Þjóðviljinn - 21.11.1954, Síða 6

Þjóðviljinn - 21.11.1954, Síða 6
$) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 21, nóvember 1954 tllÓOlílUINN Útgefandi: Sameiningarflokfcur aiþýfiij — Sósíalistaflokkurinn. Ritstjórar: Maernús Kjartansson. Sigurður Guðmundsson (áb.) Fréttastjórl: Jón Bjarnason. Blaðamenn: Ásmundur Sig'urjónsson Bjarni Benediktsson, Guð- mundur Vigfússon, Ivar H. Jonsson. Magnús Torfi Ólafsson. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Rltstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. — Sími 7600 (3 linur). Áskriftarverð kr. 20 á mánuði I Reykjavík og nágrenni; kr. 17 annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið. | Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. r Sigur vinstri aflanna á ' Alþýðusambandsþingi Það er nú komið í ljós, að vonir þær sem allir frjálshuga vinstri menn hafa bundið við yfirstandandi Alþýðusambands- þing, um að það marki tímamót í baráttunni fyrir vinstri sam- vinnu og einingu í verklýðshreyfingunni, muni verða að veru- leika. I fyrradag kom til allharðra átaka í kosningum um for- seta þingsins, þar sem vinstri menn fylktu sér um Hannibal Valdimarsson sem aðalforseta og Gunnar Jóhannsson sem 1. varaforseta, en hægra liðið hafði Hálfdán Sveinsson í kjöri. Unnu vinstri menn glæsilegan sigur í þeim atkvæðagreiðslum svo sem áður hefur verið frá sagt. I gær fór svo fram allsherjaratkvæðagreiðsla um inntöku íðju, félags verksmiðjufólks í Reykjavík. En eins og kunnugt er var Iðju vikið úr Alþýðusambandinu fyrir nokkrum árum af hægri öflunum, sem samtökunum hafa ráðið síðan 1948, og með brottvikningu hennar hugðust tryggja yfirráð sín. Ekki var heldur sparað af þeirra hálfu að gera það sem hægt var, til að hindra inntöku Iðju, þvi eftir að séð var að vinstri menn voru í meirihluta meðal fulltrúa á þinginu, kröfðust andstæðlngarnir allsherjaratkvæðagreiðslu um inntökuna í þeirri von, að í ljós kæmi að þeirra fulltrúar hefðu meiri fjölda kjósenda bak við sig. Og án efa hafa þeir einnig treyst því, að takast mætti að hræða einhverja í slíkri atkvæða- greiðslu, sem fram fer með nafnakalli, og fá þá þannig til að bregðast málstað einingarinnar, og hjálpa til að útiloka félaga sína frá heildarsamtökum verkalýðsins. En allt reyndist þetta árangurslaust. Inntaka Iðju var samþykkt með 152 atkvæðum gegn 141 og þegar talinn var saman fjöldi þeirra kjósenda í verklýðsfélög- unum, er hvor hópur hafði bak við sig kom í ljós, að vinstri menn höfðu 12490 kjósendur, en hinir hægri aðeins 11130. Það má því einu gilda frá hvaða hlið málið er skoðað, hér hafa vinstri öflin unnið sigur á fyllsta lýðræðislegan hátt. Með inntöku Iðju er ekki aðeins verið að bæta fyrir gamalt ranglæti, heldur er nú fullkomlega tryggður sigur vinstri afl- anna á Alþýðusambandsþinginu. Með Iðju bætast 13 fulltrúar i hóp vinstri samfylkingarinnar, svo vonlaust er fyrir aftur- haldsöflin að ætla sér nú að halda yfirráðum í heildarsam- tökum verkafólksins með ráðum eins og brottrekstri Iðju á sínum tíma og öðrum slíkum. En einnig fleira hefur áunnizt við það, að leiðrétta rang- lætið sem Iðja var beitt á sínum tíma. Með því er einnig tryggður öruggur meirihluti vinstri aflanna í Fulltrúaráði verklýðsfélaganna í Reykjavík. Er það vel, að ekki tekst and- stæðingum einingarinnar að halda þar völdum með ráðum og aðferðum eins og þeirrar, er beitt var í Sóknarkosningunum síðustu og mikla eftirtekt vöktu. Þannig er nú sýnt, að sú barátta, sem háð hefur verið und- anfarin ár, og náð hefur hámarki á s.l. sumri og hausti í kosn- ingunum til þessa þings, hefur borið heillarikan árangur. Enda munu flestir sammála um að áhrifa hennar muni gæta fljót- lega á víðara vettvangi. Þessi árangur sýnir, að rétt er það, sem Sósíalistaflokkurinn og Þjóðviljinn hefur haldið fram, að sívaxandi hluti verkalýðsins gerir sér ljóst hve nauðsynlegt er, að frelsa samtök sín undan öllum áhrifum andstæðinganna, sem einir græða á sundrungu hans. En þessir atburðir allir sem gerzt hafa hin síðari ár, eiga einnig að minna okkur á það, að vera sífellt á verði í þessum málum, og gæta þess vel, að ekki komi það aftur fyrir, að hin dýrmætu heildarsamtök komist undir andstæðinga yfirráð. Það er ekki nóg að heyja harða baráttu fyrir frelsun félagslegra verðmæta úr höndum andstæðinga, og vinna sigur í þeirri bar- áttu, nema þess sé jafnframt gætt að vernda hin unnu verð- mæti. En bezta ráðið til þess er að leggja gömul deilumál á hilluna og byggja samtökin eingöngu upp sem félagslegt afl til framfara hinum vinnandi fjölda, bæði hagsmUnalega og menningarlega. Arfur oí> skylda 1 Alþýðublaðinu, 30. maí 1906, er flutt þessi fregn: Verkmannaíélaff er nýstofnað á Isafirði og gengu lög þess í gildi 12. þm. „Meðlimir fé’agsins eru á 5. hundrað að sögn“ — er okkur skrifað að vestan. — Vinnutími er ákveðinn 10 stund- ir é dag (við daglaunavinnu), kaup karlmanna 3 kr. á dag, kvenmanna 2 kr. 1 „eftirvinnu" eiga karlmenn að taka 35 aura og kvenmenn 25 aura um tím- ann. Á helgum dögum miklu meira. Enn sem komið er hefur félagsstofnun þessi gengið dável þrátt fyrir megnan andróður bæði leynt og ljóst af kaup- manna hálfu. Þeim er það varla láandi, þeir eru því vanastir að tútna út' eins og belgir ef al- þýðan reynir eitthvað að bæta kjör sín. En þrátt fyrir þa.ð mun félagið lifa og blómgast, ef verk- menn eru samhuga og samtaka um það, að draga veldissprotann úr höndum kúgarans — auð- valdsins. Með þeirri samheldni stendur og feliur félagið en ekki fyrir aðstoð auðkýfinga, enda er þá vel farið." Það er einkennilegt atriði og lofsvert sérstaklega, að þetta fé- lag virðist vera gert, jafnt fyrir karlmenn og kvenfólk. Hvernig lýzt ykkur á það „Reykvíking- ar?“ — Hugsið ykkur nú um. Við biðum eftir svarinu og sækj- um það svo seinna við tæki- færi.“ „I Þjóðviljanum“ 18. júlí 1906 er frásögn höfð eftir formanni vepkmannafélagsins. Hann rekur fyrst launa- kröfur þær sem félagið gerði, en segir svo: Meðan verið var að koma fé- laginu á laggirnar og gera sam- þykktir þær, sem nú hefur ver- ið getið, var áhugi félagsmanna mjög mikill, ekki sízt hjá kven- þjóðinni, og auglýsti félagið síð- an að félagsmenn tækju eigi að sér daglaunavinnu með öðrum kjörum en samþykktir fé'agsins ákvæðu. En er kom til aðalatvinnuveit- endanna á Isafirði (verzlun Á. Ásgeirssonar, Edinborgar og Le- onh. Tangs) neituðu forstöðumenn verzlana þessara að taka nokk- um mann í vinnu, er í verk- mannafélaginu værí og liefði gengizt imdir samþykktir þess. Nú reyndi þvi þegar á stað- festu, þrek og félagslyndi verk- manna. Atvinnurekendur höfðu eigi annað verkafó’k en fáeina bæj- arbúa er eigi voru í félaginu, nokkra aðkomumenn og — hóp af krökkum, og var það þegar :ílls viti fyrir verkmannafélagið, að ýmsir félagsmenn voru svo grunnhyggnir, að ljá börn sín í vinnuna, töldu sér það heimilt, þar sem samþykktir félagsins höfðu eigi gert ráð fyrir sliku. Engu að Síður má þó telja mjög sennilegt að atvinnuveit- endur hefðu ekki þolað mátið til lengdar, og líklega eigi leng- ur en til hvitasunnu, ef fé’ags- menn hefðu eigi smám saman farið að tínast úr félaginu, fleiri og færri daglega, og eftir hvíta- sunnu mátti heita að allt kæm- ist á ringulreið, og að fjöldi manna gengi þá i vinnu upp á „gömlu kjörin“ enda þótt verk- mannafélagið standi enn að nafninu. Sást þvi hér, sem oftar, hversu fer er félagslyndið brest- ur, enda má og vera að félagið hafi spennt bogann heldur hátt í byrjuninni, þar sem félags- menn höfðu engan viðbúnað haft, áttu t. d. engan sjóð, til þess að geta létt undir með iþeim, er mest voru við því bún- ir, að geta þolað atvinnuleysið, er af vinnuteppunni leiddi." Og lóks: 21. febr. 1907 seg- ir í „Vestanpósti frá frétta- ritara Alþýðublaðsins á ísa- firði“: „Enginn minnist á verkmanna- félagið." ★ Milli þessara þriggja blaða- fregna hefur gerzt mikill harmleikur. Hvað gerðist áð- ur en menn fóru að tínast úr félaginu, sem fór svo vel af stað. Hvað gerðist í hugum ísfirzkra verkamanna, á heim- ilum þeirra, áður en kaup- mannavaldinu tókst að berja félagið niður? Og þetta er ekki reynsla sem einskorðuð er við fyrstu spor alþýðusamtakanna á Isafirði. Harmleikurinn sem þar gerðist hefur mætt á mörgum þeim íslending, sem enn eru í fullu fjöri. Og reynslan er ekki heldur ein- skorðuð við Island, hún er sameign alþýðufólks í öllum löndum, þess fólks sem risið hefur úr örbirgð og kúgun og ætlar sér hvorki meira né minna en að skapa nýjan og betri heim. Á það var minnt hér í blað- inu á sunnudaginn var, hve hatramlega menn auðs og valda á íslandi börðust gegn Bárufélögunum, hinum þrótt- uga frumgróðri íslenzkra verkalýðssamtaka. Þau sömu öfl voru að verki á ísafirði 1906 og við þau hafa al- þýðusamtökin á íslandi alltaf átt í höggi við hvert fótmál vegferðar sinnar. I allri við- leitaá alþýðunnar til bættra kjara hefur þurft að berjast við öfl auðs og valda, þau öfl sem síðustu áratugi hafa einkum liaft Morgunblaðið, Isafold og Vísi að áróðurs- vopni gegn alþýðusamtökun- um, auk vopna ofsókna, at- vinnukúgunar og hverskonar valdbeitingar gegn einstak- lingum og heilum verkalýðs- félögum. ★ Það var gengið beint fram- an að verkalýðsfélögunum meðan þau voru ung og ein- angruð, menn auðs og valda, ísfirzku kaupmennirnir og stéttarbræður þeirra, fóru ekki dult með það að þeir ætl- uðu að kæfa vorgróður al- þýðusamtakanna hvað sem það kostaði, og var engu til sparað. Hver lítill hreppa- kóngur, hver lítill ÍBogesen í kauptúnum Islands fann að arðráni hans, skefjalausri auðsöfnun og valdi, gat verið hætta búin, ef alþýðufólkið fengi að efla samtök, rétta úr bakinu, finna til manngildis sins. Samt hefur verkalýðshreyf- ingin þokazt nær markinu, eftir sex áratuga þrotlausa og óslitna baráttu er hún orð- in eitt sterkasta aflið í ís- lenzku þjóðfélagi. Hún hefur eflt svo samtökin og þjálfað liðsmenn sína, að á fáum ár- um gætu alþýðusamtökin á Islandi orðið sterkast þjóð- félagsafl með íslendingum, gæti tekið um stjórnvöl ís- lenzka ríkisins og stýrt því til hagsbóta hinu vinnandi fólki til sjávar og sveita. ★ Enn má segja að reginafl íslenzkra alþýðusamtaka fái ekki notið sín. Enn skortir á vitund þeirra um afl sitt og markmið. Enn er alþýðan sundruð, jafnt í verkalýðsfé- lögum og í stjórnmálasam- tökum sínum. Einmitt ósamþykkjan innan raða alþýðunnar lamar afl hennar og veikir trúna á sigurmátt hennar. — Og arf- takar ísfirzku kaupmann- anna sem þykir óárennilegt í seinni tíð að ganga beint framan að verkalýðssamtök- unum, eins og þeir gerðu meðan félögin voru ung og einangruð, setja nú alla sína von á sundrung alþýðunnar. Menn Morgunblaðsins og Vís- is lærðu það af Hitler og bandarískum gangstervínum að liægt er að misnota verka- lýðsfélög, jafnvel blekkja meirihluta verkalýðsfélags til fylgis við verstu fjandmenn alþýðusamtakanna. Því hefur. barátta þeirra meir og meir beinzt að því að lama verka- lýðshreyfinguna innan frá, koma þjónum sínum þar til valda, spila á sundrung al- þýðunnar og nota liana til að lyfta sér upp í þá stjórn, sem ætti að skipa reyndustu og beztu baráttuleiðtogum al- þýðunnar, stjórn Alþýðusam- bands íslands. ★ Er ekki nóg komið? Er* ekki kominn tími til að menn alþýðusamtakanna, menn al- þýðuflokkanna, taki höndum saman og láti einingu og heils hugar samstarf virkja regin- afl alþýðusamtakanna í stór- sókn til bættra kjara, sókn til þess valds sem alþýðu landsina ber? Er ekki að verða óum- flýjanleg nauðsyn að skoð- anamunur um liðna atburði í sögu hreyfingarinnar verði ekki látinn aftra því, að ein- mitt nú taki allir einlægir verkalýðssinnar höndum sam- an til lausnar brýnna verk- efna? Sagan mun dæma um þau ágreiningsmál, og við get- um haldið áfram að hafa um þau ólikar skoðanir. En rétt- lætir sá skoðanamunur fram- haldandi bræðravíg innan verkalýðshreyfingarinnar? Réttlætir hann framhald þeirrar sundrungar sem lyfti þjónum afturhalds, auðs og kúgunarvalda upp í trúnaðar- stöður alþýðusamtakanna? ★ Nú í sumar hefur hvert verkalýðsfélagið eftir annað svarað þessum spurningum. Svar þeirra er einbeitt og afdráttarlaust, í hverju- fé- laginu af öðru hafa menn al- þýðuflokkanna tekið höndum Framhald á 11. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.