Þjóðviljinn - 04.03.1955, Qupperneq 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 4. marz 1955
ætlið að káupa
eða selja bíl
þá sparið fíma og fyrirhöfn meö því að koma sfrax fil okkar
Höfum einnig
op/ð á sunnudögum
Það yrði of kostnaðarsamt fyrir okkur að telja upp alla
þá bíla, sem við höfum á boðstólum, en við viljum samt
nefna þessa sem lítið sýnishom:
VAUXHALL model ’55, ’50 og ’47. MORRIS model ’50
og ’47. CHFVROLET model ’54, ’52, ’49 og ’47. FORD
model ’47, ’'±6 og ’41. — Vörubifreiðar: REO model ’54.
FORD model ’54, ’47 og ’42. CHEVROLET model ’54 og
’47.
BILASALINN
Vitastíg 10 — Sími 80059
Ktíup - Sala
Nokkrar lopapeysur
á 50 krónur stykkið.
Verzlunin HELMA,
Þórsgötu 14, sími 80354.
Hjálpið blindum
Kaupið aðeins bursta og gólf-
klúta frá Ingólfsstræti 16.
Blindraiðn.
Kaupum kopar og
eir
Málmiðjan, Þverholti 15.
Mun’ð kalda borðið
að Röðli. — RöðulL
Nýbakaðar kökur
með nýlöguðu kaffi. —
Röðulsbar.
Fyrst til okkar
Húsgagnaverzlunin
Þórsgötu 1
Munið Kaffisöluna
Hafnarstræti 16.
Utvarpsviðgerðir
Radió, Veltusundi 1.
Sími 80300.
Ragnar Ölafsson
hæstaréttarlögmaður og lög-
giltur endurskoðandi. Lög-
fræðistörf, endurskoðun og
fasteignasala, Vonarstræti 12,
sími 5999 og 80065.
Sendibílastöðin h.f.
Ingólfsstræti 11. — Sími 5113.
Opið frá kl. 7.30-22.00. Helgi-
daga frá kl. 9.00-20.00.
Saumavélaviðgerðir
Skriístofuvélaviðgerðir
S y 1 g j a .
Laufásveg 19, sími 2656
Heimasími: 82035.
1395
Nýja sendibílastöðin
Sími 1395
L j ósmyndastof a
Laugaveg 12.
Viðgerðir á
rafmagnsmótorum
og heimilistækjum.
Raftækjavinnustofan Skinfaxi
Klapparstíg 30. — Sími 6484.
Sendibílastöðin
Þröstur h.f.
Sími 81148
tmiöiecús
si&uumaRraRSoa
Minningar-
kortin
eru til sölu í skrifstofu Sós-
íalistaflokksins, Þórsgötu 1;
afgr. Þjóðviljans; Bókabúð
Kron; Bókabúð Máls og
menningar, Skólavörðustig
21 og í Bókaverzlun Þor-
valdar Bjamasonar í Hafn-
arfirði
Vinnandi stéttir íslonds
Framhald af 7. siðu.
en að gera sívaxandi hluta
af þeim verðmætum, sem
vinnandi stéttir skapa með
erfiði sínu, að milliliða- og
okurvaxtagróða í vösum auð-
mangaranna.
Ein af blekkingabrellum
ríkisvaldsins nú í vörn sinni
fyrir ^öngþveiti í rangsleitni
auðvaldsskipulagsins er að
beita fyrir sig „hagfræðing-
um“. 1 vitund almennings er
hagfræðin vísindi sem ríkis-
valdið ætlast til að sé ofar
hans skilningi. En þegar í
þessum „hagfræðingum,, heyr-
ist, m.a. í hinu „hlutlausa”
ríkisútvarpi, þá ber þeim
hvorki saman við sjálfa sig
eða hverjum við annan um
sama atriði hagfræðinnar. Til
dæmis segir einn að háir vext-
ir af lánsfé eigi að takmarka
fjárfestingu sem annars
mundi leiða til aukinnar
verðbólgu, en annar segir að
það séu ekki háir vextir sem
takmarki fjárfestinguna held-
ur skortur á lánsfé. Síðan
hvetur hann þjóðina til auk-
innar sparifjársöfnunar svo
hægt sé að auka fjárfesting-
una, sem þó ekki má auka því
þá vex verðbólgan og þá
hækkar kaupgjaldið og þá
lækkar gengið osfrv. Hér er
sem sé aðeins um „hagfræði-
legan“ heilaspuna að ræða, því
eðlilega er ekki um neinn fast-
an grundvöll fyrir hagfræði
að ræða í skipulagslausu auð-
valdsþjóðfélagi. Hlutverk auð-
valdshagfræðinganna er að-
eins að skipuleggja hvernig
hægt sé að halda lífskjörum
alþýðunnar niðri. Þeir eru sem
sagt aðeins verkfæri í hönd-
um ríkisstjórnararðræningj-
anna.
En er nú ekki mál að linni
Er ekki tímabært að alþýð-
an þekki sinn vitjunartíma —
að vinnandi stéttlr snúi bök-
um saman í baráttunni fyrir
rétti sínum? Eru það ekki
þær sem bera uppi þjóðfélag-
ið? Ætla þær að láta auð-
valdsliðið fóðra sig eins og
búfénað svo að það hafi af
þeim sem mestan arð?
Reynsla síðustu ára hefur
fært alþýðunni glöggar sann-
anir fyrir því hvernig þing-
ræðið bregzt málstað hennar.
Frá þeim tíma er bandarísk-
um her var með lygum og
blekkihgum laumað inn í
landið hefur þángmeirihluti
auðvaldsliðsins traðkað á mál-
stað alþýðunnar. Er nú svo
komið fyrir tilverknað J:ram-
sóknarforingjanna og hægri
arms Alþýðuflokksins, að
auðvaldið í landinu hefur
aldrei verið sterkara ogf
möguleikar þess að auka þing-
mannatölu sína við kosning-
ar, með afli auðsins, aldrei
verið meiri.
Gegn þessari hættu hlýtur
alþýðan að fylkja sér. Fé-
lagslegur og stjórnmálalegur
þroski hennar er nú orðinn
svo mikill að henni er í lófa
lagið að mynda með sér sam-
tök sem markað geta stefn-
una í stjórnmálaunum og sett
Alþingi þær skorður er þarf
til þess að það bregðist ekki
hlutverki sínu. Þá fyrst er
hægt að tala um að lýðræði
ríki í landinu.
Þetta er mál málanna hjá
íslenzkri alþýðu í dag.
Samstarf og bandalag vinn-
andi stétta mundi í fyrsta
lagi kenna þeim að meta gildi
hverrar annarrar í þjóðfélag-
inu; í öðru lagi þroska stjóm-
málalífið; í þriðja lagi leiða
til almennrar hagsældar og
vaxandi menningar.
Ekkert er heimskulegra og
hættulegra fyrir málstað al-
þýðunnar en metingur um
það hver hinna vinnandi
stétta hafi þýðingarmestu
hlutverki að gegna í þjóðfé-
laginu, þegar vitað er að hver
þeirra hefur þar ákveðnu
hlutverki að gegna. Það er
sama hver þeirra legði nið-
ur sitt starf: allt þjóðfélagið
mundi þá riðlast.
Þar sem hin vinstrisinnaða
alþýða skiptist á milli mis-
munandi stjómmálastefnu-
miða verður hún að knýja
flokksforingja sína til að
samræma stefnumál sín sem
gmndvöll að vinstri ríkis-
stjórn. Fyrsta og sjálfsagð-
asta verkefni slíkrar stjórn-
ar yrði að stemma stigu við
arðráninu og beina fjármagn-
inu í vaxandi mæli til fram-
leiðsluatvinnuveganna svo að
þeir megi eflast og veita
þjóðinni batnandi hag.
Lúxuseyðsla auðstéttarinn-
ar er óþolandi smán meðal fá-
tæks fólks í harðbýlu landi.
Hefjum því harðnandi sókn
á hendur auðvaldinu. Látum
það ekki sannast, vinnandi
menn og konur til sjávar og
sveita, að við séum svo geð-
laus og sljó, að við látum
auðstéttina lengur traðka rétt
okkar í svaðið.
Hér verður ekki ráðið fram
úr hvernig samstarfi alþýð-
unnar verður komið á. Þó
skal bent á hvort ekki mundi
heppilegt að ná saman í hverj-
um landsfjórðungi ráðstefnu
um málið.
En í fyrstu krefst það at-
fylgis sem flestra manna í
blöðum, og
„Allt er fært ef ekkl skortir
andans þrek í liverjum vanda“.
Sópar
Framhald af 5. síðu.
Fylgjendur Þjóðflokksins,
sem vann mikinn sigur í kosn-
ingunum, höfðu safnazt þar
saman og voru þeir með mikla
sópa, sem áttu að tákna kjör-
orð flokksins „Sópið þeim
burt“. Stuðningsmenn hins í-
haldssama Verkamannaflokks
komu þá einnig á vettvang og
voru með flugnasprautur sem
áttu að tákna að þeir litu á
hina sigursælu andstæðinga
sem meindýr, sem eigi að út-
rýma.
SKIPAÚTGCRÐ
RIKISINS
Skjaldbreið
Tekið á móti flutningi til
Breiðaf jarðar í dag og árdegis á
morgun.
HEKLA
austur um land í hringferð hinn
9. þ. m. Tekið á móti flutninggi
til Fáskrúðsfjarðar, Reyðar-
fjarðar, Eskifjarðar, Norðfjárð-
ar, Seyðisfjarðar, Þórshafnar,
Raufarhafnar, Kópaskers og
Húsavíkur í dag og árdegis á
morgun. Farseðlar seldir á
þriðjudag.
Herðubreið
austur um land til Bakkafjarð-
ar um miðja næstu viku. Tekið
á móti flutningi til Hornafjarð-
ar, Djúpavogs, Breiðdalsvíkur,
Stöðvarfjarðar, Mjóafjarðar,
Borgarf jarðar, Vopnaf jarðar og
•Bakkafjarðar í dag og árdegis
á morgun. Farseðlar seldir á
þriðjudag.
Skriftar-
kennsla
Síðasta
SKRIFT ARN ÁMSKEIÐIÐ
á vetrinum hefst föstudaginn
4. marz.
Ragnhildur Ásgeirsdóttir,
sími 2907
m
innuiyarópjoi