá.
Fyrstu '10 mín. lá heldur á
Akranesi, sem þó gera áhlaup
við og við. Á þrettándu mín fær
Valur horn á og gkall hurð
nærri hælum að mark yrði, og
4 míin. síðar annað horn og á
Einar Halldórs þá hörku skot
yfir. Af og til bregður fyrir
allgóðum samleik hjá báðum
og voru Akurnesingar oft all
nærgöngulir þó opið færi gæf-
ist ekki.
Það er ekki fyrr en á 24. mín
að fyrsta markið kemur og ger
ir Þórður það eftir áhlaup frá
hægri, nær knettinum með ó-
skiljanlegu móti frá Sveini
Helga, og skorar af stuttu
færi. Línuvörður veifar þar
sem Þórður tók knöttinn með
sér með hendinni en dómarinn
sá það ekki og tók ekki tillit
til línuvarðar'.tns.
Eftir 5 mínútur jafnar Haf-
steinn Guðm. með föstu skoti,
sem Magnús gat ekki bjargað.
Hörður á líka gott skot eftir
Skemmtilegan samleik með Sig-
urði, en það fór rétt framhjá.
Undir lok hálfleiksins gera
Skagamenn harða hríð að
marki Vals hvað eftir annað,
án þess að þeim takist að
skora. Nokkrum mín. fyrir
leikhlé spyrnir Sigurður Sig-
urðs. hátt fyrir mahkið með
þeim árangri að knötturinn
dettur inní markið rétt fyrir
aftan Magnús, og þar með lauk
hálfleiknum 2:1 fyrir Val.
Þetta jók spenninginn, og
spumingin varð: tekst Vals-
mönnum að halda þessu, margt
er til í knattspymu, fæstir
munu þó hafa gert. ráð fyrir
því. ,
SíSarl Iiáifieilcur.
Síðari hálfleikur hófst með
só'kn Vals sem var fljótt hrund
ið og hafin gagnsókn, og eftir
3 mín. er horn á Val sem ekk-
ert verður úr og á næstu mín
anmað sem Halldór sparkaði
fyrir aftan. Á 4. mín er dæmd
aukaspyrna á Val rétt við víta-
teig. Ríkarður spyrnir í
„vegginn“ sem Valsmenn höfðu
gert og Ríkarður fær hann aft-
ur og spyrnir gegnum smá-
smugu er komið hafði á „vegg-
inn“ og í mark 2:2.
Næstu 8 mín. gerðist lítið.
Það hallaði heldur á Val án
þess að Akranesi tækist að
skapa sér opin tækifæri. Nú
hófst bezti kafli Vals í þessum
leik, sem helzt í 12 til 15 mín.
Þeir halda uppi sókn með góð-
um samleik, en þeim tekst
aldrei að opna svo vörn Skaga-
manna að hættulegt væri og
var Dagbjartur þar mestur
þrándur. Eftir það áttu A’kur-
nesingar margar harðar sóknar
lotur með nokkuð góðum sam-
leik uppbyggðum af fram-
vörðunum, Sveini Teits og
Guðjóni.
Fór knötturinn gegnum
netið ?
Á 23. mín. dæmir dómarinn
mark, sem aldrei musi upplýs-
ast hvort var mark eða ekki
mark.
Knetti er sparkað frá marki,
Dagbjartur spyrnir honum hátt
til baka og þegar knötturinn
stöðvast er hann í markkiu
fyrir aftan Helga. Rétt áður
hafði línuvörður veifað fyrir
rangstöðu á Ríkarð sem var
inni í markteig er hinn svífandi
knöttur kom. Dómarinn tók
þetta ekkí til greina, en benti
á miðju. Þá mótmælta Vals-
menn og segja að knötturinn
hafi farið ineií markið gegnuro
netið fyrir aftan þverslá,, og
benda á gat sem þar var kom-
ið sem þeir segja, að knottur-
inn hafi farið í gegnum. Guð-
jón vill ekki taka 'það til
greina, og lætur byrja af
miðju. Eftir leikinn uppiýsir
Guðjón og fleiri ábyrgir mer.n
að þetta gat á netinu hafi ekkl
verið í leikbyrjun og gatið var
nákvæmlega í þeirri stefnu se:r.
knötturinn kom niður. Það
verður því sterkur grunur,
sem því miður verður víst
aldrei hægt að staðfesta að
knötturinn hafi farið „bak-
dyramegin“ í markið.
Varla verður þó sagt að
Guðjón hafi ,,gatað“ á þessu
verkefni, svo einstætt er þetta.
Það væri þá helzt á því að
hafa látið leikinn halda áfram
og vita af þessu gati á neti
marksins og eins að athuga
ekki óhreinindi við slitna
möskvana.
Eftir þetta hefur Akranes
leikinn alveg í hendi sinni og
gerir hvert áhlaupið á fætui
mjög fallega. Það voru aðeins
fá og kraftlaus áhlaup af Vals
hendi. Það fór þó svo að
Skagamönnum tókst e'kki að
skora meir í leiknum.
Úrslit leiksins eru réttlát.
Lið Akraness var heilsteyptara
og hættulegra í sókn sinni. Þc
vafi leiki á fyrsta og þriðja
markinu, breytir það ekki
þeirri staðreynd að Islands-
meistaratitillinn 1953 fór til
bezta félagsins.
Það skal líka viðurkennt að
leikur Vals var betri en búist
var við sem varð til þess að
kringum þennan úrslitaleik vat
góð ,,stemmning“ og skemmti-
leg óvissa langan hluta leiks-
ins.
Liðin.
I leiik þessum bar óvenjuiít-
ið á Ríkarði, en fyrir því sá
Halldór Halldórsson, sem fylgdi
honum fast eftir. Þó var þai
svo að ,,tríóið“ bar uppi sókn-
ar þungann, sérstaklega vai
Þórður harður og vann mörg
einvígin við Svein Helga. Pétui
hefur átt betri leiki án þess að
vera neitt slakur í þessum leik
Útherjamir voru veikusti
menn sóknarinnar, Halldót
sótti sig þó í síðari hálfleili
og slapp vel frá honum. Þórðut
J. virtist ekki eins jákvæður pg
í vor. Sveinn Teits og Guðjór
Framhald á 11. síðu.
Hið umdeiida gat. — Fór knötturinn hér í
gegn? Og hvernig kom gatiO í leiknum?