Þjóðviljinn - 15.06.1954, Page 8

Þjóðviljinn - 15.06.1954, Page 8
8) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 15. júní 1954 Jón Pólsson sundkennari fimmtugur Ritstjóri íþróttasíðunnar hef- ur farið þess á leit við mig, að ég segði nokkur orð um Jón Páisson í tilefni af afmœli hans og er mér ljúft að verða við þeirri bón. Fyrir mitt leyti, legg ég í- þjróttirnar, sem notagildi fyrir íJmenning, til jafns við vísindi cg listir. Þjóðirnar geta ekki náð fullum þroska án þessara liiuta, menning þjóðanna er m. a. fólgin í því, hvernig á þess- um hlutum er haldið. Þegar saga íslenzkrar sund- menningar m litMraiL. verður ðr***^. skráð, mun f ’.P--.. hæst bera á nöfnum V ; wiÉ þeirra manna, sem lögðu t ■/■■ r grundvöll- inn að þess k Æ / ari menn- ingu, og vísuðu leiðina fram á veg. Eng- inn er í vafa um, hverjir það voru. Það má því segja með sanni, að hinir athyglisverðu feðgar Páll Erlingsson og synir hans, Eriingur, Ólafur og Jón, séu Jiinir fjórir stóru menn nútíma sundsins hér á landi. Þeir hafa 5 raun og veru reist upp frá grunni íslenzka sundmenningu. Og það hefur verið margs að gæta í þessu grundvallarstarfi. Það þurfti að skipuleggja áróð- vr fyrir sundíþróttinni, því að a'þýðan I landinu var andvíg sundmennt, það þurfti að kenna fólkinu að synda, og loks eitt erfiðasta verkið, en það var að knýja stjórnmála- mennina til þess að gera ráð fyrir sundmenningunni í út- reikningi fjárlaganna á Al- þingi. Verkaskipting feðganna í þessu starfi var bæði' frabær og lærdómsrík. Jón Pálsson varð fimmtugur 6. júní- Barnungur hóf hann sundkennslu. Samhliða lcennsl- unni tók hann þátt í stofnun sundfélaga og skipulagningu sundkeppni til eflingar sunds- ins. Hann varð brátt „aðalmað- ur“ Sundfélagsins Ægis. En í því félagi var sundið tekið vís- indalegum tökum eða eins og tíðkast í íþróttaháskólum er- lendis. Bréfið, sem Sundsamband ís- lands barst nýlega frá ensk- um sérfræðingi í sundi, þar sem farið var fram á, að S.S.l. útvegaði téðum sárfræðingi ís- lenzkan bringusundsstíl á filmu, kom mér ekki á óvart, því að hér í Reykjavík hefur verið fylgzt með öllum nýjung- um í sundi, sem gerzt hafa í heiminum, og unnið úr þeim á sjálfstæðan hátt. Hins vegar lcom mér á óvart sá gaura- gangur, sem ýmsir sundmenn höfðu í frammi, þegar ég skrif- aði um þennan bringusundsstíl hér í blaðið 1948. Fræðslumálastjórnin hefur tekið við forustunni af feðgun- um og breytt ötulu starfi Framhald á 11. síðu # ÍÞRÓTTIR RlTSTJÓRl. FRtMANN HELGASON v,—.— —. ------------- Islaaðsmótið: Akranes vann Fram 5:2 Annar leikur Islandsmótsins í knattspyrnu fór fram s. 1. sunnudagskvöld í blíðskapar- veðri, og eins og jafnan þegar Akurnesingar sýna sig hér á vellinum, voru áhorfendur margir; og þeir fengu vissulega að sjá mörg mörk sett og oft mikinn leikhraða. Á köflum var leikurinn full fast leikinn, en í heild nokkuð skemmtilegur á að horfa- Til að byrja með voru Framarar full hikandi og einstakir menn taugaóstyrkir og kom það á- berandi fram hjá Magnúsi í markinu, sem hefur verið ör- uggur í vor. En er á leið fór þetta af. Gerðu þeir margar góðar tilraunir til samleiks þó þoim tækist ekki að gera nema tvö mörk í leiknum. Það sem mestu munaði, var að Guðm. Jónssyni tókst ekki að halda Ríkarði eins niðri og æskilegt hefði verið fyrir Fram, en Rikarður gerði þrjú síðustu mörkin og tvö síðustu eftir frábæran einleik sem aðrir en afburðamenn geta ekki. Það var því enginn öfundsverður að gæta Ríkarðs í þeim „ham“ sem hann var þetta kvöld. Þó Akranes hefði yfirhöndina hvað snerti gang leiksins, verður ekki sagt að legið hafi rnjög á Fram, en hættan í áhlaupum Akraness var alltaf meiri. — Fram vantaði bæði kraft og eins að sameinast um síðasta átakið, að skapa skotstöðuna. Sveinn Teitsson lék ekki með Akranesi að þessu sinni, en Kristinn, sem áður hefur verið bakvörður og miðframherji, lék á hans stað og sem framVörður átti hann lika góðan leik af ný- liða að vera. Er það ekki ónýtt fyrir Akranes að hafa mann sem getur leik!ð á svo mörgum stöðum. Sveinn Benediktsson var bakvörður nú I fyrsta sinn i vor og var sízt lakari en hin fyrri sumur. Dagbjartur og Guðjón voru beztu menn vam- arinnar. Hafði Dagbjartur yfir- höndina í viðureigninni við nafna sinn Grímsson, sem var þó frískasti maður framlínu Fram, hvatur og fylginn sér og nokkuð hreyfanlegur. Beztu framlínumenn auk Ríkarðs, voru Þórður og Halldór- Sem heild féll liðið e. t. v. ekki eins vel saman og á móti Þjóðverj- unum, og hafa mannabreyting- ar e. t. v. átt þátt í því og svo er varla hægt að krefjast að þeir geti alltaf sýnt slíkan leik og í síðasta leiknum við Ham- borgarana. Með meiri þátttöku innherja og framvarða í varnaraðgerð- um, hefði Fram elcki fengið öll þessi mörk, því að þeir voru ekki nógu fljótir aftur. Aftur á móti voru mörg áhlaup Fram- ara létt og leikandi og furðu hröð, og með dálítið meiri ná- kvæmni í sendingum hefði mun betur til tekizt. Þrátt fyrir þennan markamun var leikur- inn frá upphafi til enda lífleg- ur og skemmtilegur. Aftasta vöm Fram með Hauk sem bezta mann, sem þó hafði varla í fullu tré við Þórð, barðist hetjulega allan tímann. Það vakti nokkra furðu að leikurinn hófst án línuvarða. Sú tilhögun var tekin upp í vor vegna erfiðleika að fá menn til að gegna línuvarða- stöðum, að hver dómari útveg- aði sér línuverði sjálfur, og á á þann hátt að beina þessum störfum inn á félagslegan grundvöll meira en verið hefur. Dómarinn, Haukur Óskarsson, telur, að sér hafi ekki verið kunnugt um þessa tilhögun, og eru það leið mistök. Hinsvegar réttlætir það ekki að hefja leik án linuvarða- Tjcsrnargata 20 verBur menningar- og sfarhmiSsföS islenzkrar alþýSu og flokks hennar, S ósialisfafl okksins

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.