Þjóðviljinn - 01.02.1955, Qupperneq 1
Iðja í Hafnarfirði
segir upp
Iðja félag verksmiðjufólks í
Hafnarfirði hélt félagsfund s. 1.
fimmtudag og samþykkti þar
að segja upp samhingum fé-
lagsins við atvinnurekendur.
Verkamannafélag Akureyrarkaupstaðar:
Stfórnmálaleg einfng leiðin til
að tryggja rétt alþýðustéttanna
Skorar á Alþý&usambandiS a3 beita sér fyrir
stjórnmálabandalagi verkalýSsflokkanna
Stjórn Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar var einróma
kjörin s.l. sunnudag. Samþykkti aðalfundurínn að segja upp
samningum félagsins og ennfremur samþykkti hann eftirfar-
andi ályktun:
„Aðalfundur Verkamannafélags Akureyrarkaup-
staðar, haldinn 30. jan. 1955, telur að reynsla síð-
ustu ára og viðbrögð núverandi ríkisstjómar við
fyrirætlunum verkalýðss'amtakanna um kjarabætur,
í nauðvörn vaxandi dýrtíðar og hrakandi lífskjara,
sanni að fullur árangur af kjarabaráttu verkalýðs-
stéttarinnar verði því aðeins tryggður að henni sé
fylgt eftir með stjórnmálalegri einingu allra þeirra
afla sem samleið eiga með alþýðunni og samtökum
hennar.
Telur fundurinn að Alþýðusambandi íslands beri
að vinna að því að koma á stjórnmálabandalagi með
verkalýðsflokkunum og öðrum sem til greina geta
komið, með það takmark fyrir augum að tryggja
hagsmuni alþýðustéttanna á löggjafarþingi þjóð-
arinnar." .
Verkamannafélag Akureyrar-
kaupstaðar hélt aðalfund sinn
Færeyskir
sJ
sjómenn
semj’a
s. 1. sunnudag. Fullt samkomu-
lag var innan uppstillingar-
nefndarinnar og var stjórnin
einróma kjörin. Stjórn skipa
þessir menn:
Björn Jónsson formaður,
Þorsteinn Jónatansson vara-
formaður, Stefán Aðalsteinsson
ritari, Svavar Jóhannesson
gjaldkeri, Torfi Vilhjálmsson
varagjaldkeri. Meðstjórnendur
Gunnar Aðalsteinsson og
Sverrir Georgsson.
Björn Jónsson
formaður Verkamannafélags
Akureyrarkaupstaðar.
ig þær breytingar á félagslög-
unum að félagssvæðið nái nú
einnig yfir Glæsibæjarhrepp —
sem sameinaðist Akureyri um
síðustu áramót. 1 félaginu í
Giæsibæjarhreppi munu hafa
verið nokkuð á annað hundrað
manns.
Verkamannafélag Glæsibæj-
arhrepps hélt einnig aðalfund
sinn í gær og samþykkti aðal-
fundurinn að Verkamannafélag
Glæsibæjarhrepps sameinaðist
Verkamannafélagi Akureyrar-
kaupstaðar.
Liggur við að bandalag
Arabaríkjanna klofni
Við liggur að bandalag Arabaríkjanna splundrist
vegna þess að Irak hefur ákveðið áð ganga í hernaðar-
bandalag við Tyrkland.
Forsætisráðherrar allra
bandalagsríkjanna nema Iraks
sátu á fundum í Kairó alla síð-
ustu viku. í gær lagði fjögui-ra
manna sendinefnd af stað það-
an til Bagdad, höfuðborgar
Iraks. Eiga fjórmenningarnir
að gera síðustu tilraun til að
forða klofningi.
Iraksstjórn liefur lýst yfir,
að hún muni ekki aðeins gera
hernaðarbandalag við Tyrk-
land heldur einnig Iran, Pakist-
an, Bandaríkin og Bretland.
Þegar utanríkisráðherra Iraks
Umdeild sýning
opnuð bráðum
Þjóðviljinn hefur fregnað að
Reykvíkingum muni gefast
kostur á að sjá hina marg
umdeildu Bómar-sýningu ís-
lenzkra listamanna.
Verk þau er send verða á
sýninguna munu verða til sýn-
is í Listamannaskálanum nú í
vikunni. Hvenær sýningin verð-
ur opnuð mun ekki afráðið
enn.
Fyrir skömmu voru mikil
blaðaskrif um sýningu þessa
og þarf því ekki að draga í
efa að Reykvíkingar verða
„spenntir“ að sjá verkin sem
send verða.
skýrði frá þessu i Kairó lýsti
Nasser, forsætisráðherra, Eg-
yptalands, yfir að þetta væri al-
gert brot á sáttmála Araba-.
bandalagsins og það myndi líða
undir lok ef Irak færi sínu
fram.
Aftöhwm mét-
mœlt
í gær voru hengdir í Kairó
gyðingar tveir, kennari og skurð-
læknir. Voru þeir fyrir nokkrum
dögum dæmdir til dauða fyrir
njósnir í þágu ísraels. Sharett
forsætisráðherra Israels, sagði á
þingi í gær að menn þessir hefðu
verið dæmdir fyrir lognar sakir.
Aftaka þeirra hlyti að vekja með
öllum siðuðum mönnum viðbjóð
á egypzkum stjórnarvöldum.
Bóla breiðisl
um Frakkland
Stórabólan sem kom upp á
Bretagneskaga á Frakklandi
fyrir skömmu er orðin að far-
aldri. Hafa 50 menn dáið og
73 liggja þungt haldnir. Heil-
brigðisyfirvöldin hafa skorað
á alla Frakka að láta bólu-
setja sig sem skjótast. Veikin
barst með liermanni, sem kom
úr herþjónustu í Indó Kína.
Sjópróf út af strandi Egils
rauða hófust hér í bæ í gær
Skýrslur voru jbó teknar af skipstjór-
anum og tveim fœreyskum hásetum
í gærmorgun hófust hér í Reykjavík sjóferöapróf
vegna strands togarans Egils rauöa undir Grænuhlíö s.l.
miövikudag. Voru þrír skipverjar á togaranum yfirheyrð-
ir í gær, þ.á.m. skipstjórinn. Sjóprófunum veröur haldið
áfram í dag og þá væntanlega tekin skýrsla af fleiri skip-
verjum.
Samningar hafa tekizt í öll-
um aðalatriðum milli Fiski-
mannafélagsins í Færeyjum og
saintaka útgerðarmanna um
kaup og kjör sjómanna á þessu
ári. Samkomulagið er þó bund-
ið því skilyrði að lögð verði
fram hálf önnur milljón króna
af opinbem fé til þess að
tryggja sjóniönnum lágmarks-
kaup ef iila veiðist.
Eitt atriði í samningnum er
að útgerðarmenn gefa Fiski-
maunaféiaginu eftir sekt þá að
upphæð 250.000 krónur, sem
danskur dómstóll dæmdi félagið
í vegna verkfalls sjómanna í
fyrravetur.
—>—— -----————---------
Konst úr snjó-
flóði eftir 8 daga
Sænsk rjúpnaskytta var í
fyrradag grafin úr fönn eft-
ir að hafa legið þar átta
daga. Maðurinn var á veið-
um þegar snjóflóð lenti á
honum og færði hann í kaf.
Var hann svo lemstraður að
hann gat ekki brotizt upp úr
snjónum af eigin ramleik.
Glæsibæjar-félagið gengur
inn sem lieild.
Þá samþykkti fundurinn einn-
Vilja Italíu í Balk-
anbandalagið
Menderes, forsætisráðherra
Tyrklands, og Köpriilii utanrík-
isráðherra eru í opinberri heim-
sókn í Rómaborg og hófu í gær
viðræður við ítalska ráðherra.
Fréttaritarar í Róm segja að fyr-
ir Menderes vaki að telja ítölsku
stjórnina á að gerast aðili að
Balkanbandalagi Grikklands,
Júgóslavíu og Tyrklands.
Taivan rædd
í London
I gær hófst í London ráð-
stefna forsætisráðherra samveld-
islandanna. Fyrstu ræðumenn
voru þeir Churchill og Eden og
ræddu einkum ástandið við Tai-
van. Nehru tók einnig til máls
og gerði grein fyrir áliti sinu á
því, hver afstaða Kínastjómar
væri. Fundurinn mun standa í
hálfa aðra viku.
Réttarhöldin hófust klukkan
10 í gærmorgun og stóðu til
kvölds.
Lét reka
Fyrstur kom fyrir dónjiiui,
skipstjórinn, Guðmundur ísleifur
Gíslason, 30 ára að aldri, Hann
skýrði svo frá, að kl. 13,30 hinn
umrædda dag hefði Agli rauða
verið snúið til lands eftir að
veiðiveður hafði verið athugað.
Klukkústmidu síðar var skipið
stöðvað tæpa eina sjómílu innan
við Rit, réttar 2 sm. frá landi,
en síðan var látið reka. Á með-
an látið' var reka kvaðst skip-
stjóri hafa farið tvisvar upp á
stjórnpall, litið þar út um opna
glugga og séð að skipið rak inn
með Grænuhlíðinni utan við
skip, er þar lágu fyrir iegu-
færum. Lá innsta skipið undan
innrahorni hlíðarinnar (Hvestu).
Kvaðst skipstjóri sérstaklega
hafa athugað afstöðu skips sins
til skipa er þar voru, en í þæði
skiptin hafi sést vel til þeirra.
Á þessum tíma hafi verið hæg-
viðri, nokkur snjókoma og þung-
ur sjór.
\
Ratsjártæki í lagi
Ekki kvaðst skipstjóri hafa séð
ástæðu til að setja ratsjártæki
skipsins í gang þau tvö skipti,
er hann kom upp, þar eð skip
hans hafi verið utan við þau
skip, sem lágu fyrir akkerum
með hlíðinni, og hann hafi vitað
hvar þau voru. Ratsjártækin
voru í fullkomnu lagi. Ekkí kvað
skipstjóri dýpi hafa verið lóð-
að áður en skipið strandaði né
gefið skipun um það, og ekki
hafi verið hafður vörður á hval-
bak.
Framhald á 3. síðu.