Þjóðviljinn - 18.03.1955, Qupperneq 12
Bæjarstjórnaríhaldið neitar
enn að sem ja við verkalýðinn
Bœjarfulltrúar SjálfstœSisflokkslns fórna
enn hagsmunum Reykvikinga á altari
Vinnuveitendasambands Islannds
Fulltrúar SósíalistaflokJvsins og Alþýðuflokksins fluttu eftir-
farandi tillögu á bæjarstjórnarfundi í gær:
„Þar sem horíur eru á að ekki takist samningar
milli verkalýðsfélaganna og atvinnurekenda án
vinnustöðvunar, en hins vegar nauðsynlegt fyrir
bæinn að geta haldið framkvæmdum sínum og at-
vinnurekstri gangandi, leggur bæjarstjórnin fyrir
borgarstjóra að leita nú þegar eftir sérsamningum
við samninganefnd verkalýðsfélaganna á eftirfar-
andi grundvelli:
Reykjavíkurbær og stofnanir hans undirgangist
að greiða kaup samkvæmt kröfum verkalýðsfélag-
anna meðan ósamið er við aðra atvinnurekendur, en
verði síðan aðili að þeim samningum er endanlega
takast milli verkalýðsfélaganna og atvinnurekenda.”
Flutningsmenn tillögunnar koma til verkfalls. Ef bærinn
voru þessir: Guðmundur Vig-
fússon, Magnús Ástmarsson,
Alfreð Gíslason, Sigurður Guð-
geirsson og Þórunn Magnús-
dóttir.
Guðmundur Vigfússon hafði
framsögu fyrir tillögunni.
Minnti hann á þann frest er
verkalýðsfélögin hefðu gefið til
þess að ná samningum án verk-
falls, en sem atvinnurekendur
hefðu ekki notað og myndu því
verkfall hefjast á miðnætti.
Þá rakti hann nokkuð hver
nauðsyn verkalýðnum væri á
bættum kjörum þar sem kjör
hans hefðu versnað mjög á und
anförnum árum, kaupmáttur
launanna rýrnað um 20%, og
væri þá ekki meðreiknaður sá
liður sem mest hefði hækkað:
húsaleigan.
Hægt að hækka kaupið.
Hlutur verkalýðsins í þjóðar-
tekjunum er of lítill, og mót-
bárurnar gegn hækkun kaups-
ins eru blekking þar sem þjóð-
artekjurnar hafa vaxið úr 54
þús. kr. á hverja 5 manna fjöl-
skyldu 1947 í 87 þús. kr. 1954.
Þá ræddi hann hverjum erf-
iðleikum það myndi valda og
tjóni fyrir bæinn ef Iátið yrði
ætlaði að hafa byggingarlóðir
tilbúnar á hæfilegum tima yrði
að vinna við það af fullum
krafti í stað þess að fella lóða-
undirbúninginn niður. Þau
auknu útgjöld sem bærinn hlyti
af því að semja strax upp á
kröfur verkalýðsfélaganna og
ganga síðan inn í þá samninga
er atvinnurekendur gerðu væru
smámunir einir móts við það
tjón sem hlytist af því að
semja ekki.
Ekki óbreyttur meðlimur
í Vinnuveitendaíélaginu.
Afreð Gíslason kvað ríki og
bæ ekki hafa samstöðu með
atvinnurekendum. Bænum' bæri
skylda til að greiða sem hæst
kaup og hann hefur hag af því
að almenningur búi við sem
bezt kjör, — en atvinnurek-
endur hafa hinsvegar hag af
því að greiða sem lægst kaup.
Bærinn er þvi ekki óbreyttur
meðlimur í Vinnuveitendafélag-
inu, þótt fulltrúum Sjálfstæð-
isflokksins hætti til að líta á
sig sem sjálfsagða samherja
atvinnurekenda, en slíkt er að
misskilja fullkomlega aðstöðu
sína sem bæjarfulltrúi.
Magnús Ástmarsson kvaðst
einnig telja það sjálfsagt að
bærinn gerði sérsamninga við
verkalýðsfélögin.
Gunnar hótar!
Gunnar borgarstjóri Thor-
Framhaid á 3. síðu.
bnðoyiumN
I'östudagur 18. iriarz 1955 — 20. árgangur — 64. tölublað
Verkamaimafélag Hósavíkur krefst
npáinar vínstri stjórnar
Húsavík. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Eftirfarandi tillaga var samþykkt í einu hljóði
á aöalfundi Verkamannafélags Húsavíkur, er
haldinn var 16. marz s. 1.:
„Aðalfimdur Verkamannafélags Húsavíkur,
haldinn 16. marz 1955 fagnar framkomnum til-
mœlum miðstjómar Alþýðusambands íslands til
fjögurra stjómmálaflokka, Sósíalistaflokksins,
Framsóknarflokksins, Alþýðuflokksins og Þjóð-
varnarflokksins, um myndun ríkisstjórnar er miði
stjórnarstefnu sína við þarfir vinnandi stétta í
landinu.
Jafnframt skorar fundurinn á viðkomandi
stjórnmálaflokka að verða við þeim tilmœlum“.
■■■■■■■■■■i
Faxaverksmiðj unnl
breytt í frystihús?
í ráði er að breyta Faxaverksmiðjunni í hraðfrystihús. Myndi
sú framkvæmd kosta 9 millj. króna.
Faxaverksmlðjan var á sínum
tíma byggð til þess að vinna síld,
Kaupstaðarmálið í Kópavogi:
Heirihluta hreppsnefndarboðinn 1/10
ræðutíma á fundi Jýðræðisflokkanna1!
Meirihlutinn tekur ekki þátt í fundinum, en ákveð-
ur borgarafund 27. marz
Húsabraskaramir skulu enn ganga
fyrir með byggingalóðir
Sigurður Guðgeirsson flutti eftirfarandi tillögu á bæjarstjórn-
r.rfundi i gær:
„Bæjarstjórnin telur óhjákvæmilegt með tilliti til húsnæðis-
ástandsins í bænum, svo og tilfinnanlegrar vöntunar á bygging-
arhæfum íbúðarhúsalóðum, að það sjónarmið sé í meginfttnðuni
látið ráða við lóðaúthlutun hvort viðkomandi hefur þörf fyrir lóð
af húsnæðisástæðum.
Felur bæjarstjórnin lóðanefnd og bæjarráði að hafa eftirleiðis
þetta meginsjónannið í huga við ákvörðun um lóðaúthlutun til
íbúðabygginga“.
Flokksfélög Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins
og Alþýðuflokksins í Kópavogi boða til „almenns borgara-
ítmdar“ í bamaskóla hreppsins í kvöld. Meirihluti hrepps-
nefndar neitar að taka þátt í fundinum, þar sem honum
ér aðeins boðinn tíundi hluti ræöutímans, en samþykkti
liinsvegar í gær, samkv. fyrri ákvöröun hreppsnefndar, að
boða til almenns borgarafundai' um málið annan sunnu-
dag.
Eins og áður hefur verið
sagt frá, samþykkti hrepps-
nefndin á fundi 9. marz að boða
til almenns borgarafundar til
umræðna um kaupstaðarréttind-
in og að efna tii almennrar at-
kvæðagreiðslu um málið ef ekki
væri farið að tillögum meiri-
hluta hreppsnefndar og sýslu-
nefndar um það.
Þrátt fyrir þessa samþykkt
hlupu forustumenn þriggja
pólitískra flokka í Kóparvogi til
í gær og boðuðu til fundar, sem
þeir kalla almennan borgara-
fund, um málið. Sendu þeir
meirihluta hreppsnefndar boð
um að mæta, og skyldu þeir fá
til samans jafnlangan ræðutíma
og hver hinna pólitísku flokka.
Auk þess buðu þeir þing-
mönnum, ráðherrum og skrif-
stofustjóra í félagsmálaráðu-
neytinu tU fulltingis sér í mál-
inu. Þessu lýðræðislega tilboði
svaraði meirihluti hreppsnefnd-
ar með eftirfarandi bréfi:
,,16. marz 1955.
Okkur undirrituðiun hrepps-
nefndarmönnum hefir borist
boð yðar um þátttöku í fundi,
sem þér nefnið „borgarafund“
um kaupstaðarréttindi fyrir
Framhald á 3. síðu.
Sigurður kvaðst ekki þurfa að
útskýra slíka tillögu í löngu
máli, allir hlytu að skilja að
skilja að þegar slík húsnæðis-
vandræði eru eins og nú, þá
væri sjálfsagt mál að húsnæðis-
leysingjar gengu fyrir um bygg-
ingarlóðir, og ættu allir að verða
sammála um að ákveða svo sjálf-
sagðan hlut.
Fiokkur húsabraskaranna,
Sjálfstæðisflokkurinn, varð kind-
arlegur á svipinn, en Jóhann
Hafstein einn stóð upp og sagðist
ekki geta verið sammála því að
maður sem ætti stóra íbúð mætti
ekki byggja sér minni íbúð!!!
Tillögu Sigurðar var að við-
höfðu nafnakalli vísað til bæjar-
ráðs með 8 atkv. gegn 7. Fulltrú-
ar minnihlutaflokkanna greiddu
allir atkvæði gegn þvL
en um mörg undanfarin ár hefur
ekki um síldveiðar verið að ræða
í þeim stíl að neitt verkefni væri
fyrir verksmiðjuna.
Stjórn verksmiðjunnar telur
að það muni kosta um 9 millj.
að breyta henni í frystihús, en
það myndi kosta um 13 millj. að
reisa sambærilega nýbyggingu.
Væri einnig komið upp fiski-
mjölsvinnslu myndi það sér-
staklega kosta 2,5 millj kr. en
helmingi meira ef reisa ætti frá
grunni.
Reykjavíkurbær á Faxaverk-
smiðjuna ásamt Kvöldúlfi, og
ráða eigendurnir því yfir tug tog-
ara er gæti fullnægt hráefnisþörf
verksmiðjunnar allt árið.
Mál þetta var til lauslegrar
umræðu á bæjarstjórnarfundi í
gær.
Framlag til
sjúkraflugvélar
Stjórn Kvennadeildar Slysa-
vamafélags íslands í Reykjavík
hefur afhent Slysavarnafélaginu
kr. 40.000,00, sem framlag frá
deildinni til kaupa á nýjum vara-
mótor og skrúfu á nýju sjúkra-
flugvélina. Er þetta ágóði af fjár-
söfnun kvennadeildarinnar í
Reykjavík siðasta góudag.
Hannsókn haiin á bandarísku
lastabæli í Bankastræti 6
Nokkru fyrir miðnætti á
laugardagskvöldið var urðu
vegfarendur þess varir að lög-
reglan flutti Bandaríkjamenn
og íslenzkar stúikur frá
Bankastræti 6 og nú liefur
sakadómari hafið rannsókn á
kæru lögreghmnar út af máli
þessu.
Það liefur verið á almanna
vitorði að hús þctta væri sam-
komustaður bandrískra her-
manna og íslenzkra stúlkna
um alllangt skeið, þótt rétt-
vísin liafi ekki hafizt lianda í
niálinu fyrr.
Húsráðandi á hæðinni fyrir
ofan læknastofurnar í um-
ræddu húsi hefur dvalið einn
í húsnæðinu — og notað það
til að leigja bandariskuni her-
mömuuu og íslenzkum stúlk-
um afnot af húsakynnum sin-
um, og að því að sagt er tek-
ið 100 kr. og 200 kr. fyrir
rúmið i leigu.
Vonandi verður þetta til
þess að réttvísin taki rögg á
sig og framkvæmi rannsókn á
þeim stöðum öðrum sem orð-
rómur gengur mn að séu not-
aðir í svipuðu augnamiði og
Bankastræti 6 var.