Þjóðviljinn - 12.10.1954, Page 7

Þjóðviljinn - 12.10.1954, Page 7
Þriðjudagur 12. október 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (7 Þjóðlelkhúsið 1 Silfurtím i eftir Halldór Kilj an Laxness. Leikstjóri: Lárus Pálsson Ævar R. Kvaran og Herdís Þorvaldsdóttir (Peacock og Lóa). Salurinn fyllist prúðbúnum gestum, það er mikil eftir- vænting í lofti. Tjöldum er lyft, og við erum allt í einu stödd í lágu húsi í litlum kaupstað við lygnan fjörð. Þar á Lóa heima, ung og lag- leg' kona, hún á góðan mann og lítinn langþráðan dreng sem hún dáir og ann; hún er söngvin og hagmælt og hefur ort fallegt ljóð um vininn sinn smáa og samið við það ómþýtt lag og raular það öll- um stundum. En undir niðri er hún óánægð með fátækleg kjör sín og þráir fé og frama eins og faðir hennar, hinn misheppnaði stjórnmálamað- ur. Tækifærið ber að dyrum áður en varir, forstjóri Silfur- túnglsins, fjölleikahússins í höfuðstaðnum, gerir við hana samning, hún strýkur til borgarinnar frá barni sínu og manni og tekur að syngja vöggulagið sitt fyrir þjóðina. Hún er auglýst sem „huldu- kona þjóðlífsins“ og af henni gumað með öllum hugsanleg- um ráðum, en finnur von bráðar að hún er ekkert ann- að en ómerkilegur leiksoppur í höndum ósvífins fjárplógs- manns og loddara, hún á ekki sjálfa sig lengur, sál sína eða líkama, heimili eða barn, hún “hefur selt sig, fleygt frá sér því dýrasta og innsta sem hún átti. Móðurlaust barnið veikist og deyr, vögguljóðið er gert að skrílsöng, en sjálf reynist hún ekki hæf til að gegna sínu nýja ætlunarverki; hún er of cspillt þrátt fyrir allt, of mikil utanbæjarkona. Það á að framleigja hana til annarra landa, en forstjórinn erlendi kastar henni loks frá sér dauðadrukkinni eins og slitinni dulu, ekkert virðist bíða hennar annað en gatan og sorpið. Svo miskunnarlaus er þó ekki endir þessa leiks. Lóa hverfur aftur heim með hinum trygglynda bónda sín- um, en við vitum að hamingja hennar er glötuð, liún verður aldrei söm kona aftur. ,,Silfurtúnglið“ er háðleik- ur blandinn harmi, saga ungu konunnar mannleg og algild og gæti alstaðar gerzt og á öllum tírnum, en jafnframt nöpur ádeila, bundin íslandi okkar daga. Takmarkalaus auðhyggja og margvísleg spilling þjóðfélagsins er skáldinu í huga, ekkert er metið nema peningarnir einir, menn sækjast eftir skjót- fengnum gróða, drykkjusvalli og fánýtum skemmtunum, hylla apamenn og slöngur, Tónlist: Jón Nordal drekka sorann úr menningu erlendra stórborga, skríða • fyrir auðugum útlendingum. Og þeir sem græða á trá- girni og heimsku fólksins eru kaldrifjaðir braskarar sem gera allt að verzlunarvöru, jafnvel það „innilegasta og um leið algeingasta og sjálf- sagðasta sem býr í sérhverj- um mennskum manni“ eins og forstjóri Silfurtúnglsins kemst að orði. Háðið og gam- anið er ekki græskulaust, skáldið hefur ógeð á ógeðs- legum hlutum og leynir því ekki, skopið verður æ napr- ara er á leikinn líður. Of mik- il beizkja getur dregið úr á- hrifum háðleika, eins og dæmin sanna, en djúp mann- úð höfundarins og safarik og mergjuð kímni vega á móti. En þetta er afskræmd speg- ilrnynd af íslenzku þjóðlífi, munu sumir segja, og færi betur að þeir hefðu á réttu að standa; að minu viti er hér fátt ýkt og engu logið, heldur sumt látið kyrrt liggja. Skáldið bendir á ó- hugnanleg fyrirbrigði í lífi okkar tíma og varar við hætt- unni, á rödd þess er öllum hollt að hlýða. Halldór Kiljan Laxness hef- ur lítt fengizt við leikrænan skáldskap um dagana, og þarf engan að undra þó að „Silf- urtúnglið“ sé ekki listrænt stórvirki á borð við frægustu skáldsögur hans; það ber engu að síður ýms beztu merki höf- undar síns. Það er vel samið verk og hlýtur að vekja athygli hvar sem það fer, Laxness er ekki lengur neinn viðvaningur um leikritun. Þræðirnir eru ofnir saman af íþrótt og list, orð og athafnir sem birtast snemma í leiknum öðlast nýja og dýpri merk- ingu áður en lýkur, og næg- ir að benda á hatt eigin- mannsins sem virðist næsta hégómlegt fyrirbrigði í fyrstu. Að byggingu leiksins má það helzt finna að atrið- ið úti fyrir húsdyrum Lóu er of stutt og tilbreytingarlítið og raunar óþarft, það sem þar er sagt og gert hefði hæglega mátt birta á öðrum stöðum, með öðru móti. Mál- ið er mergjað en alþýðlegt og fer vel í munni leikar- anna, mörg samtölin gerð af þeirri snilli sem stórskáldi einu er lagin. Persónurnar eru skýrar og einfaldar í sniðum eins og háðleiknum sæmir, sjálfum sér samkvæmar frá byrjun til loka og umfram allt sannar, mótaðar af ó- sviknu raunsæi. Óska mætti að lýsing söguhetjunnar, hinnar ólánsömu konu, væri dýpri og fyllri, en forkunn- legur er forstjóri Silfur- túnglsins Feilan Ó Feilan, hinn óborganlegi fulltrúi fé- græðgi og ósvífins gróða- bralls, og mun ekki ofmælt að vandleitað sé að jafn- snjallri hliðstæðu í leikrænum bókmenntum. Sýningin er glæsileg um flest og stór í sniðum og vandlega unnin undir stjórn Lárusar Pálssonar, en sam- vinna hans og Laxness hefur áður borið mikinn og góðan ávöxt, sem öllum mun í fersku minni. Um réttan skilning leikstjórans á verk- inu þarf ekki að efast, enda mun höfundurinn jafnan hafa verið með í ráðum, um hugkvæmni hans og ráðsnilli geta þeir sannfærzt sem bera saman leikritið og sýninguna. Hins er ekki að dyljast að leikendunum tekst ekki alltaf að leysa skop verksins úr læð- ingi, gefa orðum og athöfn- um nógan lit og líf; þessa gætir öðru fremur í þriðja þætti sem er mun svipdauf- ari á sviðinu en efni standa til, og raunar víðar. Hið á- hrifamikla lokaatriði er ágæt- lega leikið og gríuir hugann föstum tökum, listrænt afrek sem lengi verður í minnum haft. Lóa er vandasamast Jilut- verk í leiknum. Húri er þol- andi en ekki gerandi, færist úr einum ham í ar.nan og hrekst ósjálfbjarga að feigð- arósi; það er í raun og veru hverri leikkonu ofraun að gera hana að þungamiðju leiksins. Herdísi Þorvaldsdótt- ur tekst að vonum ekki að bregða nógu stórum svip yfir örlög hennar, en hún vandar verk sitt til fullrar hlítar, og leikur víða ágæta vel; hún er indæl og ástúð- leg þar sem hún situr við vöggu barnsins, lýsir skýrt sálarstríði Lóu þegar hún ákveður að strjúka að heim- an og svo mætti lengi telja. Og í lokin leikur Herdís af meiri djörfung og þrótti en áður, að því ég fæ munað, sú túlkun eykur enn hróður hinnar traustu, vinsælu leik- konu. Feilan Ó. Feilan er stór- brotið og orðmargt hlutverk og þakklátt miklum og marg- reyndum leikurum, en öðrum næsta torvelt viðfangs. Um leik Rúriks Haraldssonar er ýmislegt gott að segja, gerf- ið er ágætt og maðurinn hæfi- lega ógeðfeldur, hreyfingarn- ar snöggar og skemmtilegar, framkoman hressileg og sum orðsvör hans fyndin. En leik- arinn er ekki nógu málsnjali og raddgóður til þess' að lmyttilegar orðræður hins málgefna forstjóra njóti sín til hlítar, þar fara margar snjallar setningar forgörðum. Orðin koma allt of sjaldan innan frá og eru oftlega töi- uð í belg og biðu; afleiðing- in er sú að áhugi leikgesta fyrir þessum ógleymanlega loddara dvínar um of er á leikinn líður. Valur Gíslason er bráð- skemmtilegur í gerfi Lauga gamla föður Lóu, eftirminni- legur karl, ljóslifandi og glettinn, það er hann sem túlkar kímni skáldsins bezt allra leikenda. Róbert Arn- finnsson leikur eiginmann Lóu, hinn drenglynda og geðfelda miðlungsriiann. Róbert er trúr og traustur sem svo oft áður og göð til- þrif í leik hans einkum er á líður, reiði hans réttlát og sár og harmur hans látlaus og sannur. Þá kemur Róri nokkuð við sögu, drykkjuræf- ill, glæpamaður og óhenpið gáfnaljós; útlit svipbrigði og framkoma Gests Pálssonar eru ýkjulaus og sönn og við sjáum og skiljum ao þetta úr- hrak hefur einhvern tíma verið laglegur maður og eftir- læti kvenna. Þau mr. Peacock og við- hald hans söngkonan ísa eru fulltrúar hins stóra heims, London, París, New York. JEvar Kvaran nýtur sín á- gætlega í gerfi' hins tungu- mjúka og kvenholla „vei'ald- artónstjóra“ og er leikur hans verulega hnitmiðaður í lokin — fágaður og öruggur heimsmaður, útfarinn og Framhald á 8. siðu. Rúrik Haraldsson (Feilan Ó. Feilan) og Ævar R. Kvaran (Mr_ Peacock). Jón Aðils (dyravörður) og Róbert Arnfinnsson (Óli).

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.