Þjóðviljinn - 26.01.1955, Síða 5

Þjóðviljinn - 26.01.1955, Síða 5
Miðvikudagur 26. janúar 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (5 Verkalýður V-Þýzkalands staðráðinn að koma í veg fyrir hervæðinguna Fullfrúar milljón verkamanna I Ba]ern skera upp herör gegn fullgildingu Parisarsamninganna Andspymuhreyíingin. í Vestur-Þýzkalandi gegn her- væSingu landsins verður æ öflugri og að sama skapi vaxa óvinsældir hervæðingarstj órnarinnar í Bonn. Á laugardaginn verður hald- inn fundur í Pálskirkju í Frank furt til að mótmæla hervæðing- unni. Til fundarins er boðað af alþýðusambandi Vestur- Þýzkalands, vesturþýzka sósí- aldemókrataflokknum, Goll- witzer prófessor við guðfræði- deild háskólans í Bonn og fé- lagsfræðingnum prófessor Al- fred Weber. „Eining, friður og frelsi.“ Formaður alþýðusambands- ins, Walter Freitag og leiðtogi sósíaldemókrata, Erich Ollen- hauer, boðuðu til fundarins fyrir hönd samtaka sinna og munu báðir flytja ræður á fundinum. Einkunnarorð fundarins verða „eining, friður og frelsi.“ Sósí- aldemókratar hafa lýst yfir, að þ^ir muni berjast til hins ítrasta til að bægja frá dyr- um þeirri hættu á varanlegri skiptingu Þýzkalands, sem þeir segja að felist í Parísarsamn- ingunum. Einn af talsmönnum flokksins hefur sagt, að fund- urinn á laugardaginn verði há- mark þeirrar víðtæku mót- mælahreyfingar, sem vaxið hef- ur upp gegn samningunum og hervæðingu Vestur-Þýzkalands. Milljón verkamanna í Bajcm. Fulltrúar nálægt milljón fé- lagsbundinna verkamanna í Bajern hafa einróma sam- þykkt að beita sér fyrir enn öflugri baráttu gegn hervæð- ingunni. Á fundi, sem þeir héldu í Miinchen í síðustu viku, samþykktu þeir að stjórn al- þýðusambands Bajern skyldi gangast fyrir þjóðaratkvæða- greiðslu um hervæðinguna og kröfðust, að vesturþýzka al- þýðusambandið efldi baráttu sína gegn hervæðingunni stór- lega. Þessi fimdur var haldinn til að ákveða stefnu verkalýðsfé- laganna í Bajern næstu tvö árin. Stjóm vesturþýzka al- þýðusambandsins var harðlega gagnrýnd fyrir að hafa látið undir höfuð leggjast að fram- kvæma samþykktir þings al- þýðusambandsins í okt. sl. gegn hervæðingunni. Margþætt barátta. 1 ályktun sem samþykkt var einróma'á fundinum var skorað á stjórn vesturþýzka alþýðu- sambandsins að: 1) beita sér fyrir herferð gegn hervæðingunni með funda- höldum, kröfugöngum, vegg- spjöldum og á annan hátt; 2) gefa út sérstakt dreifirit, þar sem lýst sé hvaða afleið- ingar myndu verða af her- væðingunni og birta greinar þess efnis í blöðum verkalýðs- félaganna; Þekktn ekki þjóðsönginn Hræðileg mistök urðu í sið- ustu viku á árshátíð ensk- belg- íska félagsins í London. Þegar hljómsveitin hóf að leika belg- íska þjóðsönginn héldu gestirn- ir margir hverjir að nú væri ballið byrjað og sveifluðu sér út á gólfið. Það kom heldur en ekki fát á dansfólkið þegar það varð þess vart að belgiski sendiherr- ann, Alain Duparc-Locmarin markgreifi, og starfsfólk sendi- ráðsins stóð teinrétt í kveðju- stellingum. Pörin námu staðar og tókú sér stöðu þar á dans- gólfinu sem þau voru stödd. 3) láta fara fram leynilega atkvæðagreiðslu meðal 6 millj- ón félaga í vesturþýzka al- þýðusambandinu; 4) senda bænarskrár til sam- bandsþingsins og fylkisþinga; 5) skipuleggjá þjóðaratkv,- greiðslur um alít sambands- lýðveldið (Vestur-Þýzkaland); j 6) gangast fyrir fundum og ráðstefnum verkalýðsfélaga til að leiða í ljós andspymuna gegn hervæðingunni; | 7) beita sér gegn öllum bre>dingum á stjórnarskránni, sem mundu koma í veg fyrir að menn gætu hafnað herþjón- ustu af trúarlegum ástæðum. Kveðja frá Austur- Þýzkalandi. ' Forseti fundarins, Lorenz Hagan, las upp ámaðarskeyti sem fundinum hafði borizt frá I verkalýðsfélögum í Austur- j Þýzkalandi og var skeytinu j fagnað mjög af fundarmönn- i um. Ummæli danskra fréttaritara í Bonn. Fréttaritarar tveggja stærstu blaða Danmerkur, Politiken og Berlingske Tidende, segja að andstaðan gegn hervæðingunni fari stöðugt vaxandi í Vestur- Þýzkalandi. Fréttaritari Poli- tikens í Bonn segir m. a.: „Andspyman gegn hervæð- ingu Vestur-Þýzkalands er að verða að hreyfingu, sem nær til sífellt fleiri samtaka, stjórn- mála- og verkalýðsfélaga, menningar og kirkjusamtaka. Áhyggjur’ vesturþýzku stjórn- arinnar út af þessari lu-eyfingu verða stöðugt meiri og áfram- haldandi vöxtur hennar mun geta orsakað nýjar andstæður, áður en i sambandsþingið tekúr endanlega afstöðu til fullgild- ingar Parísarsamninganna í næsta mánuði." Baráttan vex með hverj- um degi. Fréttaritari Berlingske Tid- ende kemst að sömu niðurstöðu og segir m. a.: „Barátta vesturþýzku verka- lýðshreyfingarinnar og sósíal- demókratanna fer vaxandi með hverjum degi. Öll lögleg ráð, að undantéknu allsherjarverk- falli, verða nú notuð til að reyna að hindra á siðustu stundu, að Parísarsamningam- ir verði fullgiltir, áður en reyndir hafa verið nýir samn- ingar við Sovétríkin um sam- einingu Þýzkalands." Blekkti viðskipta- vinina með speglum Eigandi tízkuverzlunar í New York hefur verið sóttur til saka fyrir að pretta viðskiptavini sína. Það er kona sem í hlut á og hafði hún komið fyrir í salar- kynnum sínum speglum, sem voru þannig slípaðir að allir sem í þá litu virtust hærri og grennri en þeir eru í raun og veru. Viðskiptavinir mátuðu kjóla og þegar konurnar litu í speglana urðu þær stórhrifnar af því, hve flíkurnar gerðu þær spengilegar. Vörurnar runnu út hjá prettakerlingunni þótt hún seldi þær á okurverði. Engen Tarle láíiffin Hinn víðkunni sovézki sagn» fræðingur, Eugen Tarle, félagt í vísindaakademíu Sovétrikj- anna, lézt í Moskva fyrir nokkr um dögum, 81 árs að aldri. Hann hafði lengi verið sjúkur. Tarle, sem var heiðursdokto? við háskólana í Alsír og París, ritaði mörg merk sagnfræðirit um dagana. Hann lagði einkmr. stund á sögu frönsku bylting- arinnar og tímana eftir hani og hefur bók hans um Napól- eon verið gefin út mjög viða, um heim. Tarie var einn af ritstjórurs. hins mikla verks sem gefið var út í Sovétríkjunum um „Sögtr; diplómatísins" og fékk þá mik- inn áhuga á samtímastjórnmál- um og sögu og ritaði mikina f jölda greina í dagblöð og tíma- rit. Síðasta blaðagrein hans birtist í desember og fjallaðíi um vináttusamning Frakklandss og Sovétríkjanna, sem hanm sagði að liefði orðið til fyrii? „sögulega nauðsyn" og a$ „hugmyndir þessa samnings hlytu að sigra.“ l Manndauði eykst í réttu hlutfalli við reykingar Samband milli sígarettureykinga og hjartasjúkdóma talið íullsannað ÞaS er nú talið fullsanna'ö, aö samband sé á milli tóbaksreykinga og hjartasjúkdóma. 1 brezka læknatímaritinu Medical Journal er því haldið fram, að rannsóknir brezkra og bandarískra vísindamanna hafi sýnt að svo sé. Sambandinu milli reykinga og hjartasjúkdóma hefur verið veitt minni athygli en milli reykinga og lungnakrabba, segir tímaritið, en enginn vafi er á því að um augljóst töl- fræðilegt samhengi er að ræða. Manndauði eykst í hlutfalli við sígarettureykingar. Blaðið vitnar í rannsóknir á manndauða sem brezkir læknar hafa gert að undanförnu og rannsókn á 190.133 karlmönn- um á aldrinum 50-69 ára, sem bandaríska krabbameinfélagið lét gera. Um hina bandarísku rannsókn segir blaðið: Merkasta niðurstaða þessarar rannsóknar var sú, að mann- dauðinn almennt, allar dánar- orsakir meðtaldar, var veru- lega meiri innan hvers aldurs- flokks meðal reykingamanna en þeirra sem ekki reyktu, og að manndauðinn varð meiri eftir því sem dagleg sígarrettu- neyzla var meiri, að elztu ald- ursflokkunum undanteknum. Það liðu tíu ár milli pess að pessar myndir voru teknar á sama stað í vesturpýzkri. porpi. Á myndinni til hægri sést bandarísk kjarnorkubyssa á leið um porpið, en t:£ vinstri sjást hermenn Hitlers á leið til víg stöðvanna árið 1944. 'í*SjŒ W

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.