Þjóðviljinn - 12.10.1954, Side 1
Þriðjutlagur 12. október 1954 — 19. árgangur — 231. tölublað
Kosningar á AlþýSusambandsþing um helgina:
Urslifrin ©inkennast af þungri sókn
^armanna um land allf
Affturhaldið Éapaði fulltriiuin Félags kjötíðiBaðarmaitiiít «g
Ægis í V.-IIúu. og beið ósigur viö allslierjaratkvæúa-
greiúslu í Vélstjórafélagi Vestiiiaunaeyja
Sjálfkjörið í Verkalýðsfé-
lagi Vestmannaeyj a
Kosningar fulltrúa til 24. þings Alþýðusambands
íslands fóru víða fram um síðustu helgi. Hér í Rvík
var kosið í sjö sambandsfélögum og unnu eining-
armenn fulltrúakjörið í fimm þeirra en afturhaldið í
tveimur. Afturhaldið beið nú ósigur í Félagi ís-
lenzkra kjötiðnaðarmanna og tapaði einnig fulltrúa
Verkamannafélagsins Ægis í V-Húnavatnssýslu.
Harðasta kosningin mun hafa verið í Vélstjórafélagi
Vestmannaeyja, þar sem einingarmenn unnu með
60 atkv. en afturhaldið fékk 58. Féll þar einn af
stjórnarmeðlimum Alþýðusambandsins, Páll Schev-
ing, formaður Sjálfstæðisfélags Vestmannaeyja.
Algjör eining náðist í Verkalýðsfélagi Vest-
mannaeyja og varð listi stjórnar og trúnaðarmanna-
ráðs sjálfkjörinn.
Yfirleitt má segja að úrslit
fuíltrúakjörsins, um lielgina
einkennist af þeirri þungu og
öruggu sókn. einingarstefnunn-
ar sem sett hefur svipmót sitt
á Alþýðusambandskosningarn-
ar fram að þessu. Eftir er að
kjósa í allt að lielmingi sam-
bandsfélaganna og er þess að
vænta að einingarmenn og aðr-
ir vinstri sinnaðir verkamenn
um allt Iand linni ekki sókninni
fyrr en kosningum er allstað-
ar lokið og endanlegur sigur
unninn.
Hér fara á eftir úrslit í þeim
félögum sem Þjóðviljinn hafði
í gærkvöld spurnir af að kosið
hefðu um helgina:
Félag ísl. kjötiðnaðarmanna
kaus á fundi s.l. sunnudag. Að-
aifulltrúi var kjörinn frambjóð-
andi einingarmanna Arnþór Ein
arsson með 10 atkv. en full-
trúaefni íhaldsins hlaut sjö.
Varafulltrúi var kjörinn Jens
Klein. Þetta félag kaus síðast
fulltrúaefni afturhaldsins og er
hér því um nýjan sigur að
ræða.
Streinafélag pipn-
lagningamaniia
I Sveinafélagi pípulagninga-
manna í Reykjavík fór fram
kosning á félagsfundi s.l. sunnu
dag. Kjörinn var frambjóðandi
einingarmanna Rafn Kristjáns-
son með 22 atkv. gegn 2. Vara-
fulltrúi var kosinn Magnús
Tómasson, og varð hann sjálf-
kjörinn.
Málarafélag
Reykjavíkur
Málarafélag Reykjavíkur kaus
á fundi s.l. sunnudag. Kjörinn
var formaður félagsins Krist-
ján Guðlaugsson með 15 atkv.
en frambjóðandi aftui’haldsins
Þorsteinn B. Jónsson fékk 4
atkv. Varafulltrúi var kosinn
Guðbjörn Ingvarsson með 10:5
atkvæðum.
Sveinafélag netagerðarmanna
kaus á fundi s.l. sunnudag. Að
alfulltrúi var kjörin Halldóra
Ó. Guðmundsdóttir, form. fél.
og varafulltrúi Bryndís Sig-
urðardóttir.
Verkalýðsfélagið
Vörn,Bíldudal
Verkalýðsfélagið Vörn á Bíldu-
dal kaus á fundi s.l. sunnudag.
Aðalfulltrúi var k.iörinn vara-
formaður félagsins, Ingimar
Júiíusson og til vara Ólafur
Bjarnason, formaður þess.
Vélsfjórafélag
fsafjarðar
Kosið var á fundi s.l. sunnu-
dag. Aðalfulltrúi var kosinn
formaður félagsins, Kristinn D.
Guðmundsson með 19 atkv. en
fulltrúaefni íhaldsins Björn
Guðmundsson slökkviliðsstjóri
fékk 8 atkv. Varafulltrúi var
kjörinn Jón Egilsson.
Verkalýðsfélag
Vestmannaeyja
Frestur til framboðs í Verka-
lýðsfélagi Vestmannaeyja var út-
runninn kl. 6 í gær. Aðeins einu
listi koma fram, frá stjórn og
trúnaðarmannaráði félagsins og
varð hann því sjálfkjörinn. Full-
trúar félagsins eru Sigurjón V.
Guðmundsson, Pétur Guðjónsson
.og Karl Guðjónsson. Er þessi
samkomulagslisti verkamanna í
Eyjum glöggt dæmi um hve ósk-
irnar um samstarf og stéttarein-
ingu eiga sér nú sterkar rætur
í verkalýðshreyfingunni.
ja
Allsherjaratkvæð^greiðsla fór
fram um fulltrúakjörið í Vél-
stjórafélagi Vestmannaeyja
og stóð hún yfir á laugardag
og sunnudag. Var mikill fyrir-
gangur í íhaldinu og skyldi ekk
ert til sparað að vinna kosn-
inguna og koma Páli Scheving,
formanni Sjálfstæðisfélagsins í
Eyjum og stjórnarmeðlim Al-
þýðusambandsstjórnar á sam-
bandsþingið. Úrslitin urðu samt
þau að Páll féll. Hlaut listi
einingarmanna 60 atkvæði en
íhaldslistinn 58. Fulltrúi félags-
ins er Friðþór Guðlaugsson.
Verkamannafél.
Ægir, V-Hún.
Verkamannafélagið Ægir,
Þverárhreppi, Vestur-Húna-
vatnssýslu kaus fulltrúa siifn
s.l. sunnudag. Kosinn var fram-
bjóðandi einingarmanna Björn
Sigvaldason, Bjarghúsum. Á
síðustu tveim sambandsþingum
var fulltrúi þessa félags úr liði
afturhaldsins.
Verkakvennafélagið Fram-
sókn kaus á fundi í Alþýðuhús-
inu á sunnudaginn. Höfðu
hægrikratar mikinn viðbúnað
og tóku að smala húsmæðrum,
sem eru í miklum meirihluta
innan félagsins, í bílum strax
kl. 2 þótt fundur ætti ekki a5
byrja fyrr en kl. 3. Varð fund-
urinn því óvenjulega fjölsóttur,
Strax í fundarbyrjun úrskurð-
aði fundarstjórinn, Jóna Guð-
jónsdóttir, að notuð skyldi
,,Sjómannafélagsaðferðin“ við
kosninguna, þ. e. þær sem kysu
uppástungulista stjórnarinnar
gætu krossað á venjulegan hátt
en þær sem kysu aðrar uppá-
stungur yrðu að skrifa öll nöfra
aðalfulltrúa og varafulltr.úa;,
24 að tölu, inn á kjörseðlinn.
Má nærri geta hver aðstaða
hefur verið til slíks í þrengsl-
unum á fundinum enda úrskurð
urinn felldur til að mismuna
starfandi verkakonum og gera
þeim kosninguna sem erfiðasta.,
Úrslitin urðu þau að frambjóð-
endur stjórnarinnar voru kjörn
ir með 175 atkv. en fulltrúa-
efni starfandi verkakvenna
hlutu 46 atkvæði.
Verkamannafélag
Glæsibæfarhr.
Verkamannafélag Glæsibæjar-
hrepps kaus fulltrúa sinn á þing
Alþýðusambandsins á sunnudag-
inn.
Formaður félagsins, Árni Jóns-
son, var einróma kosinn. Vara-
fulltrúi var kosinn Jónas Jónsson.
Gerðahrepps
Þar fór fram kosning á fundi
s.l. sunnudag. Aðalfulltrúi var
kjörinn Páll Sigurðsson og til
vara Eggert Jónsson.
Framboðsfrestur var útrunn-
inn í Bílstjórafélagi Akureyrar
í fyrrakvöld. Kom aðeins frana
einn listi, skipaður í samræmí
við áður gert samkomulag sós-
íalista og Alþýðuflokksmanna í
verkalýðsfélögunum á Akur-
eyri. Aðalfulltrúar eru: Jón
Rögnvaldsson, formaður félags-
ins, og Höskuldur Helgason,
Varafulltrúar: Bjarni Kristins-
son og Garðar Svanlaugsson.
Framhald á 12. síðu.
Féstra
' Stéttarfélagið Fóstra kaus á
fundi í gærkvöld. Aðalfulltrúi
var kjörin Þórunn Einarsdóttir
með 14 atkv. gegn 2. Varafulltrúi
er Hólmfriður Jónsdóttir.
Iíalldór Kiljan Laxness, Lárus Pálsson og leikendur hylltir í lok frumsýningar