Þjóðviljinn - 17.11.1954, Page 12

Þjóðviljinn - 17.11.1954, Page 12
irri iihimÍ íjíiíllli □ PZHfl ru i asscrfjB = JL Verksmiðja er fullnægir allri glerþörf íslendinga í smíðum Framleiðir allar tegundir nytjaglers Stofnuð hefur verið glerverksmiðja, Glersteypan h.f., sem mun geta fullnœgt pörf íslendinga fyrir nytjagler. Er verksmiðjuhúsið nú í byggingu og mun verksmiðjan vœntanlega taka til starfa snemma á nœsta ári. Þeir Björgvin Sigurðsson for- maður Glersteypunnar og Ingvar S. Ingvarsson fram- kvæmdastjóri hennar skýrði blaðamönnum frá þessu í gær og sýndu þeim verksmiðjuna í byggingu. Glersteypan var stofnuð 19. júlí 1951, en áður höfðu bræð- urnir Ingvar S. Ingvarsson og Gunnar S. Ingvarsson beitt sér fyrir athugun á starfsgrund- velli slíkrar verksmiðju hér- lendis. Voru íslenzk jarðefni send út til rannsóknar og sann- azt að hér á landi er gnægð hráefnis í gler, eins og kísill, líparít, skeljasandur, vikur og biksteinn. 80% hráefna innlend I árslok 1951 hafði félagið lítinn ofn og vélar til tilrauna- framleiðslu. Árangur þeirrar tilraunaframleiðslu er sá að sérfræðingum ber saman um að liráefni til glergerðar hér á landi standi sízt að baki er- lendum hráefnum. Innlendu hráefnin sem notuð verða þeg- ar verksmiðjan hefur fram- leiðslu verða allt að 80% af heildarnotkun hráefna. Bygging glerverksmiðju ákveðin í maí 1953, er félagið var komið vel á veg með fram- leiðslu sína varð það fyrir því áfalli að verksmiðjan stór- skemmdist af bruna. En fram- leiðslan hafði hinsvegar gefið það góða raun að ákveðið var að ráðast í byggingu allstórrar glei'verksmiðju, er fullnægt mun geta nytjaglersþörf Is- lendinga. Er verksmiðjan reist j samvinnu við fírmað Pierre Roussea u, Lodelinsaít * ^‘SÍU, j Norður-Afríka Framhald af 1. síðu. Þjóðfrelsissamtök Marokkó- búa, Istiqlal, boðuðu í gær til þriggja sólarhringa verkfalls og á það að hefjast á morgun. Sá dagur er valinn til að minnast þess að þann dag tók Ben Júss- ef við soldánstign í landinu, en hann settu Frakkar af í fyrra og fluttu nauðugan úr landi. Ben Jússef dvelst nú í útlegð á Madagaskar. Frakkar búast við óeirðum i Marokkó verkfallsdagana og landstjóri þeirra sat á fundum í gær með ýmsum stjórnarvöid- um til að undirbúa víðtækar varúðarráðstafanir. gleriðnaðarfyrirtæki sem reist hefur glerverksmiðjur víða um heim. Verksmið juby ggingin tæpir 1400 fermetrar Verksmiðjubyggingin er tæp- ir 1400 fermetrar að flatar- máli, er það stálgrindahús, sem Kolsýruhleðslan s.f. hefur ann- azt uppsetningu á. Grunnur verksmiðjuhússins og undir- stöður véla var byggt á s.l. sumri. Byggingameistari var Böðvar S. Bjarnason, en múr- arameistari Davíð Þórðarson. Bygging verksmiðjuhússins hefur gengið mjög vel og er áætlað að lokið verði við upp- setningu véla, sem eru að mestu leyti komnar til lands- ins, í lok janúarmánaðar n.k. Uppsetningin á bræðsluofni og Framhald á 11. síðu. PIOÐVILIIN Á fundi sameinaðs Alþingis í gær minntist varaforseti þess, Jón Sigurðsson, Benedikts Sveinssonar með þessum orð- um: 1 morgun andaðist hér í bæn- um hinn aldni þingskörungur Efni í 11 atómsprengjur notað til friðarþarfa Umræðum um tillögu Bandaríkjanna á þingi SÞ um að setja á laggirnar stofnun, sem annist rannsóknir og miðli upplýsingum um notkun kjarnorkunnar til friðar- þarfa, mun ljúka í stjórnmálanefnd þingsins í dag. Lodge, aðalfulltrúi Bandaríkj- anna hjá SÞ, sagði í gær, að Bandaríkjastjórn hefði ákveðið að leggja 100 kg af kjarn- kleyfu efni ("úraníum) til stofnunarinnar og kjarnorku- vera í öðrum löndum, þar sem gerðar væru tilraunir með fram Vanir að rjúfa samninga Thorkil Kristensen, fyrrver- andi fjármálaráðherra Danmerk- ur, talaði á landsþingi danska Vinstriflokksins í gær. Hann ræddi m. a. um danska þjóðar- brotið í Suður-Slésvík og það tilboð sem forsætisráðherra Slés- víkurfylkis í Vestur-Þýzkalandi hefur gert dönsku stjórninni um gagnkvæma samninga til að tryggja réttindi dönsku og þýzku þjóðabrotanna sitt hvoru megin við landamærin. Kristensen var- aði við því að taka þessu boði, Danir hefðu slæma reynslu af þeím SBmdihgum se^ Ijeir iiefðu gert vtð Þyzkaland. í ályktun sem þingið samþykkti var því lýst yfir, að boðinu ætti að hafna. Dulles hótar styrjöld Foster Dulles, utanrikisráð- herra Bandaríkjanna, sagði i gær á blaðamannafundi, að ef Al- þýðu-Kína hæfi aðgerðir til að flæma burt Sjang Kajsék og ræningjaklíku hans af eynni Tajvan, myndi Bandaríkjastjórn fara í stríð við það. leiðslu rafmagns úr kjarnorku. Þetta magn svarar til þess sem þarf til að búa til 11 úraníum- sprengjur. Fulltrúi Breta, Nutting, sagði á eftir að brezka stjórnin hefði ákveðið að heimila útflutning á 20 kg af kjarnkleyfu efni í sama skyni. Winston Churchill sagði á þingi í gær, að Bretland væri það land, sem flytti út mest magn af isotópum, sem verða til við framleiðslu kjarnkleyfs efnis. Hefðu 16.000 pantanir á isótópum verið afgreiddar frá Bretlandi á síðustu 7 árum og hefðu farið til 46 landa. Eins og áður segir, lýkur um- ræðunum í stjórnmálanefnd SÞ um kjarnorkustofnun sennilega í dag og er búizt við að Visj- inski verði síðasti ræðumaður, og muni þá gera grein fyrir af- stöðu sovétstjórnarinnar til bandarísku tillögunnar. Miðvikudagur 17. nóvember 1954 — 19. árg. — 262. tölublað % Landvaraarmaðurinii Renedikt Sveinsson látinn Hann andaðist í gærmorgun 7 6 ára að aldri I gærmorgun andaSist Benedikt Sveinsson, hinn þjóð- kunni stjórnmálamaður og ágæti forvígismaður í sjálf- stæðisbaráttu íslendinga, 76 ára að aldri. sonar. Hann gekk í lærða skól- ann í Reykjavík og varð stúd- ent 1901 og cand. phil. ári síð- ar, en tók síðan að gefa sig mjög að stjórnmálum og blaða- mennsku, var einn af stofn- endum Landvarnaflokksins og í ritstjórn blaðsins Landvarnar 1903, ritstjóri Ingólfs 1905—- 1909 og aftur 1913—1915, Fjallkonunnar 1910—1911 og Þjóðarinnar 1914—1915. Á ár- unum 1915—1916 var hann að- stoðarbókavörður í Landsbóka- safni, gæzlustjóri Landbankans 1917, en settur bankastjóri sama banka á árunum 1918— 1921. 1922 var hann ráðinn útgáfustjóri að sögu Alþingis, en 1931 gerðist hann aftur aðstoðarbókavörður í Lands- bókasafni og gegndi því starfi til 1941. Þá varð hann aöstoð- arskjalavörður í Þjóðskjala- safni og hafði þann starfa á hendi um nokkurra ára skeið. Auk þessa voru homim falin margskonar trúnaðarstörf sem of langt yrði hér upp að telja. Hann var m.a. endurskoðandi Islandsbanka í mörg ár, yfir- skoðunarmaður landsreikning- anna 1914—1917, forseti Þjóð- vinafélagsins 1918—1920, bæj- arfulltrúi í Reykjavik 1914— 1920, var skipaður í verðlags- nefnd 1917 og kosinn i öræn- landsnefnd 1925 og í milii- þinganefnd í bankamálum sama ár. Ennfremur átti hann sæti í fullveldisnefnd 1917—1918 og í utanríkismálanefnd 1928— Framhald á 9. síðu. Benedikt Sveinsson. og glæsti framherji í sjálf- stæðisbaráttu þjóðarinnar, Benedikt Sveinsson, fyrrum forseti neðri deildar Alþingis, á 77. aldursári, og vil ég minn- ast hans nokkrum orðum. Benedikt Sveinsson fæddist í Húsavík víð Skjálfanda 2. des, 1877, sonur Sveins Víkings gestgjafa þar Magnússonar bónda og trésmiðs á Víkinga- vatni Gottskálkssonar og Krist- jönu Guðnýjar Sigurðardóttur bónda á Hálsi í Kinn Kristjáns- FramhaldsaSalfundur Æsku- lýSsfylkingarinnar i kvöld Það er í kvöld, sem Æskulýðsfylkingin í Reykjavík. heldur framhaldsaðalfund sinn. Verður fundurinn í Bað- stofu iðnaðarmanna og hefst klukkan 8.30. Þetta verður fyrsti fundurinn frá því að nýja vetrarstjórnin tók MeimingaE- og friðarsamtök ísi. kvenna koffiiiii landsins í fearált- treys ep hernámÍEiu „Fundur í Menningar- og friðarsamtökum ís- lenzkra kvenna, haldinn 10. nóvember 1954, fagn- ar framkominni áslcorun til íslendinga um al- menn mótmœli gegn herstöðvarsamningum við Bandaríki Norður-Ameríku, með pví að krefjast brottflutnings alls erlends hers af landinu. Um leið og fundurinn lýsir stuðningi sínum við undirskriftasöfnun í pessu skyni, treystir hann konum landsins að Ijá pessu máli sitt öfluga lið“. við, og jafnframt sá fyrsti eftir 13. þingið, sem ha'dið var á Akureyri i síðasta mánuði. — Vetrarstarf ÆFR er nú hafið og mun stjórn- in leggja áætlanir sínar fyrir fundinn til umræðu og ákvarðana. Mikil verkefni eru nú framund- an og meginþýðingu hefur. að fé- lagarnir gangi til starfs af kappi og áhuga og láti sig ekki vanta á fundi Fylkingarinnar. Dagskrá fundarins í Baðstofunni á sunnu- daginn er annars þessi: 1. Beikningarnir (Jóhannes Jóns- son). 2. Erindi (Lúðvík Jósefsson, alþingismaður). 3. Upplestur (Ósk- ar Ingimarsson). 4. Félagsmá'aum- ræður (Framsögumenn: Haraldur Jóhannsson forseti ÆF, og Brynj- ó'fur Vi hjálmsson, form. ÆFR). Félagar eru hvattir til að koma fram með hugmyndir sinar á fundinum varðandi hina ýmsu þætti félagsstarfsins og einnig skal brýnt fyrir mönnum að mæta stundvíslega. Undirskriffð kröfuna um uppsögn hervemdarsamningsins

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.