Þjóðviljinn - 15.07.1954, Síða 5
Fimmtudagur 15. júlí 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Hverjir græða á
m *
í Asíu?
USA gera allt til að halda hráefnalindum nýlendnanna
Það er ekki að ástæöulausu að nýlenduveldunum,.
Frakklandi. Bandaríkjunum og Bretlandi þykir mikið við
liggja að missa ekki yfirráð yfir Indó-Kína. Á síðastliðnu
ári var verðgildi vörumagns þess sem Bandaríkin ein
fengu frá Indó-Kína um 70 milljónir dollara. Margar
þeirra vörutegunda eru taldar hernaðarlega mikilvægar.
Árið 1938, er Frakkar höfðu
enn óskoruð völd í nýlendu
sinni Indó-Kína, var útflutn-
ingur nokkurra framleiðslu-
vara hinna indó-kínversku ríkja
sem hér segir: Hrísgrjón:
954.867 tonn, kol: 580.792
tonn, gúm: 58.023 tonn, maís:
548.010 tonn, pipar og krydd:
5.521 tonn.
En árið 1953, er sjálfstæðis-
her Víet-Minh hafði þrengt
mjög kosti Frakka, var útflutn-
ingur þriggja höfuðútflutnings-
varanna sem hér segir: Hris-
grjón: 149.148 tonn, gúm:
52.987 tonn, pipar: 486 tonn.
Hrísgrjón eru aðallega ræktuð
í óshólmum Mekong-fljóts í
Kambodja og Cochinkína (suð-
urhluta Víet-Nam) og í ós-
hólmum Rauðár í Víet-Nam, en
þaðan neyddust Frakkar að
hörfa af stóru landsvæði fyrir
skömmu. Pipar og gúm eru
aðallega ræktuð í Kambodja
og Cochinkína. Verðmæti þess-
arra þriggja vörutegunda var
samkvæmt frönskum heimild-
um um 65 milljónir bandaríkja-
dollara.
Er tölur þessar eru athug-
aðar er auðvelt að skilja að
nýlenduveldunum þyki mikið
við liggja að halda því sem
haldið verður, þó ekki væri nema
þeim svæðum sem þeir enn
ráða yfir í Indó-Kína, en á
þeim eru mörg helztu gróða-
fyrirtæki Frakka, t.d. gúmekr-
ur í Kambodja og Cochinkína.
Viðhorf nýlenduveldanna
Bandariska tímaritið „US
News and World Report", 14.
maí sl., lýsir vel áhuga heims-
veldasinnanna fyrir að missa
ekki af nýlendugróðanum í
Asíu. Það segir: „Frá Indó-
Kína, Birma, Síam og Malakka-
skaga fengu Bandaríkin á ár
inu 1953 h. u. b. þrjú hundrað
millj. dollara virði í vörum,.
að mestum hluta tin og hrá-
gúm. Frá Bandaríkjunum voru
fluttar til þessara landa 130
milljóna dollara virði í vörum,
aðallega vélar og bómullarvör-
ur.
Sé litið á þessar tölur og
staðreyndimar athugaðar sést
hversu missir þessara landa
yrði mikið áfall fyrir hráefna-
öflun og verzlun Bandaríkj-
anna. .} -y
Á árinu 1953 fengu Banda-
ríkin vörur frá Indó-Kína fyr-
ir iim 70 millj. dollara. Af
þeim var stærsti hlutinn, hrá-
gúm, eða fyrir 15,3 millj. En
land þetta hefur þar á móti
keypt vörur í Bandarikjumun
fyrir þvínær 37 millj. dollara.
Síam, sem liggur að vestur-
landamærum Indó-Kína, hefur
á síðastliðinu ári selt til Bandá-
ríkjanna vörur fyrir meir en
69 millj. dollara. Þar af var
hrágúm fyrir 46 milljónir og
tin fyrir 11 millj. Á árinu lét
Síam af hendi við Bandaríkin
wolfram, sem er mikilvægur
málmur fyrir framleiðslu stáls,
fyrir 5.3 millj. dollara. Voru
þetta ein mikilvægustu kaup á
hemaðarlega mikilvægum hrá-
efnum sem gerð voru á tíma-
bilinu.
Iðnaður Bandaríkjanna flutti
Út á þessu ári til markaðar
í Síam vörur sem voru nær
57 millj. dollara virðd. Af þeim
voru .vélar og farartæki 26.5
millj. dollara virði.
Birma flutti út til Banda-
ríkjanna vörur fyrir .3,4 millj
dollara., aðallega wolfram. Frá
Bandaríkjunum flutti það inn
fyrir 6,8 millj. dollara.
Utanríkisverzlun Malakka-
skaga er því nær eingöngu við
Bandaríkin. 1953 fengu Banda-
ríkin þaðan hrágúm og tin
fyrir um 100 millj. dollara“.
Óttinn við kommúmsmann
Er litið er á þessi ummæli
hins . bandaríska tímarits verð-
ur ljóst hversvegna leiðtogar
Repúblikanaflokks Bandaríkj-
anna á þingi töldu nauðsynlegt
að beita óvenjulegu offorsi í
yfirlýsingum þeim er þeir gáfu
út vegna undanhalds franska
hersins í Víet-Nam. Patrick
Knowland, leiðtogi Repúblikana
í öldungadeildinni lýsti því yfir
að stöðva yrði útbreiðslu
kommúnismans í Asíu og koma
í veg fyrír aðild Kína að sam-
tökum Sameinuðu þjóðanna,
jafnvel þótt það kostaði heims-
styrjöld. Hið bandaríska
hringaauðvald telur öll ráð til-
tækileg til að viðhalda hinu
skef jalausa arðráni. sínu, heima
fyrir og í nýlendunum.
Vernd til hanða Síam
Einnig varpar grein: tíma-
ritsins ljósi yfir þá ráðstöf-
un Bandaríkjastjórnar að láta
Síam biðja Sameinuðu þjóðirn-
ar um sérstaka vemd landa-
mæra sinna og Indó-Kína, í
þann- - mnttd sem • undanhald
franska. hersins á óshólmum
Rauðár stóð yfir.
Tilgangurinn var að tryggja
áframhaldandi yfirráð heims-
auðvaldsins yfir hráefnalindum
landsins. Öryggisráð Samein-
uðu þjóðanna varð þó ekki við
beiðni þessari.
En síðan hefur Bandaríkja-
stjórn aukið að mun vopna-
sendingar til Síams til þess að
styðja leppstjóm Pibuns Song-
grams í sessi, en valdaaðstaða
hexmar er mjög ótrygg vegna
óánægju alþýðu í landinu og
sjálfstæðishrevfingar lands-
manna sem eflist með degi
hverjum.
Meiri gróði eina takmaridð
Þannig eru valdamenn auð-
valdsins óþreytandi að leitast
Framhald á 8. síðu.
Hinar fyrrum frumstœðu pjóðir Asíu sem nú búa við
soVétskipulag, njóta nú stöðugt meiri tækni og menning-
ar. Samyrkjubændur í Altai-héraði í Asíu taka hér á móti
nýrri sendingu dráttarvéla.
gera eppreisn
Á fundi þingflokks brezka
íhaldsflokksins í fyrrakvöld
gerðu 40 af 321 þingmanni hans
uppreisn gegn flokksforingjanum
Churchill og ríkisstjórn hans.
Lýstu þeir yfir að þeir myndu
greiða atkvæði gegn því á þingi,
að gerður verði samningur við
Egypta um brottför brezka setu-
liðsins af Súezeiði. Einn þessara
þingmanna, Nigel Birch, sagði
sig úr íhaldsflokknum í gær og
telst hér eftir óháður.
Gagntillögur Egypta ,við síð-
ustu tillögum Breta um brott-
flutninginn frá Súes bárust í
gær til London. Er sagt að'*
Egyptar vilji þvi aðeins leyfa
brezkum her að koma til Súes
aftur ef eitthvert Arabaríkj-
anna verður fyrir árás. Bretar
vilja láta hið sama ná til Tyrk-
lands og Iran.
Eiseislsöwer
iiýðns* Hliee
Eisenhower Bandaríkjafor-
seti tilkynnti í gær, að hann
hefði boðið Syngman Rh'ee, for-
seta Suður-Kóreu, að sækja sig
heim í Washington. Vön er á
Rhee 26. júlí. — Eisenhower
kvaðst myndi ræða við Rhee
um sameiningu Kóreu, en fyrir
nokkru lýsti hann sig . lausan
allra mála af vopnahléssamn-
ingnum og hótaði að hefja
stríðið á ný upp á eigin spýtur.
Coloradobjalla ger-
£r usla í Daxunörku
Colorado-bjallan herjar nú í Danmörku og gerir mikinn
usla í kartöfluökrum þar. Dýr þetta er hið erfiöasta viður-
eignar og búast menn við að það valdi miklu tjóni á
kartöfluuppskeru Dana í ár.
Hislles sendir....
Framhald af 1. síðu.
segir að þar sé það talin tölu-
verður sigur fyrir Mendés-
France að honum skyldr takast
að telja Dulles á að- senda
Bedell Smith til Genf. Áður
hafði verið tilkynnt í Washing-
ton, að hvorki Dulles né Smith
myndu koma til Genf.
Franskir stjórnmálamenn
telja, segir fréttaritarinn, að
Mendés-France hafi fengið
Dulles til að lofa því að leggja
ekki stein í götu friðar i Indó
Kína en hinsvegar hafi' Dulles
ekki viljað heita neinu um
að Bandaríkin taki ábyrgð á
friðarsamningum.
Obdulio Barthe lótinn lous
Obdulio Barthe, verkalýðsleiðtoginn frá Paraguay, sem
í fjögur ár hefur verið hafður í haldi í fangelsi í Buenos
Aires í Argentínu og Asuncion, höfuðborg Paraguay, hef-
ur nú verið látinn laus. Var það einungis vegna ítrekaðra
áskorana alþýðusamtaka víðsvegar um heim.
Barthe var pólitískur flótta-
maður í Argentínu er argentísk
stjórnarvöld létu handtaka hann,
þann 22. júli 1950. Hann var
hafður í haldi og pyntaður fyrst
í fangelsi í Buenos Aires, en síð-
an í Asuncion, höfuðborg Para-
guay. Sökum illrar meðferðar
var líf hans í stöðugri hættu
og heilsu hans hrakaði mjög.
Hann var að dauða kominn er
hann var loks látinn laus nú
nýlega. Það eina sem Barthe
var gefið að sök, var að hafa
tekið þátt í kjarabaráttu alþýðu
í landi sínu. Með fangelsun
landsins, sem eru í höndum léns-
herra og auðmanna, að beygja
alþýðu landsins undir arðráns-
og kúgunarok sitt. Það tókst þó
ekki og eftir að hafa fengið
þúsundir áskorana um að ieysa
Barthe úr haldi, m. a. frá Al-
þjóðasambandi verkalýðsfélag-
anna, þingi VerkalýÖssambands
Suður-Ameríku, Verkalýðssam-
böndum í Asíu og víðar, neydd-
ist stjómin til þess og varð
Barthe frjáls maður á ný, eftir
fjögurra ára fangeisisvist, í maí
s.l.. Hann mun þá hafa haldið
til Guatemala í boði þáverandi
Barthe ætluðu stjórnarvöld stjórnar landsins.
í Danmörku hefur colorado-
bjallan- gert enn meir vart við
sig í ár en nokkru sinni áður.
Hún hefur
lagt undir sig
mikinn hluta
Suður-Jót-
lands, og eru
bæirnir
Grindsted og
Brande
nyrstu stað-
irnir sem hún
hefur enn sést á. Kartöfluupp-
skera Dana er því í mikilli
hættu, og má búast við að út-
flutningur kartaflna frá Dan-
mörku dragist allmikið saman,
en Dar.ir hafa árlega flutt út
kartöflur fyrir um 40 milljónir
danskra króna.
Coloradobjalia
Berast með víndinum
Skaðræðisdýr þessi berast í
hópum með loftstraumum og
koma úr suðurátt. Ræktunareft-
'irlit ríkisins hefúr 12 til 14
menn til að ferðast milli beirra
staða sem skordýr þessi finnást ur.
á og útrýma þeim. Það hefur
og verið leitt i lög í Danmörku
að refsivert sé að láta hjá líða
að tilkynna yfirvöldunum ef
colorado-bjollur finnast,
titrýmlngarherferð
Náist ekki í skordýraeitur úr
lyfjabúðum er sjóðandi vatn á-
hrifaríkasta meðalið gegn bjöll-
um þessum. Danska ríkið stend-
ur straum af kostnaði við að
dreifa varnarlyfjum til svæða
þeirra sem bjahan hefur fundizt
á og af kostnaði við að eitra
fyrir hana.-.Eitt kvendýr getur
orpið frá 600—1400 eggjum á
einu vori og þau klekjáát út um
miðjan júlí. Er því lagt allt kapp
á að eyðileggja lirfurnar um
það leyti. Hingað til hefur tekizt
að halda skaðvaldinum niðri með
kostnaðarsömum aðgerðum. Það
er og mikið í húfi bæði fyrir
landbúnað Dana og nágranna-
þjóða þeirra að honum takist
ekki að-hreiðra um sig til fram-
búðar í kartöfluökrum- Danmerk-
V“Þýzkaland
Framhald af 1. síðu.
lands þá frestað „fyrst um
sinn“ segir Dulles.
I umræðunum um utanríkis-
mál á brezka þinginu í gær
staðfesti Churchill forsætisráð-
herra yfirlýsingu Dulles fyrir
hönd brezku stjórnarinnar.
Varð kurr á bekkjum Verka-
mannaflokksins og Attlee, for-
ingi stjórnarandstöðúnnar,
spratt upp og krafðist þess að
umræða yrði um þessa ákvörð-
un, sem mörgum hlyti að getast
illa að þar sem hún boðaði
endurreisn þýsks hers.
Murizt við
Manm
Sjálfstæðisher Indó Kína
sækir stöðugt að útvirkjum
Frakka kringum stórborgina
Hanoi á Rauðársléttunni. —
Franska herstjómin játaði í
gær að' eitt virki 45 km norð-
austur af borginni hefði verið
umkringt. Eru setuliðinu þar
sendar. birgðir ineð- fiugyélum.