Þjóðviljinn - 12.11.1954, Side 12

Þjóðviljinn - 12.11.1954, Side 12
Par í scxr scmming uxmm tryggður xneirihluti á franska þinginu? Þing sósíaldemókrata samþykkti fyrir- mœli til þingmanna um oð styðja þá Aukaþing franska sósíaldemókrataflokksins samþykkti í gær meö' miklum meirihluta fyrirmæli til þingmanna flokksins um aö greiða atkvæöi meö fullgildingu París- arsamninganna um endurvopnun Vestur-Þýzkalands, þegar þeir veröa lagöir fyrir þingiö í næsta mánuöi. Þá samþykkti þingið áskorun á frönsku stjórnina, að hún gerði það sem í hennar valdi stæði til að koma á ráðstefnu Bretlands, Bandaríkjanna, Prakklands og Sovétríkjanna um þýzka vandamálið, strax og Parísarsamningarnir hefðu ver- ið fullgiltir og áður en Vestur- Þýzkaland hefði verið hervætt að nýju. Á þeirri ráðstefnu skyldi leitast við að finna leið til að sameina þýzku landshlut- anna og semja frið við Austur- ríki. Eykur líkur á fullgildingu. Tillaga þess efnis, að þing- menn flokksins skyldu ekki greiða fullgildingu samning- anna atkvæði, fyrr en slík ráð- stefna hefði verið haldin var hins vegar felld, fékk aðeins lum 450 atkvæði, en áðurnefnd ályktun var samþykkt með rúm lega 2000 atkvæðum. Þingflokkur sósialdemókrata á franska þinginu er stærsti þingflokkurinn; þeir eiga 104 fulltrúa í neðri deild þingsins, og greiði allir þingmenn flokks ins atkvæði með samningunum, er fullgilding þeirra tryggð. Vitað er, að allverulegur hóp- ur þingmanna flokksins er andvígur endurvopnun Vestur- Þýzkalands, og sennilegt að nokkrir þeirra muni ekki beygja sig undir flokksagann. Einnig brezkir sósíaldemó- kratar. Þingflokkur brezka Verka- mannaflokksins kom saman á fund í gær og var samþykkt á honum ályktun, þar sem lýst er yfir stuðningi við Parísar- samningana. Mikill minnihluti Hve lengi lielzt bæjarfégetamim M uppi ú hafa bæinn löggæzlulausan? Senn er liðinn hálfur mánuður sem það undarlega á- stand ríkir í einum bœ að þar eru engir lögregluþjónar, engin löggœzla. 1 byrjun þessa mánaðar hófst það undarlega ástand í Keflavík að lögregluþjónarnir þar voru látnir hætta störfum — og hefur þó flestum fund- izt að þar þyrfti frekar að auka löggæzluna heldur en minnka hana, hvað þá að leggja hana niður með öllu! Þetta undarlega ástand mun allt stafa af því að bæjarfóget- inn ákvað þar slíkt vinnufyr- irkomulag að enginn lögreglu- þjónn getur sætt sig við það. Hann ákvað að þeir skyldu vera á næturvakt 3 vikur af hverjum fjórum, vinna þrjár vikur samfleytt á næturnar. Um síðustu helgi fékk Þjóð- viljinn þær fregnir hjá bæjar- fógetanum að útlit væri fyrir að þetta lagaðist þá um helg- iná, samningaumræður væru Fyrsta skíðaferð- in á sunnudag Nú er skíðasnjórinn kominn og munu margir hafa fullan hug á að færa sér ha-nn í nyt. Skíðafélögin í bænum munu sem undanfarið hafa með sér samvinnu um skíðaferðir og verður fyrsta ferðin á vetrinum farin upp á Hellisheiði næst- komandi sunnudag. Lagt verð- nr af stað frá Ferðaskrifstof- unni Orlof í Hafnarstræti kl. 9 á sunnudagsmorgun. hafnar, — en engin löggæzla er þar enn! Keflvíkingar eru orðnir óþol- inmóðir yfir þessu ástandi og menn spyrja hve lengi bæjar- fógetanum eigi að haldast það uppi að liafa bæ eins og Kefla- vík löggæzlulausan. Er ekki komin þörf á því því að frám fari opinber rannsókn á því hvað þarna er að gerast? Yfirskoðunarmaður rík- isreikninga Bjöm Jóhannsson í Hafnar- firði hefur verið gerður yfir- skoðunarmaður ríkisreikning- anna í stgð Sigurjóns heitins Ölafssonar.' þingflokksins, eða 124 af 295, greiddi atkvæði með ályktun- inni, en aðeins 72 á móti. Hin- ir þingmennirnir, um 100 tals- ins, sátu hjá við atkvæða- greiðsluna. Tillaga um, að flokkurinn styddi fullgildingu samning- anna því aðeins, að áður hefðu verið reyndar fjórveldaviðræð- ur um Þýzkaland, var felld með 115 atkv. gegn 82. Umræður lun Parísarsamn- ingana verða á brezka þinginu í næstu viku. Úveður á Norðursjó Mikill stormur var á Norður- sjó í gær og var hætta á flóð- um á stórum svæðum á austur- strönd Englands. Yfirborð sjáv- ar hafði víða hækkað mörg fet yfir það sem það er venjulega, og í Skotlandi flæddi yfir lítið sjávarþorp. Áfengislög í Frakklandi Stjórn Mendes-Franee i Frakklandi hefur ákveðið að gera herferð gegn drykkju- skap í landinu, en Frakkland mun nú vera það land Evrópu, þar sem eru flestir áfengis- sjúklingar. Helztu ráðstafanir sem hún hyggst gera til að draga úr á- fengisneyzlunni eru hækkun skatta á áfengi, lokun vínkráa milli 5 og 10 á morgnanna og takmörkun á fjölda brenni- vínsgerða. Fyrsti fundur Angliu í vetur Anglia, ensk-íslenzka félag- ið, efnir til fyrsta fundarins á þessum vetri í Sjálfstæðishús- inu n.k. þriðjudag, 16. nóv. kl. 8.45 síðdegis. Á fundinum mun Sölvi Eysteinsson lesa upp og Kristinn Hallsson, bassasöngv- ari, syngja einsöng. Auk þess fara fram aðalfundarstörf og dansað verður til kl. 1 eftir miðnætti. þJÓÐVILIINN Föstudagur 12. nóvember 1954 — 19. árgangur — 258. tölublað Æsingafundlr McCarthy- ista í Washington Streyma í stórum hópum þangað til að votta honum hollustu sína Þúsundir af fylgismönnum McCarthys héldu útifundi og fóru í flokkum um götur Washington í gær til að votta leiðtoga sínum hollustu, meðan umræður stóöu yfir í öldungadeildinni um tillöguna um vítur á hann. Eins og fyrri daginn fóru umræðurnar í öldungadeildinni ekki fram hávaðalaust. Mc- Carthy hélt áfram að bera brigður á niðurstöður nefndar- innar, sem rannsakaði mál hans og lagði til að deildin vítti hann fyrir svívirðingar hans Trúmönnum sé sýnd nærgætni I gær birtist í Pravda, blaði Kommúnistaflokks Sovétríkj- anna, ályktun frá miðstjórn flokksins, undirrituð af aðal- ritara flokksins Krústséff, þess efnis, að í framtíðinni skuli all- ir flokksmenn forðast eftir mætti að særa tilfinningar trú- aðs fólks og kirkjunnar þjóna. I ályktuninni segir, að meiri- hluti íbúa Sovétríkjanna hafi nú losnað úr viðjum trúar- bragðanna, en enn þá séu margir trúmenn eftir í landinu, sem þjóni því af fullri trú- mennsku. Tilfinningar þeirra beri að virða ,enda þótt áfram verði haldið baráttunni gegn leifum trúarbragðanna. Spilakvöld sóslalista Sósíalistafélag Reykjavíkur og Æskulýðsfylkingin halda sameiginlega þriðja spilakvöld sitt á vetrinum í Skátalieimil- inu á sunnudagskvöldið kentur kl. 8,30 e. h.. Spiluð verður félagsvist og góð verðlaun veitt. Fólk er áminnt um að mæta stundvis- lega. Orðsending til andstæðinga hemámsins Vinsiið ötullega að u ndirskrif tasöf nun gegn herstöðvum á Islandi Um leið og við heit- um á umboðsmenn um land allt að vinna öt- ullega að undirskrifta- söfnun gegn herstöðv- um á íslandi, beinum við til þeirra þeim til- mælum, að endursenda útfvllta lista jafnóðum og þeir eru tilbúnir. Nýir sjálíbcðaliðar eru beðnir að setja sig í samband við ein- hvern okkar, bréflega eða símleiðis, og verða þeim þá send söfnun- argögn. Alfreð Gíslason Gils Guðnmndsson Gunnar M. Magnúss um samþingmenn hans og hers höfðingjann Zwivker, sem eitt sinn bar vitni fyrir rannsókn- arnefnd hans. McCarthy greip hvað eftir annað fram í fyrir þingmönnum þeim, sem lýstu yfir fylgi við tillögu nefndar- innar. Æsingafundir. Mörg þúsund af heitustu að- dáendum McCarthys eru komn- ir til Washington til að votta honum hollustu sína. Tóku fylgismenn hans í New York á leigu aukalest, sem flutti þá til höfuðborgarinnar. McCarthyistarnir efndu til útifunda í Washington, þar sem ræðumenn fordæmdu ,,of- sóknirnar“ gegn McCarthy og fóru fylktu liði um götur borg- arinnar til að láta í ljós van- þóknun sína á tillögunni um vítur á hann. Meyjaskcmman sýnd á Akureyri Fyrsta sinni að óperetta er sýnd þar Akureyri. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Óperettan Meyjaskemman verð- ur sýnd hér n.k. föstudag og er það í fyrsta sinni að óperetta er sýnd hér á Akureyri. Leikfélagið hefur sýningu þessa. Leikstjóri er Ágúst Kvaran en aðalhlutverkin hafa á höndum Björg Baldvinsdóttir, Jóhann Konráðsson, Jóhann Ögmundsson og Árni Jónsson. Árni Ingimund- arson annast söngkór. Iíona verður fyrir bifreið Það slys varð í gær kl. 13,30 að kona ein varð fyrir bifreið á Miklubraut og meiddist nokk- uð á höfði. Slysið varð með þeim hætti að konan var að bíða eftir strætisvagni á gatna mótum Seljalandsvegar og Miklubrautar, en bíllinn kom akandi vestur Miklubraut. Mun konan hafa gengið nokkuð í veg fyrir bílinn, sem beygði og lenti út í skurði, en konan varð þá fyrir aftari hluta hans með þeim afleiðingum er fyrr grein- ir. Konan, sem fyrir slysinu varð heitir Björglin Stefáns- dóttir til heimilis að Kringlu- mýrarbletti 12. Undirskrifið kröfuna um uppsögn herversidarsamnin

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.