Þjóðviljinn - 10.05.1955, Page 9
- Þriðjudagur 10. maí 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (9
A ÍÞRÓTTIR
RtrSTJÓRl FRlMANN HELGASON
Reykjavíkurmótið:
Valur vann Fram 4:0
Lið Vals:
Helgi Danielsson, Ámi Njáls-
son, Sveinn Helgason, Stefán
Hallgrímsson, Einar Halldórs-
son, Sigurhans Hjartarson,
Hilmar Magnússon, Magnús
Sveinbjörnsson, Gunnar Gunn-
arsson, Hörður Felixson, Sig-
urður Sigurðsson.
Lið Fram: Karl Hirst, Guð-
mundur Guðmundsson, Reynir
Karlsson, Haukur Bjarnason,
Hilmar Ólafsson, Dagbjartur
Grimsson, Sigurður Svavarsson,
Steinn Guðmundsson, Karl
Bergmann, Skúli Nielsen, Gunn-
ar Leósson.
Það var með leik milli Vals
og Fram í meistaraflolcki sem
knattspyrnan var leyst úr vetr-
ardvalanum. Leikur þessi bar
þó minni merki þess en oft áður
á vorin að knattspyrnan hafi
legið í dvala í vetur. Sérstak-
lega voru Valsmenn frískari en
áður og höfðu úthald í báða
hálfleikina. Það hafði Fram aft-
ur á móti ekki, því eftir að
stundarfjórðungur var liðinn af
síðari hálfleik mátti sjá þreytu-
merki á liði þeirra, og svo mik-
ið var víst að 3 mörkin komu
eftir þann tíma og tvö þau síð-
ustu á 8 síðustu mínútunum.
Meðan Framarar höfðu út-
haldið í lagi var lelkuriim nokk-
uð jafn og töluverðar tilraunir
til að sýna góða knattspyrnu.
Miðað við þær breytingar sem
hafa orðið á liði Fram frá því í
fyrra var byrjun þeirra góð.
Magnús Jónsson í markinu,
Öskar Sigurbergsson báðir
landsliðsmenn í fyrra eru ekki
með og Guðmundur Jónsson
ekki heldur.
Lið Vals er svo að seg.ja það
sama og í fyrra nema hvað Hall-
dór Halldórsson var ekki með
vegna smámeiðsla.
Valur lék undan hægum vindi
f fyrri hálfleik, en tókst lengi
vel ekki að skapa sér tækifæri
til að skjóta. Á 23. mínútu fær
Valur aukaspyrnu sem Einar
spymir til Hilmars sem sam-
stundis spyrnir til Magnúsar,
sem skorar með föstu skoti. Það
er ekki fyrr en 20 mín. eru af
síðari hálfleik sem Hörður ger-
ir 2. mark Vals af stuttu færi.
Eftir það fóru tækifærin að gef-
KR gengst f yrir
námskeiði í hand-
knattleik
Handknattleiksdeild KR hef-
ur ákveðið að gangast fyrir
námskeiði í handknattleik fyrir
byrjendur bæði pilta og stúlkur.
Á námskeiðið að hefjast n.k.
föstudagskvöld kl. 7 og er tím-
inn milli 7 og 8 ætlaður stúlk-
ninum en kl. 8—9 drengjum.
Auk föstudaganna verður nám-
skeiðið á þriðjudögum á sama
tíma. Námskeiðið á að standa í
mánuð og verður kennt í í-
þróttahúsi KiR. Kennarar verða:
Frímann Gunnlaugss., Magnús
Georgsson og Hans Steinman.
ast enda höfðu Framarar ekki
þol til áð standast hraða Vals-
manna. Notuðu Valsmenn illa
tækifærin, en á síðustu minút-
unum skoruðu þeir Hörður og
Magnús sitt markið hvor.
Einstaklingarnir í vörn Vals
voru sterkir en staðsettu sig
illa. Sveinn hefur þó misst hraða
og er ekki samur og áður. Hann
meiddist snemma í leiknum og
kom Jón Þór. í hans stað, betri
en áður svo snemma. Gunnar
Gunnarsson hafði mikla yfir-
ferð og vann mikið en varð
ekki að samá skapi úr elju sinni.
Hilmar Magnússon nýliðinn í
liðinu byrjaði vel. Magnús hef-
ur aldrei komið betri til leiks
og nú í nýrri stöðu og sem
innherji, harður og fylginn sér
og skotákafur.
Leikur Fram úti á vellinum
var oft góður en þegar innað
marki kom virtist þá vanta að
sameinast um að skora og varla
verður sagt að þeir hafi skapað
sér tækifæri í Ieiknum til að
skora. Vörnin var betri helm-
ingur liðsins. Nýliðinn í mark-
inu lofar góðu, þó hefði hann
með , meiri æfingu væntanlega
varið tvö mörkin. Haukur
Bjarnason var sterkur en þó
ekki eim búínn að fá sitt fyrra
sparköryggi. Meðan þolið Ieyfi
voni þeir fljótir til á knöttinn
og í staðsetningar. Reynir og
Hilmar Ólafsson voru þeir sem
mest brotnaði á af sókn Vals.
Sem sagt nokkuð góður Ieikur
af fyrsta leik að vera.
Þess má að lokum geta að
skemmtilegt hefði verið að
byrja keppni ársins með nýj-
um knetti, en geyma gamla
knöttinn sem notaður var þar
til síðar.
Dómari var Guðbjörn Jóns-
son, og slapp nokkuð vel frá
því starfi.
Áhorfendur voru margir þótt
kalt væri í veðri.
Úrslitaleikur bikarkeppninn-
ar ensku milli Newcastle og
Manchester City fór fram s.l.
laugardag og fóru leikar svo
að Newcastle vann 3:1.
Newcastle hefur 10 sinnum
verið í úrslitum í bikarkeppn-
inni og munu önnur félög ekki
hafa verið það oftar.
Fram að 1923 fóru úrslitin
fram á Crystal Palace og þar
lék Newcastle 1905, 1906, 1908
og 1911 og tapaði alltaf en
1910 sigraði félagið. Eftir að
úrslitin fóru fram á Wembley
vann það 1924 Aston Villa, 1932
vann það Arsenal og sömuleiðis
Blackpool 1951, Arsenal 1952
og nú 1955. Að þessu sinni
munu það hafa verið sterkari
taugar sem hjálpuðu Newcastle
til að sigra fremur en yfirburð-
ir í knattspymu. En Wembley
virðist vera þeirra staður.
Bikarúrslitin á Wembleyleik-
vanginum eru hápunktur
brezkra íþrótta, Að fá blkar-
Sundmót 3MA
Sundmót Menntaskólans á.
Akureyri fór fram í sundlaug-
inni þar föstudaginn 29. apríl
s.l. Vegna hinnar óhentugu
lengdar á lauginni (35 m),
reyndist ekki unnt að keppa á
venjulegum keppnisvegalengd-
um.
ÚRSLIT:
105 m bringusund karla
Dagur Tryggvason 3. b. '1:44.9
Þórir Sigurðsson 3.b. 1:45.0
Ragnar Ragnars 4. b. 50.7
70 m. bringusund kvenna
Sjöfn Sigurbjörnsd. 4. b. 1:14.8
Þóra Þorleifsdóttir 4,b. 1:17.7
70 m frjáls aðferð ka.rla
Hreinn Sveinsson 3. b. 47.1
Helgi Þorsteinsson 5. b. 49.0
35 m fr.jáls aðferð kvenna
Sjöfn Sigurbjörnsd. 4. b. 23.3
Þóra Þorleifsdóttir 4. b. 31.8
Framhald á 11. síðu.
Síeisi Srikseii
þjálfari
i Argeutínu
Norski skíðakappinn frægi,
Stein Eriksen, er nú á heimleið
til Noregs eftir að hafa dvalizt
í Bandai-ikjunum í vetur og sýnt
og kennt, en hann gerðist sem
kunnugt er atvinnumaður í
skíðaíþróttinni á s.l. ári.
Hann ferðast á Stavanger-
f jord og verður að hafa annan
fót sinn í gipsumbúðum, þar
sem hann fótbrotnaði illa í marz
s.I. er hann var að sjma listir
sínar í slæmu færi. Stein er
samt bjartsýnn og með stórar
áætlanir. Hann býst við að verða
góður í júní svo liann geti farið
til Argentínu, en hann hefur
verið ráðinn til að þjálfa argen-
tíska olympíuliðið fyrir vetrar-
leikina í Cortina að vetri.
verðlaun afhent af Elísabetu
drottningu eftir endaðan úrslita-
leik er mesti heiður sem hlotn-
ast getur enskum knattspyrnu-
manni.
4. bekkur vann skógar-
hlaup MA
Hið svonefnda skógarboðhlaup
sem fram fer á hverju vori í
Menntaskólanum á Akureyri,
fór að þessu sinni fram mið-
vikudaginn 27. apríl. Keppnin
er bekkjakeppni, og sendir hver
bekkur 8 manna sveit. Hlaupið
hefst við skólahliðið og er
hlaupið suður með Listigarðin-
um og í stóran sveig suður
fyrir nýja sjúkrahúsið, síðan í
norður fjmir ofan nýju heima-
vsitina og endað í skólahliðinu.
Samtals er vegalengdin 1600—
1800 metrar,
Úrslít:
4. bekkur 3:52.0 mín.
5. bekkur 3:56.4 min.
3. bekkur 4:12.4 mín.
Newcastle vann bikarkeppnina
Sigurjén Pétursson frá Álafossi
Minningarorð
f dag verður Sigurjón Péturs-
son frá Álafossi til moldar
borinn. Með honum er geng-
inn einn af ötulustu forvígis-
mönnum íslenzkrar íþróttahreyf-
ingar.
Sem ungur maður lagði hann
stund á íþróttir og náði frábær-
um árangri í ýmsum greinum
miðað við þann tíma sem hann
æfði og keppti. Tók hann þátt
í mörgum íþróttagreinum en
mestur Ijómi stendur þó um
nafn Sigurjóns sem glímumanns.
En Sigurjón var meíra en iðk-
andi og keppandi. Hann var sí-
hvetjandi og örfandi æsku iands-
ins að iðka íþróttir og nota þær
til að efla og styrkja anda og
líkama. Á byrjunarskeiði í-
þróttanna hér hefur það verið
mikils virði að hafa bæði af-
reksmanninn og athafnamann-
inn sameinaðan í einum manni,
með þeim eldlega áhuga, bjart-
sýni og hjartans trú á gott
málefni, sem hann er þekktur
fyrir.
Allt til æviloka, meðan kraft-
ar entust, var hann trúr þessari
hugsjón sinni, bæði í orði og
verki. Má þar nefna sundlaug
hans að Álafossi og þá starf-
semi sem kringum hana var.
Hann skyldi samstarf og nauð-
syn samtaka íþróttamanna, og
vap forustumaður um stofnun
ÍSÍ á sinum tíma. Hinar miklu
athafnir Sigurjóns í þágu í-
þróttahreyfingarinnar verða ekki
raktar hér. En íslenzkir íþrótta-
raenn þakka brautryðjandanum
öll hans fórnfúsu störf, sem
hvetja til dáða.
Og víst er að fátt mundi gleðja
Sigurjón meir en það, ef ís-
Gunnar M. Magnúss:
Stjáni hækkaði sig um tvö þrep og var nú hátti
uppi.
Finnur hækkaði sig um eitt þrep.
„Það geta fleiri talað við (enska skipstjóra
heldur en þú, óþokkinn þinn, og þú skalt, sveí
mér, bráðum fá að vorkennast“.
„Líttu bara á hendina á skipstjóranum“, kallaði
Stjáni. „Ef ég bendi á þig, er ég hræddur um, að
hann láti-þig ekki fara lengra upp í reiðann. Ert
ég æ'tla ekki að benda á þig strax, þó atð þú ættir
það skilið fyrir vantraustið, sem mér var sýnt í
Glasgow. Ég veit, að þú ert búinn að biðja alla
íslendinga hér um borð að taka ekki við mér í
Ameríku, en ég borga fyrir mig síðar. Ég er bú-
inn að tala við skipstjórann; ég hlýði hans bend-
ingum“.
En nú voru krakkar og fullorðið fólk farið að
safnast saman á þilfarinu, og Víðigerðisbörnin
voru orðin hrædd um pabba sinn. Brátt laust
upp ósamhljóða köllum frá þeim:
„Láttu ekki skjóta þig, pabbi, láttu ekki benda
á þig, pabbi, ótuktin getur látið skjóta þig“, og
konan lagði sjálf orð í belg: „Láttu þetta eiga)
sig, það sjá allir, að þetta er óræktarormur og
óviðráðanlegur, þó að við gerum allt' okkar bezta"<
Og Finnur leit niður og sá á andlitum allra,
að það var satt, hann hafði gert sitt bezta og fikr*
aði sig því aftur niður á þilfarið.
En Stjáni hrópaði úr reiðanum:
lenzkir æskumenn sem hann
hafði íröllatrú á, myndu stíga
á stokk og strengja þess heit að
efla og standa vörð, um íþrótta-
mál íslands. Það væri í anda
Sigurjóns og þess málefnis sem
hann unni af lífi og sál.
SKIPAttTGCRÐ
RIKISINS
Hekla
austur um land í hringferö sarn-
kvæmt áætlun miðvikudaginn,
11. þ.m. Pantaðir farmiðar ósk-
ast sóttir og flutningi skilað í
dag. Skipið tekur vörur til
hafna frá Fáskrúðsfirði til Seyð-
isfjarðar og til hafna frá Þórs-
höfn til Húsavíkur.
Að aflokinni ofangreindri ferð
verður skipið tekið til viðgerðar
vegna tjóns er það varð fyrir og
fellur því niður áætlunarferðin
21. til 26. maí.
Es ja
fer vestur um land í hringferð
11. þ.m. Vörumóttakatil áætlun-
arhafna frá Patreksfirði til Ak-
ureyrar í dag og á morgun.
Pantaðir farmiðar verða selaij?
á fimmtudag.