Þjóðviljinn - 08.07.1954, Page 7

Þjóðviljinn - 08.07.1954, Page 7
Fimmtudagur S. júlí 1954 — ÞJÖÐVILJINN — (7 Það var einu sinni á dimmu veírarkvöldi suður á Keflavík- urflugvelli, að við áttum tveir öryggisverðir samleið burtu frá varðstað þeim sem nefndur er af Könum „Rock Crusher"®), grunnur gilskorningur, skammt írá Hafnaveginum, þar sem stórskornar, bandariskar vinnu- véiar breyta islenzku fjalla- grjóti. í asfalt á fiugbrautir. Leiðin lá stuttan spöl upp af- iíðandi brekku og siðan inn í Seaveed* *) á skrifstofu örygg- isvarða — Headquarters of Securlty Guards of North Distriot. — Okkur hafði verið skipað að skipta um varðstað. >rið gengum upp brekkuna með vindstrekking í fangið, sem þeytti göturykinu framan i andlitin á okkur, Þó sáum við ijósvitann varpa grænum og gulum geislum út í svart febrú- armyrkrið, það var kalt og við sveipuðum úlpunum þéttar að okkur. ,.Á ág að trúa þér fyrir leynd- armáii?“' spuroi félagi minn allt i einu. — Og hann horfði rannsakandi á mig. — Allar is- lenzkar skoðanir eru leyndar- mál á Vellinum. Það er tilval- ið að skiptast á skoðunum, þeg- ar menn ganga, það gerir hreyf- ingin, menn eru aldrei á sama síað. þá hlustar enginn. — Svo verða allir forvitnir, þegar menn hlusta á leyndarmál — það varð ég. — Og þessi rólegi, haínfirzki skipstjóri byrjaði að tjá mér lejmdarmál sitt. „Eg skal segja þér frá dálitið skrýtinni reynslu, sem ég hef upplifað, síðan ég byrjaði að vinna hérna á Beisnum*®*). •) Bandaiíkjamenn hafa skapað ensk heiti á hóla, gil- skorning?.; fjöll og hæðadrög og eru aldrei nefnd öðrum nöfnum í talmáli og ritmáli á Vellinum. Þannig býðir Rock Crusher beint út Klettagjáin. ;i,:!) Seaweed þýðir þara’oyggð og er runnið frá flotanum í byrjun stríðsins, nafn á bragga- hverfi, þar sem sjóliðar höfð- ust við en hefur lent yfir á þessar. aðalbækistöðvar Hamil- tons i talmáli, sem hefur yfir- bugað hið formlega nafn „Con- tractors Camp“. *;l'*)Enska orðið „Base“ er orðið algengt í talmáli og þýðir herflugvöllur. Við hjónin eigum allstóran vinahóp, sem maður hefur sam- band við á frídögum sínum. Þetta er allt velmetið íhalds- fólk í Hafnarfirði. — Það hef- ur alltaf verið sagt um mig, að ég væri fastlyndur íhaldsmað- ur, rólyndur að eðlisfari og mér falli miður allar breyting- ar á ástandinu. — Því síður hef ég fengið orð fyrir að bera út gróusögur meðal fólks og þótt hingað til traustur í frá- sögnum mínum af daglegu lifi á sjónum. — í stuttu máli sagt eins og Kaninn segir: Eg hef haft átoritet. En hvað er nú! Þegar ég fer að segja fólki sögur héðan af Beisnum, þá bregzt það hið versta við og gamlir og góðir vinir mínir rjúka upp úr stól- unurn og slengja þessu framan í mig: „Hvað er þetta maður, þú talar bara eins og kommún- isti“. Og það er nú víst í fyrsta skiptið á ævinni“, segir þessi rólyndi íhaldsmaður mæðú- lega. Og þarna í göturykinu með flugvéladrunur i lofti og banda- rískar bifreiðar þjótandi fram- hjá okkur, fórum við að leita að eðlilegri skýringu, og það er ekki fjarri lagi, að við komumst að þessari niðurstöðu, sem ég veit þó að íhaldsmaðurjnn vill hafa fyrirvara á. Það, er ekkert efamál, að hin borgaralegu dagblöð stunda sér- stakan áróður gagnvart her- /--------- Fyrri hlutí l_________ náminu, þar sem þau viðhalda ákveðinni sjálfsblekkingu borg- arastéttar, sem vegna efnahags- legrar og andlegrar aðstöðu vill ekki trúa að mismunur sé milli herraþjóðar og undirþjóðar, og allar sögur sem kvikna út frá þessu sambýli og bera vott um kúgun hálfnýlendu, hljóti að vera runnar frá sósíalistum, sem ætíð hafa varað þjóðina við, skilgreint öll stig bandarískrar ásælni, frá því hún byrjaði hér á landi.. — Enda hefur hér gætt aflsmunar, þar sem um er að ræða ertt dagblað á móti fjórum, sem stríðir gegn sjálfs- blekkingu hernámsins. ★ Undanfarinn mánuð hef ég lesið mér til mikillar furðu rit- deilur milli Stefáns Valgeirsson- ar og Konráðs Axelssonar, sem birzt hafa á víxl í Tímanum og Morgunblaðinu og er vikið að mér persónulega í báðum þessum skrifum. Kunningjar míntr hafa stöðvað mig oft á götu þessa dagana og spurt mig um skilgreiningu þessara mála. En það er kannski ekki ómaks- ins vert að opinbera sína skil- greimngu. — Mér færari menn hafa svo árum skiptir skrifað varnaðarorð i þetta blað o‘g barizt gegn þeirri sjálfsblekk- ingu rem meiri hluti þjóðarinn- ar er ha'dinn af gagnvart her- náminu. — En það eru alltaf tii mem, sem vilja skýra skiln- ing sinn á ástandi líðandi stund- ar og þegar eitt af þessum sjaldgæfu tækifærum brosir við vegna innri hagsmunabar- áttu auðvaldsins og það glittir í sannleikann í sorinu, þá er það sjélfsagt frá hendi sósíal- ista pS nota þá aðstöðu, sem borgara’eg dagblöð færa upp 1 hendurnar á honum og ræða þessi mál af hreinskilni og virðiugu fyrir því sem sannara réýnist. '— Það hefur einnig orðið mér hvatning, að lesa þan skrif, sem Timinn lét í ljósi ein i daginn, að óvcsnju sannar og r’ákvæmar fré*tir hefðu birzt i Þjóðviljanum undanfarið af ásíani’jnu á KeHavíkurflug- velli og heíði blaðið nánast sagt eins góð sambönd og Morg- unolaðið ætti völ þar syðra. Ekki er að efc að Tíminn sé dómbær á sai nleiksgilöi þess- ara frétta, þar sem hann er nú vettvangur þess ráðherra, sem ræður isicnzkum málum á Keflavíkurflu.gvelli. ★ En nú skulum við at’nuga til- drög þessara mála. Það var uppi fótur og fit í Seaweed einn sólrikan maí- morgun, þegar mjólkurbíllinn kom með dagblöðin frá Rvík og það fréttist af grein í Tím- anurn, þar sem ráðizt var að Flugvallarblaðinu og tveir Til að endurreisa Kóreu þarf ekki aðeins að byggja mannvirki, heldur einnig að grœða jöröina. Hér eru menn að þeim siörfum á Maranbon-hœöum í nágrenni Pjonjang. Guðgeir Magnússon: Þegar ég var ráðinn blaðamenn þess ásakaðir fyrir að starfa jafnframt fyrir leyni- þjónustu bandaríska hersins, þar sem þeir áttu að vera á verði gegn óánægjuröddum í hópi verkamanna á Vellinum og sjá um að slíkir menn væru tafarlaust reknir inn i islenzkt atvinnulíf aftur. Menn urðu undrandi að sjá þennan sannleik skrásettan á síður þessa stjórnarblaðs. — Manni verða minnisstæðir rnargir ungir Framsóknarmenn hvað þeir réttust í bakinu þeg- ar þeir töluðu við Heimdelling- ana sem svöruðu þegar með atómsprengjum. Nokkrum dög- um seinna kemur svo þessi fræga grein í Flugvallarblað- inu, sem er eitt af stærstu póli- tískum asnastrikum Sjálfstæð- isflokksins, op réði næstum falli heillar ríkisstjórnar, cg er þó ekki séð fyrir endann á því. Þessa grein skrifaði Helgi S. í samráði við formann þess hlutafélags, sem telur sig eiga þetta blað, en það er Konráð Axelsson ráðningarstjóri. Þarna er utanrikisráðherra borinn þeim sökum að hann sé komm- únisti og haldi uppi komjnún- istum í þessari herstöð Atlants- hafsbandalagsins. — Alörei hafði nú áður heyrzt slikt um þennan rólega, norðlenzka fræðimann. Að vísu lýsti þessi ráðherra margoft yfir á þingi i vetur, að ekki skipti máli, hvaða stjórnmálaskoðanir menn hefðu í vinnu á flugvellinum, þrátt fyrir að sami ráðherra furðaði sig á því i persónuleg- um viðtölum, hvernig þessi og þessi sósíalisti hefði komizt í vinnu á flugvellinum, — þegar fór að skýrast fyrir honum hið mikla njósnabákn, sem' her- námsflokkarnir og bandaríska leyniþjónustan hafa komið á fót síðustu árin. — Það er eng- inn eíi á þvi, að ofsa greinar- innar er að rekja til þess and- rúmslofts, sem bandarísk ógn- arstjórn skapar á Vellinum. en þess ekki gætt. að greinin er einnig lesin af athygli utan takmarka Vallarins og vekur meðal annars óskaplegt fjaðra- fok niðri á skrifstofum Hol- stein, sem hafa margra ára reynslu við að túlka þessi mál fyrir þjóðinni. Þessi grein vakti fyrst t stað enga sérstaka furðu innan Vall- arins, fyrir þá, sem þekkja MacCartyismann í raun, menn ypptu aðeins öxlurn og vissu að hér talaði.bandaríska leyniþjón- ustan í gegnum íslenzka njósn- ara sína. Það var ekki fyrr en reykvísk dagblöð fóru að skýra málið fyrir sér og öðrum að heiftin blossaði sérstaklega upp i ungum Framsóknarmönnum, sem tóku upp vörn fyrir ráð- herra sinn. Mér er minnisstætt atvik sem kom fyrir i einum söluturn- anna, þremur dögum eftir að greinin birtist, er ég var að afgreiða tvo unga menn með dýrselda mjólk og var annar Framsóknarmaður en hinn Heimdellingur. Þeim lenti fljót- lega saman yfir mjólkurdrykkj- unni og Framsóknarmaðurinn segir að lokum yfirkominn af heift: „Það er aðeins ein meðhöndl- un, sem þið Heimdellingar eig- ið skilið: það á að skjóta ykk- ur með dúm-dúm-kúlu í mag- ann. Það kemur pínulítið gat, þar sem kúlan rifur sig inn að framan, en springur út að aft- an með stóru holundarsári". „Haltu helvítis kjafti“, segir Heimdellingurinn. Svo skildi ég aldrei almennilega þessa lang- sóttu viðbót: „Hvernig í ósköp- unum stendur á þvi, að Banda- ríkjamenn eru ekki farnir að nota atómsprengjur“. Ekki nema þá að Heimdellingurinn vildi nota atómsprengjur á Framsóknarflokkinn. En mór- allinn hjá báðum þekkist allt of vel frá bandarískri glæpa- sögu „Eg, dómarinn“, sem ný- komin er á markaðinn, og að öðrum þræði frá hótunum bandarískra öldungadeildar- þingmanna' gagnvart Kína. ★ Það var einmitt á þessum sömu dögum að jeppabifreið renndi upp að söluturninum og í dyrunum birtist rólegur hörg- dælskur bóndi með diplódam- tiskt bros á andlitinu. Þetta var formaður Starfsmannafélagsins, Stefán Valgeirsson. Það var enginn inni í búðinni og formað- urinn segir þegar við mig: „Jæja, karlinn, nú ferð þú að koma við sögu úr þessu. Það er svo mál með vexti, að Konráð réði þig á sínum tima i öryggisvörðinn, þar sem þú barst honum kveðju frá manni, sem Konráð skuldar peninga. Framhald á 8. siðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.