Þjóðviljinn - 21.11.1954, Blaðsíða 11
Sunnudagur 21. nóvember 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (11
AKFUK OG SKYLDA
Framhald af 6. síðu.
saman og bundið það fast-
mælum að vinna saman, koma
á heilsteyptri stjórn í heild-
arsamtökum verkalýðsfélag-
anna, og að útiloka þar áhrif
afturhalds og auðmanna,
hefja saman nýja sókn al-
þýðuaflanna í landinu, hvað
sem liði fyrri ágreiningi og
skoðanamun um einstök atriði.
Og þessi vilji er ekki ein-
skorðaður við verkalýðsfélög-
in, við hin faglegu samtök
alþýðunnar. í báðum alþýðu-
flokkunum glæðist ört skiln-
ingur á nauðsyn þess, að
einnig á stjórnmálasviðinu
sameini alþýðan krafta sína
til nýrrar sóknar svo fólkið í
landinu geti öðlazt nýja von,
nýtt traust á stórsigrum al-
þýðusamtakanna í nálægri
framtíð. Einmitt eining alþýð-
unnar skapar skilyrði fyrir
stórsókn og stórsigra. And-
spænis hinum ískyggilegu
fyrirætlunum Sjálfstæðis-
flokksins um flokkslega
valdatöku, má alþýðan ekki
standa sundruð og dreifð.
Þeir rösklega 300 trúnaðar-
menn verkalýðsfélaga lands-
ins sem nú sitja hið 24. Al-
þýðusambandsþing, geta gert
stórt átak til að skapa einingu
alþýðúnnar á íslandi. Gefi
þeir Alþýðusambandi íslands
öfluga, samhenta forystu,
kjósi þeir Alþýðusambands-
stjórn sem byggi afl sitt á
samstöðu alls„-hins sterkasta
og heilbrigðasta í verkalýðs-
hreyfingu landsins, vinna þeir
afrek, sem valdið getur þátta-
skilum í sögu íslenzkra al-
þýðusamtaka.
Gagnvart þeirri sögu ber
hver fulltrúi á Alþýðusam-
bandsþingi þunga ábyrgð. Það
er ekki einungis ábyrgðin
gagnvart svo óhlutkenndu fyr-
irbæri og sögu alþýðusamtak-
anna, heldur djúp og örlaga-
rík ábytgð gagnvart lifandi
fólki, börnum íslenzkrar al-
þýðu sem taka eiga við arf-
inum úr höndum okkar, djúp
og örlagarík ábyrgð gagnvart
framtíð hvers íslenzks manns,
íslenzku þjóðarinnar allrar.
Hver heiðarlegur fulltrúi á
þingi Alþýðusambands Is-
lands hlýtur að vera minn-
ugur þess mikla arfs er hann
(•• í
hefur hlotið frá þeim mönn-
um, sem í sex áratugi hafa
staðið í stormum og bar-
áttu alþýðusamtaka á Islandi.
Minnugur þess, að við höfum
ekki einungis erft ávinning-
inn af dýrkeyptum sigrum
þeirra, heldur einnig þá dreng-
skaparskyldu að láta ekki
fórnir þeirra og þrotlaust starf
verða til einskis. Þá dreng-
skaparskyldu .að hefna ósigra
þeirra og sættast aldrei við
þau öfl afturhalds, aúðs og
kúgunar sem verst lék ung-
an vorgróður ■ alþýðusamtak-
anna, sem neyttu aflsmunar til
að níðast á föður okkar og
móður, afa okkar og ömmu.
Sömu öflin og sækja enn að
samtökum verkalýðsins, þó
gerfið sé breytt.
Rísa trúnaðarmenn verka-
lýðsins undir þeirri dreng-
skaparskyldu ? Gefa fulltrúar
24. þings Alþýðusambandsins
alþýðu landsins nýja von,
verður þingið stór áfangi á
vegferðinni til einingar alþýð-
unnar á Islandi?
Því mun svarað í dag, á
morgun.
Sigurður Guðmundsson.
Grænlandsmálið
Framhald af 12. síðu.
Haraldur Guðmundsson var tví-
stígandi að vanda.
En þótt ekki mætti vísa mál-
inu til utanríkismálanefndar
vegna tímaskorts, virtist ekkert
liggja á afgreiðslu málsins og
fer atkvæðagreiðsla ekki fram
fyrr en á morgun.
Benti Einar Olgeirsson á að
sú afgreiðsla væri með ráði gerð.
Úrslítaafgreiðsla innlimunarmáls-
'ins" fer f ram á ' allsherj arþingi
Sameinuðu þjóðahna á morgun.
Með því að draga afgreiðslu Al-
þingis á málinu' þangað til, er
útilokað að koma neinum ýtar-
legum gögnum um álit Alþingis
til fulltrúa íslands á þingi Sam-
einuðu þjóðanna fyrir úrslitaat-
kvæðagreiðsluna.
Nýkomin
góð og falleg
kápuefni
í gráum o.fl. litum.
Amerísk tízkublöð.
Saumastofan
Laugaveg 45, gengið inn
frá Frakkastíg.
J Happdrætti Pjóðviljans verður
^ ekki frestað. I>að verður dreg-
Ið 4. desember,
Bílar til sölu:
Vörubílar:
Ford, Chevrolet, G.M.C.-
„trukkur" og Bedford með
drifi á öllum hjólum.
6 manna bílar:
Chevrolet, Ford, Dodge,
Chrysler, Plymouth, Stude-
baker
4ra manna bílar:
Austin, Renault, Morris,
Skoda og fleiri góðir.
Sendiíerðabílar:
Ford, Renault, Bedford,
Studebaker, Fiat, Dodge og
fleiri bílar; einnig 2 góðir
jeppar.
Bifreiðasala
Hreiðars Jónssonar
Miðstræti 3 A. — Sími 5187
Ég færi öllum, er sýndu mér samúö og vinar-
hug viö fráfall og útför mannsins míns,
ísaks Vilhjálmssonar.
Bjargi, Seltjarnarnesi,
alúöarfyllstu þakkir mínar, barnanna og annarra
vandamanna.
Jólianna Björnsdóttir
Námsmanna-
fargjöld
:
Eins og að undanförnu veitum vér námsfólki af-
slátt af fargjöldum milli landa samkvæmt ákveðnum
reglum, sem gilda þar um.
Ánægjulegasta jólagjöfin til íslenzkra náms-
manna, sem erlendis dvelja, verður án efa flugferð
heim til Islands fyrir jól.
< Allar nánari upplýsingar greiðlega veittar á
skrifstofu vorri.
Flugfélag Islands. h.f.
Aðalfundur
Úivegsmannafélags Reykjavíkur
veróur haldinn kl. 2 í dag e.h. í fundarsal L.Í.Ú.
í Hafnarhvoli.
Fundarejni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin
R0K0K0 HÚSGÖGN
sett og stakir stólar, klæddir
séroínu góbelíni.
Bólsturgerðin
í. Jónsson h.f. — Brautarholti 22 — Sími 80388.
Keflavíkurflugvöllur
■
■
■
■
■
Fundur verður haldinn í Starfsmannafélagi
Keflavíkurflugvallar mánudaginn 22. þ.m. 5
í húsakynnum Sameinaðra verktaka.
■
■
■
Fundurinn hefst kl. 8.30.
■
■
■
■
■
Stjórnin
Þjóðvttjinn
EK BLAÐ ISLENZKRAR AI.ÞVÐU — KAUPIÐ
HANN OG LESIÐ
i i
VA<A<-\<
t-un . 'd. '
S®1
Stórkostleff ai hlutaveltu
heldnr Enattspymufélagið Vaiur í Skátaheimilinu við Snorrabmut klukkan 2 i dag
Sveltur sitjmifU fcráka en fijúgandi fær
1000 kr. í peningum. — Mörg málverk. — Békasafn. — Búsáhöld. — Nokkrar tunnur hráolía. —
iTæIi. — Kol. — Saltfisknr. — Fkgfar. — Nokkur hundmð fet af timbri og margi fleira góðra muna.
mm
Láfið ekki happ úr hendi
ENGIN NtJLL. — VALSVELTAN VINSÆLUST.
Drátturinn 1 kréna. — Enginn aðgangseyrir.