Þjóðviljinn - 22.06.1954, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 22.06.1954, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 22. júní 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (11 tJ tvarpið inn sem hljómlistarfræðingur. Það er nokkur galli á þessum þætti, þegar honum er snúið í erindi um ákveðið efni, þótt vel sé á því haldið út af fyrir sig. — Það er furðulegt, að til skuli þurfa sérstakan útvarps- þátt að segja bændunum, hve- nær þeir eigi að hefja slátt. Séu. bændur ekkí færir um að á- kveða það, þá fyndist mér bezt fara á því, að tilkynningarnar kæmu í auglýsingaformi, t. d.: „Halló, bændur, takið þið nú til óspilltra málanna, nú er sláttur- inn byrjaður og farið þið nú að slá. Páll Zophoníasson. Þetta' var fyrirskipun frá búnaðar- málastjóra til bænda.“ — Erindi Gskars Bjarnasonar um gerð og eðli efnisins var vel samið og flútt á viðfeldinn hátt, en efnið er þungt í ineginþáttum. — Nýja útvarpssagan gefur góð i'yrirheit, enda bregzt ekki flutningur Andrésar Björnsson- ar. — Nú er lokið sögu Stefáns Jónssonar, sem hann las fyrir börnin og unglingana, og var hún því betri sem nær dró lok- um og þá bezt, er hún var öil. Sigurður Sigurðsson má ekki segja að leiknum hafi verið framlengt. Við lengjum eitthvað en ekki einhverju. G. Ben. í Eotnsdal í Hvalfirði um Jóiismessuua 26. og 27. þ.m. k laugardagskvöid veroiiE dansleikur á palli. A sumtsdag vesrður úfiskemmtun með Ijölbieytium skemmtiaiiiCum eg dansi Séo verður íyrir góðum tjaldstæðum Sætaferðir verða fram og til baka á laugardag og sunnudag Náuár auglýst síðar iim íerðir og aðra tilhöguu um 12 daga skeið gegnir þerra Þórður Möller læknir ftörfum mínum. Viðtalstími hans er kl. 3-4 í Uppsölum daglega nema laugardaga. Sími 82844. ESRA PÉTURSSON, læknir. Andspyrnu- hreyfingin hefur skrifstofu í Þingholts- stræti 27. Opin á mánudögum og fimmtudögum kl. 6—7 e. h. Þess er vænzt að menn láti skrá sig þar í hreyfinguna. Piugmaður Á Iaugardaginn skaut banda- ríski öldungadeildarmaðurinn læster Hunt úr flokki demó- krata sig við skrifborð sitt í skrifstofubyggingu öldunga- deildarinnar. Sjálfsmorðsvopnið var riffill með hlaupviddinni 22 og Hunt var látinn fjórum klukkutímum eftir að hann fannst með blóðið strejunandi úr kúlugötum á báðum gagn- augum. Hunt var á sjötugs aldri, einn af fáum öldunga- deildarmönnum sem eftir voru af þeim sem á sínum tíma unnu ineð Roosevelt forseta að því að lögfesta umbótastefnu hans. Otbreiðið Þjóðviljann H.f. Eimskipafélsg fslanés t! L l F @ S S“ Vegna yfirvofandi verkfalls yfirmanna á skipunum er ráð- gert að m/s Gullfoss fari frá Reykjavík fimmtudaginn 24. júní kl. 10 síðdegis. (í stað laug- ardags 26. júní) svo framarlega sem samningar hafa ekki tek- izt fyrir þann tíma. H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS Pólitískir íangar §Seppa Allmargir pólitískir fangar brutust í gær út úr fangelsi í Bagdad, höfuðborg Iraks. Meðal þeirra var maður sem fyrir ári var dæmdur í 19 ára fangelsi fyrir að stjórna hinum bannaða kommúnistaflokki landsins. F ulltrúaráðsfundi KRFÍ lýfcur í dag Kvenréttindafélag íslands hélt 19. júní-fagnað í Tjarnarcafé á laugardagskvöldið. Sóttu hófið um 90 konur m. a. 12 vestur-ís- lenzkir gestir. Fluttar voru kveðjur frá kvenfélögum í Ame- ríku, fjórar skáldkonur fluttu kvæði, ræður voru haldnar og lesið upp. Einnig söng frú Þóra Matthíasson einsöng við mikla hrifningu. Fulltrúaráðsfundur KRFÍ var settur í hófinu og stendur hann nú yfir í Sjálfstæðishúsinu en lýkur í kvöld. Eru allar konur, sem áhuga hafa á máium þeim, sem rædd eru á fundinum, vel- komnar sem áheyrendur. Fundar- konur heimsóttu Bessastaði í gær í boði forsetahjónanna. Iflokkunnn! Greiðið flokksgjatd j’kkar skil- víslega. Skrifstofan opin alla virka daga frá klukkan 10—12 fyrir hádegi og 1—7 cftir hádegi. Ný morðárás Framhald af 1. síðu. Gunnar Albertsson er með skurð á kinninni, sennilega eftir hníf- stungu. Ólafur Thordarson lög- regluþjónn er með áverka á hálsi; hafði hann verið tekinn kverka- taki og gerð tilraun til að kyrkja hann. Hvorug þessi meiðsl munu þó vera alvarleg. Mál þetta er nú í rannsókn, og voru stöðugar yfir- heyrslur í gær og fyrradag. Hvemig eru regl- urnar? Þetta er önnur morðárásin sem gerð er á íslenzka lögregluþjóna á skömmum tíma; eins og menn muna gerðu drukknir hermenn hliðstæða árás um páskana á lög regluþjóna sem voru að gegna skyldustörfum sínum. Virðist ær in ástæða fyrir íslenzk stjórnar- völd að taka í taumana á röskleg an hátt. Frá því hefur verið skýrt að nýlega hafi verið settar nýjar reglur til þess að einangra Banda- ríkjalýðinn sem mest — en ekki virðast þær ætla að gefa merka raun eftir þessu að dæma. Hefur utanrlkisráðhefrrarm ekki einu sinni fengizt til að birta þessar reglur sínar af einhverjum ástæð- um. Virðist nú ærin ástæða til að krefjast þess að reglurnar vei’ði gerðar opinberar, svo að hægt sé að ræða hvort þær séu full- nægjandi til að koma í veg fyr- ir að morðárásirnar haldi áfram að endurtaka sig.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.