Þjóðviljinn - 22.08.1954, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 22.08.1954, Blaðsíða 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 22. ágúst 1954 INNAN VIÐ MÚRVEGGINN EFTTR A. J. CRONIN 81. var pergamentgul, þykk og þakin hrukkum sem minntu á ör og í þeim bláleitir blettir. Hann var klæd'dur gljá- andi brúnum fötum, sem voru að springa á saumunum, úrelt í sniði og alltof lítil honum, og hann minnti einna helzt á afdankaðan sjómann í landi. Og sem Páll stóð þarna grafkyrr með ákafan hjart- slátt, leit þessi bláókunnugi maður upp, hélt áfram að tyggja með sterklegum, gulleitum tönnum og virti hann fyrir sér með svipiausum, fjandsamlegum augum. Andar- tak gat Páll ekki komið upp orði. Þúsund sinnum og á þúsxmd mismunandi vegu hafði hann í huganum lifað þessa stund, hina langþráðu endurfundi, hlý faðmlög og tárin sem ruddust fram — æjá, hvað hann hafði gyllt fyrir sér endurfundina við hinn elskaða föður bernsku sinnar. Að vísu hafði hann gert ráð fyrir eðlilegum breyt- ingum sem árunum fylgja, en að slík ummyndun gæti átt sér stað hafði honum aldrei flogið í hug. Hann gat með erfiðismunum gengið í áttina til hans og rétt fram höndina. Fingurnir sem réttir voru fram á móti eftir andartaks hik voru stórir og sprungnir, hrjúfir og harð- ir og neglurnar gulleitar og sprungnar. „Jæja þá,“ sagði Dunn með innileik í röddinni, sem var svo óeðlilegur og stakk svo !f stúf við tal hans rétt áðan, að Páli varð illa við. „Ég vona að þeir sjái vel um yður“. Maðurinn við borðið leit sem snöggvast á Dunn. Hann svaraði engu en hélt áfram að tyggja eins og hann hugs- aði um þaö eitt aö njóta matarins til fulls. Dunn sneri sér í staðinn að Smith. „Hefur þú séð fyrir öllu, Ted?“ „Já, það hef ég gert“, svaraði Smith. „Þú hefur séð um að blaðamennirnir létu herra Mathry í friði“. „Já vissulega .... Ég afhenti þeim skýrsluna.“ 1 „Ágætt“. „Það varð þögn. Ritarinn tók upp hattinn sinn sem lá á gólfinu fyrir framan hann. „Jæja“, sagði Dunn og tvísté á gólfinu. „Þið tveir hafið ekki sézt í langan tíma. Við Smith viljum ekki ónáða ykkur. Við lítum inn til ykkar á morgun. Þið hringið ef þið þurfið á mér að halda“. 1 Páll fylltist reglulegri skelfingu. Hann hefði viljað gefa hvaö sem var til þess að mennirnir tveil’ yrðu kyrr- ir, en hann gat ekkert gert. Hann sá að þeir vildu komast burt. Þegar dyrnar lokuðust á eftir þeim stóð hann um stund steinþegjandi; tók sér síöan stól og settist að borðinu. Ókunni maðurinn, þessi Rees Mathry, sem var faðir hans, var enn að boröa, hallaði sér yfir diskinn og ýtti á eftir matnum inn í munninn með þumalfingrin- um, og leit öðru hverju útundan sér þessu stirnaöa augnaráði og vottaði fyrir spurn í svipnum. Páll þoldi þetta ekki lengur. í örvæntingu sinni tók hann til máls, setningar hans voru slitróttar og sundurlausar. „Ég get ekki lýst því hvað ég er feginn .... að sjá ‘ þig aftur, pabbi. Það hefur mikla þýðigu fyrir mig. Auð- vitað, eftir öll þessi ár .... er það dálítið erfitt fyrir okkur báða. Ég er viss um að þér finnst þetta jafnóþægi- legt og mér. Það er svo margt að segja og ég veit varla 1 á hverju ég á að byrja. Og þaö er líka margt ógert. Fyrst þarftu að fá þér sæmileg föt. Þegar þú ert búinn að borða .... ættum við að koma út og líta í búðir .... “ Orð hans létu heimskulega í eyrum hans sjálfs og loks þagnaði hann. Honum varð hverft við og um leið varð hann feginn þegar hinn maöurinn tók til máls. „Áttu nokkra peninga?" ' Spurningin var næstum ruddalega hreinskilin, en Páll flýtti sér að svara. „Það ætti að nægja að sinni“. „Ég gat ekkert haft út úr þessum. Dunn“. Svo var eins og hann hugsaði upphátt: „Ég skal ná í peninga. I Ég skal láta þá borga fyrir það sem þeir hafa gert mér“. I Röddin var hrjúf og hás eins og hljóðfæri sem sjaldan | fcr, notað, en verxi en hrjúfi hreimurinn var hin hræði- lega beizkja, hatrið sem gegnsýrði hann. Páli leið enn ver. „Áttu sígarettu?“ „Því miður ekki“. Páll hristi höfuðið. ,,Ég hef ekki reykt lengi“. Mathry virti hann rannsakandi fyrir sér eins og hann vildi ganga úr skugga um að hann segði sannleikann. Svo dró hann með semingi pakka upp úr vasa sínum og Páll sá að það var sama tegundin og Dunn reykti. Hann tók sér sígarettu, beygði sig snögglega niður eins og hann vildi komast hjá því að til hans sæist og kveikti í henni. Hann faldi sígarettima í lófanum og reykti hratt og með leynd, drakk reykinn í sig með áfergju. Meðan Páll virti fyrir sér andlit hans, tók hann í fyrsta skipti eftir þv!í að það var eins og steinrunnið. Einkum var munnurinn hörkulegur og samabitinn fyrir neöan langa illa rakaða efri vör. Allt í einu og fyrirvaralaust drap Mathry í sígarettunni og stakk stubbnum í vestisvasann. „Hvað er klukkan?" Þegar Páll leit á silfurúrið sitt varð hann þess var að Mathry horfði á hann með ágirnd í svipnum. Og svo sagði hann: „Ég hef ekkert úr“ Páll losaði festina með hægð úr hnappagatinu og rétti honum bæði úr og festi. ,,Þú mátt hafa mitt þangaö til þú færð annað betra“. Ekkert þakklætisorð. Mathry vó úrið og festina í lófa sjinum; svo stakk hann hvoru tveggja í vasa sinn með snöggum, laumulegum hreyfingum, sem honum voru eiginlegar. Um leiö var barið að dyrum og stúlka kom inn til að taka af borðinu. Páll reis á fætur. Hann vissi að faðir hans hafði mikið sér til afsökunar, en samt leið honum illa. Hann sagði svo lágt að varla heyrðist: „Eigum við þá ekki að koma út núna .... og verzla“. „Jú“, sagði Mathry. „Ég vil fá almennilega garma“. Þeir fóru út í glampandi sólskinið, fóru með leigubíl niður í Leonard stræti og þar fóru þeir inn í Drons verzlun, eina af stærstu klæðaverzlunum borgarinnar. Hafi Páll búizt við breytingu til batnaðar, varð hann fyrir miklum vonbrigðum. Dagurinn varð honum hrein- asta kvöl. Óhefluð framkoma föður hans gerði það að verkum, að fólk starði á þá hvar sem þeir fóru. Rudda- mennska hans kom einu sinni út tárunum á stúlkunni sem afgreiddi þá. En verra var þó næstum sjúklegt ííimilisþssítiir Homsófi borð eða stól til viðbótar við sófann. Það er mjög farið að tíðk- ast að nota eitt horn í stof- unni fyrir sófa eða sófabróður. Hér er sænsk hugmynd. Sóf- inn er samsettur úr litlum hlut- um sem hægt er að kaupa hvern fyrir sig. Tréverkið- er beyki og sessumar eru úr freyðigúmmi með verum sem lokað er með rennilás. Sófinn á myndinni er lengri öðrum megin og litla borðið sem stendur við styttri endann er eitt af sófastykkjunum með engum sessum á, það má eftir hentugleikum nota sem stakt Ef þú steikir fisk í raspi ætt- irðu að reyna að blanda dá- litlu kartöflumjöli í raspið. Þá er síður hætta á að fiskurinn festist við pönnuna. Þegar vaskaskinnshanzkar em þvegnir mega þeir aldrei þorna nálægt ofni. Og meðan þeir eru að þorna er gott að núa þá milli handanna öðra hverju til að halda þeim mjúk- um. pc CAMMSI Elskan mín, sagði hann, mig langar að segja þér það, og þú verður að trúa því, að ég hef aldrei elskað neina aðra konu en þig, og þú ert fyrsta stúlk- an sem ég hef nokkurntíma kysst. Trúirðu mér ekki — Þú verður, ástin mín. Hann starði fast og lengi í augu hennar, og sagði: Þú verður að trúa mér. Hún hikaði ofurlítið, svo lagði hún höfuðið á öxl hans og hvíslaði innilegasta rómi sínum: Já, ég trúi þér, ég trúi hverju einasta orði sem þú segir. Og ég elska þig heitar en ég hef nokkru sinni elskað fyrr, og í rauninni hefur mér aldrei þótt vænt um neinn annan en þig. Þú ert hraustasti, bezti og vitrasti maður í allri veröld- inni. Trúirðu mér, vinur — þú verður að trúa mér. Þetta voru þau Adam og Eva er þannig töluðu. ■=S5S5==» Milljónamæripgur nokkur dó. Maður nokkur sem heyrði and- lát hans, brast þegar í ofsa- legan grát. Kunningi hans einn, er bar þar að, sagði við hann: Hvað er að þér, maður — ertu orðinn vitskertur? Nei, ríki maðurinn var að deyja. Varst þú eitthvað í ætt við hann? Nei, það er einmitt þessvegna sem ég er að gráta. Eim um rendur Við höfum áður minnzt á breiðu rendurnar sem náð hafa vinsældum í kvenkjólum. Hér er mynd af einum slíkum kjól og af honum sést á hve marg- an hátt er hægt að nota rand- mynstrið. En það er sjálfsagt ekki heppilegt fyrir byrjendur í saumaskapnum að ráðast í saum á svona kjól. Ti 1 1i9 9 n r leiðin

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.