Þjóðviljinn - 04.11.1954, Blaðsíða 8
8) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 4. nóvember 1954
Kyn þáttaofsókn i r í USA
Framhald af 9. síðu.
; konu sem vann hjá foreldr-
um hans. Sá atburður brennd-
ist svo fast í vitund hans, að
síðar, er hann varð blaðamað-
ur, tók hann að berjast gegn
Ku Klux Klan hvar sem hann
fékk því við komið.
*f Atlanta- komst hann í ná-
1 in kynni við allt kerfi þessara
kynlegu kuflmanna. Hið barna
lega dálæti þeirra- á dular-
fullum, leynilegum inngangs-
! orðum, hið kynlega atferli
- þeirra, hin ruddalega og fá-
víslega röksemdafærsla þeirra,
■ gæti allt saman verið frá-
leitt og hlægilegt, ef það
væri ekki jafnframt dauð-
: hættulegt. Kennedy gat oft
: ekki að sér gert að brosa að
t þeirri kennd sem greip hann
á fundunum — sem þeir sátu
þarna minntu þeir hann á
smádrengi á þeim aldri þegar
þeir eru gagnteknir af ástríðu
til að stofna leynileg banda-
' lög með flóknum fyrirmælum.
En hann brosti aldrei lengi
— þetta voru ekki smádreng-
ir, heldur stórir og ruddalegir,
valdafíknir eða andlega sjúkir
karlmenn, sem höfðu skamm-
byssur og barefli í vasanum
og riffla í bílunum fyrir utan,
og ofbeldisverkin voru engir
hugarórar heldur verk sem
þeir voru staðráðnir í að
framkvæma. Og þeir skiptu
tugum þúsunda um landið allt
— náðu inn í embættismanna-
kerfið, ríkislögregluna og
leyniþjónustuna; þar sátu
trúnaðarmenn þeirra — ekki
sízt eftir að þeir höfðu einn-
ig tekið „baráttuna gegn
kommúnismanum" upp á
arma sína.
^ Studdu Eisenhower.
Kennedy tókst að verða
riddari, áður en hann fór að
bera vitni fyrir rétti og kom
; þannig upp um sig. Ridd-
ararnir eru hinn harði kjarni
1 í skipulagi fasistanna —■ þeir
? eiga að vera til taks að fara
’ af stað með nokkra mínútna
fyrirvara til að taka þátt í
aftöku, sprengjuárás eða of-
beldisverkum. Þegar kosning-
ar standa yfir á þessi innsti
hringur sérstaklega að gæta
þess að beita áhrifum sínum
á réttum stöðum og koma í
veg fyrir að svertingjar greiði
atkvæði. I síðustu kosningum
höfðu riddararnir mikið að
gera til þess að tryggja kosn-
ingu Eisenhowers.
Kennedy skýrir frá því að
hann hafi heyrt þul útvarps-
ins lesa upp skeyti eitt kvöld-
ið:
S. I. nótt skaut WilJis Mc-
Call lögreglustjóri frá Lake
County tvo negrafanga, þeg-
ar þeir reyndu að strjúka, er
þelr voru fluttir til hæsta-
réttar til nýrra réttarhalda.
Annar negranna, Samuel Shep-
herd, lézt þegar í stað, en
hinn, Walter Lee Irvin, ligg-
ur fyrir dauðanum á sjúkra-
húsi í Eustis.
Svertingjarnir voru báðir
ákærðir fyrir nauðgun, en
sannanir voru svo gloppóttar,
að hæstiréttur hafði krafizt
þess að málið yrði tekið upp
aftur.
Mynd pessi er teJcin í svertingjaofsóknunum í Maryland
fyrir nokkrum vikum, þegar samtökin til hagsbóta hvít-
um mónnum œstu til árása gegn svertingjaóörnum í skól-
unum.
Kennedy fór þegar til Eust-
is. Það voru komnir fleiri
blaðamenn ti! bæjarins, og
hótelstýran fagnaði þessum
mikla gestr.gangi og sagði. við
Kennedy að hún vildi óska að
fleiri svertingjar yrðu drepn-
ir þar í bæ — aldrei áður
hefði hótelið hýst jafn marga
myndarlegn, unga menn!
I sýndarréttarhöldunum
gegn lögreglustjóranum var
þessi heiðursmaður sýknaður
umsvifalaust. Enda þótt allt
benti til þess, að hann hefði
dregið svertingjana út úr bíln-
um og skotið þá niður með
köldu blóði til þess að koma
í veg fyrir að hæstiréttur
sýknaði ]:á, tókst lögreglu-
stjóranum að tryggja fráleit-
ar vitnaleiðslur, sem dómarinn
féllst svo skilyrðislaust á að
allt hlýtur að hafa verið á-
kveðið fyrirfram. Lögreglu-
stjóranum var óskað til ham-
ingju með -ýknuniua, og eng-
in í bænum þorði að vekja at-
hygli á þv? nð negrarnir höfðu
verið hlekkjaðir saman og
höfðu þannig ekki haft
minnsta möguleika til að
reyna að flýja aukinheldur
meir. — Auk þess höfðu þeir
ástæðu til að búast við góð-
um árangri af rannsókn
hæstaréttar.
Hverju máli skintir
liturinn?
Þetta var í Mims, smábæ fyr-
ir norðan Miami í Flórída.
Mrs. Moore slapp lemstruð, en
hún andaðist skömmu síðar.
Hún vildi ekki lifa lengur,
sagði hún vinum sínum og
ættmennum.
Kennedy þekkti Moore frá
1950, en þá ferðaðist Kenne-
dy um ríkið sem óháður
frambjóðandi til þess að mæla
fyrir vináttu kynþátta og
þjóða. Moore var þá formað-
ur í kjósendafélagi framfara-
sinna og hafði stutt Kenne-
dy. Ert þú ekki hræddur um
að við verðum kallaðir rauð-
liðar, spurði einn félaga hans.
— Það er svo lengi búið að
segja að við séum svartir, að
ég sé ekki að við þurfum að
hafa áhyggjur af því þótt nú
verði farið að ráðast á okkur
fyrir að vera öðruvísi á Iitinn,
svaraði svertinginn.
Ég er viss um, segir Kenne-
dy, að þetta svar var ástæðan
til þess að Harry T. Moore
var myrtur.
^ Sprengjurnar sam-
eina okkur.
Lögreglufulltrúinn á staðn-
um reyndi að draga úr reiði
fólks með því að lýsa yfir því
að lögreglan hefði í fórum
sínum vitneskju um málið. Á
fundi í Jacksonville nokkrum
dögum síðar var honum svar-
að með þessari athugasemd:
Illiðstætt sprengjuárásum
þeim í suðurríkjunum sem
fylgt hafn í kjölfar þess að
hæstiréttur hefur íirskurðað
að blökkumenn og hvítir skuli
hafa sama rétt til skólagöngu
er morðið á svertingjanum
Harry T. Moore. Kennedy seg-
ir frá því cð á aðfangadags-
kvö’d fvrir tveimur árum
lögðu ofbeldismenn úr Klan-
inum sprengju undir hús
Moore-fjölskyldunnar, og í
sprengingunni lét Harry lífið.
— Vitneskju? Það er næg
vitneskja í Flórída. Ef hvítur
maður og kona hefðu verið
myrt með dýnamíti, er enginn
efi á því að lögreglan hefði
þegar næsta dag verið búin
að varpa hundruðum svert-
ingja í fangelsi — hundruð-
um þeirra sem fyrst hefði
náðst til!
Og kvennaleiðtoginn Edith
Simpkins frá South Carolina
sagði við Kennedy um morðið
á Moore:
# ÍÞRÓTTIR
RITSTJÓRI: FRlMANN HELGASON
Nýju getraunahappdrætti
j •
hleypt af stokkunum
Hæsti virniingiis getar namið aOt að
115-000 króna
íslenzkar getraunir eru um þessar mundir aö stofna
til happdrættis, sem á að ljúka 18. desember n.k. Munu
íþrótta- og ungmennafélög landsins annast sölu happ-
drættismiöanna, ásamt umboðsmönnum ísl. getrauna,
og er nú þessa dagana unniö aö útsendingu miöanna.
Fyrirkomulag þessa happdrætt-
is er hið sama og var á get-
raunahappdrætti því, er íslenzk-
ar getraunir efndu til á s. 1.
| vori, þar sem fylltir voru út á
| happdrættismiða allir þeir úr-
í slitamöguleikar, er fyrir geta
komið í 12 leikjum. Þó vetður
sú breyting á nú, að á miðunum
verða 9 raða kerfi í stað 12 raða
kerfa í vor og miðarnir verða
alls 59049. Vinningar verða einn-
ig fleiri nú, 201 í stað 168. Fyrsti
vinningur verður með 12 rétt-
um lausnum og getur orðið allt
að 115 þús. kr.; 20 vinningar
verða með 11 réttum og geíur
hver þeirra orðið 5300 kr.; loks
verða 180 vinningar með 10 rétt-
um og getur hver orðið um það
bil 350 kr. Vinningafjárhæðin
fer eftir sölu miðanna, fjárhæðin
verður þeim mun hærri sem
fleiri miðar seljast. Þó verður
hæsti vinningur a. m. k. 50 þús.
krónur. Verð hvers happdrættis-
miða verður 10 krónur.
Með samþykki menntamála-
ráðuneytisins hefur verið ákveð-
ið að úthluta af tekjum happ-
drættisins til félaga þeirra, er
selja miðana. Verður úthlutun-
inni hagað þannig, að hvert fé-
lag fær strax í sinn hlut 25% af
andvirði þeirra miða, er þau
selja, en öðrum ágóða verður út-
hlutað síðar.
114 þús. kr. ágóði sl. vor
Eins og áður var sagt, efndu
ísl. getraunir til samskonar
happdrættis á sl. vori. 134 í-
þrótta- og ungmennafélög víðs-
vegar um land tóku að sér sölu
miðanna, ásamt umboðsmönnum
fsl. getrauna og seldust rúmlega
17 þús. miðar, eða um 39% þeirra
miða ér út voru gefnir. Árangur
varð misjafn hjá hinum einstöku
félögum, sum unnu mjög vel að
sölunni, t. d. íþróttabandalag
Hafnarfjarðar og sum Reykja-
víkurfélaganna, einnig ýms
smærri félög úti á landi. Hjá
öðrum var salan minni og hjá
einstaka mjög lítil.
Vinningar voru þá alls 168 að
upphæð kr. 99563.00. Hæsti vinn-
ingurinn féll til happdrættisins,
— Þeir halda að hægt só
að sundra okkur með sprengj-
um, en þeir eru í staðinn að
sameina okkur.
Og víst er þessi ályktun
rétt. Það er hægt að mis-
þyrma einstökum svertingjum
og myrða þá, en jafnframt
tengjast allir hinir æ sterkari
varnarsamtökum. Og þetta er
raunar lögmál sem mun móta
alla baráttu Bandaríkjamanna
sjálfra fyrir lýðræði og
frelsi.
þar eð vinningsnúmerið seldist
ekki. Við uppgjör kom í ljós, að
miði þessi var meðal þeirra miða
er fóru til íþróttabandalags
Akraness en seldist þar ekki og
var á meðal þeirra miða, er end-
ursendir voru. Má segja, að þar
með hafi hagnaðurinn af happ-
’drættinu því nær tvöfaldazt, en
alls varð hann rúmlega 114 þús.
krónur.
—o—
Er íþróttafulltrúi ríkisins og
forsvarsmenn íslenzkra getrauna
skýrðu fréttamönnum frá hinu
nýja happdrætti í gær, tóku
þeir fram að starfsemi Getraun-
anna hefði til þessa gengið mjög
illa hér á landi og enginn ágóði
orðið af henni en hinsvegar all-
verulegt árlegt tap. Kváðust þeir
þó vona að íslenzkar getraunir
ættu eftir að verða viðlíka vin-
sælar meðal almennings hér á
landi og annarstaðar á Norður-
löndum, þannig að þær gætu
þjónað hlutverki því, sem þeim
er ætlað: að afla fjár til íslenzkr-
ar íþróttahreyfingar og starfs
hennar.
Blekking Morgun-
blaðsins
Framhald af 4. síðu.
þetta er aðeins eitt af þeim
sýndarmálum, sem þeir eru svo
vanir að flytja, og eiga að vera
sykurdúsa ætluð óánægðum
kjósendum til friðunar um
stundarsakir, eins og svo oft
hefur komið fyrir áður.
Sósíalistaflokkurinn mun
fylgjast vel með þessu máli,
og ekki láta stjórnarflokkana
komast upp með að svíkja það
þegjandi og hljóðalaust.
Erlend tíðindi
Framhald af 6. síðu
skeleggur forsvarsmaður kyn-
þáttakúgunar og svertingjaof-
sókna. Svipaða sögu er að segja
frá Delaware, þar sem hvítir
foreldrar og skólanemendur
hröktu svertingjabörn úr skól-
um um daginn með óspektum
og ofbeldishótunum. Þeir fram-
bjóðendur, sem lýstu yfir and-
stöðu við að fólk af báðum kyn-
þáttum sæki sömu skóla, hlutu
þar kosningu. Og í Georgia var
samþykkt með miklum meiri-
hluta stjórnarskrárbreyting,
sem gerir fylkisstjórninni fært
að leggja frekar niður alla op-
inbera skóla en framkvæma
þann úrskurð Hæstaréttar
Bandaríkjanna, að það sé brot
á mannréttindaákvæðum banda-
rísku stjórnarskrárinnar að
draga nemendur í opinberum
skólum í dilka eftir kynþáttum.
M. T. Ó.