Þjóðviljinn - 27.03.1955, Qupperneq 9
Sunnudagur 27. marz 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (9
% ÍÞRÓTTIR
RITSTJÓRI FRÍMANN HELGASON
km ii ----------------—
Álit ensks læknis á skað
semi hnefaleikanna
Handknatt-
leiksmótið
Hnefaleikaunnandi hefur sent
Iþróttasíðunni eftirfarandi
grein, sem hann þýddi úr
danska íþróttablaðinu (Idræts-
hladet).
,,Þegar því er haldið fram, að
hnefaleikar séu skaðlegir, þá
er slíkt hreinar ýkjur,“ segir
vel þekktur enskur, læknir, sem
ekki vill geta nafns síns með
tilliti til starfsaðstöðu sinnar.
,,Eg hefi nú verið læknir á
hnefaleikamótum í 25 ár og
veit því hvað ég segi í þessu
efni.“
„Álitið þér, að 10 til 15 lotur
séu skaðlegar fyrir hnefaleika-
mennina?“ „Alls ekki. Hnefa-
leikamaður í góðri þjálfun bíð-
ur ekki hinn minnsta hnekki
af slíkri keppni.V
„Hvaða aldurstakmark viljið
þér setja gagnvart hnefaleika-
keppni í mörgum lotum.“
„Eg myndi ekki ráða neinum
hnefaleikamanni til að taka
þátt í 15 lotu keppni, ef liann
er orðinn meira en 36 ára að
aldri, nema þá því aðeins, að
hann væri að verja titil og í
fullri þjálfun."
„Er hættulegt fyrir 18 ára
ungmenni að taka þátt í hnefa-
leikakeppni, sem er meira en 8
lotur.“
„Eg held því fram, að ekkert
sé við það að athuga, að 18
ára maður taki þátt í 8 lotu
hnefaleikakeppni. Hér í landi
mega 16 til 18 ára unglingar
aðeins keppa í linefaleikum
sem takmarkast við 6 lotur, en
18 ára til tvítugir menn mega
taka þátt í 8 lotu hnefaleika-
keppni.“
„Hvað segið þér um fall-
högg?“
„Þegar hnefaleikamaður ' er
sleginn rothögg lamast nokkrar
heilafrumur, en þessar frum-
ur ná sér aftur að fullu. Þá
fyrst er hætta á ferðum, er
hnefaleikamaðurinn hefur hlot-
ið mörg fallhögg og rothögg í
röð, því að þá getur hent sig
að svo fari að frumurnar geti
ekki náð sér. Hnefaleikamaður
Framhald á 10. síðu.
Á þriðjudag urðu úrslit í
handknattleiksmótinu þessi: 3.
fl. B: IR — Fram 7-5; 2. fl.
kvenna: Ármann A — Fram
12-0; meistaraflokkur kvenna:
KR — Þróttur 9-8; FH —
Valur 9-5; 2. fl. B karla: FH
— Fram 17-13; KR — IR
15-14.
Klukkan 20 í kvöld heldur
mótið áfram og keppa þá í 3.
fl. B Valur — KR, 2. fl. kvenna
FH — Fram, meistaraflokki
kvenna Þróttur — Ármann og
Fram — Valur, og loks í 1. fl.
ÍR varð IsUsmeistari í körfnknatt-
leik eítsr jafnan leik við Gosa
Gosi vann 2. flokks keppnina
Úrslitaleikir í körfuknatt-
leiksmótinu fóru fram s. 1.
föstudagskvöld. Auglýstir höfðu
verið 3 leikir en aðeins einn
fór fram því að tvö lið komu
ekki til leiks. Voru það Ár-
mann B í II. fl. og ÍKF frá
Suðurnesjum. Olli þetta von-
brigðum meðal áhorfenda,
þeirra sem sjá áttu um mótið
og höfðu augiýst það sérstak-
lega þetta kvöld, og ennfremur
þeirra sem leika áttu. Er slæmt
af mörgum ástæðum að svona
skuli koma fyrir.
Eini leikurinn sem fram fór
var úrslitaleikurinn í meistara-
flokki sem var milli ÍR og
Körfuknattleiksfél. Gosa. Var
leikur þessi hinn skemmtileg-
asti og er á leið mjög tví-
sýnn. ÍR hafði yfirhöndina til
að byrja með eins og mark-
staðan í hálfleik sýnir 25:15.
En Gosi sækir sig og hafði
jafnað er leikar stóðu 30:30.
iR tekur forustuna aftur og
nær 34:36. Síðar komst Gosi í
35:36. Þegar tíminn var að
verða búinn stóðu leikar 37:37.
Er þá dæmt tvöfalt víti á IR.
Tíminn er búinn, það má aðeins
taka vítaköstin, — sem bæði
mistókust — ÍR hafði betri
stigastöðu eftir fyrri leiki
mótsins.
Cunnar M. Magnúss: \
Börnm frá Víðigerði
heiðríkjur, stjörnubjört kvöld og hlæjandi mána
yfir náfölri sveitinni.
Veturinn breiddi hvítan feld yfir sveitina,
eins og venjulega, steypti gljáandi, spegilslétt
svell yfir tjarnirnar og vötnin, bjó til hjarn-
brekkur, skíðafæri, skautasvell og sleðafæri, svo
að börnin tíndu saman öll leikföng, sem tilheyra
þessum tíma, og báru út á hlað, en af hlaðinu
lágu svo allar leiðir.
Börnin í Víðigerði gleymdu því, að með vor-
inu ættu þau að flýja þetta kalda og hrjóstruga
land. Þegar þau voru komin á hrossleggjun-
um eða skautunum út á svellin, tunnustöfunum
eða skíðunum upp í hlíðarnar eða sleðunum í
brekkurnar, hólana og börðin, nutu þau himin-
dýrðar gleðinnar og hugsuðu ekki um erfiðleik-
ana, kuldann og stritið, sem fullorðna fólkið í
bæjunum var sífellt að tala um.
Sagan endurtók sig dag eftir dag í bæjunum,
því að allir voru í Ameríkuhug. Þegar hvíta
kafaldið sveiflaðist og þyrlaðist kringum bæina í
svartamyrkrinu á vökunni, mokaði snjónum
upp að bæjardyrunum og rúðunum, þá hryllti
kvenfólkið við að fara í karlmannsföt og illhlífa
sig, til þess að toga niður úr kúnum, þessum
stritlum, sögðu allir.
Og þegar karlmennirnir fóru á fætur í nístandi
kuldanum, til þess að fara í fjárhúsin, fannst
þeim dauðaónot fara um sig alla við það að bryðja
frosið skyrið í morgunmálið. Þeir skulfu, svo að
'tennurnar glömruðu í þeim.
Samkvæmt samþykktum hreppsnefndar Kópavogs-
hrepps 9. og 17. þ.m. um ALMENNA, LEYNILEGA
ATKVÆÐAGREIÐSLU um það, hvort gera eigi
hreppinn að KAUPSTAÐ NÚ ÞEGAR, eða hefja
umræður um SAMEININGU HREPPSINS VIÐ
REYKJAVÍK, verður
Methlaup Gunnars
Eins og menn muna fóru nokkrir frjálsíþróttamenn frá
Nor'öurlöndum til Bandaríkjanna fyrr í vetur og kepptu
þar á fjölmörgum innanliússmótum við góöan orðstír. Sá norrænu keppendanna, sem
vakti einna mesta athygli fyrir vestan, var hinn kunni, danski hlaupari Gunnar Niel-
sen; hann sigraði hvað eftir annað beztu langhlaupara Bandaríkjanna og setti nýtt
heimsmet í míluhlaupi innanhúss. Myndin hér fyrir ofan var tekin rétt um það
bil, er Gunnar hóf endasprettinn í methlaupi sínu í Madison Square Garden í New
York. í fararbroddi er Wes Santee frá Kansjxs, á hælum hans Dwyer og Gunnar þriðji.
Almennur borgarafundur
haldinn aö tilhlutan hreppsnefndar í barnaskól-
anum í dag, sunnudaginn 27. marz kl. 4 síðdegis.
Fundurinn er aðeins fyrir
hreppsbúa
Báðir málsaðilar, meirihluti og minnihluti hrepps-
nefndar, hafa jafnan ræðutíma á fundinum, en
kjósendum ætluö IV2 klst. til frjálsra umræöna.
Leynileg atkvæðag relðsl a
» '
um málið fer fram sunnudaginn 24. apríl, skv.
gildandi kjörskrá og reglum um sveitarstjórnar-
kosningar.
Kjörskrá
líggur frammi í skrifstofu hreppsins. KÆRUR
skulu komnar til oddvita fyrir 9. apríl.
Oddvifi Kópavogshrepps
«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■