Þjóðviljinn - 01.02.1955, Blaðsíða 10
10) _ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 1. febrúar 1955
m
aéQooima
Gljóir wcl A
DrJú«jt /S
4tr«irvlegt
þwqilegl - /Sfr
Erich Maria REMAKQUE:
| Glens og gasnan
elsha • • •
... og deyja
Það
þér
er hræðilegt
bölvið, kæri
43. dagur
hann. „Ég skal gera það næst.“
Liðsforinginn starði á hann. Svo fór hann að brosa.
„Ert það þú Emst!“
Þalð var Lúðvík Wellmann. „Hvað ert þú að gera?
í leyfi?“ spurði hann.
„Já, en þú?“
„Búið. Ég er á leiðinni til baka. Þess vegna er þessi
ferð á mér.“
„Hvernig tókst það?“
„Æ, svona og svona. Næst ætla ég að fara öðru vísi
að. Ég ætla ekki að gera boð á undan mér og vera ann-
ars staðar en heima.“
„Hvers vegna?“
Wellmann gretti sig. „Fjölskyldan, Emst! Foreldrar
mínir! Það er ómögulegt. Þeir eyðileggja allt leyfið fyr-
ir manni. Hvað ert þú búýin að vera lengi?“
„Fjóra daga.“
„Bíddu hægur. Þú sérð bráðum, hvemig það er“.
Wellmann reyndi að kveikja sér í sígarettu. Vindur-
inn slökkti á eldspýtunni. Gráber rétti honum kveikj-
arann sinn. Loginn lýsti andartak upp magurt, ákefð-^,
arlegt andlit Wellmanns. „Þau halda að maður sé barn
ennþá“, sagði hann og saug áð sér reykinn. „Ef þig
langar til að hverfa þótt ekki sé nema eitt einasta
kvöld, færðu ásakandi augnaráð. Þau ætlast til að mað-
ur víki ekki frá þeim. í augum mömmu er ég enn
fimmtán ára. Hún grét allan fyrri hluta leyfisins yfir
þvi að ég var kominn heim — og allan síðari hlutann
vegna þess að ég þurfti að fara burt aftur. Hvað er
hægt að gera?“
„Og pabbi þinn? Var hann ekki sjálfur í fyrra stríði?“
Hann er búinn að gleyma því. Að mestu leyti. í aug-
um pabba er ég hetjan. Hann er hreykinn af mér. Vildi
láta sjá sig með mér. Hann ér eins og forngripur. For-
eldrarnir skilja mann ekki lengur, Emst. Gættu þess
að þínir gleypi þig ekki“.
„Ég skal gæta þess“, sagði Gráber.
„Þau vilja manni vel. Þetta er ekki annað en ást
og umhyggja. En það er einmitt það allra versta. Mað-
ur er alveg varnarlaus. Maður er eins og samvizku-
laus glæpamaður“.
Wellmann horfði á eftir stúlku í ljósum sokkum og
þröngu pilsi. „Leyfið manns fer alveg í súginn“, sagði
hann. „Mér tókst með herkj'um að koma í veg fyrir að
þau fylgdu mér á brautarstöðina. Og ég veit svei mér
ekki nema þau birtist samt sem áður“. Hann hló. „Taktu
þetta- réttum tökum frá upphafi, Ernst. Reyndu að
minnsta kosti að sleppa á kvöldin. Finndu upp á ein-
hverju. Fundum eða einhverju slíku. Skyldustörfum.
Annars verður þitt leyfi eins og mitt og þér finnst
þú vera skóladrengur“.
„Ég býst við að það verði öðru vísi hjá mér“.
Wellmann hristi hönd Grábers. „Ég vona það. Þá
verðurðu lánsamari en ég. Ertu búinn að líta á gamla
skólahrófatildrið?“
„Slepptu því. Ég fór þangað. Það var mesti misskiln-
ingur. Manni verður óglatt. Það er búið að sparka eina
almennilega kennaranum burt. Pholmann, þeim sem
kenndi okkur tniarbragðasögu. Manstu ekki eftir hon-
um?“
„Auðvitað. Ég átti meira að segja að setja mig í sam-
band við hann“.
„Gættu þín! Hann hefur verið settur á svartan lista.
Það er bezt að koma ekki nálægt neinu! Maður ætti
aldrei að fara aftur á neinn stað. Jæja, líði þér vel,
Emst! Lífið er stutt og dýrlegt, ha?“
„Já, Lúðvik. Frítt fæði, ferðir til útlanda og jarðar-
för á kostnað ríkisins“.
„Þú segir nokkuð! Guð má vita hvenær við sjáumst
aftur“. Wellmann hló og hvarf inn í myrkrið.
Gráber gekk áfram. Hann vissi ekki hvað hann átti
af sér að gera. Borgin var dimm eins og gröf. Hann gat
ekki haldið áfram að leita og honum stóð ógn af hinu
langa kvöldi framundan. Hann vildi ekki fara strax í
braggana og ekki heldur til hinna fáu kunningja sem j
hann átti. Hann gat ekki þolað vandræðalega samúð
þeirra og hann vissi að allir yrðu fegnir þegar hann _
færi. j
Hann starði á skörðótt húsaþökin. Hveiju hafði hann j
búizt við? Sælueyju að baki vígstöðvanna? Heimili, j
hvíld, þægindum? Ef til vill. En eyja vonarinnar hafði |
fyrir löngu sokkið hljóðlega í djúp hins tilgangslausa j
dauða, vigstöðvamar voru alls staðar, stríðið var alls j
staðar. Alls staðar, jafnvel í heila og hjarta.
Hann kom að kvikmyndahúsi og fór inn. Það var | Læknirinn: Það var heppilcgt
ekki eins dimmt inni og úti á götunni. Og aö minnsta j að þér skylduð koma til mín
kosti var betra að sitja þama en halda áfram göngunni j núna.
um koldimma borgina, eða setjast inn á drykkjukrá og j Sjúklingurinn: Eruð þér
hella sig fullan. ! kannski veikur, læknir?
Presturinn:
hve mikið
vinur.
Sá blótsami: Já, ég bölva
mikið og þér biðjið mikið —
en í raun og veru meinum.
við ekkert með því.
• Kennari: Er þetta rétt setn-
■ ing:: Ég hellti niður mjólk-
■ ina?
■
« Nemandi: Nei, það var ekki
■ ég sem gerði það.
Kirkjugarðurinn var baðaður í sólskini. Gráber sá að j
sprengja hafði fallið á hliðið. Nokkrir krossar og granít- j prófessorinn: Eruð þér kenn-
legsteinar lágu á víð og dreif um grafir og gangstíga. j ari hér í bekknum ?
Grátvíðirinn haföi snúizt við, svo að ræturnar virtust j Stúdentinn: Nei, herra prófes-
vera greinar og greinamar langar grænar rætur. Þetta j sor.
var eins og kynlegur gróður sem borizt haföi upp af ■ Prófes'v'ri-uj: rr’ah.ð þér þá
hafsbotni og grænir þörungar héngu á. Megninu af
beinunum úr umrótuðu gröfunum hafði verið safnað
saman í snyrtilega hrúgu; aðeins smáflísar og brot úr
rotnandi kistum hengu í grátvíðnum. Engar hauskúpur.
Skýli hafði verið klambrað upp við hliöina á kap-
ellunni. Eftirliúsmaöur og tveir aðstoöarmenn voru þai ■ svo vel &ð gong.i hægt út
að verki. Eftirlitsmaðurinn var rennsveittur. Þegar hann j svo að þér vekið ekki hina
heyrði erindi Grábers bandaði hann honum burt. „Eng-1 bekkina.
elcki
eins og fíf1.
Prófessor: Dömur mínar og
herrar, ég verð að hætta
kennslu minni að þessu sinni
10 mínútur fyrir tímann. Ger-
eimilisþattur
Gólfteppi sem segir sex
Ef þið eruð í hópi þeirra
húsmæðra sem dreymir um að
eignast einhvem tíma þykkt,
mjúkt teppi af því tagi sem
maður næstum sekkur niður í,
ætti teppið á myndinni að upp-
fylla þá drauma. Þykkara get-
ur það víst varla orðið, ef það
á að líkjast teppi en ekki gras-
flöt. Hvemig er hægt að þrífa
svona teppi? Aðeins með því
að svindla dálítið! — Teppið
er nefnilega ekki stórt teppi,
heldur mörg lítil teppi, saum-
uð lauslega saman. Saumamir
sjást ekki í þessu þykka teppi.
Hægt er að spretta teppinu
sundur og þvo það! Það er gert
úr bómull og þess vegna er
hægt að þvo það í þvottavél
ef vill, og það er engan veginn
eins erfitt að þrífa það og
ætla mætti.
Er þetta fallegt?
Hér er ný tízkulína sem köll-
uð hefur verið flatbrjósta lín-
an, enda er tilgangurinn sá að
línan frá brjósti og niður að
mjöðmum sé sem beinust. Það
væri synd að segja að þetta
snið fegraði vöxtinn, enda lítur
ekki út fyrir að það ætli að
ná vinsældum. Kjóllinn á mynd-
inni er eitthvert millistig milli
samlcvæmiskjóls og síðdegis-
kjó’s. Flata alpahúfan sem not-
uð er við kjólinn fer ekki bein-
línis vel við svona fleginn kjól.