Þjóðviljinn - 18.01.1955, Qupperneq 12
Landssmiðjan átti 25 ára starfsafmœli í gœr. Sjö af járnsmiðum smiðjunnar hafa
starfað þar frá því hún tók til starfá'og áttu því einnig 25 ára starfsafmœli hjá henni
í gœr. Myndin hér að ofan var tekin af þeim í gær, og er Jóhannes 'Loega forstjóri
Landssmiðjunnar með þeim, en eitt afmælisbarnið, Gunnar Helgason vélsmið vantar
á myndina. Á myndinni eru, taldir frá vinstri: Edvald Stefánsson skipasmiðvr, Björn
Jónsson verkstjóri, Guðjón Sigurðsson eldsmiður, Jóhannes Zoega forstjóri, Þorvaldur
Brynjólfsson yfirverkstjóri, Páll Pálsson yfirverkstjóri, Gísli Gíslason bókari.
Sjómenn ræða innheimiu bálagjaldeyrisins
Deilunni vísað til sáttasemjara
Landssamband ísl. útvegsmanna hefur nú til-
nefnt samninganefnd við sjómenn í Vestmanna-
eyjum. Eru 3 þeirra úr Reykjavík, en 2 úr Vest-
mannaeyjum. Formaöur L.Í.Ú. hringdi í fyrradag
til Siguröar Stefánssonar formanns Jötuns og baö
hann ræöa viö nefndarmenn L.Í.Ú. í Eyjum um
þaö aö vísa málinu til sáttasemjara. Hefur sátta-
semjari nú fengið máliö til meöferöar.
Stjórnir sjómannafélaganna voru í gær á fundi
meö lögfræöingi sínum til aö ræöa viö hann inn-
heimtu bátagjaldeyrisins, sem Hæstiréttur dæmdi
útgerðarmenn í Eyjum nýlega til að greiða sjó-
mönnum.
Islenzk saga í víð-
lesnu rússnesku
tímariti
Eitt útbreiddasta tímarit Sov-
étríkjanna Ogonjok birti í 51.
hefti árgangsins 1954 Sögu úr
síldinni eftir Halldór Kiljan Lax-
ness. Þrjár teikningar eftir rúss-
neskan listamann fylgja. Þýðing-
in er gerð af V. Morosoff, úr ís-
lenzku.
Ritstjóri Ogonjok er rússneska
skáldið A. V. Sofronoff sem
hingað hefur komið á vegum
MÍR, og hafa áður birzt í þessu
tímariti hans þýðingar á sögum
og greinum eftir Halldór.
Skákþing Norð-
lendinga hafið
Akureyri. Frá fréttaritara
Þjóðviljans.
Skákþing Norðlendinga var
sett hér í fyrrakvöld. Þátttak-
endur eru 30 í fjórum flokk-
um.
í meistaraflokki eru 9, í I.
flokki 5, í II. fl. 6 og 9 í ungl-
ingaflokki. í meistaraflokki er
keppt um titilinn skákmeistari
Norðurlands.
Guðjón M. Sigurðsson, skák-
meistari Reykjavíkur keppir
sem gestur á mótinu.
MeirihlHti íbúanna innan við Elliða-
ár býr enn við vatnsskort
Búið að leggja vatnsleiðslu um Selásinn
en engar vatnsveituíramkvæmdir enn
í Árbæjarblettum
Enda þótt nokkuð hafi verið unnið að lagningu vatns-
leiðslu um byggöina austan við Elliðaár í haust og vetur
er verkið ekki lengra komið en svo, aö meirihluti íbú-
anna býr enn við algjöran vatnsskort.
Enn sem komið er hafa > farafélag íbúanna, sem nær
framkvæmdir við vatnsleiðslu j bæði yfir Selás og Árbæjar-
þarna takmarkast við byggðina | bletti snúið sér til bæjarráðs
í Se'ásnum en ekkert verið unn- með áskorun um að vatn verði
ið að því að koma vatninu um
Árbæjarblettina. Hefur Fram-
Herðubreið með bilað stýri
í Hornaf j arðarós
einnig lagt um Árbæjarbletti,
þar sem meirihluti íbúanna sé
búsettur.
Bæjarráð ræddi erindi fram-
farafélagsins á fundi sínum 14.
þ.m. en ákvað áður en ákvörð-
un væri tekin að fá 'umsögn
vatnsveitustjóra um málið.
í gær laskaöist stýri strandferöaiskipsins Herðubreiöar
í ís í Hornafjaröarósi og mun þurfa aö aöstoöa skipiö á
leiö hingað til viðgerðar.
Herðubreið var á leið inn I
Hornafjarðarós í gærmorgun, I
um rennuna er grafin var þar
s.l. sumar. I frostunum hefur
töluverður is komið á Horna-
fjörð, en bátarnir hafa haldið
opinni leið út. Herðubreið varð
föst i rennunni og var þá lát-
in fara aftur á bak en við
það rakst stýrið í isjaka og
laskaðist svo að það varð ó-
hreyfanlegt. Lá slripið í csnum
í gær.
Herðubreið var á leið til
Austf.jarða rneð vörur og verð-
ur einhverju af vörum skipað
upp í Höfn í Hornafirði. Fiski-
bátar munu aðstoða Herðu-
breið út úr ósnum, en taiið
er að liún muni einnig þurfa
á aðstoð að halda hingað til
Reykjavíkur.
Vestmannaeyjum. Frá
fréttaritara Þjcðviljans.
Einn bátur fór á sjó liér í
gær með síldarnet og fékk 36
tunnur í hafnarmynninu. 5
bátar lögðu þar síldarnet síð-
degis í gær.
Verðv um einhverja veru-
lega veiði að ræða kemur hún
sér vel því hér er fremur
beitulítið. — Síldin er liafsíld,
stór eii mögur.
þlÖÐVHJINN
Þriðjudagur 18. janúar 1955 — 20. árgangur — 13. tölublað
Fannfergi bannar Orkneying-
um og Suðureyingum alla björg
Samgönguöngþveiti í Kaupmannahöfn
og Málmey
Úrkoma hefur verið geysimikil um vestanverða Evrópu
undanfarna daga og hefur nú víða valdið stórvand-
ræðum.
Norðan til á meginlandinu og
í Bretlandseyjum hefur hlaðið
niður snjó en sunnar hefur rignt
ákaflega.
100 þorp elnangruð
Verst er ástandið á eyjunum
umhverfis Skotland og í Skot-
landi norðanverðu. Á Orkneyjum
er enginn vegur fær vegna fann-
kyngis. Víða er matur handa
mönnum og fóður handa skepn-
um að þrjóta.
Á Suðureyjum eru 100 þorp og
þau eru öll með tölu algerlega
einangruð. Geta eyjarskeggjar
enga björg sér veitt.
Bæði frá Orkneyjum og Suður-
eyjum hafa borizt beiðnir um
að skip eða helikopterflugvélar
verði send með matvæli.
Borgir lamaðar
í fyrrinótt og frameftir degi í
gær var sótsvartur bylur í Dan-
mörku og á Skáni í Svíþjóð. f
borgunum Kaupmannahöfn og
Mólmey fennti svo að samgöngur
um þær tepptust. Sporvagnar og
strætisvagnar komust ekki leið-
ar sinnar og tugþúsundir manna
komust ekki í- vinnu í gærmorg-
un.
Flóð í Rín og Signu
í Frakklandi og Vestur-Þýzka-
landi hefur verið hléka og
vöxtur hlaupið í ár. Signa og
Marne eru þegar teknar að
flæða yfir bakka sína og í París
hefur verið gripið til neyðarráð-
stafana vegna flóðahættu.
í Vestur-Þýzkalandi er hætta á
flóðum í dölum ánna Rín, Dónár,
Mosel, Neckar og Saar. Vöxtur
er svo mikill í Rin að tekið er
að flæða inn í hús í lægstu
hverfum borganna Köln, Kob-
lenz, Bonn, Duisburg og Dússel-
dorf.
Tvei ferezkir sjómenn brutust inn
í \m verzlanir í fyrrinótt
Stálu leikföngum, úrum og skartgripum,
en lögreglan hafði hendur í hári þeirra
Tveir sjomenn af brezku veðurathuganaskipi, sem ligg-
ur hér í Reykjavíkurhöfn, brutust í fyrrinótt inn í veral-
unina Liverpool í Hafnarstræti og þvínæst inn í úra- og
skartgripaverzlun SigurÖar Tómassonar viö Skólavöröu-
stíg. Götulögreglan komst þó brátt á slóö þeirra, og hef-
ur þýfiö aftur fundizt. ^
' Það var rétt fyrir kl. 3 í
fyrrinótt, sem götulögreglunni
barst tilkynning um að brotinn
hefði verið sýningargluggi í
verziun Sigurðar Tómassonar
við Skólavörðustíg. Brá lög-
reglan skjótt við, og komst á
slóð manns er hljóp niður
Klapparstíg og síðan inn
Hverfisgötu. Dró hún manninn
þar uppi, og fannst á honum
nokkuð af úrum, klukkum og
skartgripum. Litlu síðan fann
lögreglan félaga mannsins, er
tekið hafði þátt í innbrotinu
með honum. Hafði hann á leið
sinni frá verzluninni slætt
Ffamhald á 3. síðu.
Jón Axel Pétursson forstjóri Bæj- j
arútgerðar Reykjavíkur og
meðlimur í F LB. j
kaus í Sjómannafélagi Rftykja\íkur í fyrradag. Sjó-
menn, fellið stjórn forstjóra, hreppstjóra, skósmiða, j
sútara, skífuiagningameistara o. fl.
Kjósið B-lista, lista starfandi sjótnanna. Kosning fer
fram daglega í skrifstofu Sjómannafélags Reykjavikur :
frá klukkan 10 til 12 og 3 til 6.
I