Þjóðviljinn - 22.08.1954, Page 3

Þjóðviljinn - 22.08.1954, Page 3
Sunnudagur 22. ágúst 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (3 Dóná, Valagilsá, Hvaj og fleiri ár hafa orðið vatns- meiri í sumar en nokkru sinni í mannaminnum. Tjón- ið í Linz og á Fremri-Kotum hefur mjög vérið til umræðu, ekki síður en orsakir hinna óvenjulegu vatnavaxta. Sjald- an hefur eins mörgum orðið það jafnljóst að vatnið er mikil höfuðskepna. • Skáldin og vatnið Það hefur verið sagt að tvennt sé jafnan sjálfu sér líkt hvarvetna á jörðinni: söngurinn og vatnið. Um það má nú sjálfsagt deila, og víst er um það að kinverskur ó- perusöngur og evrópskur stinga mjög í stúf hvor við annan. Hitt er jafnvíst að vatnið hefur orðið skáldum vítt um heim yrkisefni, og þau hafa meira að segja öll lesið svipaðan sannleik úr straumnum. Sérstaldega. hef- ur þeim orðið hugstæð lík- ingin milli mannsævinnar og læksins, sem alltaf fellur að ósi eins og lífinu lýkur í ■dauðanum. Sjórinn sjálfur er tákn hins óendanlega, öld- urnar við ströndina tákn þess sem alltaf kemur á ný. Vatnið hefur orðið skáldun- um uppgötvun hins æðsta sannleiks -—- hver sem hann hefur verið, því vitaskuld má lesa varanleik úr iðju þess straums sem aldrei þrýtur, ekki síður en hverfulleik úr hinu óstöðvandi flugi hans. En athyglisvert er það að þó skáldin hafi jafnan unnað vatninu sem yrkisefni hefur þeim ætíð verið öðrum mönn- um ósýnna um að drekka það. En það er þeirra mál. • Þjórsá og: Njála Menningarsögur kenna að hámenning fornþjóða hafi fyrst og fremst þróazt á ár- hökkum. Hafa menn þá víst einkum í huga Níl og Indus og Gulá. Það hafa verið óþæg- ar ár, og eru það enn; hafa knúð menn til samvinnu og átaka. Þar mundu sumir segja að kæmi til greina kenning Toynbees um nauðsyn hæfilegra örðugleika, að bar- átta mannsins við náttúruna sé . ,,mátulega“ hörð. Eftir þessari kenningu um vatnið og menninguna ætti hún að eiga . örðugra uppdráttar á Miðnesheiði en , vi.ð Þjórsá. Það hefur sem sé verið geng- ið úr skugga um það að á allri strandlengjunni milli Selvogs og Hafnarf jarðar falli hvergi spræna til sjávar. Vatnið fellur allt í undirbing. Annars er nýjasta kenningin um vatn og menningu sú að Þjórsá hafi skrifað Njálu. Það skal tekið fram að þetta er aðeins kenning enn sem komið er. En höfundurinn er einmitt þessa dagana að leita raka fyrir henni, og hefur látið þess getið í einkaviðtöl- um að hann skuli finna þau nú í vikunni. Hann ætlar þá að birta þau í útvarpinu á laugardagskvöldið. • Að takast á við jörðina En nú er önnur öldin en þegar Njála var skrifuð, og nú hafa menn allt annað við Þjórsá að gera en láta .. krafti, sem vannst úr fossa þinna skrúða“. ÞÆTTIR UM VATM HrÍRgrós vatnsins er mikHfengiegasfa eilífðarvéi sem sögur fara af hana skipta sköpum í valda- baráttu, enda gerast nú nógir til að skrifa bækur. Og ýmsir góðir menn hafa lengi haft augastað á virkjunarmögu- leikum þessa mesta fljóts á íslandi. Það er Sigurður Thor- oddsen verkfræðingur sem manna mest hefur rannsakað Þjórsá frá þessu sjónarmiði. I tímariti Verkfræðingafélags Islands í hittiðfyrra birti hann „virkjunarkort“ Þjórs- ár og Hvítár; og er kannski fróðlegt fyrir ferðalanga á Hveravelli að vita, að þar er gert ráð fyrir virkjun Hvítár skammt fyrir neðan brúna norðan Bláfells, og inn á bak við Heklu eru margar stór- virkjanir í Þjórsá. Því má skjóta hér inn að það hlýtur að vera ánægjulegt að vera verkfræðingur með ímyndun- arafl — og fá að beita því. Þúsundir vísindamanna glíma alla sína ævi,^v|0o,alls^onar' bakteríúr og önflítr smákyikr, indi, og lúta stundum { lægrá haldi. En þó þeir beri af þeim sigurorð, með því að leiða þær fram í dagsljósið og finna meðöl gegn þeim — hvað er það móti því að glíma við landið sjálft, takast á við jörðina ? • Vatnsföll í rafljósi Ef áætlanir Sigurðar Thor- oddsen kæmust til fram- kvæmda, þá mundi Þingvalla- vatn ekki lengur vera stærsta vatn á Islandi. Tvær virkjun- aruppistöður í Þjórsá mundu verða miklu stærri. 1 ritgerð um vatnsaflið á Islandi og beislun þess, í áðurnefndu tímariti, gerir Sigurður ráð fyrir tveimur uppistöðum; yrði önnur um 250 ferkílómetrar, en hin um 170 ferkílómetrar, þar sem Þingvallavatn er „ekki nema“ 83 ferkílómetrar að flatarmáli. Þetta mundi gefa landinu á stóru svæði nýj- an svip, burtséð frá öllu því rafmagni sem þaðan yrði leitt um landið. En Sigurður hefur gert sér nokkra hugmynd um virkjanlega orku Þjórsár og annarra íslenzkra stórvatna. Telur hann að Þjórsá búi yfir 2 milljónum hestafla. Næst kemur Jökulsá á Fjöllum með tæpa milljón. Þannig er óþarfi að skoða vötnin á íslandi ein- göngu í ljósi skáldskaparins eða örðugleikanna við að kom- ast yfir þau. Það má líka skoða þau í ljósi þess rafmagns sem hægt væri að leíða frá þeim út um landið. © Lindárogdragár .Qkkur, var, kýnnt í skólun- um að árnar á Islandi væru ýmist bergvötn eða jökulvötn. Það er kunnara en frá þurfi að segja að skólakrökkum er stundum sagt rangt til, vilj- andi, af því staðreyndirnar eru of flóknar fyrir þau. Náttúrufræðingar láta sér fátt um þessa tvískiptingu finnast, og skipta íslenzkum vatnsföllum í þrjár tegundir: lindár, dragár og jökulvötn. Er þá ekki farið eftir litnum á ánum, heldur eftir því hvernig upptökum þeirra er farið. Hefur Guðm. Kjart- ansson ritað merka grein um þetta efni: Islenzkar vatns- fallategundir, í 3. hefti Nátt- úrufræðingsins 1945. Ekki skal hér gerð grein fyrir þess- ari þrískiptingu, en það er sér- kennilegt um lindár að þær grafa sér ekki gil, heldur renna um eilífð í mikilli spekt á grunnum botni sínum. En dragárnar eru helzt ekki á- nægðar fyrr en gilin að þeim eru svo djúp að enginn þorir að koma fram á barminn. Um þetta efni segir svo í ritgerð Guðmundar Kjartanssonar: • Hvítir strengir í hlíðum „Munurinn á lindám og dragám kemur berlega I Ijós þar, sem báðar þessar árteg- undir renna hlið við hlið, t.d. í Laugardal, Árn. Þar koma upp tvær lindár, sem nefnast Ljósárnar, allhátt uppi í hlíð Miðdalsfjalls. Hvor þeirra sprettur upp að kalla í einu lagi úr stórri lind. Þarna hafa þær verið allt frá ísaldarlok- um og ekki gert betur en skola lausum jökulruðningi af klöppunum, sem þær belja of- an eftir. Þær hafa ekkert graf- ið sig niður og blasa því við langar leiðir að eins og glitr- andi hvítir strengir í dökk- grænni, skógi vaxinni hlíðinni. En beggja vegna í sömu f jalls- hlíð eru djúp, svort gil, graf- in í fast berg af smáám og lækjum, sem öll eiga sér drög hærra í fjallinu, en eru sum hver miklu vatnsminni en Ljósárnar. Graftarafköst þess ara ártegunda koma elcki síður greinilega í ljós, ef vér berum saman dragána Bleiksá í Bleiksárgljúfri innarlega í Fljótshlíð og hinar vatns- miklu lindir, sem víða annars staðar fossa ofan Hlíðina og eru ekkert niðurgrafnar“. Eru ekki visindi af þessu tagi vel til þess fallin að opna augu manns fyrir náttúru landsins? ® Eilífðarvélin mikla . uJlíCl: ■ Hringrás vatnsins er víst stærsta eilífðarvél sem sögur fara af — og hvar eru endar hrings? Flest vötn renna að lokum til sjávar, en þó verður hafið aldrei fullt, eins og seg- ir í Prédikaranum. Það gufar upp af sjónum, ský myndast á himni, sum berast inn yfir land og falla þar niður sem snjór eða regn. Þaðan koma ár þær er um dali falla til hafs. En þó okkur þyki fljótin mikil vöxtum og undrumst það að sjórinn skuli ekki fyllast af þeim, þá mætti undrun okkar verða ennþá meiri af þeirri staðreynd að úrkoman yfir hafinu er um það bil tíu sinnum meiri að vatnsmagni en öll þau fljót sem í það falla, eða svo segir minnsta kosti Henrik Ren- qvist í sænskri heimslanda- fræði. Regnið á þurrlendinu, segir hann, er upphaf alls vatns á yfirborði jarðar og £ iðrum hennar. Meginhluti þessa vatns gufar aftur upp. En um þriðjungur úrkomunn- ar á landi myndar ár og læki er falla til sjávar. Það er vita- skuld mjög misjafnt hve mik- ið vatn fellur frá hinum ein- stöku svæðum jarðarinnar. Kongó, sem hefur næst- stærsta vatnasvæði allra fljóta á jörðinni, skilar í haf- ið 21 sekúndulítra af hverjum ferkílómetra lands á vatna- svæði sínu. Amazon skilar 17 sekúndulítrum, en verður miklu vatnsmeira fyrir það að vatiiasvæði þess er nær helm- ingi stærra, á stærð við 70 Islönd. 1 löndum þar sem bratti er mikill, svo sem í Noregi, og á Islandi, skilar hver ferkílómetri lands meira vatni í ár en þar sem bratti er minni — að öðru jöfnu. Það má nefnilega segja að þar hafi vatnið ekki tíma til að gufa uppi. • Ný vatnaskáld Vatnið er víst mesti áburð- ardreifari sem þekkist, og það er raunar meðal annars fyrir þessa staðreynd sem hámenn- ing fornþjóða reis á fljóta- bökkum. En þó nútímamaður- inn sé máttugur er hann ekki síður háður vatninu en áar hans eú fyrstir hófu glímuna við það; tækni nútímaþjóða miðar enn sem komið er ekki að því að gera þær óháðar vatni, heldur ná fullum tökum á því. Enn er óvirkjaður mik- ill meiri hluti af vatnsorku jarðar, og væntanlega kemur ýmsum það á óvænt að í Af- ríku er falin miklu meiri vatnsorka en í nokkurri álfu annarri. Svo er að sjá af línu- ritum að virkja megi rösklega helmingi fleiri hestöfl í Afríku en í Asíu, utan Sovétríkjanna; en vatnsorka Norðurameríku, Sovétríkjanna allra og Asíu innbyrðis sýnist vera álíka mikil. Við íslendingar erum meðal þeirra þjóða sem eiga gífurlega orku ónytjaða í vötnum sínum. Þeim sem skynja það til hlítar er Þjórsá ekki lífsháski eða eyðandi flaumur, heldur ljós og orka og framtíð. Skáldin halda á- fram að vera heimspekingar'" fljótanna, en verkfræðingarn-f-. ir gerast skáld þeirra. — B.B**

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.