Þjóðviljinn - 12.10.1954, Page 4

Þjóðviljinn - 12.10.1954, Page 4
'é) — ÞJQÐVILJINN — þriðjudagur 12. október 1&54 Stalin-Allee. í Bálgecofi er byggt oi kcsppi Tíðindamaður Þjóðviljans 11 i fyrir nokkru tal við tvo „nga menn, þá Guðmund Hall- -.rimsson málmsteypumann og Þórð Gíslason, sem er starfs- inaður við Sundlaugarnar, en þeir komu frá Búlgaríu fyrir ekki alllöngu og höfðu þá dvalizt þar um þriggja vikna skeið á vegum íslenzku alþjóða- samvinnunefndarinnar. — Eruð þið ekki fyrstu ís- lendingarnir sem hafið farið íil Búlgaríu eftir stríðið? — Nei, ekki er svo, ég held ég muni eftir einum, segir Þórður. En nafnið man ég ekki 2 svipinn. — Hvernig stóð á, að þið íóruð til Búlgaríu? Nú verður Guðmundur fyrir svörum og segir: — Búlgarska Ferðalangarnir iitast um í Berlín. Á milli þeirra er þýzki túlk- æskulýðssambandið, sem kennt urinn, se;n reyndist þeim hin mesta hjálparhella. I baksýn er er við Dimitroff bauð allmörg- um útlendingum til 3ja vikna dvalar í Búlgaríu í tilefni af tíu ára afmælis búlgarska al- býðulýðveldisins. — Hefurðu nokkurn tíma farið utan áður, Guðmundur? — Nei, en félagi minn Þórð- ur fór eitt sinn um V-Evrópu á hjóli og hann er því talsvert íeyndur ferðamaður. — Og hvenær lögðuð þið svo af stað héðan? — Við lögðum af stað 14. ágúst til Kaupmannahafnar joftleiðis, en þar slógust nokkr- jr Danir og Norðmenn í föi :tneð okkur. Svo var farið með ferju til Warnemiinde og lest þaðan til Beriínar. — Dvöldust þið lengi í Berlín? — Þar vorum við tvo daga 'um kyrrt og okkur .leið prýði- lega, segir Þórður. — Hvað fannst ykkur merki- legast þar? — Nýbyggingarnar við Stal- in-Allee. Þýzka æskulýðssam- bandið, Frjáls þýzk æska, sem íók á móti okkúr, fékk okkur túlk til umráða. Hann sýndi okkur eins mikið og tími vannst íil. — Fóruð þið landleiðis frá Berlín suður til Búlgaríu? — Við fórum með lest gegn- um Þýzkaland, Tékkóslóvakíu, Ungverjaland og Kúmeníu. — Var nokkuð stanzað að ráði á leiðinni? — Ekki get ég kallað það, segir Þórður. Við stönzuðum eitthvað hálfan dag í Prag og aitthvað Búkarest tvo tíma. álíka í vorum Búdanest. í við eitthvað — Hvar dvöldust þið Þórður í Búlgaríu? Guðmundur verður fyrir svörum: —- Við dvöldumst á hvíldarheimili, sem 'ér suður í Rhodopi-fjöllum um 100 km frá grísku landamærunum. — Hvenær var þetta hvíldar- heimili reist? -— Eftir stríðið, en þá lét búlgarska stjórnin reisa fjöl- mörg slík heimili fyrir verka- menn. Við sáum nokkur slík sem voru í nágrenninu. Annars var ekki búið að byggja þetta hvildarheimili að fullu. Til dasmis sáum við stóia byggingu í smiðum sem átti að verða íþróttahús.. Einnig átti að búa til sundlaug þarna. — Ilvað dvöldust margir þai na meðan þið voruð þar, Þórður? — Við vorum um 130 saman og úr flestum hlutum þeims. Þarna veru Kóreubúar, Austur- ríkismenn, Kínverjar og Banda- ríkjamenn auk Norðurlandabú- anna. Alls vorum við af tólf þjóðernum. — Hvernig eydduð þið deg-^. inum? — Flestir fóru á fætur svona um átíaleytið og fengu sér bita. Síðan röltum við um nágrenn- ið og skoðuðum okkur um. Khikkan eitt var etinn hádeg- isverður og hvílt sig á eftir. Seinnihluta dags fórum við í tennis og svo var haldið skák- mót. Á kvöldin var dansað og farið í leiki. — Hvernig var maturinn, Guðmundur? Var hann nú ekki í minna lagi? — Hann var nógur, svarar Guðmundur, oftast þetta þrí- og fjórréttað i hádeginu, og ekki var kvöldverðurinn verr útilátinn. Eg hef hvergi séð önnur eins kynstur af mat, og góður var hann, því að ég þyngdist um 3 kg. í ferðinni. — Ferðuðust þið nokkuð? —- Eg held nú það, svarar Þórður. Við komum á sam- yrkjubú og í niðursuðuverk- smiðju. Það heitir Plodiv þar sem samyrkjubúið er. — Hvernig leizt ykkur á? —• Þetta samyrkjubú var stofnað rétt eftir stríðið. Þá voru 92 fjölskyldur í því en eru nú um 1400. — Hvað ræktuðu þeir helzt þarna og höfðu þeir nokkrar vélar? — í stríðslok var landbúnað- urinn enn á miðaldastigi. Allt r^ktanlegt land var í höndum fámennrar stórjarðeigendaklíku. Ekki þekktist annað en tréplóg- ur. Þannig er víða enn, en stjórnin leggur aljt kapp á að vélvæða landbúnaðinn. Á þessu F-amhald á 11. síðu Hvers vegna ekki stúlkurnar á Kleppi ? Það nýtt hefur borið til tíð- inda í málum starfsstúlkna á spítölum, að á Landspítalanum hefur verið hengt upp plagg frá ráðamönnum Landsspítal- anna. — Samkvæmt þessu plaggi er starfsfólki á Land- spítalanum gefinn kostur á að fá mánaðar fæðiskort, sem gilda fyrir morgunverð, hádeg- isverð og eftirmiðdagskaffi. En fæðiskort þessi verða, eins og segir í plagg'inu „tvenns kon- ar: Annarsvegar kort, sem gilda alla virka daga mánaðarins (vinnudaga), er kosta kr. 290.00 fyrir konur og kr. 345.00 fyrir karla. Hins veg'ar kort sem g'ilda alla daga mánaðarins, er kosta kr. 350.00 fyrir konur og kr. 418.00 fyrir karla“. Þessi kort skulu borgast fyr- irfram og eru tölusettir reitir, sem framvísast þegar borðað er. — Hafi starfsmaður ekki aðstæður til að neyta máltíðar (til dæmis sakir veikinda eða fjarveru) er fyrirframgreiðslan að þessu leyti tapaður pening- ur, því þennan miða eða reit er ekki hægt að nota í næsta mánuði eða nokkurn tíma síðar. Kort þessi eru vissulega ó- dýrari en þeir fæðismiðar, sem við höfum haft til þessa og höfum enn. — En nú spyrjum við starfsstúlkur: Hver er á- stæðan fyrir þessari lækkun? Eru forráðamenn spítalans virkilega að lækka fæðið, sem þeir fyrir tveim árum þóttust þurfa að hækka um 100 krón- ur á mánuði, en stúlkur gátu þá hindrað með samtökum, eins og muna má. — Eða eru þeir enn einu sinni að reyna að fá okkur til að sleppa því frjálsa vali, sem við höfum haft á Landspítalanum um það hvort og að hve miklu leyti við keyptum fæði af vinnu- kaupandanum? Eg héld, að aíltaf sé að koma betur í ljós það sem við stúlk- ur héldum frarn, að það fyrir- komulag um fæðissölu sem gilt hefur á Landspitalanum sé það hagkvæmasta og bezta, sem stúlkur geta fengið og sem ég og fleiri stúlkur vildum fá fram á Kleppi. En það var ekki ann- að en framkvæmd á gildandi kjarasamningi félagsins, þótt hins vegar tækist ekki að ná því fram ú Kleppi vegna mót- stöðu meirihluta félagsstjórnar okkar og ofríkis Alþýðusam- bandsstjórnar. Ekki þó meira um það nú. Eg held að kostir þess að stúlkur hafi frjálst val um það hvort og að hve miklu leyti þær kaupa fæði lijá spítölun- um séu nú orðnir svo augljós- ir, að stúlkur geti verið ein- huga um það að glata ekki þeirri aðstöðu sinni, — eða læt- ur nokkur sér detta í hug að verið væri að lækka fæðisverð- ið á Landspítalanum nú um 15%, ef við værum í skyldu- fæði? Auðvitað er þetta af því að við höfum frjálsa valið og þurfum því ekki að láta okra á okkur. En hvað um stúlkurnar á Kleppi? Fram á þennan dag hafa þær verið að reyna að fá fram þann samningsbundna rétt sinn að þurfa ekki að kaupa aðrar máltíðir en þær, sem falla inn í vinnutíma þeirra, en hafa samt orðið að sætta sig við að fá aðeins frá- drátt á fæði fyrir frídaga. — Yfir þessu hafa stúlkur á Kleppi kvartað og kært, eins og kunnugt er, en ekki fengið leiðréttingu mála sinna. En færi nú ekki vel á því, að úr því verið er að gera stúlkum á Landspitalanum lækkunartilboð á fæði, að farið yrði að halda samninga á stúlkunum á Kleppi og orðið Frar--hald á 11. síðu. Þessa mynd tók Þórður af hvíldarheimilinu þar, sem þeir Guð- mundur dvöidust. Yndisleg ballettmvnd — hattar — Jaínrétti ÞEGAR rússneska ballettpar- ið sýndi hér í haust fengu færri en vildu að sjá það og fjöldi manns sat eftir með sárt ennið. En nú gefst ball- ettunnendum kostur á að sjá yndislega ballettmynd í Nýja bíói, þár sem sýndir eru 'þiætt- ir úr þrem ballettum. Sjálf Galina Ulanova er einn aðal- dansarinn í myndinni og ætti það eitt að nægja til að laða áhorfendur að. Og svo mikið er víst að það er eins og maður sé í öðrum heimi með- an maður horfir á þessa mynd og enginn dans- eða tónlistar- unnandi ætti að láta hana fara framhjá sér. ~fc EN SKELFING eru þau ann- ars óþörf og leiðinleg þessi hlé á níusýningum. Venjulega er sýning myndarinnar stöðv- uð þegar verst gegnir, eitt- Hlé til ills eins karla og kvenna Bíó- hvao sériega spennaudi eða ó- venju fallegt að gerast á inu. Og fólkið rýkur hvað yfir annað og þyrpist fram í gang- ana til að fá sér að reykja, fara á VS-ið til þess að gera eitthvað eða kaupa gott í poka með þeim afleiðingum að mikið bréfaskrjáf upphefst í sýningarsalnum eftir hlé. Og svo tekur það sinn tíma fyrir allt þetta fólk að komast í sætin aftur og oft er stór hluti af sýningargestum að tínast inn eftir að myndin er byrjuð aftur. Ég held að þessi hlé séu yfirleitt mjög óvinsæl, því að flestir vilja heldur að myndin sé sýnd í einu lagi og henni ljúki 10 mínútum fyrr, svo að hægt sér að fá- sér kaffisopa á eftir. Og það er engum vorkunn að sitja í tvo klukkutíma án þess að fá sér reyk. OG ENN eitt er það í sam- bandi við bíósýningar som gert hefur mörgum gramt í geði, en þáð eru hattar kven- fólksins. Það er ótrúlegt hvað ein fjöður á kvenhatti getur látið mikið illt af sér leiða, hún getur orðið til þess að maður þarf að sitja, á ská og skjön og teygja hálsinn fram- hjá fjöðrinni. Oft hefur mig sárlangað að biðja frúna fyrir framan mig að gera svo vel að taka ofan hattinn en allt- af heykzt á því, enda finnst sumum fullorðnum konum sem þær séu ógreiddar er þær eru hattlausar. En þegar þær setja á sig hattana fyrir bíó- ferð, ættu þær að reyna að muna eftir fólkinu á bekknum fyrir aftan. Það hefur borgað sig inn til að horfa á kvik- mynd en ekki hattfjöður eða feykilega slaufu sem bygir útsýnið. Hvernig er með jafn- rétti karla og kvenna í þessu sa.mbandi? Karlarnir halda á hattinum meðan á sýningum stendur, en kvenfólkið trónar með höfuðfatið án þess að blaka auga. Annars ætti að framleiða sérstaka bíóhatta, sem væru flatir og fyrirferð- arlausir og trufluðu ekki út- sýni fyrir neinum á bakvið sig.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.