Þjóðviljinn - 04.11.1954, Side 5

Þjóðviljinn - 04.11.1954, Side 5
Fimmtudagur 4. nóvember 1954 — ÞJÖÐVILJINN — (51 Þefar laxfim sig áfram? Tveir bandarískir iiskifræðing- ar hafa gert athugun á því, að hve miklu leyti það er lyktar- skynjun laxanna að þakka, að þeir rata aftur heim í þær ár, sem þeir eru runnir upp. At- huganirnar fóru fram í fljótinu Issaquah og einni þverá þess, skammt frá Seattle,, á xestur ströndinni. Laxarnir voru merkt ir, þegar þeir voru á ieið til hafs, þannig að sjá mátti hvort þeir voru úr Issaquah eða þver- ánni. Þegar þeir komu aftur voru þeir veiddir í gildru áður en þeir voru komnir að þveránni og lyktarfæri þeirra gerð óvirk. Það kom í Ijós, að þeir laxar, sem þannig var farið með, áttu erfiðara með að rata en hinir. Bardcifiar héð- • B ir i Fregnir frá Alsír herma að franskt herlið eigi í stöðugum skærum við vopnaðar sveitir landsmanna í óbyggðum nærri landamærum Túnis. Segja kunn- ugir, að búast megi við að Frökk- um reynist torsótt að sigra sveit- ir þessar þrátt fyrir liðsmun og yfirburði í vopnabúnaði. Eni verkfall í London Enn lögðu 5000 hafnarverka- menn í London niður vinnu í gær, til að mótmæla því að 57 starfsbræðrum þeirra, sem geng- izt höfðu fyrir að verkamenn neituðu að vinna með ófélags- bundnum vörubílstjórum, var synjað um vinnu. Ákveðið var á fundi í gær að vinna skyldi haf- in á morgun eftir að loforð um engar refsiaðgerðir vegna verk- fallanna höfðu verið ítrekuð. Fyrsla stjórnarskrá Kína þjáffkjörið ping Kína, sem kosið var í almennum kosning- um s.l. sumar, hefur komið saman og samþykkt fyrstu lýðræðisstjórnarskrá þessa víðlenda ríkis. Áður hafði stjórnarskráruppkastið verið til um- rœðu á almannafundum um allt land í heilt ár og voru gerðar ýmsar breytingar á uppkastinu eftir tillögum, sem fram komu í þessum viðrœð- um. Myndin er tekin, þegar Líú Sjaósji, framsögu- maður stjórnarskrárnefndar, íagði stjórnar- skrána fyrir þingið. Skortur á kvenfólki á Nýjci Sjálcmdi Taimn imdirrót siðferðisspillingar Mikill skortur er á ungu kvenfólki á Nýja Sjálandi og er þaö talin ein orsök þeirrar siöspillingar, sem gert hef- ur vart við sig meðal æskufólks þar í landi. Stjórn Nýja Sjálands sá sig tilneydda fyrir nokkrum vikum að setja á laggirnpr nefnd til að rannsaka orsakir þessarar spillingar, sem hefur verið meira rædd en nokkurt annað mál þar í landi að undanförnu. Nefndin hefur m. a. komizt að þeirri nið- urstöðu, að fjölga þurfi stórum ungu kvenfólki í landinu, ef von- ir eigi að vera til að hægt verði að fyrirbyggja orsakir þessar- ar spillingar í framtíðinni. Formaður nefndarinnar, O. Mazengarb, sagði í ræðu nýlega, að flytja þyrfti inn 30.000— 40.000 ungar stúlkur innan þrí- tugsaldurs til landsins til að skapa jafnvægi milli kynjanna, og hann hélt því fram að laus- læti ungra stúlkna í landinu staf- aði af því, að þær voru svo miklu færri heldur en karlar á sama reki. Mazengarb sagði, að stjórn landsins ætti að skora á stúlkur í Bretlandi og öðrum löndum Norðvestur-Evrópu að koma til Nýja Sjálands. Framhald af 1. síðu. héldu öidungadeildarsætum sín- um þrátt fyrir harða hríð repu- blikana, sem sökuðu þá um að aðhyllast óamerískar skoðanir og jafnvel sósíalisma. Meðmæli Eisenhowers lítils \irði Það vakti sérstaka athygli, að tveir fulltrúadeildarmenn republikana, sem Eisenhower forseti hafði sérstaklega skor- að á kjósendur að senda aftur á þing, féllu báðir. Annar var í framboði í kjördæmi því í Pennsylvania, þar sem Eisen- hower á búgarð og telur sig heimilisfastan. James Roosevelt, elsti sonur forsetans sáluga, var kosinn í fulltrúadeildarkjördæmi í Kali- forníu. Miðstjórn demókrata- flokksins neitaði að styðja fram boð hans, vegna þess að hann Ienti nýlega í hjónaskilnaðar- máli, þar sem eiginkonan lagði fram undirritaða yfirlýsingu frá honum um að hann hefði haldið framhjá henni með tólf nafngreindum konum. 93 sjálfkjörnir Af 530 þingmönnum á Banda- ríkjaþingi þurftu 93 ekki að heyja neina kosningabaráttu, Islenzkir tónar GLÆSILEGASTA miðfiætnr- skemmturi ÍKSINS verður endurtekin í Áusturbæjarbíói í kvöld klukkan 11.15 15 þekktustu skemmtikraftar okkar koma þar fram.. Kynnt 30 dægurlög — Ballett — Skopþættir — Gamanvísur Síðasta smn / íisss wsw Drangey, Aðgöngumiðar seldir í i/ramft3V4 Laugaveg 58 og í Austurbœjarbíói eftir kl. 6, ef eitthvað verður óselt. vegna þess að þeir voru einir í framboði í kjördæmum sínum. Voru þetta 78 fulltrúadeildar- menn og fjórir öldungadeildar- menn demókrata í suðurfylkj- unum og 11 fulltrúadeildar- menn republikana í Nýja Eng- landi og miðvesturfylkjunum. Eisenhower forseti sagði blaðamönnum í gær, að hana liti ekki á kosningaúrslitin sem vantraustsyfirlýsingu á stjóra sína. Hann myndi fylgja sömu stefnu hér eftir og hingað til. Hann vildi nú gera sem minnst úr þeim ummælum sínum í kosningabaráttunni, að af sigri demókrata í þingkosningunum myndi leiða kalt stríð milli þings og ríkisstjómar næsta kjörtímabil. Kína samþyklár bóiáriu Breia Kínastjórn hefur skýrt brezku stjórninni frá að hún muni greiða að fullu kröfu Breta um 360.000 punda skaðabætur fyrir missi flugvélar og manntjón,- þegar kínverskar orustuflugvélar skutu brezka farþegavél niður af misgripum við strönd Suður- Kína í sumar. Brezka stjórnin hefur falið sendifulltrúa sínum í Peking að skýra kínversku stjórninni frá þakklæti þeirrar brezku fyrir hve vel Kínverjum hefur farizt í þessu máli. Vill naða v©si Neuraíli Púskin, stjórnarfulltrúi Sovét- ríkjanna í Þýzkalandi, hefur lagfi til við stjórnafulltrúa Vestur- veldanna að von Neurath, fyrr- verandi forsætisráðherra í þýzkia nazistastjórninni, verði sleppt úr fangelsi vegna heilsubrests. vons Neurath er 81 árs gamall og hef- ur afplánað níu af 15 ára stríðs- glæpadómi, sem hann hlaut vi<5 réttarhöld Bandamanna í Núrn- berg. Kosningasvindl Framhald af 1. síðu inn hefur lýst yfir að hann muni standa með demókrötum, svo að þeir ná meirihluta í deildinni ef þeir vinna í New Jersey. Ef það sæti fellur hinsvegar republik- önum í skaut standa 48 deildar- menn gegn 48 og forseti deildar- innar, Nixon varaforseti Banda-. ríkjanna, fær að greiða úrslita- atkvæði sitt republikönum í viL

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.