Þjóðviljinn - 14.10.1953, Side 6
«) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 14. októbír 1953 ---
dlÓCVIUlHi
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundssoo.
Fréttastjóri: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarnl Benediktsson, Guð-
mundur Vigfússon, Magnús Torfi Ólafsson.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg.
10. — Sími 7500 (3 linur).
Áskriftarverð kr..20 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 17
onnars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
Mikið og brýnt nauðsynjamál
Sú furðulega ákvörðun var tekin af rikisstjórn og alþingi
með setningu laganna um fjárhagsráð að svifta lslend:nga rétt-
inum til þess að byggja íbúðarhús. Þessi ákvörðun var tekin af
þáverandi stjórnarflokkum, Alþýðuflokknum, Framsóknarflokkn-
um og Sjálfstæðisflokknum gegn einarðri og harðvítugri and-
stöðu Sósíalistaflokksins. Undirrótin var ákveðin krafa erlends
stórveldis, Bandaríkja Norður-Ameríku, um að fá úrslitaáhrif
á fjárfestingu og efnahagsþróun á íslandi.
Þegar íslendinga.r voru sviftir réttinum til að byggja var
yfrstandandi djarfasta sóknin sem þjóðin hafði nokkru sinni
hafið fyrir því að ibyggja varanleg og vönduð íbúðarhús í landi
sínu. Byggingarstarfsemin á nýsköpunarárunum einkenndist af
sömu bjartsýninni og athaftiaviljanuni og yfirleitt setti mark
sitt á þetta tímabil á öllum sviðum þjóðlífsins. Þaó yar stefn^
verkalýðshi'eyfingarinnar og flokks hennar, Sósialistaflolíks’ns,
sem var aflgjafi framkvæmdanna á sviði íbúðabygginganna eíns
og i öðrum þáttum þeirrar miklu framfaraöldu sem gekk yfir
þjóðlif íslendinga 1944-1946.
Með byggingabanninu urðu algjör umskifti. Og afleiðingar
þess eru nú komnar í ljós og birtast í nfkilli og vaxandi neyð
á sviði húsnæðismálanna. Og svo furðuleg hefur afstaða núver-
andi stjórnarflokka verið að þeir hafa afnumið bind’ngarákvæði
þúsaleigulaganna án þess að fella niður byggingabannið. Þe'r
hafa leyft húseigendum að segja fólki upp húsnæði og reka það
út á götuna án þess að veita því nokkurn rétt eða möguleika
til þess að byggjá yfir sig. Þeir hafa með öðrum orðum bann-
að mikium fjölda fólks allar bjargir í þessum efnum, enda segja
nú afleiðingamar til sín: Fólk verður ýmist að sætta sig við að
búa í gjörsamlega ófullnægjandi húsnæði eða láta rýja sig inn
að skyrtunni með okurleigu sem er gjaldgetu alls þorra al-
mennings með öllu ofvaxin.
Formaður Sósíalistaflokksins, Einar Olgeirsson, hefur nú flutt
á alþngi frumvarp um alhliða lausn húsnæðisvandamálsins i
kaupstöðum og kauptúnum landsins. Er þetta frumvarp Einars
án alls efa eitt gagnmerkasta málið sem lagt hefur verið fram á
þingi. Mun verða fylgzt lúeð afdrifum þess af vakandi athygli
af miklum f jölda fólks sem nú á við böl húsnæðisneyðarinnar að
striða. Höfuðatriði frumvarpsins eru þau að alþingi tryggi með
lagasetningu rétt landsmanna til íbúðarhúsabygginga og gerðar
verði raunhæfar ráðstafanir til að gera þann rétt gildandi í
framkvæmd með ákveðnum aðgerðum þjóðfélagsins.
Samkvæmt frumvarpinu skal hver íslenzkur ríkisborgari sem
ekki á sjálfur íbúð sem hæf er til íbúðar fá rétt til að byggja
sér íbúðarhús' með einni íbúð, eða stæiTa hús, byggi hánn með
Öðrum. Á hann kröfu á að fá til þess aðstoð frá því opinbera,
samkvannt nánari fyrirmælum laganna. Skal réttur þessi m;ð-
ast við sömu stærð íbúða og miðað er við í núg’ldandi lögum
um verkamannabústað’.
Þá er gert ráð fyrir því í frumvarpinu að hverjum íslenzkum
ríkisborgara sé tryggður réttur til að byggja íbúðarhús til sölu
eða leigu, sé innfluiningur á bj-gg'ngarefni frjáls. Er lagt til að
innflutningur þessi sé frjáls svo fremi sem innfluttrngur nokk-
urra vara er það, Sé hins vegar innflutningur á bygg'ngarefni
háður takmörkunum eru ákveðin fyrirmæli í frumvarpinu um
að þeir gangi fyrir sem ekki eiga sjálfir íbúð.
í frumvarpinu er byggingaraefndir kaupstaða og kauptúna
ekyldaðar til að leyfa slikar íbúðabyggingar, samræmist þær
kröfum til heilsusamlegra íbúða og mæla út lóðlr til byggingar
slíkra íbúðarhúsa, eða gefa mönnum kost á að byggja á sömu
Ióð allt að þriggja hæða hús. Þarf ekki að sækja um önnur leyfi
til byggingamefndar og öll ákvæði, sem takmarka slíkar bygg-
ingar við veitingu fjárfestingarleyfa eni niður felld.
Upp í frumvarpíð er tekið allt það markverðasta úr bygg-
ingarlöggjöf nýsköpunaráranna, svo sem ákvæðið um skyldu
ríkisins til að Ieggja fram fé til aðstoðar bæjarfélögum t:l út-
rýmingar heilsuspillandi íbúða. Er frumvarpið eins og fyrr segir
allt hið markverðasta og hér um mikið og brýnt nauðsynjamál
að ræða, sem marka myndi ný tímamót í baráttu almenn'ngs
fyrir því að koma upp yfir sig og sína mannsæmandi íbúðum.
næði það íram að gánga á alþingi.
Frá matvöruverzlun KRON, Skólavörðustíg 12.
Félagsmenn KRON 5802 09 hafa
nær þríðjung bæjarbúa á
framfæri sínu
ViStal viS Isleif Högnason, framkvœmda-
stjórn Kaupfélags Reykjavikur
og nágrennis
í síðustu viku birtist hér
í blaðinu viðtal við Björn
Jónsson, félagsmálafulltrúa,
um nýbreytni í starfsemi
Kaupfélags Reykjavíkur og
nágrennis, — pöntunardeild
þess, sem þegar hefur náð
allmiklum vinsældum. Varð
/
b'aðið þá þess áskynja, aé
marga lesendur þess fýsti a’
heyra meira um starfsem'
þess. Sneri það sér til fram
kvæmdastjóra KRON, ísleif
Högnasonar, um viðtal urr
kaupfélagið og hag þess urr
þessar mundir. Var það auð-
sótt mál.
Starfssvið
KRON
— Hve umfangsmikil er
starfsemi KRON? hefjum við
viðtalið.
— Sala brýnustu lífsnauð-
synja hefur frá upphafi ver-
ið aðalhlutverk félagsins.
svarar Isleifur. — 1 dag rek-
ur það 15 matvöruverzlam'r,
pöntunardeild, vefnaðarvöru-
og skódeild, bókabúð, bús-
áhaldabúð, fatahreinsun, fið-
ur- og dúnhreinsun, efnagerð
og kornmyllu auk bifreiða-
verkstæðis, sem annast við-
hald bifreiða fé'agsins. Þá
rekur fé'agið kjötvinnslu i
smáum stíl.
— Hvað er helzt í tíðindum
af starfsemi félagsins?
— Á þessu ári hafa litlar
breytingar orðið á rekstrin-
um. Þó má geta þessa: Bif-
- reiðaverkstæði tók til starfa
í byrjun þessa árs, kornmyll-
an síðar á árinu. Endurbæt-
ur og breytingar á fatahreins-
uninni hafa verið gerðar og
fullnægir hún nú ströngustu
kröfum um fatahreinsun.
Kjötvinns’a var hafin, að v'su
í smáum stil, eins og ég sagði
áður. Aðal’ega er þar fram-
leitt álegg fyrir kjötbúðir fé-
lagsins. Þá tók félagið í sina
ísleifur Högnason
þjónustu um stundarsakir tvo
danska sérfræJinga til leið-
beiningar í efnagerðinni og
liefur það orðið til þess að
vörugæðin hafa verið bætt
allverulega, enda fer - sa’a
efnagerðarinnar ört vaxandi.
Loks má get.j þess, áð s’-
áramót hætti fí'agið starf-
rækslu braulgerðarimai-, sem
félagið hafði rekið um tvegg.ja
ára skeið. Ástæða þess var
sú, að fyrirtækið; sem rekið
var í leiguhúsnæði, var ekki
hagkvæmt félaginu. Brauðút-
sölur félagsins í úthverfum
bæjarins fá þró láfram ágætar
vörur brauðgerðarinnar, sem
nú er rekin af einstaklingum
þeim, er keyptu brauðgerðar-
vélarnar.
Þáttur
félagsmarmanna
— Hve margir eru félags-
menn KRON?
— Um síðustu áramót voru
þeir 5802, flestir heimilisfeð-
ur. Á framfæri þeirra eru
tæplega 20 þúsimdir, eða nær
þriðjungur bæjarbúa.
— Á hvem hátt taka þeir
virkan þátt í starfsemi fé-
lagsins ?
— 1 fyrsta lagi með því að
verzla í búðum og við sér-
fyrirtæki félagsins. Enda þótt
( um mikil vanhöld sé að ræða,
þannig, að ýmsir félagsmenn
rækja ekki þá sjálfsögðu
skyldu við félagið að skipta
við það á öilum þeim sviðum
sem félagið lætur þjónustu í
té, á það fjö’da ve’unnara,
sem styíja starfsemi þess
með ráðum og dáð. Auk
þeirra starfsmanna félagsins,
sem jafnframt eru félags-
merei, eru deildarstjórnir 15
að tölu, hver skipuð 3 fé-
lagsmönnum, sem láta rekstur
og viðgang félagsins til sín
taka. Það skal þó játað, að
mikið skortir á. að féiags-
starfið sé eins gott og á
verður kosið, en orsakir þess
er of langt mál að rekja hér
og sízt af ö!)u ber að saka
me'ðlimahópinn um misfellur
í því efni.
—- Hvert er álit þitt. á
samstarfi forráðamanna SlS
við forystumenn kaupmanna-
stéttarinnar?
— Eins og þú veizt greínist
FramÞald á 11. eiðu.