Þjóðviljinn - 26.01.1955, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 26.01.1955, Blaðsíða 1
VILIINN WB 9 wwjM u mW ii Miðvikudagur 26. janóar 195o — 20. árgangur —* 20. tölublað Kcuningar í Japan 27. febrúar Japanska stjórnin tilkjmnti £ gær, að nýjar kosningar til neðflí deildar þingsins skyldu far£ fram 27. febrúar. Boðskapur Eisenhowers hót- unumárásámeginland Kína Andstaða í öldungadeiidinni gegn því að gefa forsetanum frjálsar hendur Boðskap Eisenhowers forseta til Bandaríkjaþings í fyrradag er hægt að skilja sem dulbúna hótun um árás á meginland Kína, segir annað mikilsvirtasta borgarablað Bretlands. 1 forustugrein segir frjálslynda blaðið Manchester Guardian að boðskapur Eisenhowers sé reg- inskyssa, Beiðni hans um heim- ild til að beita bandarískum her- afla við Taivan sé full af óljós- ■ura orðatiltækjum og vel megi 'leggja í hana þann skilning að um dulbúna ógnun um banda- xíska árás að fyrra bragði á meg- inland Kína sé að ræða. Churchiil og Eden þegja Talsmaður brezka utanríkis- rráðuneytisins neitaði í gær að segja stakt orð um boðskap Eis- «nhowers til Bandaríkjaþings. Adenauer orð- inn hræddur Fréttamenn í Bonn segja að stjórnarfulltrúar Vesturveld- anna í Þýzkalandi og vestur- þýzka ríkisstjórnin séu dauð- skelkuð vegna þeirra álirífa, sem herferð sósíaldemókrata gegn fullgildingu samninganna inn hervæðingu Vestur-Þý/.ka- lands hefur haft. Stjórn Kristilega lýðræðis- -flokksins, flokks Adenauers forsætisráðlierra, hefur verið költuð saman á fund 5. og 6. febrúar. Mun forssetisráðherr- ann koma úr vetrarleyfi sínu til að sitja fundinn. Þar á að leggja á ráð um gagnsókn gegn herferð sósíaldemókrata. Þegar brezka þingið kom sam- an til funda í gær að loknu jólaleyfi, spurði Verkamanna- flokksforinginn Aneurin Bevan, hvort umræða yrði ekki bráðlega um ástandið sem skapazt hefði við Taivan. Steinshljóð var á ráðherrabekknum og þrátt fyrir ítrekaða fyrirspum fékkst ekkert svar, Kvimoj og Matsu Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær með 409 atkv. gegn þremur ályktun þá sem Eisenhower bað um. Er honum þar heimilað að beita bandarísk- um herafla við Taivan og nær- liggjandi eyjar. Hermálanefnd og utanríkis- málanefnd öldungadeildarinnar sátu á stöðugum fundum méð herforingjunum í æðsta herráði Bandaríkjanna. Fréttamenn segja að ýmsir deildarmenn úr hópi demókrata séu tregir til að gefa Eisenhower eins frjálsar hendur og hann vill fá. Eru þeir and- vígir því að Bandaríkin taki að sér að halda fyrir Sjang Kaisék eyjum eins og Kvimoj og Matsu, sem eru uppi í landsteinum við meginland Kina. Fyrir Öryggisráðið Fréttaritarar í New York full- yrða, að í dag muni Nýsjálend- ingurinn, sem er forseti Öryggis- ráðsins þennan mánuð, leggja til að ráðið ræði ástandið við Taivan, þar sem það sé hætta fyrir frlðinn. Holland, forsætisráðherra Nýja Sjálands, hefur verið í Washing- ton uncíanfarna daga á sifelldum fundum með Eisenhower og Dull- es utanríkisráðherra. Tíu skip eru stöðvnð vegna vinnu- deilu S.M.F. og skipafélaganna Samband matreiðslu- 09 framreiðslu- manna ræðir vinnudeiluna á fundi að Röðli klukkan 2 í dag Samband matreiðslu- og framreiðslumanna heldur al- mennan félagsfund kl. 2 í dag aö Rööli. Munu samninga- nefndir beggja aðila skýra þar frá gangi vinnudeilunnar og þeirra samningaumleitana sem fram hafa farið viö fulltrúa atvinnurekenda. Nauðsynlegt er að á þessum fundi mæti þeir meðlimir félags- ins sem vinna á farskipunum sem stöðvuð eru. Tíu skip eru nú stöðvuð hér í Reykjavík vegna kjaradeilunn- ar. Skipin eru þessi: Reykjafoss, Tröllafoss, Tungufoss, Esja, Hekla, Herðubreið, Skjaldbreið, Vatnajökull, Drangajökull og Þyrili. í gær boðaði sáttasemjari nýj- an viðræðufund með aðilum í deilunni. Verður hann haldinn kl. 5 í dag. Fó skilorðs- bundinn dóm Vladimir Dedijer og Milovan Diljas, sem reknir voru úr mið stjórn Kommúnistaflokks Júgó- slavíu, fengu í gær skilorðs- bundna fangelsisdóma fyrir að skaða hagsmurii ríkisins með því að koma áróðri gegn því á fram- færi erlendis. Diljas fékk 18 mánaða dóm, sem fellur niður ef hann brýtur ekkert af sér í þrjú ár, og Dedijer sex mánaða dóm, sem fellur niður eftir tvö ár. Umræðufundur Æskulýðsfylkingarinnar: Getur lýðræði þróazt í ' borgaralegu þjóðfélagi? Æskulýðsfylkingin efnir í kvöld tíl almenns umræðufundaij um efnið: Getur lýðræði þróazt í borgaralegu þjóðfélagi? Máls— hefjendur eru þeir Bjöm Franzson og Björa Þorsteinsson. ÖU«* um er heimill aðgangur, með málfrelsi. Fundur þessi, sem hefst kl. 9 í kvöld, er upphaf fleiri umræðu- funda um pólitísk efni. Er ætl- un Fylkingarinnar að hefja skipulegar þjóðmálaumræður á fræðilegum grundvelli, og er þess að vænta að þeir sem telja bprg- aralegt lýðræði nú þegar eins fullkomið og kostur er láti ekki á sér standa að halda uppi vörn- um fyrir það, en þeir nafnar telja því í mörgu ábótavant sem kunnugt er. Verður að sjálfsögðu algert málfrelsi á fundinum. Allir sem áhuga hafa á þjóð- málum, ekki aðeins dægurmálum heldur einnig dýpri rökum þeirra, ættu að hugsa sig tvisvar um áður en þeir fara eitthvað annað í kvöld en á þennan fund. Björn Franzson RíÖandí lögregla ræðst á mannf jölda uti fyrír þinghúsinu í London Þúsundir fulltrúa hvefja þingmenn til aS snúast gegn þýzkri hervœSingu Til átaka kom út fyrir þinghúsinu í London í gær, þegar lögregluþjónar voru látnir ríða hestum sínum á mahngi-úa, sem þar hafði safnazt saman. Að tilhlutan Brezku friðar- nefndarinnar höfðu vinnustaðir og félög í hundruðum kjör- dæma um allt Bretland kjörið fulltrúa til þess að fara á fund þingmanna sinna og skora á þá að snúast gegn hervæðingu Vestur-Þýzkalands. Ákveðið var að allir fulltrúarnir skyldu koma til London í gær og bera •upp erindi sín. Frábærar undirtektír Áskorun friðarnefndarinnar fékk hvarvetna frábærar und- irtektir og það kom á daginn að fulltrúamir skiptu mörgum þúsundum. Söfnuðust þeir sam- an við þinghússdyrnar og var 150 hleypt inn í einu til að hitta þingmenn. Varnað inngöngu Allt var með kyrrð og spekt þangað til ríðandi lögreglu- Sömu laun fyrir sömu vinnu Brezka ríkisstjórnin tilkynnti í gær, að hún hefði ákveðið að korna á sömu launagreiðslum til karla og kvenna í opinberri þjónustu fyrir sömu störf. Verður breytingunni komið á í áföngum á sex árum. þjónar voru allt í einu sendir fram til að ryðja mannfjöld- anum frá þinghúsinu. Kom þá til átaka og voru allmargir menn handteknir. Hinir, sem meinað var að finna þingmenn sína, fóru fylktu liði eftir Whitehall til Trafalgartorgs þar sem haldinn var útifundur. Árekstur á Saxelfi Bandaríska skipið American Importer, 8000 tonn að stærð, lenti í gærkvöldi í árekstri við sovézkt skip í mynni Saxelfar. Bandaríska skipið stórskemmd- ist og það sovézka strandaði. Reynt að steypa stjórn Paraguay Ríkisstjórnin í Paraguay í Suð- ur-Ameriku tilkynnti í gær, að koniið hefði verið í veg fyrir tilraun ' til að steypa Stressner forseta af stóli. Stressner er hers- höfðingi og náði völdum í maí í fyrra með því að hrekja fyrir- rennara sinn frá völdum með ofbeldi. Þingmenn mótmæla V erkamannaf lokksþingmenn mótmæltu harðlega þeim að- förum að reka fólkið frá þing- húsinu með valdi. Einn þeirra. Parkins að nafni, sagði að ver- ið væri að troða undir hesta- hófum hóp kjósenda sinna, sem hann hefði sérstaklega boðað á sinn fund. Endi bundinn á stríðsástand Forsetar Æðsta ráðs Sovét- ríkjanna gáfu í gær út tilskip- un um að lokið væri stríðs- ástandinu milli Sovétrikjanna og' Þýzkalands, Látin eru I ljós vonbrigði yfir að Þýzkaland skuli enn vera klofið og án friðarsamninga tíu árum eftir að vonpaviðskiptum lauk. Lýst er yfir að því valdi tilraunir Vesturveldanna til að innlima Vestur-Þýzkaland í hernaðar- bandalag sitt. Ollenhauer, foringi sósíal- demokrata í Vestur-Þýzkalandi, sagði í útvarpsræðu í gær að ekki næði neinni átt að full- gilda Parísarsamningana um hervæðingu Þýzkalands án þess að efna fyrst til nýs stórvelda- fundar um sameiningu Þýzka- lands.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.