Þjóðviljinn - 04.03.1955, Blaðsíða 4
4) ■— ÞJÓÐVILJíNN — Föstudagur 4. marz 1955
Söitgskemmtun
Níu söngvarar efndu til söng-
skemmtunar í Gamla bíói síð-
astliðinn þriðjudag. Þetta var
nokkurs konar endurteknjng á
söngskemmtun þeirri, sem
söngfólkið hafði haldið til heið-
urs Pétri Jónssyni sjötugum
föstudagskvöldið áður. Að þessu
sinni komu fram allir hinir
sömu söngvarar og þá, að Katli
Jenssyni undanteknum, en söng
skráin nokkuð aukin frá þvi,
sem verið hafði (bætt við 4 lög-
um í stað 2ja, sem niður höfðu
verið felld) án þess að heildar-
svipur hennar breyttist að
nokrum mun. Yfirleitt mátti '
söngskráin heita heldur til-
breytingarlítil, eins og við var
að búast, þar sem flutt voru
eingöngu óperulög tilefninu
samkvæmt, og varð þá varla
heldur hjá því komizt, að til-
tölulega mikið færi fyrirr
ítölsku óperuhöfundunum.
Söngkonur voru þrjár af
þeim níu, sem þarna komu við
sögu. Frammistaða Guðrúnar
Á. Símonar hlýtur að verða
minnisstæð. Söngur hennar í
aríu úr óperunni „II barbiere
di Sevigiia“ eftir Rossini var
svo glæsilegur og einstaklega
þokkafullur i alla staði, að
manni þótti sem sæmt gæti
„prímadonnu* á hvaða meiri
háttar óperusviði sem vera
skyldi. Guðrún Þorsteinsdóttir
fór mjög vel með aríu úr óper-
unni „Samson et Dalila“ eftir
Saint-Saens, og var söngur
hennar þó ef til vill ekki nægi-
lega skapmikill. Mjög fallegur
var samsöngur þeirra Guðrún-
ar Á. Símonar og Þuríðar Páls-
dóttur í lagi úr óperunni „Le
nozze di Figaro" eftir Mozart.
Einar Sturluson fór bráðvel
með aríu úr óperunni „L’elisir
d’amore“ eftir Donnizetti, og
Guðmundur Jónsson flutti aríu
úr óperunni „Un ballo, in mas-
chera“ eftir Verdi af miklum
glæsileik. Aría úr óperunni
„Salvator Rosa“ eftir Gomes
var flutt af Jóni Sigurbjörns-
syni með feikidramatískum
fimbulbassa, sem vafalaust
frá BólsfurgerSinni
EfiÍKtalin húsgögn hölum við á hoðstólum:
Dagstofusófasett,
Hringsófasett,
með lausum púðum
Armstólasett,
Rokokosett,
Armstólar,
Hailstólar,
með lausum púðum,
Rokokostólar,
Ernaklappstólar,
Svefnsófar,
Svefnstólar,
Innskotsborð.
Höfum úrvals húsgagnaáklæði, ullartau, damask,
góbelin og plyds í mörgum litum.
Fagmannavinna
Sendum gegn póstkröfu um land allt.
Bólsturgerðin I. Jónsson h.f.
Brautarholti 22 — Sími 80388
!■■■■■■■■■■■.. )■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■!
Körfuknattleiksmót Islands
hefst föstudaginn 18. marz í íþróttahúsinu að Háloga-
landi. Keppt verður í meistaraflokki, 2. og 3. flokki
karla. — Tilkynningar um þátttöku skulu hafa borizt
skrifstofu í. B. R., Hólatorgi 2, fyrir 12. marz. Þátt-
tökugjald er kr. 25.00 fyrir meistaraflokk og 20.00 kr.
fyrir hvorn yngri flokkanna.
íþróttabandalag Reykjavíkur
myndi þykja hlutgengur víða
á óperusviði. Kristinn Hallsson
söng aríu úr óperunni „Don
Giovanni" eftir Mozart af sín-
um alkunna glæsibrag og kom
auk þess fram í tveim tvísöngs-
lögum. Magnús Jónsson fór
^Jórvel með sitt hlutverk í tví-
söngnum úr óperunni „Tosca“
eftir Puccini, sem hann söng á-
samt Guðrúnu Á. Símonar, og
Þorsteinn Hannesson söng aríu
úr óperunni „Fidelio“ eftir
Beethoven af þrótti, kunnáttu
og skilningi, *auk tenórhlut-
verksins í tvísöng úr óperunni
„La forza del destino" eftir
Verdi, sem hann söng á móti
Kristni Hallssyni. Að lokum
var lag úr óperunni „Rigoletto“
eftir Verdi, þar sem þau sungu
fjórmenning Þuríður Pálsdótt-
ur, Guðrún Þorsteinsdóttir,
Mangús Jónsson og Guðrnund-
ur Jónsson, mjög prýðilega, eins
og vænta mátti.
Eftir þessa söngskemmtun
hefur væntanlega mörgum á-
heyrendum orðið ljósara en áð-
ur var, hversu álitlegan hóp
söngfólks við eigum orðið, og
komu hér þó ekki öll kurl til
grafar, jafnvel þó að ekki sé
minnzt á þá ágætu söngvara
okkar, sem við höfum misst úr
landi að mestu eða öllu leyti,
eins og Maríu Markan, Guð-
mundu Elíasdóttur, Einar
Kristjánsson og Stefán Guð-
mundsson. Það er mikil og góð
þróun, sem átt hefur sér stað
í þessu efni á allra síðustu
áratugum, og vist mun braut-
ryðjandinn Pétur Jónsson hafa
glaðst yfir þessum glæsilega
hópi eftirkomenda sinna.
B. F.
m
oáiMnn
Askorun til Nýja bíós — Auglýsið síðustu sýningar
Nokkur orð um útvarpsleikrit
að
Kvikmyndavinur skrifar:
„FYRIR skömmu var sýnd
myndin „Glæpur og refsing"
í Nýja Bíó. Hugði ég gott til
glóðarinnar að fá að sjá þetta
snilldarverk á kvikmynd. En
viti menn, eftir þrjá eða fjóra
daga er hætt að sýna myndina,
svo ég, og að sjálfsögðu ótal
margir fleiri, missum þarna af
afþragðsmynd. Nú skora ég á
Nýja Bíó að sýna myndina aft-
ur. Um leið vil ég vekja at-
hygli Nýja Bíós, og annarra
sem hlut eiga að máli á því,
að of sjaldan er tekið fram,
hvenær mynd er sýnd í síðasta
sinn. Fyrir bragðið missa ýms-
ir af myndum, er þeir hafa
ætlað sér að sjá. Og oft eru
það beztu myndirnar, þvi það
einkennilega á sér stað, að
venjulega er það þær, sem
ganga skemmst.
Kvikmyndavinur.“
SVO hefur E.G. beðið Bæjar-
póstinn fyrir eftirfarandi línur
um Útvarpsleikrit Halldórs
Stefánssonar. — „Það hefur
lengi staðið til að senda þér
þessar línur, en það hefur dreg-
izt úr hófi fram og ef til vill
eru nú margir búnir að gleyma
efni og meðferð leikritsins sem
K. -3S
ég geri að umræðuefni, Út-
varpsleikriti Halldórs Stefáns-
sonar. Eg hafði ýmislegt við
það að athuga og þá einkum
það er nú skal greina. Sú
persóna sem hefði átt að koma
með mestri reisn út úr leikrit-
inu, er unga stúlkan. Hennar
ferill hefði átt að verða allur
annar til þess að leikritið yrði
betra og heilsteyptara. Hún
hefði átt að draga þær álykt-
anir af vonbrigðum þeim sem
hún varð fyrir af unnustanum,
að ástæðulaust væri að harma
hann vegna þess hve veiklynd-
ur hann var, og hún hefði átt
að halda leitinni áfram að
sterkum manni og finna hann.
Mér finnst meðferðin á ungu
stúlkunni benda til þess að
höfundur hafi að nokkru leyti
gefizt upp á leikritinu og hnýtt
á það lokahnútinn án þess að
kryfja efnið til mergjar eins
og vera bar. Hins vegar var
hinn kvenmaðurinn, dóttir lög-
fræðingsins, vel byggð persóna
og sönn. Það má margt gott
um þetta leikrit segja og kom
margt slíkt fram í blöðunum á
sinum tíma, en gagnrýni á á-
valt rétt á sér, og þetta er það
sem ég vildi leggja til máianna.
Vinsamlegast.
E.
J Kirkjugarðsvarðarstaðanj |
i I
í Hafnarfirði er laus til umsóknar frá 1. apríl að ] [
telja.
Umsóknarfrestur til 20. marz. Umsóknir sendist j :
til formanns kirkjugarðsstjórnarinnar, Jóns G.
: Vigfússonar, sem gefur nánari upplýsingar.
Kirkjugarðsstjórnin
Byggingavörur úr asbestsementi
Þakhellur — Innanhúss-plötur
Þrýstivatnspípur og
allskonar tengistykki
Einkaumboð:
MAKS TRADING €o.
Klapparstig 26 — Sími 7373
CZECHOSLOVAK CERAMICS Ltd., PRAGUE, CZECHOSLAVAKIA
Utanhúss-plötur, sléttar
Báruplötur á þök
Frárennslispípur og tengistyldd