Þjóðviljinn - 27.03.1955, Síða 10
310) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 27. marz 1955
I Einkaútilytjandi: j
jj lMI © •nnast Ctflutning og inn-
s
I FLUTNING Á TIMBBI, TRJÁIÐNABARVÖRUM OG
PAPPÍRS V ÖRUM
41. Vodickova Praha II Tchécoslovaquie
| Sinfóníuhljómsveitin Ríkisútvarpið \
■ ■
m m
Tónleikar
■ ■
■ ■
■ ■
■ ■
j í Þjóöleikhúsinu þriöjudaginn 29. marz kl. 7 síöd.
Stjórnandi OLAV KIELLAND
Einleikarar: INGVAR JÓNASSON og JÓN SEN
■ ■
■ ■
Verkefni:
: Bach: Konsert fyrir tvær fiölur og strengjasveit, :
1 d-moll.
m ■
Brahms: „Tragískur forleikur“, op. 81.
Tschaikowsky: Sinfónía nr. 5 í e-moll, op. 64
Aögöngumiðasala í Þjóöleikhúsinu.
Tilboð óskast í 4ra tonna
a! •
i I
■ ■
vörubif reið
• ■
■
G-1417, Chevrolet 1953, eins og hún er nú, eftir j
s skemmdir af árekstri. I
Tilboöum sé skilað fyrir föstudagskvöld, 1. apríl, j
til bœjarfógetaskrifstofunnar í Hafnarfirði, sem I
í gefur allar nánari upplýsingar.
I
2
í
Tiikynning um þátttöku í Varsjármótinu
Nafn: ..................................... -
Heimili: ..................................
Atvinna: ..................................
Fæðingardagur og ár:.......................
Félag: ....................................
(Sendist til Eiffs Bergmanns, Skólavörffnst. 19, Rvik)
ir
■
5
■
■
?
Hver ber skarðan hlut frá borði?
Hvað dvelur?
Framhald af 6. síðu.
andvirði takmarkaafkasta
kaupmannsins annarsvegar og
kaup hans hinsvegar. Hann
bætir við manni, meðan hann
gerir sér vonir um, að and-
virði takmarkaafkastanna sé
jafnt laununum. I frjálsri
samkeppni svara launin þann-
ig til takmarkaafkastanna,
eins og þau eru metin til pen-
inga.“
Samkvæmt þessu mun and-
virði ,,takmarkaafkastanna“
nú vera hærra en tímakaup
dagvinnustundarinnar og að
minnsta kosti jafn hátt með-
alkaupgjaldi unninna vinnu-
stunda. Bendir það ekki tví-_
mælalaust til þess, prófessor
Ólafur Björnsson, að tíma-
kaup verkamanna sé of lágt?
Greinar þessar voru skrif-
aðar í því skyni að vekja at-
hygli á þessum atriðum:
1. að samanburð í launa-
málum verkamanna ber fyrst
og fremst að miða við dag-
laun, þar sem 8 stunda vinnu-
dagur er viðurkenndur með
samningum verkamanna og at-
vinnurekenda.
2, - að vísitala framfærslu-
kostnaðar er úrelt og sýnir
ekki lengur sanna mynd verð-
lags.
3. að breytingar á sköttum
og tryggingum ásamt vöru-
skorti hafi haft lítil áhrif á
kaupmátt launa verkamanna,
1947—1954, (hvergi nærri 7%
heildartekna).
4. að þjóðartekjurnar muni
að öllum líkindum hafa auk-
izt á tímabilinu 1947—1954,
en skipting þeirra orðið ójafn-
ari en áður.
5. að ástandið á vinnumark-
aðnum bendi ótvírætt til þess,
að hækka þurfi kaupgjald
verkamanna.
Haraldur Jóhannsson.
* (Þjóðarframleiðslan skiptist
— svo að farið sé með sjálfsagða
hluti, — milli framleiðslu. sem
ihefur neyzluvörur að lokatak-
marki, og þeirrar, sem hefur
fjárfestingarvörur að lokatak-
marki. Á sama hátt er þjóðar-
tekjunum ýmist eytt til neyzlu
eða sparað er. Og nauðsynlegt
er að sömu hlutföll verði milli
neyzlu og sparnaðar við notkun
þjóðarteknanna og milli neyzlu-
varagerðar og fjárfestingar í
þjóðarframleiðslunni. Ef út af
er brugðið raskast verðgildi
peninga. Ef sparnaður minnkar
eða mö.o. stærri hluta þjóðar-
teknanna er varið til kaupa
neyzluvarnings án þess að fleiri
framleiðsluþáttum sé varið til
framleiðslu þeirra verða ekki
nsegar vörur á boðstóium, að ó-
breyttu verðlagi, handa öllum
þeim, sem kaupa vilja. Og þar
sem verðgildi peninga fer eftir
magni þeirra vara, sem kaupa
má fyrir þá, hsekka vörurnar
í verði, þ.e. gildi peninganna
rýrnar).
* Andvirði innfluttra neyzluvara
hefur öll fjögur undanfarin ár,
numið nær réttum þriðjungi heild-
arinnflutnings. Aúkning innflutn-
ings um 10% jafngilti þannig
aukningu heildarinnflutnings um
3%%, að öðrum liðum óbreytt-
um.
Barnaskemmtun
Sunnudagaskóli Óháða frí-
kirkjusafnaðarins heldur barna-
skemmtun kl. 10.30 til 12 f. h. í
dag þar sem hann- er til húsa.
Aðgangseyrir er 5 krónur fyrir
5 ára börn og yngri en 10 kr.
fyrir eldri börn. Aðgangseyri
þennan má einnig skoða sem
lítilsháttar skólagjald upp í
kostnað við skólahaldið, kvik-
myndasýningarvél og myndir, og
veitir gjaldkeri safnaðarins
gjaldinu viðtöku við inngang-
inn.
Á skemmtuninni í fyrramálið
verða sagðar sögur, lesið upp,
leikið á hljóðfæri og sungið, og
loks verða sýndar skemtilegar
kvikmyndir við bama hæfi. M.
a. verður sýnd stutt kvikmynd
sem tekin var í sunnudagaskól-
anum í vetur.
Framhald af 4. síðu.
sparifjáreignir sem þau gátu
sparað saman á stríðsárunum
og dögum nýsköpunarstjórn-
arinnar. Og atvinnurekendum
og núverandi ríkisstjórn er
bezt að gera sér ljóst strax, að
verkalýðsstéttin lætur ekki
bjóða sér svona hungurkjör
lengur. Verði lengur þrjóskazt
við að semja við verkalýðsfé-
lögin um það kaupgjald sem
nægir til sómasamlegrar lífs-
framfærslu launþega, þá get-
ur svo farið að atvinnurekend-
um og ríkisstjórn, finnist kald-
ur gustur blása um sig á næst-
unni. Verkamenn standa nú
fastar saman um kröfur sínar
en nokkru sinni fyrr, og eru
staðráðnir í því að sigra, hvað
svo sem það kostar.
Alþýðumaður.
tþrótti’
Framhald af 9. síðu.
sem hlotið hefur rothögg ætti
að sneiða hjá hnefaleikapallin-
um næsta mánuðinn á eftir.
Að sjálfsögðu er sá maður
ekki fullfrískur sem sleginn
hefur verið niður aftur og aft-
ur með stuttu millibili.“
„Getur högg á hnefaleikapall-
inum valdið dauða?“
„Heilbrigður hnefaleikamaður
í fullri þjálfun þolir jafnvel
hin hroðalegustu rothögg. —
Mannslíkaminn er margfalt
sterkari en flestir álíta."
SKÁKÞÁTTIIIINN
Framhald af 7. síðu.
Bezta svar hvíts sýnist vera
21. Kfl, hann á þá fullnægj-
andi vöm gegn nærtækustu
sóknarleikjum svarts Rc4 og
Rg4; t. d. 21. Kfl Rg4 22. Del
Re3f 23. Kf2 Dxc2f De2.
21. Kel—e2 Dc3—e3t 22. Ke2
—fl De3—f4t 23. Kfl—cl Df4
—e3t 24. Ddl—e2
Þetta var á misskilningi
byggt. Betra var að leika aft-
ur Kfl.
24. ... De3—c3t 25. Kel—f2
d4—d3!
Þennan leik hafði hvít sézt
yfir. Eftir c2xd3 Rxd3t vinnur
svartur aftur það sem hann
hefur fómað, t. d. 26. Kf3
Relt 27. Kf2 Dxal 28. Hxel
Dd4t og Hxa8, en það fram-
hald var þó betra en það
sem nú dynur yfir.
26. De2—el Re5—g4t 27.
Kf2—fl d3—d2!
Hörmuleg staða! Leiki hvítur
Ddl tapar hann drottningunni
strax, en eftir Dbl verður hann
mát (28. — De3!).
28. Del—g3 Dc3xalt 29.
Kfl—e2 Dalxhl og hvítur gafst
upp, enda er hann tveimur
mönnum undir (Kxd2, Rxh2!,
hvítur verður nú að leika
drottningunni, en þá hirðir
svartur biskupinn.) Kyndug
skák!
Verkamannaíélagið Dagsbrún
Félagsfundurl
verður í Iðnó mánudaginn 28. þ.m. kl. 2 e.h.
Fundarefni:
Verkfallsmálið |
Stjórnin
Shákdæmi
Skákdálkur enska blaðsins
New Statesman and Nation
flytur mikið af skemmtilegum
skákdæmum og þrautum. Þar
rakst ég fyrir skömmu á þetta
dæmi.
Það er að vísu hvorki
þyngra né veigameira en svo,
að flestir ættu að geta leyst
það án þess að setja upp borð
og menn. En lausnarleikurinn
er ljómandi fallegur.
Lausn á 2. síðu.