Þjóðviljinn - 06.03.1955, Blaðsíða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 6. marz 1955
Forarbað og brosandi lögregluþjónar — Hvers vegna
ný leikrit og nýjar kvikmyndir? — Cefið okkur fleiri
Gullin hlið, Önnur og Frænkur Charleys!
HLÁKAN og hlýviðrið orsaka ó-
hreinar götur, drullupolla og
forarsvað og þá reynir mjög á
ökuhæfni bílstjóranna. Rétt í
þessu var einn lítill og snotur-
legur bíli að ausa yfir mig úr
nokkrum stærstu pollum í Stór-
holtinu, sem eru hvorki fáir né
frýnilegir. Og sem ég þurrka
forina úr andlitinu og lít á eft-
ir bílkrílinu til ’að sjá a.m.k.
hvernig svona ökuníðingur lít-
ur út, þá ber fyrir augun
hvorki. meira né minna en tvo
lögregluþjóna í fullum skrúða,
sitjandi inni í bílnum hlæjandi
og talandi og virðast ekki hafa
mikinn áhuga á þvi hvort ek-
illinn sullar for og bleytu yfir
saklausa vegfarendur á báða
bóga. Æjá, þeir eru búnir að
bjarga fínu úníformunum sín-
um inn í bíl og láta sig svo
engu skipta föt hinna sem urðu
að sætta sig við að ösla forar-
göturnar.
, V
OG SVO hefur margur maður-
inn velt því fyrir sér upp á
síðkastið, hvers' vegna kvik-
myndahús og leikhús eru að
burðast við að færa upp ný og
ný leikrit og sýna nýjar og
nýjar kvikmyndir. Það er Ijóta
fásinnan. Það hefur sýnt sig á-
þreifanlega upp á síðkastið að
þetta er hreinasti óþarfi. Þjóð-
leikhúsið þyrfti ekki að sýna
annað leikrit en Gullna hliðið,
ef til vill smella Pilti og stúlku
inn í öðru hverju til tilbreyt-
ingar. Þá væri gestum þess
borgið. Leikfélag Reykjavíkur
gæti látið sér nægja Prænku
Charleys. Og hvað kvikmynda-
húsin áhrærir hefur það komið
greinilega í ljós upp á síðkastið,
að því betri sem myndir eru,
þeim mun styttri tíma eru þær
sýndar. Nýja bíó sýndi Othelló
fyrir skemmstu í aðeins tvö
kvöld og bar þó öllum saman
um sem myndina sáu að hún
hefði verið afbragð, bæði hvað
leik og myndatöku snerti. Síð-
asta sýning er ekki einu sinni
auglýst, svo mikið liggur á að
kippa myndinni út af dagskrá.
Nei, bíóunum er borgið ef þau
hafa nokkur eintök af Önnu,
Vanþakklátu hjarta eða Lækn-
inum hennar, og myndum í
þeim dúr, með læknum, hvít-
um sloppum, nokkrum manns-
lífum í bláþræði, helzt blindri
eða heyrnarlausri stúlku sem
auðvitað fær sjón eða heyrn
aftur í lokin og giftist læknin-
um í hvíta sloppnum. Þetta má
svo varíera á margan máta.
En með því að ná í eina svona
mynd er bíóinu borgið og það
getur sparað sér þá fyrirhöfn
sem fylgir því að elta uppi góð-
ar myndir. Hvern fjandann
hefur fólk að gera við góðar
myndir? Það vill hvíta sloppa,
ást, vonbrigði, tryggðrof og
happy end og því skyldi það
ekki fá það? Því á hvert bíó að
koma sér upp einni slíkri kvik-
mynd og sýna hana og enga
aðra. Allt fellur í ljúfa löð,
fullt hús á hverju kvöldi og
enginn þarf að rífast yfir því
að síðustu sýningar hafi ekki
verið auglýstar, vegna þess að
síðasta sýning verður aldrei. •
T I L
LIGGUR LEIÐIN
Osvagiteppi
Verð kr. 90.00
Toledo
Fischersundi.
BIFREI9AEIGENSUR!
..Hreyfílfinn gengur þýður og skilar meiri orku". er ein-
rcma álit bifreiðaeigenda. sem notað
hafa Shell-benzín með I.C.A.
Skaðlegar kolefnisútfellingar
safnast innan á strokklokið.
í dag er ár lið'ið síðan Shell-benzín með I.C.A. kom fyrst á mark-
aðinn hérlendis. Á þessu eina ári hafa vinsældir þess stöðugt auk-
izt og bifreiöaeigendur um allt land sannfærzt um kosti þess um-
fram annaö benzín. Fyrstu tíu mánuöina jókst sala á Shell-benzíni
um tæp 30%, er sýnir betur en nokkuö annað þær vinsældir, er
Shell-benzín meö I.C.A. hefur náð meðal bifreiðaeigenda.
Að baki hinum mikla árangri, er náðst hefur með I.C.A. eru vís-
indalegar tilraunir, byggðar á einföldum staðreyndum, er skýrðar
eru hér að neöan.
Á myndinni til vinstri hef-
ur kolefmsútfellingum verið
safnað í skál og hún hituð
.upp í sama hitastig og fyrir
kemur í brunaholi hreyfils-
ins í bifreið yöar. Við það
myndast glóð í útfellingun-
um. í brunaholinu veldur
glóðin því, að það kviknar í
eldsneytishleðslunni, áður en
bullan er komin í rétta
stöðu til þess að taka við
aflslaginu.
Til vinstri sjást kolefnisút-
feliingar úr hreyfli, er not-
að hefur Shell-benzín með
I.C.A. Enda þótt skálin sé
hituð myndast engin glóð.
Útfellingarnar hafa því ver-
ið gerðar óskaðlegar.
Shell með I.C A. hefur því
komið að gagni. Engin „glóð-
arkveikja”, betri og full-
komnari bruni eldsneytisins
og engin skaðleg áhrif í
hreyflinum.
Eftir fimm ára rannsóknarstarf í efnarannsóknarstofum
Shell-félaganna í Hollandi, Bretlandi og Bandaríkjum
N-Ameríku, og 120 milljón kílómetra reynsluakstur á öll-
1 kertunum valda útfellingarnar einnig vandkvæð-
um. Þær leiða rafmagn og orsaka þannig skamm-
hlaup í þeim, er hefur í för með sér ójafnan gang
og sóun á eldsneyti.
„Glóðarkveikja” og skammhlaup í kertum eru
veigamestu orsakir afltaps og slæmrar orkunýtni.
Myndin til hægri sýnir hvernig vandkvæði þessi
komia í ljós, er gangur hreyfilsins hefur verið
hljóðritaður. (Sjá strokka nr. 5 og 6 é 5. mynd).
um tegundum bifreiða, var fyrst ákveðið að setja Shell-
benzín með I.C.A. á markaðinn, en það er nú selt í yfir
40 löndum heims.
Ekkert skammhiaup í kertum. I.C.A. hefur breytt
efnasamsetningu útfellinganna. Straumurinn fer
þvi rétta ieið milii kveikiodda kertanna og öflug-
ur neisti myndast, er kveikir i eldsneytishleðsl-
unni á réttum tíma.
Notið SHELL
með
á bifreiðina
i
Andsvar við
orðsendingu
Gunnar Benediktsson sendir
mér fjögra dálka orðsendingu
í Þjóðviljanum í fyrradag. í
henni koma ekki fram nein
ný viðhorf, og því ætla ég ekki
að lengja þessar viðræður.
Á fjölmennri ráðstefnu
lista- og menntamanna, þar
sem Gunnar Benediktsson og
Kristján frá Djúpalæk voru
báðir nærstaddir, færði ég rök
að því með tilvitnunum í skrif
Gunnars, að hann hefði þá
fyrst orðið verulega hrifinn
af kveðskap Kristjáns, er
hann hafði ort Sjómannavals-
inn. I þessu fólst ekkert mat
á skáldskap Kristjáns umfram
það, að ég tæki ljóðin hans
fram yfir danslagatextana.
Frá þessum orðaskipturn skýr-
ir Gunnar á þennan smekk-
lega hátt: „Það hefur opin-
berazt, og það í votta viður-
vist, að lofsyrði um Kristján
hljóma illa í þínum eyrum“.
Af þessu gætu þeir, sem ó-
kunnugir eru málavöxtum, á-
lyktað að ég hefði verið að
niða Kristján, sem er einn af
beztu kunningjum mínum, að
honum fjarverandi. Mig brest-
ur orð til að lýsa undrun
minni yfir svona málflutningi.
Mér hefur alltaf skilizt að
jákvæð listgagnrýni væri í því
fólgin að afhjúpa veilurnar í
verkum hinna viðurkenndu
listamanna og hefja það sem
lífvænt er í verkum hinna
ungu, en taka létt á göllun-
um. Gunnar fer þveröfugt að.
Þess vegna er barátta hans
vonlaus. Ég vil þó engan veg-
inn halda því fram að hún
sé til tjóns eins. Hæfileg and-
staða drepur engan.
Einar Bragi.
S h áhin
Framhald af 6. síðu.
ig (Rxh7, Kg8 23. Rf6f Kf8
24. Rxe7 gxf6 25. Rxc6 De8 26.
Db4! a5 27. Dc3)
22. Rf5xe7 Dd8xe7
Nú hefur svartur væntanlega
hugsað með ánægju til 23. Re4
Bf5 24. Hd4 c5 25. Hc4 Hd8,
en blindingurinn kemur honum
aftur á óvænt.
23. Da4—e4!
Verst máti og hótar máti sjálf-
ur, svo að svartur á ekki ann-
ars úrkosta en taka drottn-
ingakaup. Hann tapaði síðan
skákinni eins og vera bar.
Þetta mé allt finna í bók Alje-
khins „Beztu skákir mínar“ og
einnig þá að því er virðist
sjálfsögðu athugasemd, að 20.
— Rf6xe4 strandi á 22. Hd6xd7.
en nýlega hefur rússneskur
skákvinur botnað á snjallan
hátt: 22. — Dd8xd7!! 23. He7x
d7 Re4—c3! Nú vofir bæði mát
og frúarmissir yfir, svo að hvít-
ur á varla á öðru völ en 24.
Rf5—h6f Kg8—h8 25. Rh6xf7f
Kh8—g8 26. Rf7—h6f og jafn-
tefli með þráskák. Hann hefði
því sennilega betur teflt 32.
Da4xe4 með góðum vinnings-
horfum.