Þjóðviljinn - 06.03.1955, Síða 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 6. marz 1955
þióoyiuiNN
Útgefandl: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Rltstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.)
Fréttastjórl: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Benediktsson, GnB-
mundur Vigfússon, Ivar H. Jónsson, Magnús Torfl Ólafsson.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýslngar, prentsmiðja: Skólavörðustig
19. — Sími 7500 (3 línur).
Áskriftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrennl; kr. 17
annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið.
Prentsmlðja Þjóðviljans h.f.
______________________________________________________J
Stjórnmálabandalag alþýðunnar
íslenzka auðmannastéttin hefur þungar áhyggjur um þessar
mundir. Það hefur sett að henni hrollkenndan ótta við þær
kröfur sem verkalýðsstéttin gerir um bætt kjör og aukna hlut-
deild í vaxandi þjóðartekjum. Auðmennirnir telja þessar kröfur
verkalýðsins ógna hagsmunum sínum, þeir sjá fram á að ein-
huga verkalýðssamtök undir róttækri og öruggri forustu muni
ekki skiljast við kröfur sínar um hærra kaup verkamönnum til
handa fyrr en þeim er komið í örugga höfn og réttur verka-
lýðsins til kauphækkunar og kjarabóta viðurkenndur með nýj-
um samningum.
Eins og nærri má geta er voldugri og fégráðugri auðmanna-
stétt það ekkert fagnaðarefni að sjá á eftir auknum hluta af ár-
legum tekjum þjóðarinnar til vinnustéttanna í landinu. En fram
að þessu hafa auðmennirnir kunnað öruggt ráð við sigrum
verkalýðsins í kaupgjaldsbaráttu. Þeir hafa einfaldlega beitt rík-
isvaldi sínu til þess að heimta aftur í eigin hendur þær kjarabæt-
ur sem verkalýðurinn hefur unnið. Til þessa verknaðar hafa auð-
mennirnir notað yfirráð sín á Alþingi og í rikisstjórn. Þessar
gagnráðstafanir hafa birzt í hækkuðum tollum og sköttum,
gengislækkun og bátagjaldeyri, hamslausri verzlunarálagningu
og hömlulausu braski. Allar hafa þessar ráðstafanir sem gerðar
hafa verið í krafti afturhaldsmeirihluta á Alþingi verið við það
miðaðar að ræna aftur af alþýðunni því, sem kjarabaráttan færði
henni í hærra kaupi og betri kjörum. Auðmennirnir hafa hefnt
þess á Alþingi sem hallaðist í sjálfri stéttabaráttunni.
Þessi reynsla hefur fært öllum hugsandi verkamönnum heim
sanninn um, að þótt kjarabarátta verkalýðssamtakanna í þrengri
merkingu, hafi geysilega þýðingarmiklu hlutverki að gegna, er
hún á engan hátt einhlít. Til þess að tryggja sigra verkalýðs-
hrejTingarinnar á sviði kjarabaráttunnar þarf verkalýðurinn
sjálfur að ráða yfir pólitísku valdi og því valdi þarf hann að ná
úr höndum auðmannastéttarinnar. Á sama hátt og verkalýður-
inn hefur sameinazt í stéttarsamtökunum og gert þau svo að
segja að ómótstæðilegu afli í þjóðfélaginu, þarf hann að skapa
sér svo öflug stjórnmálasamtök á Alþingi að þau séu þess megnug
að taka forustuna af auðmannastéttinni og beita ríkisvaldinu í
þágu hins vinnandi fólks. Það þarf m.ö.o. að útiloka þann mögu-
leika að auðmenn og braskaraöfl séu þess umkomin að ræna aft-
ur af verkalýðnum með löggjafaraðgerðum þeim árangri sem
hagsmunabaráttan færir í aðra hönd.
Sá hluti verkalýðsins sem stéttvísastur er og þroskaðastur
hefur fyrir löngu komið auga á þessa nauðsyn þótt sá skilning-
ur hafi ekki verið nógu almennur til þessa. En á þessu er að
verða gagngerð breyting. Fjölmenri. verkalýðssamtök hér í
Reykjavík og út um land hafa að undanförnu gert einróma
samþykktir á fjölsóttum fundum, þar sem skorað hefur verið á
verklýðsflokkana að taka upp samstarf á stjórnmálasviðinu og
því beint til Alþýðusambands íslands að beita sér fyrir „raun-
hæfu stjórnmálasambandi sem tryggt gæti áhrifavald verkalýðs-
ins á Alþingi til samræmis við þjóðfélagslegt gildi og vald verka-
lýðsstéttarinnar með íslenzku þjóðinni“ eins og komizt er að
orði í samþykkt Verkamannafélagsins Þróttar á Siglufirði.
Að vonum verða málgögn auðmannastéttarinnar ókvæða við
þegar verkalýðurinn krefst pólitískrar einingar í röðum sinum
og setur sér það mark að svifta hana undirtökunum á stjórn-
málasviðinu. Öp Morgunblaðsins og Vísis eru því skiljanleg.
Þessi blöð vilja að eigendur sínir hafi eftirleiðis eins og hingað
til óskerta möguleika til að svara hverri kauphækkun og kjara-
bót með nýjum tollahækkunum, gengisfellingum og verðhækk-
unum. Þess vegna eru allar umræður og fyrirætlanir um stjórn-
málabandalag alþýðunnar og valdasviftingu auðmannastéttarinn-
ar á Alþingi ógnþrunginn „kommúnismi" og glæpastarfsemi sem
gerir jafnvel fyrirhugaðar kauphækkanir að barnaleik einum!
Morgunblaðið og Vísir eiga þakkir skildar fyrir leiðbeiningar
sínar og hreinskilni í þessu efni. Sá hrollkendi ótti auðvalds og
braskarastéttar sem fram kemur í skrifum þeirra mun verða
Öllum verkalýð öflug hvatning til að rækja af einbeitni og festu
báða höfuðþætti hagsmunabaráttu sinnar. Verkamenn sækja
rétt sinn í hendur atvinnurekendavalds og ríkisstjórnar með
nýjum sigri í kaupgjaldsbaráttunni. En þeir eru jafnframt ráðn-
ir í að tryggja árangur sinn og leggja grundvöll að nýrri sókn
með því að koma á stjórnmálabandalagi alþýðu og vinstri afla.
---------SKAK Ritstjórijj Guðmundur Arnlaugsson 1
-------------------------------------------------------------------—.—^
Kóngur á
Ská.kin sem hér fer á eftir var
tefld á skákþingi Reykjavikur
fyrir nokkru. Hún er óvenjulegra
glæfraieg og spennandi. Hvítur
leitar sóknar og svartur fellst
alveg á fyrirætlanir hans, gefur
honum kost á og nærri knýr
hann til mannsfórnar. Staðan
verður mjög tvísýn, svarti kóng-
urinn er í mestu hættu, en hon-
um tekst að ríða storminn af.
Eftir það fórnar svartur mann-
inum aftur, að því er virðist af
misskilningi, og eru nú kóng-
arnir háðir orðnir all berskjald-
aðir, en í lokaátökunum stend-
ur svartur betur að vígi og vinn-
ur snoturlega.
----------------- ★
ÞEGIÐ
DROTTNINGAR-
BRAGÐ
Jón Þorsteinsson — Gunnar
Óliafsson
1. d2—d4 d7—d5 2. c2—c4 d5xc4
3. e2—e3 a7—a« 4 Bflxc4 e7—efi
5. Rgl—fS Rg8—f6 6. 0—0 c7—c5
7. Ddl—e2 b7—b5 8. Bc4—d3
Rb8—d7 9. e3—e4 c5xd4 10.
e4—e5 Rf6—d5 11. Rf3xd4
Dd8—c7
Pyrirætlanir hvíts eru deginum
Ijósari: bein sókn á óvinakóng-
inn. Hvítur hótaði þegar Rxe6
(fxe6, Dh5t, Ke7, Bg5t). En
þessari byggingu fylgja ekki
tómir kostir, e-peðið er að visu
ógnandi, en það er hjálparþurfi,
og svartur á ekki í neinum
vandræðum með að koma mönn-
um sínum fram.
12. Rbl—c3 Rdóxc3 13. b2xc3
Bc8—b7 14. a2—a4 b5xa4 15.
Bcl—14 Dc7xc3
Hvorugur er smeykur, svartur
bersvœSi
nærri knýr hvit til að fórna.
16. Rd4xe6 f7xe6 17. Hal—ol
DcS—a5 18. De2—h5t Ke8—d8 19.
Hfl—dl Bf8—e7 20. Dh5—f7
Hh8—f8 21. Df7xe6 Bb7—d5 22.
De6—g4 h7—h5 23. Dg4—g3
Ha8—c8 24. HclxcSt Kd8xc8 25.
Hdl—clt Kc8—d8
Kóngurinn kann bezt við sig
miðsvæðis, enda er ekki annars
staðar skýlla. En nú ríður síð-
asta sóknaraldan yfir. Með næsta
leik sínum hófcar hvitur bæði
dxR og Bc7t.
26. eö—e6 Rd7—c5
Svai-tur hefur gaman af eldin-
um, hann átti einnig kost á
Hxf4 (Dxf4, Bxe6 eða exd7, Dd2).
27. Bf4—d6 Rc5—e6 28. Dg3—e5
Kd8—d7 29. Hcl—c5
Kostuleg staða! Ekki er annað
hægt að segja en að hvítur tjialdi
þvi sem til er. Og hver veit
nema svartur villist í Rxc5 30.
Dxe7t Kd6 31. Dc7 mát!
29. —^ — Be7xd6! 30. Hc5xd5!
Da5—c7 (Db6!) 31. Bd3xa6 Kd7
—e7 32.De5xh5 Bd6xh2t
Yfirsjón eða hvað? Svartur á
allavega unnið tafl, t.d. Db6,
De2, Bc5.
33. Dh5xh2 Dc7—b6 34. Dh2—h4t
g7—g5 35. Dh5—h7t 1118—17 36.
Dh7—d3 Db6xf2t 37. Kgl—h2
Ke7—f8 38. Hd5—d7 Df2—f4f 39.
g2—g3
Nú fær svartur færi á að Ijúka
skákinni fallega.
39. — — Df4—f2t 40. Kh2—h3
Re6—f4t! 41. g3xf4 g5—g4t! —
og mátar í þriðja leik.
Stöðumynd
K I M U R A
ALJEKHIN
Þessi staða kom upp í skák, er
Aljekhin tefldi blindandi ásamt
14 skákum öðrum austur í
Tokíó 1933. Svartur lék síðast
Hfe8 og hefur sennilega búizt
við, að hvítur yrði að láta sér
nægja Hxe8f, Dxe8, Re3 vegna
mátsins í borðinu. En Aljekhin
lék 20. Rc3—e4! og framhaldið
varð: 20. . . . He8xe7 21 Re4x
f6t Kg8—h8.
g7xf6 leiðir auðvitað til máts
og eftir Kf8 vinnur hvítur einn-
Framhald á 4. síðu.