Þjóðviljinn - 26.01.1955, Qupperneq 1
VILIINN
WB 9 wwjM u mW ii
Miðvikudagur 26. janóar 195o — 20. árgangur —* 20. tölublað
Kcuningar í Japan
27. febrúar
Japanska stjórnin tilkjmnti £
gær, að nýjar kosningar til neðflí
deildar þingsins skyldu far£
fram 27. febrúar.
Boðskapur Eisenhowers hót-
unumárásámeginland Kína
Andstaða í öldungadeiidinni gegn því
að gefa forsetanum frjálsar hendur
Boðskap Eisenhowers forseta til Bandaríkjaþings í
fyrradag er hægt að skilja sem dulbúna hótun um árás
á meginland Kína, segir annað mikilsvirtasta borgarablað
Bretlands.
1 forustugrein segir frjálslynda
blaðið Manchester Guardian að
boðskapur Eisenhowers sé reg-
inskyssa, Beiðni hans um heim-
ild til að beita bandarískum her-
afla við Taivan sé full af óljós-
■ura orðatiltækjum og vel megi
'leggja í hana þann skilning að
um dulbúna ógnun um banda-
xíska árás að fyrra bragði á meg-
inland Kína sé að ræða.
Churchiil og Eden þegja
Talsmaður brezka utanríkis-
rráðuneytisins neitaði í gær að
segja stakt orð um boðskap Eis-
«nhowers til Bandaríkjaþings.
Adenauer orð-
inn hræddur
Fréttamenn í Bonn segja að
stjórnarfulltrúar Vesturveld-
anna í Þýzkalandi og vestur-
þýzka ríkisstjórnin séu dauð-
skelkuð vegna þeirra álirífa,
sem herferð sósíaldemókrata
gegn fullgildingu samninganna
inn hervæðingu Vestur-Þý/.ka-
lands hefur haft.
Stjórn Kristilega lýðræðis-
-flokksins, flokks Adenauers
forsætisráðlierra, hefur verið
költuð saman á fund 5. og 6.
febrúar. Mun forssetisráðherr-
ann koma úr vetrarleyfi sínu
til að sitja fundinn. Þar á að
leggja á ráð um gagnsókn gegn
herferð sósíaldemókrata.
Þegar brezka þingið kom sam-
an til funda í gær að loknu
jólaleyfi, spurði Verkamanna-
flokksforinginn Aneurin Bevan,
hvort umræða yrði ekki bráðlega
um ástandið sem skapazt hefði
við Taivan. Steinshljóð var á
ráðherrabekknum og þrátt fyrir
ítrekaða fyrirspum fékkst ekkert
svar,
Kvimoj og Matsu
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings
samþykkti í gær með 409 atkv.
gegn þremur ályktun þá sem
Eisenhower bað um. Er honum
þar heimilað að beita bandarísk-
um herafla við Taivan og nær-
liggjandi eyjar.
Hermálanefnd og utanríkis-
málanefnd öldungadeildarinnar
sátu á stöðugum fundum méð
herforingjunum í æðsta herráði
Bandaríkjanna. Fréttamenn segja
að ýmsir deildarmenn úr hópi
demókrata séu tregir til að gefa
Eisenhower eins frjálsar hendur
og hann vill fá. Eru þeir and-
vígir því að Bandaríkin taki að
sér að halda fyrir Sjang Kaisék
eyjum eins og Kvimoj og Matsu,
sem eru uppi í landsteinum við
meginland Kina.
Fyrir Öryggisráðið
Fréttaritarar í New York full-
yrða, að í dag muni Nýsjálend-
ingurinn, sem er forseti Öryggis-
ráðsins þennan mánuð, leggja til
að ráðið ræði ástandið við
Taivan, þar sem það sé hætta
fyrir frlðinn.
Holland, forsætisráðherra Nýja
Sjálands, hefur verið í Washing-
ton uncíanfarna daga á sifelldum
fundum með Eisenhower og Dull-
es utanríkisráðherra.
Tíu skip eru stöðvnð vegna vinnu-
deilu S.M.F. og skipafélaganna
Samband matreiðslu- 09 framreiðslu-
manna ræðir vinnudeiluna á fundi að
Röðli klukkan 2 í dag
Samband matreiðslu- og framreiðslumanna heldur al-
mennan félagsfund kl. 2 í dag aö Rööli. Munu samninga-
nefndir beggja aðila skýra þar frá gangi vinnudeilunnar
og þeirra samningaumleitana sem fram hafa farið viö
fulltrúa atvinnurekenda.
Nauðsynlegt er að á þessum
fundi mæti þeir meðlimir félags-
ins sem vinna á farskipunum
sem stöðvuð eru.
Tíu skip eru nú stöðvuð hér
í Reykjavík vegna kjaradeilunn-
ar. Skipin eru þessi: Reykjafoss,
Tröllafoss, Tungufoss, Esja,
Hekla, Herðubreið, Skjaldbreið,
Vatnajökull, Drangajökull og
Þyrili.
í gær boðaði sáttasemjari nýj-
an viðræðufund með aðilum í
deilunni. Verður hann haldinn
kl. 5 í dag.
Fó skilorðs-
bundinn dóm
Vladimir Dedijer og Milovan
Diljas, sem reknir voru úr mið
stjórn Kommúnistaflokks Júgó-
slavíu, fengu í gær skilorðs-
bundna fangelsisdóma fyrir að
skaða hagsmurii ríkisins með því
að koma áróðri gegn því á fram-
færi erlendis. Diljas fékk 18
mánaða dóm, sem fellur niður
ef hann brýtur ekkert af sér í
þrjú ár, og Dedijer sex mánaða
dóm, sem fellur niður eftir tvö
ár.
Umræðufundur Æskulýðsfylkingarinnar:
Getur lýðræði þróazt í '
borgaralegu þjóðfélagi?
Æskulýðsfylkingin efnir í kvöld tíl almenns umræðufundaij
um efnið: Getur lýðræði þróazt í borgaralegu þjóðfélagi? Máls—
hefjendur eru þeir Bjöm Franzson og Björa Þorsteinsson. ÖU«*
um er heimill aðgangur, með málfrelsi.
Fundur þessi, sem hefst kl. 9
í kvöld, er upphaf fleiri umræðu-
funda um pólitísk efni. Er ætl-
un Fylkingarinnar að hefja
skipulegar þjóðmálaumræður á
fræðilegum grundvelli, og er þess
að vænta að þeir sem telja bprg-
aralegt lýðræði nú þegar eins
fullkomið og kostur er láti ekki
á sér standa að halda uppi vörn-
um fyrir það, en þeir nafnar
telja því í mörgu ábótavant sem
kunnugt er. Verður að sjálfsögðu
algert málfrelsi á fundinum.
Allir sem áhuga hafa á þjóð-
málum, ekki aðeins dægurmálum
heldur einnig dýpri rökum
þeirra, ættu að hugsa sig tvisvar
um áður en þeir fara eitthvað
annað í kvöld en á þennan fund. Björn Franzson
RíÖandí lögregla ræðst á mannf jölda
uti fyrír þinghúsinu í London
Þúsundir fulltrúa hvefja þingmenn til aS
snúast gegn þýzkri hervœSingu
Til átaka kom út fyrir þinghúsinu í London í gær,
þegar lögregluþjónar voru látnir ríða hestum sínum á
mahngi-úa, sem þar hafði safnazt saman.
Að tilhlutan Brezku friðar-
nefndarinnar höfðu vinnustaðir
og félög í hundruðum kjör-
dæma um allt Bretland kjörið
fulltrúa til þess að fara á fund
þingmanna sinna og skora á
þá að snúast gegn hervæðingu
Vestur-Þýzkalands. Ákveðið
var að allir fulltrúarnir skyldu
koma til London í gær og bera
•upp erindi sín.
Frábærar undirtektír
Áskorun friðarnefndarinnar
fékk hvarvetna frábærar und-
irtektir og það kom á daginn
að fulltrúamir skiptu mörgum
þúsundum. Söfnuðust þeir sam-
an við þinghússdyrnar og var
150 hleypt inn í einu til að
hitta þingmenn.
Varnað inngöngu
Allt var með kyrrð og spekt
þangað til ríðandi lögreglu-
Sömu laun fyrir
sömu vinnu
Brezka ríkisstjórnin tilkynnti
í gær, að hún hefði ákveðið að
korna á sömu launagreiðslum til
karla og kvenna í opinberri
þjónustu fyrir sömu störf. Verður
breytingunni komið á í áföngum
á sex árum.
þjónar voru allt í einu sendir
fram til að ryðja mannfjöld-
anum frá þinghúsinu. Kom þá
til átaka og voru allmargir
menn handteknir. Hinir, sem
meinað var að finna þingmenn
sína, fóru fylktu liði eftir
Whitehall til Trafalgartorgs
þar sem haldinn var útifundur.
Árekstur
á Saxelfi
Bandaríska skipið American
Importer, 8000 tonn að stærð,
lenti í gærkvöldi í árekstri við
sovézkt skip í mynni Saxelfar.
Bandaríska skipið stórskemmd-
ist og það sovézka strandaði.
Reynt að steypa
stjórn Paraguay
Ríkisstjórnin í Paraguay í Suð-
ur-Ameriku tilkynnti í gær, að
koniið hefði verið í veg fyrir
tilraun ' til að steypa Stressner
forseta af stóli. Stressner er hers-
höfðingi og náði völdum í maí
í fyrra með því að hrekja fyrir-
rennara sinn frá völdum með
ofbeldi.
Þingmenn mótmæla
V erkamannaf lokksþingmenn
mótmæltu harðlega þeim að-
förum að reka fólkið frá þing-
húsinu með valdi. Einn þeirra.
Parkins að nafni, sagði að ver-
ið væri að troða undir hesta-
hófum hóp kjósenda sinna, sem
hann hefði sérstaklega boðað á
sinn fund.
Endi bundinn á
stríðsástand
Forsetar Æðsta ráðs Sovét-
ríkjanna gáfu í gær út tilskip-
un um að lokið væri stríðs-
ástandinu milli Sovétrikjanna
og' Þýzkalands, Látin eru I ljós
vonbrigði yfir að Þýzkaland
skuli enn vera klofið og án
friðarsamninga tíu árum eftir
að vonpaviðskiptum lauk. Lýst
er yfir að því valdi tilraunir
Vesturveldanna til að innlima
Vestur-Þýzkaland í hernaðar-
bandalag sitt.
Ollenhauer, foringi sósíal-
demokrata í Vestur-Þýzkalandi,
sagði í útvarpsræðu í gær að
ekki næði neinni átt að full-
gilda Parísarsamningana um
hervæðingu Þýzkalands án þess
að efna fyrst til nýs stórvelda-
fundar um sameiningu Þýzka-
lands.