Þjóðviljinn - 18.03.1955, Síða 3

Þjóðviljinn - 18.03.1955, Síða 3
Föstudagur 18. marz 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (í Banaverndarfélagið heldur almennan fund: Umferðaslysin og börnin Bœtt verður um slysahættuna 09 hvaða örygg- isráðstafanir sé hægt að gera Barnaverndarnefnd Reykjavíkur hélt aöalfund sinn 24. í .m. Á sunnudaginn kemur heldur félagið almennan fund til að ræða hættu þá sem bömum stafar af um- ferðinni og ráðstafanir til að draga úr þeirri hættu. Á aðalflundi félagsins 24. febr. var stjómin endurkjörin. Félagið hefur styrkt nokkra menn til náms erlendis í ýmsum greinum kennslu handa afbrigðilegum börnum. Félagið ætlar að gefa Skálatúnsheimilinu húsgögn í clagstofu • barnanna (Áður gaf það Skálatúnsheimilinu rúm og rúmfatnað fyrir 60 þús. kr.). Fé- lagið á nú'kr. 53 þús. í sjóði. Rædd voru þessi mál: 1. Um óheppilegan skólatíma þeirra barna, sem eiga að vera í skóla yfir hádegið og missa þess vegna af sameiginlegum há- degisverði með fjölskyldu sinni. Var í því máli san.pykkt ein- róma eftirfarandi áskorun. „Aðalfundur Barnaverndarfé- lags Reykjavíkur, haldinn í Rvík 24. II. 1955, bendir á þá alvar- legu staðreynd, að fjöldi barna er bundinn í skóla frá kl. 11 og fram yfir hádegisverð, allt fram um kl. 15, eftir lengd daglegs skólatíma. Mun hér oftast um að ræða 3 yngstu aldursflokka fræðsluskyldra barna. Vegna þessa skólatíma missa börnin af sameiginlegum hádegisverði með fjölskyldu sinni. Verða oft mikil vandkvæði á því að fá börnin til þess að neyta fullkominnar mál- tíðar, þegar þau koma heim úr skóla síðdegis. Með þessu skipu- lagi telur fundurinn heilsu barn- anna stefnt í hættu, auk þess sem rofin eru mikilvæg tengsl barns við foreldra, þegar upp- hafin er samverustund við sam- eiginlega máltíð. Það er alkunna, Verkföllin Framhald af 1. síðu. • Einhuga verkalýðshreyfing1 Sjaldan eða aldrei fyrr hefur verkalýður bæjarins gengið jafn einhuga til nokkurrar kjara- baráttu og þeirrar sem nú stend- ur yfir. Stjórnmálaskoðanir og annar ágreiningur skiptir mönn- um ekki í flokka að þessu sinni; öllum ber saman um að hvergi skuli slakað fyrr en tryggðar hafa verið stórvægilegar kjara- bætur. Og sjaldan eða aldrei fyrr hefiu1 verkalýðurinn haft jafn einhuga stuðning þjóðarinn- ar allrar. Atvinnurekendur standa algerlega einangraðir meðal þjóðarinnar; þeir geta að vísu haldið áfram að vinna skemmdarverk um skeið — en þeir bíða ósigur; og ósigur þeirra verður þeim mun meiri sem framkoma þeirra er einstreng- ingslegri og ofstækisfyllri. að sameiginleg máltíð er meðal hinna fáu stunda, sem önnum kafínn faðir getur helgað bömtim sínum. Það er andstætt uppeld- islegum tilgangi skólans að rjúfa þessi tengsl, en ófullnægjandi næring bamsins dregur úr hreysti þess og námsgetu. Af þessum sökum skorar fund- urinn á menntamálaráðherra og fræðsluráð Reykjavíkurbæjar að afnema hið bráðasta þrísetningu í skólum og að skipa kennslu þannig, að skólabörnum sé ætl- aður matmálstími á heimilum sín- um með venjulegum hætti.“ II. Hin tíðu umferðaslýs á bömum. Kom fram á fundinum sú skoðun, að með auknum ör- yggisaðgerðum af hálfu hins op- inberá og með fræðslustarfsemi meðal foreldra megi draga veru- lega úr slysahættunni. Ákvað fundurinn, að félagið beiti sér fyrir aukinni starfsemi í þessa átt. Félagið gengst fyrir almennum fundi um þá hættu, sem böm- unum stafar af umferðinni, og um tiltækar öryggisráðstafanir. Félagið hefur leitað samvinnu við S.V.F.Í. og umferðalögregl- una og verða fulltrúar beggja frummælendur á fundinum, sem haldinn verður í Tjamarcafé kl 2 e. h. á sunnudaginn, eins og nánar verður auglýst. Þar gefst hverjum þeim, sem áhuga hefur á þessum málum, tækifæri til að láta í ljós álit sitt og bera fram tillögur sínar. Húsnæðisvandræðln gerð að happdrættisbeitu Þórunn Magnúsdóttir flutti á bæjarstjórnarfundi í gær eftirfarandi tillögu: „Með pví að bœjarstjómin lítur svo á, að áévörðun um skipulagningu og undirbúning byggingalóða í raðhúsa- hverfinu við Réttarholtsveg hafi miðaðst við pað, að bær- inn hefði par forgöngu um byggingu íbúða. til að leysa braggana af hólmi, telur bœjarstjómin ekki fœrt að gefa Happdrœtti dvalarheimilis aldraðra sjómanna eða öðrum aðilum kost á lóðum á pessu svæði“. íhaldið fórnar hagsmun- um Reykvíkinga Framhald af 12. síðu. oddsen reyndi að mótmæla því að bærinn dinglaði alltaf aftan í atvinnurekendum — en gat ekkert dæmi nefnt um það gagnstæða. Én svo brátt hljóp atvinnurekandinn í hann og hann hótaði minni framkvæmd- um bæjarins ef samið yrði um hækkað kaup! Að vera eða vera ekki! Bárður Daníelsson kvaðst ekki vera meðflutningsmaður tillögunnar, því sínir flokks- menn litu svo á að kauphækk- anir væru engin allsherjar „sáluhjálp'1 til að bæta kjör verkalýðsins. Hinsvegar kvaðst hann fylgjandi því að bærinn semdi, því sett upp sem einfalt reikningsdæmi þá væri sjálf- sagt fyrir bæihn að semja í stað þess að láta allt stöðvast. Verkalýðurinn íái full- trúa í ríkisstjórn. Þórður Björnsson kvaðst ekki líta svo á að kauphækkun væri einhlýt kjarabót, ef hún væri síðan tekin af verkalýðnum með öðrum ráðstöfunum. Til þess að tryggja verkalýðnum árang- ur kauphækkunar þyrfti að gera margháttaðar ráðstafan- ir og þá fyrst og fremst að lækka milliliðagróðann. M.a. sagði hann; Það þarf að sýna verkalýðnum meiri trúnað, þann trúnað að verkalýðurinn eignist fulltrúa í ríkisstjórn. Það mun reynast hverri rík- isstjórn erfitt að hafa samtök 20—30 þús. manna í andstöðu. íhaldið launar verka- mönnum Svo launaði Ihaldið þeim verkamönnum sem kusu það við síðustu bæjarstjómarkosn- ingar með því að borgarstjór- inn flutti tillögu um að vísa frá að semja við verkalýðsfélögin. Þessir neituðu að semja við verkalýðsfélögin: Gunnar Thoroddsen, Auður Auðuns, Einar Thoroddsen, Þorbjöm Jóhannesson, Geir Hallgrimsson, Sigurður Sigurðsson, Björgvin Fredriksen, Jóhann Hafstein. Fulltrúar Sósíalistaflokksins, Alþýðuflokksins og Þjóðvarnar- flokksins greiddu atkvæði gegn frávísunartillögunni, en Þórður Bjömsson sat hjá. Þórunn kvað það myndu hafa ahnennt verið skilið svo, að bæjarstjóm samþykkti að braggabúar skyldu sitja fyrir um íbúðir í húsum þeim er byggja ætti við Réttarholtsveg, og væri hún á móti því að þarna yrðu í þess stað byggðar íbúðir til að hafa um þær happdrætti. Þá spurði hún borgarstjóra hvað liði byggingu 50—80 íbúða er bæjarstjóm samþykkti á s.l. sumri að láta byggja. Borgarstjóri svaraði því að Aðalfundur Félags bifreiðasmiða Aðalfundur Félags bifreiða- smiða var haldinn föstudag 25. febr. og var hann mjög fjölmenn- ur. Fráfarandi formaður félagsins gaf skýrslu um störf félagsins á síðasta ári. Á fundinum ríkti megn óánægja yfir innflutningi á yfirbyggðum bifreiðum. Formaður var kosinn Sigurður Karlsson og 4 meðstjómendur þeir Gísli Guðmundsson, Hjálmar Hafliðason, Magnús Gíslason Gunnar Björnsson og til vara Eyjólfur Jónsson og Eysteinn Guðmundsson. Ungir heimilisslofnendur halda fund á sunnudaginn Á sunnudaginn kemur verður fundur til undirbúnings stofnunar félags ungra heimilisstofnenda. Fundurinn verður haldinn í Aðalstræti 12 og hefst kl. 2 e. h. Tilgangurinn með stofnun fé- lagsins er að ungir heimilisstofn- endur geti sameinað krafta sína til lausnar á húsnæðisvandræð- um sínum og öðrum sameiginleg- um vandamálum. Allir sem eitthvað fylgjast með málum í bænum vita hversu gíf- urlegum vandkvæðum það er bundið fyrir ungt fólk að stofna heimili, og veldur þar húsnæðis- leysið mestu, þótt engum sé það eins kunnugt og unga fólkinu sjálfu, enda er fyrst og fremst ætlazt til þess að á fundinum mæti ungt fólk sem er í þann veginn að stofna heimili, eða hefur þegar gert það, án þess því hafi tekizt að tryggja sér hús- næði. bygging þessara íbúða væri í undirbúningi og „gengið út frá“ að framkvæmdir hefjist á þessu ári. Kvaðst hann telja sjálfsagt að Dvalarheimilið fengi lóðir við Réttarholtsveginn því „þarna er aðili er hefur fjármagn til að byggja". Tillaga Þórannar var felld með 10 atkv. gegn 4. Kópavogur Framhald af 12. síðu. Kópavogshrepp, þar sem okkur þremur sem meirihluta hrepps- nefndar er boðið að „fá til SAMANS jafnan ræðutíma og fulltrúar HVERS hinna þriggja stjórnmálafélaga, sem til fund- arins boða“, þannig að við þrír, meirihluti hreppsnefndar, fengj- um aðeins % af þeim ræðu- tíma, sem ætlaður er til fram- sögu í málinu, en naumast meira en 1/10 af öllum fundar- tímanum. Þessum kostum hinna „þriggja lýðræðisflokka“ vilj- um við ekki taka. Hreppsnefnd Kópavogs- hrepps hefir þegar samþykkt að efna til almenns borgara- fundar um þetta mál, áður en það verði lagt undir atkvæði allra kosningabærra íbúa hreppsins. Teljum við sjálfsagfc að þeim borgarafundi verðl hagað svo, að meirihluta og minnihluta hreppsnefndar í þessu máli verði veittur jafn ræðutími og komi þeir sér sam- an um fundarstjóra og fundar- sköp, enda verði kjósendum veittur ríflegur tími til um- ræðna um málið. Að sjálfsögðu verði fundurinn eingöngu fyrir lireppsbúa. Þá teljum við ófært að halda slíkan fund á virkum degi. Erum við til viðræðu um þetta mál við minnihluta hrepps- nefndar, og verður ákvörðun um boðun sliks borgarafundar tek- in á hreppsnefndarfundi." (Undirskriftir) Á hreppsnefndarfundi í gær samþykkti svo hreppsnefndin, samkvæmt fyrri ákvörðun, að boða til borgarafundar 27. marz og skyldi hvor málsaðili meirihluti og minnihluti hrepps nefndar hafa jafnan ræðutíma og auk þess fá kjósendur ríf- legan tíma til umræðu um mál- ið. M ÁL OG MENNING: Ný fétagsbók ~ Nýtt tímaritshefti Félagsmenn vitji bókarinnar og tímarits- ins sem allra iyrst í Bókabúðina á Skóla- vörðnstíg 21. ól og menning Skólavörðustíg 21 — Sími 5055 i 4 i • *«« iii ) MUU« (UM/iG . ■■■■■■■■■■■■^■■■■■•■■■■■■■■■■■,

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.