Þjóðviljinn - 28.10.1954, Page 3

Þjóðviljinn - 28.10.1954, Page 3
2) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 28. október 1954 Kiihn-Nielseh Eftir skildsöfu Charles de Costers + Teikningar eftir ,,En frelsi voru og jafnrétti eiga þeir ekkert með að halda fyrir oss“. Frumvarp þetta er í raun og veru ekki hænufet til framfara, tiema menn hugsi sér hænur, sem þykjast feta áfram, en váppa reyndar í kring á sama sorphaugnum og tína korn þau, er húsbóndi þeirra stráir á hauginn við og við. Það get- ur vel verið að einstök hæna finni góð korn, því skal ég ekki neita . . . Aðalatriðið er það, að hér er gerð réttar- krafa, og hún er sannarlega á góðum rökum byggð. Það er alkunnugt, svo ég taki aðeins stólsgóssin til dæmis, að þau voru dregin inn í ríkissjóðinn með því beru skilyrði af kon- ungs hendi, sem og var sam- kvæmt hlutarins eðli, að ríkis- sjóðurinn bæri þann kostnað þaðan í frá, er á góssunum hvíldi . . . svo sem skólakostn- aður, laun biskupa o. s. frv. . . Og yfir þessa reikninga býður stjórnin oss nú að slá striki. Þessu vil ég ekki játa, mér sýnist miklu réttara að fá samda lireina reikninga, gjaldi Ðanir oss það, sem þeir. eru oss skyldugir, hvort það verður meira eða minna, en frelsi voru og jafnrétti eiga þeir ekkert með að halda fyrir oss. Þetta verða menn að Ieiða stjórninni fyrir sjónir, og ég Ieyfi mér að skora á þá háttvirtu menn, sem liafa mest áhrif á skoðanir sjórnarinnar og hún virðir mest, að láta ekki sinn lilut eftir liggja í þessu efni. Hefðu hinir helztu embættismenn landsins tekið þetta skýrt og skörulega fram aftur og aftur og einarðlega lýst þörfum vor- uni og rétti, þá væri ástandið í Iandi vroru betra en það er, því atkvæði og yfirlýsingar frá stórmennum landsins hlýtur að hafa meiri þýðingu og meiri áhrif en það, sem kemur frá oss smámennunum. En ekki þar fyrir! — ég er ekki hrædd- ur um hvernig sem fer, að vér náum ekki frelsi og jafnrétti fyrir land vorU, þegar fram líða stundir, því þar mun sann- ast um það, sem einn góður kennimaður sagði nýlega um guðsorð: Frelsi íslands verður eigi f jötrað. (Úr þingræðu Jóns Sig- urðssonar forseta 1819). '4 • ÚTBREIÐIÐ • ÞJÓÐVILJANN Að pessu sinni er hann alvarlega ástfanginn Bókmenntagetraun 1 gær birtum við alkunna vísu eftir Jón Þorláksson á Bægis- á. Hér kemur enn eldri kveð- skapur. Var þar á höndum hrokkið skinn, kroppnir knúar . . . •" fingr digrir, fúllegt andlit, lútr hryggr, langir hælar. Hann nam að vaxa og vel dafna. Nam hann meir að það megins of kosta, bast að binda, byrðar gera, bar hann heim að það hrís gerstan dag. - v18.00 Dönsku- IVv kennsla; I. fl. '/ — 18-25 Veðurfr. 18.30 Enskuk. II. fl. 18.55 Fram- burðarkennsla í dönsku og esperanto. 19.15 Þingfréttir. — Tónleikar. 19.30 Lesin dagskrá næstu viku. 20.30 Kvöldvaka: a) Sig. Benediktsson les úr minningabók Þorsteins Kjarval: Örlaganornin að mér réð. b) Júlíana Sveinsdóttir listmálari talar nokkur orð um vefnað. c) íslenzkir karlakórar syngja pl. d) Ælvar Kvaran leikari flytur efni úr ýmsum áttum. 22.10 Daglegt mál (Árni Böð- varsson, cand. mag.). 22.15 Upplestur: Sambýlisfólk, sögu- kafli eftir Þórunni Elfu Magn- úsdóttur (Höfundur les). 22.40 Sinfónískir tónleikar. pl.: Sin- fónía í e-moll op. 27 eftir Rach- maninoff (Sinfó'níuhljómsveitin í Minneapolis leikur; Ormandy stjórnar). 23.30 Dagskrárlok. Q í dag er fimmtudagurinn 28. október. — Tveggja postula messa. 301. dagur ársins. Tungl í hásuðri kl. 13:28. Árdegishá- flæði kl. 6:03. Síðdegisháflæði klukkan 18:18. LYFJAB0 ÐIR IPÓTEK AUST-Kvöldvarzla til URBÆJAR kl. 8 alla daga • tiema laugar- HOLTSAPÓTEKdaga til kl. 6. Kvöld- og næturvörður er í læknavarðstofunni í Aust- urbæjarskólanum frá kl. 18-8 í fyrramálið. Sími 5030. Næturvarzla er í Laugavegsapóteki. Sími 1618. Tímaritið Úrval. Komið er út nýtt hefti af Úrvali, sem flytur að vanda fjölda fróðlegra og skemmtilegra greina. Þessar eru helztar: Kristin friðarstefna, Nýtt lyf við of háum blóðþrýstingi, Ann- að líf um sextugt, Huldusjóðir hafsins, Framtíðarmaðurinn í ljós mannfræðinnar, Píkassó í þrem speglum (þrjár greinar um Píkassó sín frá hverju landi), Pottflugið yfir frum- skógum Brasilíu, Shfnið í Sarajevo, Úr sögu tómatanna, Er skírlífi úrelt dyggð? Ýmis fróðleikur í stuttu máli, Bæti- efni í benzínið ? Af hverju þreytumst við? Kýpur, Fórnar- lamb vetnissprengjunnar, Er ofdrykkja sjúkdómur? Þriggja tíma barátta við dauðann, Hugleiðingar um ketti, Mat- vælaeitrun af völdum bakter- ía, Holskurður í djúpi hafsins, og loks bókin Hermaðurinn, sem vildi ekki skjóta, eftir William Bradford Huie. — Samvinnan, septemberheftið 1954, er nýkomið út. Efni: Sameinuðu þjóðirnar styðja samvinnu, Vel.komið heim Helgafell, Tungan og þjóðernið, eftir Jón Sigurðsson Ystafelli, Fulltrúar 117 millj. samvinnu- manna á þingi í París, Hinn dularfulli boðskapur (smá- saga), Kaupfélagskonur leggja land undir fót, eftir Ragnar Ásgeirsson, Maðurinn sem ráð- ið hefur útliti 31000 000 bif- ijeiða, Bein Páls biskups í steinkistunni, Rækjuuppskriftir, Betri búnaðarhættir, betri verzlun, betra líf, Hefndin söguþáttur eftír Jón Björnsson, Gulleyjan, myndasaga. Millilandaf lug: Edda, millilanda- í dag frá Ham- borg, Gautaborg og Osló. Flug- vélin fer klukkan 21 til N.Y. Gullfaxi, fer til Kaupmanna- hafnar á laugardagsmorgun. — Innanlandsf Iug: I dag er ráðgert að fljúga til Akureyrar, Egilsstaða, Fá- skrúðsfjarðar, Kópaskers, Nes- kaupstaðar og Vestmanpaeyja. — Á morgun eru áætlaðar flugferðir til Akureyrar, Fag- urhólsmýrar, Hólmavikur, Hornafjarðar, ísafj., Kirkju- bæjarklausturs og Vestmanna- eyja. Eimskip: Brúarfoss fór frá Húsavík 26. þm til Seyðisfjarðar, Norð- fjarðar, Eskifjarðar og Fá- skrúðsfjarðar. Dettifoss fór frá New York 26. þm til Reykja- víkur. Fjallfoss fór frá Berg- en 26. þm til Rotterdam og Hamborgar. Goðafoss fór frá Vestmannaeyjum 24. þm til Rotterdam, Leníngrad, Kotka og Helsingfors. Gullfoss fer frá Kaupmannahöfn 36. þm, 'til Leith og Reykjavíkur. Lagar- foss fór frá Gdynia í fyrrinótt til Gautaborgar, Sarpsborgar og Reykjavíkur. Reykjafoss er Reykjavík. Selfoss fór frá Sauðárkróki 26. þm til Dal- víkur, Ólafsfjarðar, Siglu- fjarðar, Raufarhafnar og það- an til Aberdeen og Gautaborg- ar. Tröllafoss er á Akureyri; fer þaðan til Norðfjarðar, Fá- skrúðsfjarðar og Belfast. — Tungufoss er í New York. 60 ára er í dag Ingibjörg Ingvars- dóttir frá Voslæk í Fljóts- hlíð, nú til heimilis á Kárs- nesbraut 4 í Kópavogshreppi. Krossgáta nr. 499. Ríkisskip: Hekla var á Akureyri síðdegis í gær á vestur leið. Esja var á Isafirði í gærkvöld á norðurleið. Herðubreið er á Austf j. á norð- urleið. Skjaldbreið er á Breiða- firði. Þyrill er í Rvík. Skaftfell- ingur fer frá Rvík til Vestm- eyja á morgun. Skipadeild SÍS: Hvassafell er á Flateyri. Arnar- fell fer frá Napoli í dag til Cagliari. Jökulfell fer í dag frá Oskarshöfn áleiðis til Rostock. Dísarfell fer frá Hamborg í dag til Rostock. Litlafell er á Faxaflóahöfnum. Helgafell er í N.Y. Sine Boye er á leið til Borðeyrar. Kathe Wiards lest- ar í Stettin. Iðja, félag verksmiðjufólks. heldur félagsfund í kvöld kl. 8.30 að Þórscafé, (gengið inn frá Hlemmtorgi). Á dagskrá er uppsögn samninganna. Lárétt: 1 rófa 4 gras 5 tilvís- unarfornafn 7 draup 9 skip- stjóri 10 handlegg 11 "vegg 13 leikur 15 skst. 16 huldumaður. Lóðrétt: 1 leit 2 ýta 3 drykk- ur 4 kasta 6 runa 7 á trjám 8 bali 12 varg 14 líkamspart- ur 15 klukka. Lausn á nr. 498. Lárétt: 1 kelluna 7 uv 8 ólar 9 lak 11 LGN 12 ók 14 aó 15 urri 17 ar 18 ólu 20 krummar. Lóðrétt: 1 kula 2 Eva 3 ló 4 ull 5 naga 6 Arnór 10 kór 13 króm 15 urr 16 ilm 17 ak 19 ua.' Freygáturnar 22 sigla hjá. En á skipum sæfaranna eru bumbur barðar, og flautur blásn- ar. Lummi hrópar: — Gerum áhlaup í prins ins nafni. Og á öllum skipunum hrópa skip- stjórnarmennirnir: — Gerum áh'aup í nafni srtóraðmirálsins. — Gerum áhiaup! Sæfarinn lifi! kveður við frá hermönnum og hásetum um allán flotann. Foringjaskip Þrílangs, þar sem Lambi og Ugluspegil! eru um borð, heitir Bryla. Skipin Jóhanna, Svanur og Sæfari fylgja þvi fast eftir og ekki líður á lön'gu unz þau hafa tekið herskildi fjórar freygátur. Öllu þvi, sem spánskt er fleygja þeir í sjóinn, en Niðuriend- inga taka þeir til fanga. Þeir tæma skipin al;erlega og láta þau siðan reka stjórnlaus fyrir sjó og vindi. Fimmtudagur 28. október 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (3[ Aukin vi&ger8aþjónusta FÍB F. í. B. hefur hafið' nýja þjónustu fyrir alla félagsmenn sína hvar sem þeir eru á landinu, en í sumar hélt fé- lagið uppi viögerðarþj ónustu fyrir félagsmenn sína hér i nágrenninu. í fyrrasumar hóf Félag ís- lenzkra bifreiðaeigenda að veita :félagsmönnum aðstoð ef bílar þeirra biluðu. Hafði félagið við- gerðarbíla á þjóðvegunum hér í grennd um verzlunarmannahelg- ina. S. 1. sumar var þessari 'Starfsemi haldið uppi um hverja helgi, bæði á Mosfellsheiðar- og Hellisheiðarvegunum og voru "tæplega 200 félagsmenn aðstoð- aðir á s. 1. sumri. Viðgerðarbílar Mislingar breið- ast enn út Mislingar lialda enn áfram að breiðast út, samkvæmt upp- lýsingum um farsóttir frá skrifstofu borgarlæknis. I vik- unni 10.-16. þ.m. voru mislinga- tilfelli 185 hér í bænum í stað 147 vikuna áður. Kvefsótt og kverkabólga stóðu í stað en kikhósti minnkar, var: aðeins eitt tilfelli umrædda viku í stað 7 næstu viku á^ undan. Einn maður veiktist af tauga- veikibróður, en Þjóðviljinn fékk þær upplýsingar hjá borgar- lækni í fyrrakvöld að sá mað- ur hefði veikzt erlendis en ekki vitað hvað að honum var fyrr en heim kom, og hafi verið gerðar sóttvarnarráðstafanir til 'þess að veikin breiddist ekki út. F.I.B. veittu einnig fleirum að- stoð, — ef þeir gengu í félagið, en félagsmenn geta bíleigendur gerzt á vegum úti hjá viðgerðar- mönnunum. í félaginu eru nú um 1000 bíleigendur, auk félags- deilda í Hafnarfirði og á Akur- eyri. Viðgerðaþjónusta félagsins hef- ur verið þeim félagsmönnum að kostnaðarlausu sem bilað hefur hjá, og, er þó árgjald félags- manna aðeins 50 krónur. Um síðustu helgi var aðstoðar- svæðið stækkað þannig að hvar sem er á landinu greiðir félagið fyrir kranabíl til að flytja bilaða bíla félagsmanna til næsta verkstæðis, — að því tilskyldu þó að sú vegalengd sé ekki yfir 50 km. Þurfa félagsmenn þó að leggja út kostnaðinn sjálfir, en fá hann endurgreiddan gegn reikningi. Verður þetta vafa- laust til að auka tölu félags- manna. Ökuþór, tímarit félagsmanna kemur út á næstunni og verður bar rækilega skýrt frá þýzkum bílum, en ætlunin er að halda áfram kynningu bíla frá ýmsu— löndum. Æ. F. 11. Skrifstofan er opin alla virka daga frá kl. 6—7 nema laugar- daea kl. 3—5. Monris */« tonn sendilesSaLiíireiS Hi. Egl Viihjálmsson Laugaveg 118 — Reykjavík — Sími 81812 ALLT Á SAMA STAÐ Einkaumboð fyrir: Moíris Y2 tonn sendiferðabifreið Ísvestía hirtir grein um íslandsmál: Hvaðan er íslandi ógnað? Ísvestía, aðalmálgagn sovétstjórnarinnar flytur 17. þ. m. þrídálka grein eftir S. Kondrasoff, er nefnist „Hvaðan er íslandi ógnað?“ Greinarhöfundur mótmælir sem fjarstæðu þeirri kenningu að íslendingar þurfi að hafa erlendan her í iandi sem „vörn“ gegn „ógnun frá Sovétríkjunum“ og leggur áherzlu á aö samskipti Sovétríkjanna og íslands hafi alla tíð byggzt á gagnkvæmri virðingu fyrir sjálf- stæði, fullveldi og óhlutsemi um innanlandsmál ríkjanna. Er fyrst skýrt frá ávarpinu um undirskriftasöfnun gegn hernáminu, og rifjuð upp gerð hernámssamningsins 1951. Bandaríkin líti á Island sem eitt hinna „strategísku“ her- virkja sinna við Atlanzhaf, og af fregnum íslenzkra blaða verði ljóst að Bandaríkjamenn séu stöðugt að færa út kví- arnar. Greinarhöfundur minnist á efnahagslegar afleiðingar her- námsins og vaxand.i andstöðu landsmánna gegn því, og vitn- ar í blöðin „Alþýðumanninn", „Frjálsa þjóð“ og „Alþýðu- blaðið“ máli sínu til stuðnings. Gegn þessari vaxandi and- stöðu hafi bandarísk stjórnar- völd og þau öfl á íslandi, sem halli sér að Bandaríkjunum gripið til herbragðs í blekking- arskyni, svo sem „endurskoð- unar“ ýmissa atriða hernáms- samningsins, en lítinn árangur hafi sú endurskoðun borið. Afturhaldsblöðin á Islandi hafi einnig svarað vaxandi and- úð á hernáminu með áróðurs- herferð þar sem reynt sé að réttlæta hersetu Bandaríkj- anna með því, að íslandi sé „ógnað“ af Sovétríkjunum. Nefnir höfundur til Morgun- blaðið og Vísi er reki þennan áróður. Einmitt þessi áróður gefi til- efni til hugleiðinga um þá raun- verulegu ógnun við sjálfstæði íslands sem felst í skiptum þess við Bandaríkin. Augljóst sé að íslenzku þjóðinni sé mik- Framhald af 1. síðu. þyí í desember 1952, að mjólk skuli seld á sama verði í Eyj- um og annarsstaðar. Fyrir desember-verkfallið var mjólk í Eyjum seld á ýmsu verði allt upp í 4 kr. líterinn, en fyrir baráttu verkalýðsfé- laganna náðist loforð fyrir samræmingu á mjólkurverðinu, sem einnig skyldi taka til V estmannaey ja. Þetta loforð hefur ríkis- stjórnin svikið og beitt ýmsum undanbrögðum til að afsaka svik sín. Verkalýðsfélagið hef- ur sífellt leitast við að ná fram réttu verði Vestmanneyingum til handa og orðið það ágengt, oð mjólkurverð lækkaði fyrst í 3 kr. og síðar í kr. 2,85 en þar við situr. Við síðustu samningsgerð félagsins skuldbundu atvinnu- rekendur og Vestmannaeyja- bær sig til að vinna með Verka- lýðsfélaginu að því að ná fram réttu mjólkurverði. Þessa skuldbindingu hefur bæjarstjórnarmeirihlutinn í Eyjum nú svikið að sínu leyti og hefur Verkalýðsfélagið nú ilvægt að vita hið sanna í þessu máli, og sú spurning hljóti að vakna hverra hags- munum þeir hópar þjóni, sem reyni að ástæðulausu að drótta því að Sovétríkjunum að þau ógni Islandi. Það eitt sé víst, að þeir séu ekki með því að vinna gagn þjóðarhagsmunum Islendinga. íslendingum sé það kunnugt, að öll samskipti Islands og Sovétríkjanna hafa mótazt af friðarstefnu og vináttu milli þjóða. Samskintin hafi byggzt á gagnkvæmri virðingu fyrir sjálfstæði ríkjanna og gagn- kvæmri óhlutsemi um sérmál þeirra. Islendingum mun held- ur ekki ókunnugt um að Sovét- ríkin hafa unnið að því að draga úr þenslunni í alþjóða- málum. Því mun reynast örð- ugt að telja íslenzku þjóðinni trú um að hún þtirfi að hafa erlendan her í landi sínu til „varnar“ gegn „ógnun“ af hálfu Sovétríkjanna. Islendingum er það einnig kunnugt, að skilyrði eru til hagstæðra viðskipta við Sovét- ríkin. Talsmenn ísl. stjórnar- valda hafa ekki farið dult með það hverja þýðingu viðskipta- samningarnir við Sovétríkin frá 1953 hafa haft fyrir sölu fisk- afurða frá íslandi, en þær eru um 90% alls útflutningsins. í staðinn hafa Islendingar feng- ið olíu og benzín, dýrmætar vörur íslenzkum sjávarútveg og samgöngum. Vitnar grein- arhöfundur til' ummæla Kristins enn upp baráttu til að ná fram fullri efnd á þessu nærri tveggja ára loforði ríkisstjórn- arinnar. Það er Mjólkursamsalan, sem rekur aðal mjólkursöluna í Eyjum og ákveður mjólkur- verð það sem um er deilt, vafa- laust í samráði við Fram- leiðsluráð landbúnaðarins og ríkisstjómina. Veður var ágætt og börnin í góðu skapi, enda tók fólk þeim vel. \ BR. þakkar öllum, sem lögðu málefni þess lið með vinnu og fjárframlög. Nokkrir bóka- útgefendur gáfu félaginu góðar bækur, svo að duglegustu börn- in fá bókaverðlaun. BR. þakkar sérstaklega for- Guðmundssonar utanríkisráð- herra og Davíðs Ólafssonar fiskimálastjóra um það mál. Loks víkur KondrasOff að þeim menningartengslum sem sem komizt hafa á milli ís- lands og Sovétríkjanna, með þeim hafi fjölmargir íslending- ar kynnzt þeim vinarhug og samúð sem íslenzka þjóðin njóti meðal þjóða Sovétríkj- anna. Þessar staðreyndir vegi þungt á móti áróðursherferðinni um „ógnun frá Sovétríkjunum“. Enda muni Islendingum yfir- leitt skiljast hver er tilgangur þeirrar áróðursherferðar. Skiln- ingurinn á því, hvaðan Islandi er ógnað, dýpkar óðum meðal Islendinga og þeim fer fjölg- andi sem skipa sér í raðir hreyfingarinnar gegn hernáms- samningunum og hersetu Bandaríkjaliðs í landinu, segir Kondrasoff að lokum. 100. sýning áTopaz Þjóðleikhúsið hefur nú sýnt hinn vinsæla franska gamanleik Topaz í 99 skipti eða oftar en nokkurt annað leikrit. 99. sýning- in var í gærkvöldi, 100. sýningin og sú síðasta verður í næstu viku. Auk sýninganna hér í Þjóðleik- húsinu hefur Tópaz verið sýndur á 27 stöðum víðsvegar úti um, land. Þýzkt tímarits- hefti helgað Islandi Þjóðviljanum hefur borizt septemberhefti vesturþýzka tíma- ritsins Westdeutsche Wirtschaft og er heftið að þessu sinni helg- að íslandi. Birtir það allmargar greinar, ljósmyndir og auglýsing- ar frá íslandi, en ritstjóri tíma- ritsins dvaldist hér á landi um mánaðarskeið í sumar til að undirbúa þetta hefti. Af efni þess má nefna: Kristinn Guðmunds- son utanríkisráðherra skrifar ávarpsorð, Jóhannes Nordal um peningamál, Þórhallur Ásgeirssort um viðskiptamál, Þorleifur Þórð- arson um ísland sem ferðfe- mannaland, Davíð Ólafsson um fiskveiðar og fisksölu, Páll Zóp- hóníasson um landbúnað og Páll S. Pálsson um íslenzkan iðnað. Heftið er 36 síður, gefið út í 4 Múnchen. stjóra Tripolibíós, hr. Emi Clau- sen, fyrir þá drengilegu rausn að bjóða félaginu sérstakar sýn- ingar ókeypis handa sölubörnun- um. Mikil var gleðin hjá barna- hópnum, sem safnaðist samarí hjá Trípolibíó ó sunnudaginn. Næsta sýning fyrir sölubornini er sunnudaginn kemur, 31. oktí kl. 13,30 (blár aðgöngumiði). Vestmannaeyjafélög segja upp Tekjur barnaverndardagsins 49 þús. Fjársöfnun Bamaverndarfélags Reykjavíkur 1. vetrar- dag gekk mjög vel. Bók félagsins, Sóhvörf 1954, seldist upp og merki félagsins seldust betur en nokkru sinni fyrr. Alls söfnuöust 40 þúsund krónur, og er þaö allmiklu hærra en áður hefur safnazt.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.