Þjóðviljinn - 04.03.1955, Síða 3

Þjóðviljinn - 04.03.1955, Síða 3
Föstudagur 4. mai'z 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (3 Jarðbylgjur meiri í Reykjavik en nokk- urs staíar annarstaðar á jörðinni Hérlendis urðn um 350 jarðhrærmgar á 22 dögirni, eu alls mældust þær nálægt 59Ö Á s.l. ári urðu engir miklir jaröskjálftar, en þó uröu hér- lendis um 350 jarðhræringar á áilnu. Jaröskjálftar eru miklu tíðari sunnanlands en noröan. Varð hræringa vart 22 daga ársins, þar af aðeins þvisvar á Noröurlandi en 19 sinnum á Suöurlandi. ÞjóÖviljinn hefur fengiö eftirfarandi yfirlit yfir jarð- skjálfta á s.l. ári hjá Eysteini Tryggvasyni, forstöðrmianni j aröskj álftadeildar Veðurstofunnar. Nýir næmir mælar A þeim 29 árum, sem veður- stofan hefur starfrækt jarð- skjálftamæla, hafa aldrei mælzt eins ’margir jarðskjálftar og á síð- astliðnu ári. Aðalástæða þess er sú, að veðurstofan fékk á árun- um .1951—’52 nýja mæla, sem eru miklu næmari en þeir, sem notaðir voru áður. 1600 manns fórust Alls mældust um 500 jarð- hrædngar á árinu og af þeim áttu 150 upptök í meira en 500 km fjarlægð frá Reykjavík. Langmest tjón af jarðskjálfta á árinu varð í Alsír 9. september þar sem 1600 manns fórust, en mjög mikið tjón varð einnig í Grikklandi 30. apríl, en þar fórust 24 menn, á Filippseyjum 2. júlí og Trinidad 4. desember. Mestu jarðskjálftarnir Þetta eru þó ekki þeir jarð- skjálftar, sem mælarnir sýna mesta. Samkvæmt mælingumj Endurskoðun löggjafar nm umferða- eg bifreiða mál Vegna hinnar miklu aukn- ingar umferðarinnar hér á landi á síðastliðnum hálfum öðrum áratug, tilkomu ýmissa nýrra ökutækja og sívaxandi fjölda umferðarslysa, hefur dóms- málaráðuneytið ákveðið að beita sér fyrir endurskoðun á löggjöf um umferðamál og bif- reiðamál, svo og reglugerða um sama efni. Núgildandi umferða- lög og bifreiðalög voru sett ár- ið 1941, en samin fyrir árið 1940. Reglúgerð um gerð og notkun bifreiða er frá árinu 1937. Hefur því dómsmálaráðherra í dag skipað þá Sigurjón Sigurð- urðsson, lögreglustjóra, Geir Zoega, vegamálastjóra, Theo- dór B. Líndal, prófessor, Bene- dikt Sigurjónsson, fulltrúa borgardómarans í Reykjavík, og Sigurgeir Jónsson, fulltrúa í dómsmálaráðuneytinu, í nefnd til að gera tillögur um endur- skoðim löggjafar um umferða- mál og bifreiðamál, svo og reglugerð um sömu málefni. Er nefndinni falið að skila á- liti og tillögum til ráðuneytis- ins, ásamt lagafrumvörpum og reglugerðatillögum, ef til kem- ur, fyrir samkomudag næsta reglulegs Alþingis. Sigurjón Sigurðsson, lög- reglustjóri, er formaður nefnd- arinnar. (Fréttatilkynning frá dóms- málaráðuneytinu). varð mesti jarðskjálfti ársins 29. april í Kaliforníuflóa. Olli hann nokkru tjóni í Vestur-Mexikó. Jarðskjálftanir í Alsír og Grikk- landi, sem mestu tjóni ollu, komu sem 12. og 13. í röðinni. 350 hræringar hérlendis Hér á landí komu engir miklir jarðskjálftar á árinu, enda þótt mælarnir sýndu um 350 hræring- ar. Mestir voru jarðskjálftarnir 29. október, en upptök þeirra voru um 10 km. í norðvestur frá Hveragerði. Þann dag fundust um 60 hræringar í Hveradölum, en mælarnir sýndu enn fleíri kippi. Alls er kunnugt um, að jarð- skjálftar hafi fundizt einhvers- staðar á landinu 22 daga ársins, þar af þrisvar á Norðurlandi en 19 sinnum á Suðvesturlandi. j Nýr jarðskjáiftamælir settur á Akureyri Á árinu var settur upp jarð- skjálftamælir á Akureyri og hef- ur hann komið að miklum not- um við ákvörðun á upptökum jarðskjálfta. Nokkrir jarðskjálft- ar hafa átt upptök í norðvestur- hluta Vatnajökuls, m. a. við Grímsvötn 17. júlí þegar Skeið- arárhlaupið stóð sem hæst og tveir jarðskjálftar 22. desember áttu upptök nálægt Eiríksjökli. Ef ekki hefði verið jarðskjálfta- mælir á Akureyri hefði ekki ver- ið unnt að ákvarða upptök þess- ara jarðskjálfta, en þetta er í fyrsta skipti, sem vitað er um upptök á þessum slóðum, þegar Börnin afgötunni! Framhald af 1. síðu. gang á því að fjölga leikvöllum, girða leikvelli fyrir lítil böm og taka upp gæzlu bamanna, slíkt væri nú aðeins gert á tveim Ieikvöllum. Það sem ætti að gera væri að fjölga leikvöllun- um, girða þá og hafa fasta gæzlu á litlum bömum þar, svo þau gætu verið algerlega ömgg. Og til þess að ákveða þenna sjálfsagða og augljósa hlut þarf ekki að bíða eftir rann- sóknum og tillögum umferðar- málanefndar, .heldur aðeins að bæjarstjórnin viðurkenni nauð- syn þess að gera þetta og á- kveða það. — Verður nánar skýrt frá ræðu Petrínar síðar. léttu rúmi þótt bömin séu í élttu rúmi þótt börnin séu í hættunni á götunni, því það vís- aði tillögunni frá — til leik- vallanefndar! — með sínum 8 atkv. gegn atkvæðum allra fulltrúa minnihlutaflokkanna. undanskilinn er lítill jarðskjálfti með upptök í Grímsvötnum er gosið hófst þar 1934. * I Mælingar erfiðari hér en nokkurstaðar annarsstaðar Jarðskjálftamælingar eru erf- iðari viðfangs hér á landi en víð- ast annars staðar, en það stafar af því, að alltaf verður vart nokkurrar hreyfingar, eins kon- ar öldugangs, þar sem jörðin gengur í bylgjum. Þessi stöðuga hreyfing er á erlendum málum nefnd mikroseismar. Það sem or- sakar þessa hreyfingu er m. a. brim við klettótta strönd, en einnig hafa stormar 4 rúmsjó á- hrif, sem gætir á landi í mörg hundruð km fjarlægð. Þessir mikroseismar eru meiri í Reykja- vík en nokkurs staðar annars á jörðinni þar sem jarðskjálfta- mælar eru, en þeir valda því, að mjög sjaldan er hægt að ákvarða upptök jarðskjálfta með því að nota einungis mælingar jarð- skjálftamælanna í Reykjavík. Skipbrotsmeiiniriiir fljuga til Englasids á naánndagiain Hrósa mjög öllu björgunarstaríinu og aðhlynningu í landi Skipbrotsmenn af brezka togaranum King Sol frá .Grimsby, sem strandaði á Meðallandssandi aðfaranótt s.L mánudag, komu til Reykjavíkur í fyrrakvöld. Um miðjaii dag í gær bauð Kvennadeild Slysavarnafélagsins í Reykja- vík og Sjómannastofan þeim til tedrykkju í skrifstofu Slysavar naf élagsins. Við það tækifæri bauð Guð bjartur Ólafsson forseti Slysa- varnafélagsins brezku sjómenn- ina velkomna, minnti á það gifturíka starf sem hér hefði verið unnið í slysavarnamálum á undanförnum árum og þann þátt sem brezkir sjómenn hefðu oft átt í björgun íslenzkra skipshafna. Lauk hann máli sínu með því að óska að þessi samhugur brezkra og íslenzkra sjómanna í slysavarnamálunum mætti verða til fyrirmyndar um fleira í sambúð þjóðanna. Brezki sendiherrann, Thyne Henderson, lýsti ánægju sinni yfir hinni giftusamlegu björg- un og þeirri aðhlynningu, sem skipsbrotsmenn hefðu notið í landi. Færði hann Slysavarna- félaginu beztu þakkir, einkum kvennadeildinni í Reykjavík, sem komið hefði upp hinu á- gæta skýli á Meðallandssandi, en það var nú notað í fyrsta sinn af sjómonnum. Frú Guðrún Jónasson færði hverjum hinna brezku sjó- manna myndabók til minja ura þau not, sem urðu af skýlinu á Meðallandssandi við björgun- ina. Einnig töluðu séra Óskar J. Þorláksson, formaður slysa- varnadeildarinnar Ingólfs, Snæ- björn Jónsson og sr. Jakob Jónsson. Skipstjórinn á King Sol, Phil- ip Sidney Farmery, flutti Slysa- varnafélaginu alúðar þakkir fyrir hönd skipshafnarinnar og kvað þá félaga ekki myndu gleyma því sem fyrir þá hefði verið gert hér, er þeir kæmu til Englands. Þeim væri af eigin reynslu ljóst að íslend- ingar hlífðu sér í engu, ef sjómenn þyrftu aðstoðar með við strendur landsins, og skipti þjóðerni þeirra engu máli. Skipsbrotsmennirnir, sem era 20 talsins eins og jafnan á brezkum togurum, munu halda heimleiðis með flugvél á mánu- daginn. Þeir eru allir búsettii’ í Grimsby eða næsta nágrenni, Frétfabréf frá Dalvik Hukin hátaútgerð undirbúin Lítil sem engin atvinna f rá því í nóvember á s.l. hausti Á s.l. ári voru byggöir 3 þilfarsbátar á Akureyri fyrir Dalvíkinga, 6 til 8 smálesta. Þessir bátar voru geröir út á línuveiöar s.l. haust, svo og einn 50 lesta bátur og nokkrar trillur. Var afli fremur tregin’ enda óhagstætt veðurfar til sjósóknar, sérstaklega fyrir opna báta. Fá fullt verð fyrir aflann . Bátar þessir voru gerðir út til pramóta, og var nokkur atvinnu- þót að því, þar sem aflinn var unninn í frystihúsi. Á bátunum !róa 3 menn, og. eru 2 í landi. Skipt er í 9 staði, og fá hlutar- tnenn fullt verð úr aflanum, eða eins og útgerðin fær endanlega tneð bátagjaldeyri. Hafa róið frá áramótum Þessir 3 nýju bátar hafa stundað róðra frá áramótum, en slíkt hefur ekki þekkzt hér, að bátum væri róið frá Dalvík yfir þennan tíma árs. Yfir janúar- mánuð voru farnir aðeins 6—7 róðrar, enda var að heita mátti stöðug norðanátt og snjókoma. í febrúar 8—12 róðrar á bát, og hefur afli verið 1000 til 3500 kg í róðri. Frosthörkurnar hafa verið miklar, og reynst hefur örðugt að verja fiskinn frosti meðan á uppskipun hefur staðið. Gera menn sér vonir um að afli glæðist þegar kemur fram í marzmánuð, og loðna fer að veiðast. Frosin síld mun aðeins til í 10—12 róðra á bát. 2 bátar væntanlegir erlendis frá Mótorbátarnir Þorsteinn, Hann- es Hafstein og Björgvin eru all- ir á vertíð á Suðurlandi, en m.s. Bjarmi var um áramótin seldur til Véstmannaeyja. Hafa eigendur Bjarma fengið inn- flutningsleyfi fyrir nýjum bát frá Danmörku, og Egill Júlíus- son útgerðarmaður sem er aðal- eigandi að Hannesi Hafstein, hef- ur einnig fengið innflutnings- leyfi fyrir nýjum bát, sem mun verða byggður í Svíþjóð. Hreppsnefndinni neitað um bát! Hreppsnefnd Dalvíkurhrepps, sótti einnig um innflutning á nýj um bát, er hún hugðist fá sjó- menn hér til að yfirtaka, en var synjað um innflutningsleyfi, en ráðandi menn hér vilja leggja áherzlu á fjölgun fiski- báta. Vatnsskortur — Snjóalög Vegna langvarandi frosta hef- ur hér sem víða annarstáðar verið allmikill skortur á neyzlu- vatni, og hafa sum íbúðarhús verið svo til vatnslaus um nokk- urn tíma. Snjóalög eru hér nokkur, mun vera um % metra djúpur á lág- lendi. Fyrir nokkru ruddu snjó- ýtur veginn til Akureyrar, og hefur hann haldizt opinn síð- an, þailhig að bílfært hefur ver- ið milli Akureyrar og Dalvíkur að undanförnu. Skíðanámskeið Hálfsmánaðar skíðanámskeiðj fyrir börn og unglinga er nýlok- ið, og var mjög góð þátttaka I því. Námskeiðið var haldið að tiÞ hlutan Ungmennafélags Svarf- dæla, og skólanefndar. Kennari var Jónas Ásgeirsson frá Siglu* firði. Kauðmagaveiðar Um miðjan febrúar fór að afl- ast hér rauðmagi, og hefur veiði verið' óvenju góð svona snemnia á tíma. Hafa þó enn allmargir ekki lagt net sín. Atvinnuleysi Lítil sem engin atvinna hef- ur verið, frá því í nóvembeí fyrir verkafólk, nema við nýt- ingu þess afla sem fengizt hef- ur, en heita má að handverks- menn hafi enn sem komið ec haft næga atvinnu. Samningaumleitanir Aðalfundur Verkalýðsfélagsins var haldinn 28. janúar s.l. Var þar samþykkt, að ræða við at- vinnurekndur um nýja kaup- gjaldssamninga, án til uppsagnar kæmi á gildandi kaupsamning- um. Viðræður munu þó enn ekki hafa farið fram milli samnings- aðila. IfiDkkunnni 1. ársfjórðungur féll í gjald- daga 1. janúar. Greiðið flokks- gjöld ykkar skilvíslega i skrif- stofu flokksins.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.