Þjóðviljinn - 06.05.1954, Side 8

Þjóðviljinn - 06.05.1954, Side 8
S) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 6. maí 1954 Sömu laun fyrir sömu vinnu! Framhald af 7. síðu. hreinsuðum fiski er greiddur með kr. 11.93, hinsvegar er óalgengt, a. m. k. þar sem ég veit til, að kvenfólk kasti á bíla og hengi á trönur.“ „Hvernig líkar ykkur ann- ars þessir samningar?“ „Svona upp og ofan, þeir eru auðvitað bót frá því sem áður var, en ég álít að hægt hefði verið að ná betri samn- ingum, ef vilji og samtök hefðu verið fyrir hendi.“ „'Álítur þú ekki, að rétt hefði verið að segja upp samningum?“ „Jú, en ekki 1. maí eins og kastað var fram á aðalfundi Framsóknar. Það hefði þurft að gerast miklu fjnr, um miðja vertíð t. d., þá hefði eflaust verið hægt að komast að betri samningum og ná fullu jafnrétti við karla í launakjörum.“ „Bar þá ekki á neinni óá- nægju með að semja á þess- Ódýrt — Ódýrt Chesterfieldpakkinn 9.00 kr. Barnasokkar frá 5.00 — Andlitspúður frá 5.00 — Handsápa 2.00 — Blautsápa 4.50 — Þvo'ttadúft 2.75 — Amerískur varalitur 8.00 — Amerísk dömubindi 5:75 — Kaffipokar frá 2.50 — Þvottapokar 5,00 — Dömupeysur frá 45.00 — Herraskýrtur 85.00 — Herrasokkar frá 10.00 — Bamahúfur frá 12.00 — Svuntur frá 15.00 — Ný vörupartí daglega. Vörumarkaðurinn Hverfisgötu 74. xmmecus _ jKmatmmsaa. Minningarkortin eru ttl söln í gkrifstofn Sósíaiista- flokksins, Þórsgötn 1; af- greiðslu Þjóðviljans; Bóka búð Kron; Bókabúð Máls og mennlngar, Sbólavörða- stíg 21; og í Bókaverzlnn Þorvaldar Bjarnasonar i Hafnarfirði um grundvelli á þínum vinnu- stað ?“ „Ja, það er nú saga að segja frá. Við vissum alls ekki, að neinir samningar væru á döfinni fyrr en við sáum þá fullgerða í Alþýðu- blaðinu. Verkakvennafélagið hér virðist hafa siglt alger- lega í kjölfar félagsins í Hafnarfirði, án þess að leita á nokkurn hátt álits félags- kvenna. Annars kann að hafa verið erfitt um vik, þegar bú- ið var að semja í Hafnarfirði og Keflavík. Svona átak eins og að ná launajafnrétti við karla með samningum þarf að gera með samstilltum vilja allra kvenna, sem þessi störf vinna, og ég álít of lítið gert að því að leita álits hinná ó- hreyttu félagskvenna og reyna að vekja hjá þeim þann stétt- arþroska, að þær sætti sig ekki lengur við að vera ann- ars flokks vinnuafl við verk, ■ sem við afköstum jafn miklu við og karlmenn. Ailur þorri ungra stúlkna, sem vinna á vinnustað, virðast ekki gera, * sér ljóst, að þarna sé neitt athugavert." Að síðustu læt ég svo samn' inginn fylgja hér með og vil! benda konum á, hve víðs fjarri því fer, að hér sé um fullkomið launajafnrétti að ræða um þá vinnu sem aðal- lega er unnið að bæði af körl- um og konum eins og t. d. blóðhreinsun og spyrðingu á fiski til herzlu. Qg vil ég beina þeirri áskorun til allra vinnandi kvenna, hvort þær eru við andleg eða líkamleg störf, að láta það ekki leng- ur viðgangast að vinna störf, sem þær leysa vel af hendi Qg í mörgum tilfellum betur en karlmenn, fyrir miklu minna kaup en þeir. Kjörorð okkar allrá hlýtur að vera: Sömu laun fyrir sömu vinnu. Og við megum ekki slaka á baráttunni fyrr en því er náð. Og við skulum berjast fyrir þeim sjálfsögðu réttindum sjálfar. Þeim málum er alls elcki borgið með þeirri sýndar- ályktun sem Alþingi afgreiddi nú fyrir páskana. Samningur verkakvenna- félagsins: Samkomulag. Það hefur orð- ið að samkomulagi milli Vinnuveitendasambands ísl. og Verkakvennafélagsins í Reykjavík, að eftirtaldir kaup gjaldsliðir verði þannig: Vinna við fiskflökun, upp- þvott og köstun á bíl á skreið, og upphenging á skreið á hjalla, verði þannig: Kr. Dagvinna ............. 14.60 (9.24) Eftirvinna ........... 21.90 Nætur- og helgidagav. 29.20 Við hreingerningar, uppskip- un á saltfiski, hreistrun, blóð- hreinsun á fiski til herzlu og uppspjTðingu á fiski: Kr. Dagvinna ............. 11.93 (7.55) Eftirvinna ........... 17.90 Nætur- og helgidagav. 23.86 í allri annarri vinnu: Dagvinna ............. 10.43 (6.60 í gr.kaup) Eftirvinna ........... 15.65 Nætur- og helgidagav. 20.86 Laugardag: Frakkíand — írland 2:0 Luxemburg- — England 2:2. Ungverjaland — Beigía 3:1 Holland -— í’ortúgal 4:2 Saar — Austurríki 2:0 Júgóslavía — A.-Þýzkaland 3:1 Páskadag: Qngverjáland — Júgóslavía 1:0 Austur-Þýzkaland —- Belgía 3:2 Portugal — England 2:0 Austurríki — írland 3:0 Saar — Frakkland 3:0. ^ ÍÞRÓTTIR RITSTJÓRl FRtMANN HELGASON ------------------------------ Fiitnl»|örfii9 ílm ©g Maiikiir Claisseis eria liyi°|saélr aitiir Frá keppni tveggja bandarískra háskóla í peirri íprótt, sem Bandaríkjamenn nefna fótbolta. Það var hringt til mín fyrir skömmu, og ég spurður hvört ég vissi að þeir Finnbjörn, örn og Haukur Clausen ætluðu að fara æfa aftur. Nei, heyrðu góði, það er 1. maí í dag en ekki 1. apríl! Þetta er dagsatt sagði röddin í símanum. Þ.e.a.s. þeir ætla að fára að æfa og leiðbeina ungum og eldri mönn um sem sækja vilja námskeið sem ÍR ætlar að gangast fyr- ir á næstunni og stendur í mán- aðartíma. Og þá rann ljós upp fyrir mér: Góðir íþrótta- menn sem lagt höfðu keppnis- skó og búning á hilluna, höfðu tekið þá niður aftur, burstað vandlega af þeim rykið, mátað búninginn sem nú var orðinn dálítið þröngur (hann hefur sennilega hlaupið!) í þeim ein- læga ásetningi að nota hann nú til að klæðast í við að leiðbeina ungum mönnum, miðla af kunnáttu og reynslu sinni til þeirra sem nú eru að byrja. Þetta er eítt af því sem frjáls- ar íþróttir vantar, að afreks- ÍMA sigraði í Maí- boðhlaupinu Hið árlega maíboðhlaup fór fram á Akureyri 2. maí s.l. Hlaupið, sem er 1600 m (10 sprettir) fór að þessu sinni fram á íþróttavellinum fyrir neðan Brekkugötu. Fjórar sveít- ir tóku þátt í hlaupinu, eða frá Akureyrarfélögunum KA, Þór og ÍMA (íþróttafélagi Menntaskólans á Akureyri), svo og UMS Eyfirðinga. Úrslit: 1. Sveit ÍMA 3:22,2 mín. 2. Sveit KA 3:26,0 mín. 3. Sveit Þórs 3:27,0 mín. 4. Sveit UMSE 3:37,8 mím í sveit ÍMA voru þessir menn (taldir í þeirri röð sem þeir hlupu): Vífill Oddsson, Haukur Böðvarsson, Vilhjálmur Einars- Son, Sverrir Georgsson, Hörður Lárusson, Stefán Hermannsson, Ágúst Jónsson, Þór Guðmunds- son, Haukur Frímannsson og Friðleifur Stefánsson. — J.Á. menn komi eftir gengna frægð- arbraut og hjálpi til að byggja upp framtíöarmennina á sama hátt og þeim var sjáifum hjálp- að upp. í sannleika sagt getur enginn íþróttamaður sem notið hefur alls sem félag gat í té látið og fengið af því frægð og frama látið það sigla sinn sjó, þegar persónuleg framavoii er ekki lengur fyrir hendi. Þetta gildir um alla. afreksmenn í ölium íþróttagreinum. Því hefur oft verið haldið fram hér á íþróttasíðunni að einmitt þarna brysti veigamikill hlekk- ur í íþróttastarfinu, sem er íþróttalegur, félagslegur og fjár hagslegur, og eru þetta ekki þrír höfuð þættir íþróttalífsins? Við ykkur „gömlu, stjörnur“ í hvaða íþróttagrein sem þið starfið vil ég segja: Sjálfsagt hafið þið fundið gleði í sigr- unum, í metunum, í stigun- um, í öllu verðskuldaða hólinu fyrir góð afrek. Ef til vill eig- ið þið eftir að finna til enn meiri gleði og ánægju með að skapa úr hinum ómótaða „leir“ sem í kringum ykkur iðar og til ykkar mænir í aðdáun. Væri það ekki konunglegt þakklæti, og íþróttamannlegt, til félags- ins, til íþróttahreyfingarinnar sem hefur lyft ykkr til frægðar og ánægju að lijálpa æskumönnúm til þess að FINNBJÖRN ÞORVALDSSON njóta einhvers eða alls þess sem þið nutuð? Því miður slitnar þráðurinn milli hins nýja og gamla tíma allt of mikið. Hinn nýi timi verður að hafa rót sína í því liðna, sé rótin sterk gengur ræktunin vel, deyji hún út verður að byrja af nýju, og það gengur oft svo grátlega seint. Það ber því að gleðjast yfir því að svo góðir íþrótta- menn sem hinir þrír ÍR-ingar ehu, skuli koma með og verð- ur vonandi hvatping fleirum að gera slíkt hið sama. Spánn vann HM-keppni drengja í knatfspyrnu Um páskana lauk heimsmeist- arakeppni drengja í knatt- spyrnu sem fór fram í Vestur- Þýzkalandi. Alls tóku 18 lönd þátt í keppninni sem skipt var niður í 4 hópa. Þeir sem sigr- uðu í hverjum hóp voru Arg- entína, Spánn, Tyrkland og VesturjÞýzkaland. Það óvænta skeði í hópi 1, að Vestur-Þjóðverjar unnu Ungverja sem voru taldir líklegastir til sigurs; lauk þeim leik með 2:0 og V.-Þýzkaland hafði þar nieð einu stigi meira. Ungverjar höfðu unnið Saar 6:0, England 3:1 og Norður- Irland 7:2. Síðar gerðu V.- Þjóðverjar jafntefli við Breta 2:2. í undanúrslitum fóru leik- ar svo að Spánn vann Argen- tínu 1:0, Þýzkaland vann Tyrk- land 2:1 en Spánn og V,- Þýzkaland urðu jöfn 2:2 eftir framlengingu en Spánn vann á betri markstöðu í úrslitaleikj- unum. Var leikur Spánverja og Þjóðverja hinn skemmtilegasti og höfðu Þjóðverjar 2;1 í hálf- leik. Um skeið stóðu leikar 2:0 fyrir Þjóðverja. Eq á fjórðu mínútu í siðari hálfleik jöfn- uðu Spánverjar. Lið þau sem ekki náðu því að komast í úrslit lcku á laug- ardag og páskadag hér og þar í þýzkum borgum og fóru þeir ieikar þannig:

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.