Þjóðviljinn - 06.11.1954, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 06.11.1954, Qupperneq 3
Laugardagur 6. nóvember 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (3 ForsÖiiiaiur Norðurlandadeildar Deatz-verksiniðjaima staddnr hér Dr. Thomas Schmidt, forstöðumaður Norðurlanda- deildar þýzku vélaverksmiðjanna Kliickner Humboldt Deutz í Köln, er staddur hér á landi um þessar mundir. Var hann kynntur blaðamönnum og fleiri gestum í gær og skýrði þá frá starfsemi verksmiðjanna. Deutz vélaverksmiðjurnar voru stofnaðar árið 1864 og var stofn- andi þeirra Nico’aus A. Otto, sá «r fann upp fjórgengls véiina. Er verksmiðjan talin elzta vélaverk- smiðja iheims. 20 þús. starfsmerm 1 dag starfa hjá Deutz-verk- smiðjunum um 20 þús. menn, en þar eru fyrst og' fremst fram- leiddar dieselvélar, 3-2000 hestafla, fyrir báta, skip, dráttarvélar, bíla, vinnuvélar alls konar, rafstöðvar ofl. Á stríðsárunum hófu verksmiðj- urnar smíði loftkældra dieselvéla, er hafa þótt bera af öðrum díes- elvéium hvað gæði snertir. Talið er að nú séu i notkun um allan heim rúmlega 110 þús. loftkældra Deutz-díeselvélar. einnig hér á landi. Mun láta nærri að um 60-70 Deutz-dráttarvélar séu hér á landi. Klöckner Humbo’dt Deutz eru mú stærstu dráttarvéiaverksmiðj- ur í Þýzka’andi og er framleiðs'an um 1000 dráttai’vélar á mánuði. Einnlg- framleiða verksmiðjurnar :mánaðanlega um 600 Magirus-vöru- bíla með loftkæidum díeselvélum, svo og jarðýtur og önnur Iandþún- mðartæki. Þess má að lokum geta að afl- vélin og 4 hjálparvélar í dráttar- bátnum Magna, sem nú er i smið- um, eru Deutz-dieselvélar, sú stærsta 1000 hestöfl. Eikar Stofuskápur (herraskápur) til sölu. Upplýsingar í síma 5541 Höfum fengið send- ingn af m|‘ög ódýmm vörum svo sem: Grænt munstrað moleskinn á 30.00 mtr. Köflótt skyrtuefni á 7.50 mtr. Köflótt og rósótt flúnel á 12.40 mtr. Lakaléreff hör á 21.30 mtr. Hörléreft fíngerð á 22.50 mtr. Everglaie, hvítt á 23.60 mtr. Blúndur ur nylon, baðmull og tylli. Kjélahelti H.T0FT Skólavörðustíg 8, sími 1035 I sunnudagsmatmn: 'k Svið Hangikjöt Rjúpur Tryppakjöt Lifur Hvalkjöt ★ Gulrófur Hvítkál Rauðkál 'k Allskonar álegg 'k Vörnverðið Hæsta og lægsta smásölu- verð ýmissa vörutegunda í nokkrum smásöluverzlunum í Reykjavík reyndist vera þann 1. þ.m. sem hér segir: (1 kg. nema annað sé tekið fram). Rúgmjöl Lægst Hæst Meðalv. 2.50 2.70 2.51 Hveiti 2.60 3.65 2.66 Haframjöl 2.90 3.80 3.31 Hrísgrjón 5.95 6.25 6.14 Sagógrjón 5.20 6.15 5.39 Hrísmjöl 4.55 6.70 5.63 Kartöflumjöl 4.65 4.85 4.74 Baunir 4.50 5.90 5.25 Te, y8 Ibs. pk. 3.10 4.35 3.91 Kakao, 7.00 10.20 8.93 (x/2 Ibs. dós) Suðusúkkul. 58.00 60.00 59.51 Molasykur 3.85 4.30 4.12 Strásykur 2.65 3.25 3.12 Púðursykur 3.25 4.30 3.45 Kandís 5.50 5.75 5.71 Rúsínur 11.30 12.60 11.94 Sveskjur 16.00 19.00 17.93 (70/80) Sítrónur 15.40 17.30 16.15 Þvottaefni, 4.55 5.00 4.79 (útlent pk. pr.). Þvottaefni 2.85 3.30 3.09 (innlent pr. pk.) Á eftirtöldum vörum er §ama verð í öllum verzlunum. (Verð- ið er miðað við 1 kg.) Kaffi brennt & malað 45.00 Kaffi óbrennt 32.30 Kaffibætir 16.00 Mismunur sá er fram kem- ur á hæsta og lægsta smásölu- verði getur m.a. skapazt vegna tegundamismunar og mismun- andi innkaupa. Skrifstofan mun ekki gefa upplýsingar um nöfn einstakra verzlana í sambandi við fram- angreindar athuganir. Frá verðgæzlustjóra). Vesturgötu 15, sími 4769. Alþmgishátíðar- kantata Emils Thoroddsen aðalviðfangsefni Þj’éðleikhússkérsins Aðalfundur Þjóðleikhússkórs- ins var haldinn að Hótel Borg þriðjudaginn 26. okt. s. 1. Auk kórfélaga sátu fundinn þeir Guð- laugur Rósinkranz, þjóðleikhúss- stjóri og dr. Viktor Urbancic, söngstjóri kórsins. Fráfarandi formaður, frú Svava Þorbjamardóttir, flutti ársskýrslu stjómarinnar, en samkvæmt henni voru helztu verkefni kórsins á starfsárinu Al- þingshátíðarkantata Emils Thor- oddsen og lagaflokkur úr óper- ettunni „Nótt í Feneyjum“ eftir Johann Strauss. Auk þess aðstoðuðu nokkrir kórfélagar við sýningar á 2 leik- ritum og einni óperettu (Ni- touche) í Þjóðleikhúsinu. Kórinn hóf vetrarstarfið í byrjun október með æfingum á óperunum „Cavalleria Rusti- cana“ eftir Mascagni og „II Pagliacci" eftir Leoncavallo, en sýningar á þeim óperum munu hefjast í Þjóðleikhúsinu á ann- an dag jóla næstkomandi. Stjórnarkosning fór þannig, að fráfarandi stjórn var öll endur- kjörin, en hana skipa þau Svava Þorbjamardóttir formaður, Svan hildur Sigurgeirsdóttir ritari og Sverrir Kjartansson gjaldkeri. f varastjórn voru kjömir þeir Að- alsteinn Guðlaugsson, ívar Helgason og Sighvatur Jónasson. Húnvetningafélagið starfar að útgófu húnvetnskra frœða skégrækt, hyggðasafni og fleiri málunt átHhagaima Húnvetningafélagiö' hélt aöalfund sinn í fyrrakvöld, en auk venjulegrar félagsstarfsemi hefur það haft útgáfu- starfsemi og skógrækt heima 1 héraöi. Félagið gaf í fyrra út Troðn- ingar og tóttabrot, en áður hafði Brandsstaðaannall • verið gefinn út. Sögufélagið Húnvetningur, sem starfar heima í héraði hef- ur einnig gefið út Hlyni og hregg- viði. Útgáfu fróðleiks og frá- sagna úr Húnavatnssýslum verð- ur haldið áfram og kaus aðal- fundurinn í útgáfunefnd þá próf. Jón Jóhannesson, sr. Gunnar Árnason og Hannes Árnason. Stendur nú ti) að sameina þessa útgáfustarfsemi og sögufélagsins Húnvetningur. Skógræktin Húnvetningafélagið hefur skóg- ræktarlund í Vatnsdalshólum, Þórdísarlund og mun nú ekki vanta nema 1500 plöntur til að fullplantað sé í hann, en fyrir- hugað er að koma upp skóg- ræktarlundi í Vestur-Húnavatns- sýslu. Médelflug Framhald af 12. síðu. kvað hann vera 86.5 km, en tímamet á lofti 1 klst. og 20 mín. Þjóðverjar heimsmeistarar Hann kvað um 100 módelflug- klúbba starfandi í Danmörku og héldu þeir samkeppni sín á milli um meistaratitil Daría í módel- flhgi, en slík keppni fer fram í mörgum flokkum eftir stærð og gerð módelanna. Heismeistara- keppnin í modelflugi fór fram í Óðinsvéum í Danmörku s. 1. sum- ar og urðu Þjóðverjar heims- meistarar. Norðurlöndin hafa sér- staka keppni fyrir Norðurlönd og kvaðst Jensen vonast til að ís- lendingar yrðu þátttakendur eft- ir 2 ár eða svo. Þetta er ekki í fyrsta sinni að módelflugur eru smíðaðar hér á | landi, því að árum saman hefur módelflugklúbbur verið starfandi i sambandi við Svifflugfélagið, en nú þegar drengjum gefst kost- ur á að læra í skólunum að smíða | módelflugur mun áhuginri fyrir þessari íþrótt margfaldast. Bridgekeppni Þróttar Þriðju umferð er lokið og er staðan þannig: 1. Grímur Gunnar 198. 2. Sigurður Geiri 189. 3. Jón Tómas 187. 4. Gunnl&ugur Júlíus 178. 5 Einar Ingólfur 171. 6 Ólafur Gunnar 171. 7. Pétur P. Guðmundur 170. 8. Ari Jón 169. 9. Haraldur He’gi 165. 10. Guðbjartur Bryndís 162%. 11. Jón Gísli 161%. 12. Daníel Kristín 157. 13. Sigurþór Einar 156%. 14. Thor- berg Bjarni 153. 15 Oddur Jóhann 150%. 16 Björn Gunnar 149%. 17. Guðmundur Axel 145%. 18. Sveinn Sigurþór 144%. 19. Sigurjón Óli 139%. 20. Guðmundur Snorri 122. Byggðasafn Aðalfundurinn kaus 5 manna byggðasafnsnefnd til að hafa með höndum söfnun gamalla muna í byggðasafn. Kosnir voru Finn- bogi Júlíusson, Guðrún Svein- björnsdóttir frá Hnausum, Pétur Sæmundsson Blönduósi, sr. Gunnar Árnason og sr. Jóhann Briem frá Melstað. — Þá kaus fundurinn einnig skemmtinefnd. —o— I stjórn Húnvetningafélagsins voru kosnir: Arinbjörn Árnason form. og með honum Kristmund- ur Sigurðsson, Björn Bjarnason, Guðmundur Albertsson og Zoph- us Guðmundsson. Andspyrnu- hreyfingin hefur skrifstofu í Þingholts- stræti 27. Opin alla virka daga kl. 7—9 síðd., sunnud. kl. 4—6. Komið og takið áskriftalista og gerið skil. Skésalan, Hverfisgötu 74. Höfum fengið nýjar birgðir ■ ar ódýrum dömuskóm, inni- ■ skóm og karlmannaskóm. ■ ■ ■ SKÖSALAN, Hverfisgötu 74: liggm leiðin Dívanar Og ottónanar í fjölbreyttu úrvali. TiésmiSian ViÐIR. Laugaveg 166 — Sími 7055.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.