Þjóðviljinn - 06.11.1954, Side 5
Laugardagur 6. nóvember 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Bcsndarískccr ilugstöðvar ógna
öryggi Breta, segir þingmoður-
LeiSa hæffu á kjarnorku- og vetnis-
sprengjuárásum yfir þjóSina
■« » v a &
Einn fremsti sérfræöingur þingflokks brezka Verka-
niannaflokksins í utanríkis- og hermálum ' er þeirrar
skoðunar, að stö'ðvár' bandaríska fiugfiéi’sins í Bretlandi
stofni þjóöinni í stórkostlegan háska.
Richard Crossman, þingmað-
ur fyrir kjördæmi í borginni
Coventry, ræddi um bandarísku
flugstöðvarnar á fundi Fab-
íanfélagsins í Nottingham á
laugardaginn. Crossman var
einn af þeim, sem stjórnuðu
sálrænum hernaði Breta á
stríðsárunum.
Ógnun við öryggi Bretlands.
„Bandarísku sprengjuflug-
vélastöðvarnar í Norfolk eru
nú orðnar ógnun við öryggi
Bretlands, sagði Crossnian.
„Bandaríkjastjórn hefur ákveð-
ið að reiða sig á vetnissprengj-
una og kjarnorkusprengjuna
til að vega upp af liálfu Vest-
urveldanna yfirburði Rússa í
mannafla.“
Landið berskjaldað.
Hann komst svo að orði, að
brezka ríkisstjórnin virtist hafa
heimilað Bandaríkjamönnum að
gera vetnissprengjuárásir frá
stöðvunum í Norfolk.
I>ar með hafi hættan á end-
urgjaldsárásum verið leidd
yfir Breta sem séu þjóða
berskjaldaðastir gagnvart
slíkum hernaði.
Tími til kominn.
„Ég álít“, sagði Crossman,
„að timi sé til kominn að segja
vinum okkar handan við At-
lanzhafið hreinskilnislega frá
því, að annaðhvort verði þeir
að endurskoða hernaðaráætlun
sína í samráði við okkur þeg-
ar í stað eða að öðrum kosti
vera við því búnir að fara
á brott héðan með sprengju-
flugvélar sínar.“
. RicharcL Crossman
Wegur gerður
úr gúnuní
Svisslendingar hafa orðið
fyrstir manna til að nota
gúmmí til vegagerðar. Nokk-
urra kílómetra vegarspotti
'lagður gúmmí reyndist aðeins
15% dýrari en ef hann hefði
verið lagður úr venjulegum
efnum. En talið er að gúmmí-
vegurinn muni endast 25%
lengur og þar að auki hefur
hann þann kost að hann er
mýkri og bílar geta ekki runnið
til á honum.
Konnngnrrak
þingfiorseia
Forseta öldungadeildar þings
Libyu hefur verið vikið úr em-
bætti að konungsboði. Forset-
inn segir Idras konung hafa
gripið til þessa ráðs til þess
að veikja andstöðuna á þingi
gegn samningi, sem veitir
Bandaríkjunum flugstöðvar
Libyu gegn dollaragreiðslu.
I Getur ekki
■
■
! fengið kvef
■
■
Frú Kathleen Chauffey
: frá Eltham, einni af útborg-
: um London, verður á næst-
: unni lögð inn til rannsóknar
: á Havardsjúkrahúsið í Sal-
: isbury. Þar verður í tíunda
: skipti reynt að gera hana
: kvefaða. Vísindamenn sem
: starfa við kvefrannsóknar-
; stofu sjúkrahússins hafa
: níu sinnum sprautað kvef-
; sýkiefnum í hana en þau
■ hafa aldrei hrifið. Frúin hef-
■
• ur ekki svo mikið sem
■ hnerrað um dagana.
Læknarnir hafa ótakmark-
: aðan áhuga á frú Chauffey,
: því að ef þeim tekst að kom-
: ast að raun um, hvað gerir
: hana ónæma fyrir kvefi, gera
: þeir sér vonir um að finna
: ráð við þessum útbreiddasta
: kvilla mannaima.
Telur geislun
valda votviðri
Kunnur, enskur kjarnorku-
fræðingur, prófessor Frederick
Soddy, hefur lýst yfir þeirri
skoðun að votviðrin víða um
heim á þessu ári stafi að lík-
indum af kjarnageilsun. Mörg
kíló af geislavirkuin efnum
rjúka á degi hverjum út í loftið
frá kjarnorkustöðvunum í
heiminum, sagði Soddy. Friun-
eindageilsun gerir rakaagnir
raflilaðnar og við það þéttast
þær og breytast í rigningar-
dropa. Við eðlileg skilyrði eru
það einungis rykagnir í loftinu,
sem gera raka að rigningu.
Soddy kvaðst ekki vilja full-
yrða neitt um að veðrið muni
framvegis fara síversnandi eft-
ir því sem kjarnorkustöðvum
fjölgar.
Nazistar í Ar-
abalöndum
Þjóðverjar, sem fyrr meir
voru áhrifamenn í nazista-
flokknum, gegna nú ábyrgðar-
stöðum í mörgum Arabaland-
anna, segir Anthony Green-
wood, einn af þingmönnum
brezka Verkamannaflokksins.
Hann hélt því fram í þing-
ræðu nýlega, að fyrrverandi
liðsforingjar í her Hitlers
stjórnuðu nú þjálfun egypzka
hersins. Einnig hefur heyrzt að
Kruppverksmiðjumar séu að
leita um Arabalöndin að hent-
ugum stöðum fyrir verksmiðj-
ur, til að framleiða í þau þunga
vopn, sem Þjóðverjum verður
ekki heimilt að smíða sam-
kvæmt nýgerðum samningum
við Vesturveldin.
Englendingur fær Stalínverðlaun
Einn þeirra manna, sem á þessu ári fékk friðarverðlaun
Stalíns, var enski vísindamaðurinn J. D. Bernal. Hann
sést hér til hægri taka við verðlaununum í Moskva. For-
maður alþjóðlegu verðlaunanefndarinnar, Dimitri Sko-
seltín, réttir honum verðlaunin, sem eru heiðursskjal,
gullpeningur og fjárupphœð.
Forn, indversk lækninga-
jurf fekur f ram raffosfi
Haíði góS áhrif á 80% geðsjúklinga í til-
raun í Bandaríkjunum
Lyf sem unniö er úr jurt, sem öldum saman hefur
verið notuö í Indlandi til aö lækna ge'ötruflanir, svefn-
leysi og a'öra taugasjúkdóma, hefur veriö reynt viö geö-
sjúklinga meö „athyglisveröum og næstum ótrúleg-
um árangri“, að því segir í bandarísku læknablaöi.
Byggt yflr
tjaldbúa
Þeim tveim milljónum franka,
sem Chaplin gaf húsnæðisleys-
ingjum í París, verður varið
til að byggja steinsteypt íbúð-
arhús handa 180 verkamanna-
fjölskyldum, sem nú búa í
tjöldum í úthverfum borgarinn
ar.
Rakvél er rakar án bursta,
vatns, sápu eða raf magns
Sívalningur með hárbeittum eggjum knú'
inn með því að kippa í spotta
Ef trúa má fullyrðingum þýzks fyrirtækis, verður
rakstur brátt margfalt fljótlegri og fyrirhafnarminni en
nokkru sinni fyrr.
Starfsmenn fyrirtækisins hafa
nefnilega smíðað rakvél sem
þeir staðhæfá l'áð taki langt
fram bæði venjulegum rak-
vélum og rafmagnsrakvélum.
Til þess að raka sig með þesá*
ari nýju vél er óþarfi að
mýkja skeggið með sápu, vatni
Teiknarinn George McMan-
us er látinn í Kaliforníu 70
ára gamall. Fáir munu
kannast við nafnið en því
fleiri þekkja fóstur hugar
hand og handa, hjónin
Gissur gullrass og Rasmínu.
Myndasagan af heimiliserj-
um þeirra er nú orðin 42
ára gömul og hafði fœrt
höfundi sínum of fjár, enda
birtist hún í yfir 500 blöö-
um í 32 löndum.
og bursta og hún er ekki held
ur háð rafstraumi eins og raf-
magnsvélarnar.
Kasthjól.
I lögun minnir- þetta nýja
tæki á rafmagnsrakvélar, en í
stað rafmótors er það knúið
með kasthjóli, sem sett er af
stað með því að taka í nær
óslítanlegan perlonþráð.
Kasthjólið er sett af stað
með því að kippa tvisvar eða
þrisvar í spottann. Það knýr
svo sívalning með beittum
eggjum, sem hreyfast miklu
hraðar en eggjar rafmagns-
rakvéla.
r
Brýnir sig sjálft.
Við tvo eða þrjá kippi í
spottann helzt sívalningurinn
á ferð það lengi, að hægt er
um það bil að hálfljúka
rakstri áður en næst þarf að
kippa í. Eggjarnar raka iafn
vel við síðasta snúninginn og
þann fyrsta og þær brýna sig
sjálfar. Hægt er að stöðva
kasthjólið hvenær sem er með
því að þrýsta á hemil.
Framleiðendur þessarar nýju
rakvélar segjast muni senda
hana á markaðinn mjög bráð-
lega.
Jurt sú, sem um er að ræða,
nefnist á fræðimáli rauwolfia
serpentina og efnið sem unnið
hefur verið úr henni og notað
sem lyf er kallað reserpine
Það hefur reynzt lækka blóð-
þrýsting manna. i ,
28 af 74 fengu bata.
Þrír bandarískir læknap
skýra í Journal of the Ameri-
can Medical Association frá til-
raunum sínum með reserpine.
Af 74 sjúklingum, sem þeir
gáfu lyfið, fengu 80% meíri
eða minni bata. Átta hafa ver-
ið útskrifaðir af sjúkrahúsinu
og tuttugu hafa fengið að fara
heim en eru áfram undir lækn-
ishendi. Læknarnir segja að
þetta lyf gefi betri árangur
við geðlækningar en raflost.
Að vísu vara þeir menn við að
líta á það sem einhverja allra
meina bót í geðsjúkdómum en
taka þó svo djúpt í árinni að
það sé „þýðingarmesta lyf, sem
um getur í sögu geðlækning-
anna."
Svíar vantrúaðir.
Yfirlæknirinh við Beckom-
berga geðsjúkrahúsið í Svíþjóð
hefur svarað fyrirspumum
sænskra blaðamanna um frá-
sögn hinna bandarísku lækna.
Hann segir að lyfið hafi verið
notað á flestum deildum þar
síðan um síðustu áramót. Það
hefur reynzt hafa róandi áhrif
á sjúklingana notað ásamt
öðrum lyfjum og í hófi. Hins-
vegar er það ekki laust við ó-
heppileg aukaáhrif. Sænska yf-
irlækninum þykir hinir banda-
rísku læknar vera djarir í full-
yrðingum sínum þegar ekki
meiri reynsla er við að styðj-
ast en sú sem þeir lýsa. %
l